Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Side 9
LAUGARDAGUR 8. NÖVEMBER 1986.
53
Ríkisstjórinn á fjáröflunardegi slökkviliðsmanna.
ræða við menn eins og Francois
Mitterrand Frakklandsforseta er
hann heimsótti Bandaríkin og það
er ekki langt síðan að Cuomo sagði
einum samstarfsmanni sínum að
hann þekkti Buffalo vel en vissi lítið
um Beirút.
Hvað annað segja menn um
Cuomo?
William Stern sá eitt sinn um fjár-
mál New Yorkríkis undir stjórn
Cuomo. Stern er þægrimaður og átelr
ur ríkisstjórann fyrir að vilja hlut
þess opinbera í þjóðlífinu of mikinn
eða eins og hann segir: „(Herra Cu-
omo) er mikill eyðsluseggur sem vill
að opinberir aðilar taki þátt í öllu.“
Þannig hljómar því hluti þeirrar
gagnrýni sem frá hægrimönnum
kemur.
Frá vinstrimönnum kemur einnig
gagnrýni. Þannig segir Walter Hang
sem stýrir Áhugahópi New York-
borgar um almenna velferð að
Cuomo sé meiri í orði en á borði.
„Hann er alltaf að tala um alls kon-
ar áætlanir en fylgir þeim ekki eftir.“
Nokkur orð frá Cuomo sjálfum
„Það er ekki auðvelt fyrir mig að
trúa því að það sé ekki til maður sem
er hæfari og hefur meiri líkur á því
að sigra,“ sagði Cuomo nýlega í
blaðaviðtali er hann var beðinn að
segja eitthvað um hvort hann hygð-
ist leita eftir útnefningu sem forseta-
efni. „Ég hef engar áætlanir gert um
það. Hvers vegna ætti ég þó að segja
að það komi ekki til greina. Ég kynni
að verða fyrir eldingu eins og Sál.
Held ég þá að það verði einhver
breyting? Nei, en auðvitað getur hún
orðið.“
Það er því ljóst að það hefur ekki
orðið mikil breyting á opinberri af-
stöðu Cuomo frá því hann lét sér þau
ummæli um munn fara sem getið er
fremst í þessari frásögn. Menn velta
því hins vegar í síauknum mæli fyrir
sér hvernig honum myndi vegna í
forsetakosningum.
Hvað segja skoðanakannan-
ir?
Skoðanakannanir benda til þess að
Cuomo hafi talsvert fylgi. Þannig er
hann næst á eftir Gary Hart. Niður-
stöður könnunar í júlí síðastliðnum
sýndu að Hart hafði fylgi 30% kjó-
senda en Cuomo 14%. Margt gæti
hins vegar breyst á tveimur eða sex
árum. Forsetaframbjóðandi þarf aft-
ur á móti að gæta sín vel er hann
ræðir við fréttamenn og almenning
og hann má ekki tala af sér eins og
Cuomo gerði í ummælum sínum um
Mafíuna. Þá má hann heldur ekki
sýna of mikla viðkvæmni því öllum
er í fersku minni hvaða áhrif það
hafði er Edmund S. Muskie felldi tár
í sjóinn í New Hampshireríki 1972.
Loks má ekki gleyma því að vinsæld-
ir i New Yorkríki þurfa ekki endilega
að tákna vinsældir i Suðurríkjunum.
Það sem kann þó að ráða því hvort
hugsaniegir draumar Marios Cuomo
um Hvíta húsið rætast er hvort hon-
um tekst að sannfæra flokksbræður
sína og kjósendur um að hann sé ný
tegund af demókrata með nútíma-
hugmyndir en ekki bara gamaldags
demókrati sem hefur þjálfað sig í
þeirri ræðulist sem nú ber svo mikið
á í bandarískum stjórnmálum.
Þýð.: ÁSG.
Mario Cuomo á skrifstofunni.
ST. JÓSEFSSPÍTALI LANDAKOTI
LAUSAR STÖÐUR
Þurfum á góðu fólki að halda til starfa við ræstingar.
Vinnutími frá 7.30-15.30 eða 8-12. Unnið tvær helgar,
þriðja helgin frí. Upplýsingar í síma 19600/259 alla
virka daga frá kl. 10-14.
Reykjavík 8.11. 1986.
Sjúkrahús Skagfirðinga,
Sauðárkróki.
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, óskar að ráða
eftirtalið starfsfólk:
1. Ljósmóður, 100% staða frá 1. desember 1986.
2. Röntgentækni, 50% staða frá 1. desember 1986.
3. Sjúkraþjálfa, 50%-100% staða, nú þegar eða frá
1. janúar 1987.
4. Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða vantar frá áramót-
um i heilar stöður og hlutastörf.
Allar nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri á
staðnum og í síma 95-5270.
Útboð - stálhurðir
Hagkaup hf., Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar
eftir tilboði í smíði á stálhurðum og léttum
hurðum með stálkörmum fyrir verslanir og
stigaganga í verslanamiðstöð í Kringlumýri í
Reykjavík.
Tilboð óskast í eftirtaldar hurðir:
- Stálhurðir, 100 stk.
- Léttar hurðir, 40 stk.
Hurðir skulu afgreiddar á tímabilinu 15. janúar
1987 til 1. maí 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen hf., Ármúla 4, Reykjavík, frá
og með þriðjudeginum 11. nóvember 1986 gegn
5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til Hagkaups hf., Lækjar-
götu 4, Reykjavík, fyrir kl. 11.30 föstudaginn
28. nóvember 1986 en þá verða þau opnuð þar
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Hagkaup hf., Lækjargötu 4, Reykjavík.
Útboð - kælikerfi
Hagkaup hf., Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar
eftir tilboði í smíði og uppsetningu á kælikerfi
fyrir matvöruverslun Hagkaups í verslanamið-
stöð í Kringlumýri í Reykjavík.
Tilboð óskast m.a. í eftirtalda verkþætti:
- Kælipressur er anna allt að 250 kW.
- Eimsvala er anna allt að 370 kW.
- Allar tengingar og lagnir.
- Raflagnir og stýrikerfi.
- Uppsetningu og tengingu kæliborða.
Verkinu skal að fullu lokið 1. júní 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen hf., Ármúla 4, Reykjavík, frá
og með þriðjudeginum 4. nóvember 1986 gegn
5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til Hagkaups hf., Lækjar-
götu 4, Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn
9. desember 1986 en þá verða þau opnuð þar
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Hagkaup hf., Lækjargötu 4, Reykjavík.