Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Síða 15
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986. 59 Bílar Volvo 480 ES er raunverulegur sportbíll sem brýtur fyrri hefðir frá Volvo. Slíkur bíll hefur ekki komið úr þessum herbúðum frá því að P-1800 var og hét á sinum tima og varð frægur í höndum Dýrlingsins, Simon Templar. Afturendinn þykir sérlega vel heppnaður og þá sérstaklega frágangur afturljós- anna sem eru innfelld. Umsjón: Jóhannes Reykdal Reynsluakstur Volvo 480 ES: Sportbíll með mikla aksturs- eiginleika Það vakti mikla athygli fyrr á þessu ári þegar „ný kynslóð" bíla var kynnt hjá Volvo-verksmiðjunum. Þetta var Volvo 480 ES sem á rætur að rekja til verksmiðju Volvo í Holl- andi. Volvo Car BV í Hollandi á miklum framgangi að fagna þessa dagana. 300 línan hefur aldrei selst betur en einmitt nú. Samt sem áður var beðið eftir nýjum bíl, bæði sem arftaka 300 línunnar hollensku og 240 línunnar frá Gautaborg. Talsmenn Volvo hafa varist allra frétta á hvaða braut nýj- ungar muni verða og ekkert gefið út á það hvort þessi nýi bíll í 400 lín- unni verður beinn arftaki hollensku framleiðslunnar eða hvort hér er á ferðinni boðberi þess sem kemur síð- ar frá Gautaborg. Um síðustu helgi flutti Veltir hf., umboðsaðili Volvo á íslandi, með söludeild nýrra og notaðra bíla í nýtt og glæsilegt húsnæði í Skeif- unni 15. Af því tilefni voru sýndir allir þeir bílar sem Volvo framleiðir, þar á meðal hinn nýi 780 sem teikn- aður er af Bertone hinum ítalska og 480 ES bíllinn frá Volvo í Hollandi. I Volvó 480 ES er verið að sameina fortíð, nútíð og framtíð. Haldið er fast í hefðir varðandi öryggi og vand- aða smíði og tölvutæknin notuð til fulls. í útliti er 480 bíllinn líkastur sportbíl, enda búinn mörgum þeim eiginleikum sem krafist er af slíkum bílum. Hönnunin er rennileg, enda er loftmótstöðustuðull aðeins 0,34 sem er með því betra sem gerist. Við fyrstu kynningu á þessum bíl var það strax ljóst að þetta er fyrsti bíll í línu framhjóladrifinna bíla frá Volvo. Hér hefur ekki verið neitt sparað til að gera þennan bíl sem best úr garði. Sportlegt útlitið, fram- hjóladrif og þverstæður mótor og innrétting í háum gæðaflokki tala sínu máli. Volvo ætlar sér inn á dýr- ari markaðinn með þennan bíl. Aætlunin á bak við þennan bíl, sem nefndist E12, hefur staðið í sex ár og þótt þessi bíll beri einkenni Volvo þá er hér á ferðinni algjörlega hol- lensk framleiðsla. Allt bendir til að á næstunni muni þessi bíll koma með turbo eða forþjöppu á vélina og einn- ig er rætt um venjulegan fjölskyldu- bíl, byggðan á sömu hugmynd en með verulega breytt útlit. Án efa eru ekki allir á eitt sáttir um útlit 480 ES. Hann fer inn á nýja braut hvað varðar framleiðslu frá Volvo, línan líkist meira því sem sést hefur frá Japan, t.d. Honda og eins Ford Scorpio, svo eitthvað sé nefnt. Aukin notkun gerviefna 1 þessum bíl er notkun gerviefna meiri en áður hefur verið hjá Volvo. Framstykkið og hlífamar yfir niður- felldum framljósunum eru úr plast- efnum. Framrúðan er límd í til að auka styrkleika og hliðarrúður mynda sléttan flöt við yfirbygging- una til að minnka loftmótstöðu. Eins og margir bílar er hann án eiginlegr- ar þakrennu, en til að koma í veg fyrir að vatnið fossi yfir mann þegar stigið er út úr bílnum er gúmmíkant- urinn við hurðina lagaður þannig að hann kemur í stað rennú. Afturhlerinn er allur úr gleri, með léttum álramma til styrkingar. Hler- inn nær niður að innfelldum aftur- ljósunum, en myndar þar með fullháa brún inn í farangursrýmið. Plássið þar er 160 lítrar með aftursætunum uppréttum en eykst í 660 lítra ef aft- ursætin bæði eru lögð fram. I stað hillu yfir farangursrými er þunn dúkhlíf strengd yfir. Sæti fyrir fjóra Hvað innanrými varðar þá er þetta aðeins fjögurra manna bíll, því aftur í eru tveir stólar. Fótarými að aftan er með minna móti ef tveir fullvaxn- ir eru í framsætunum. Á móti koma þó nokkur þægindi fyrir aftursætis- farþega því hægt er að stilla halla baksins á þrjá vegu og á þann hátt eru þægindin svipuð og í framsætum margra bíla. Hirslur eru nægar, bæði innan á hurðum svo og til hliðar við aftur- sætin. Lokaðar hirslur eru á milli sætanna. Hins vegar er hanskahólfið sjálft í mælaborðinu kjánalega lítið. Fyrir framsætisfarþega eru þæg- indin mikil. Plássið er gott og sætin veita góðan stuðning. Bílstjórasætið er hægt að stilla á alla hugsanlega vegu. Þar við bætist og stilling á stöðu stýrishjólsins. Almennt séð hafa þægindin verið í fyrirrúmi við hönnun bílsins. Fjöðr- unin svarar vel og hljóðeinangrun er góð. Veghljóð heyrist lítið en vél- in minnir þó á sig við hærri snúning. Vélin er ættuð frá Renault og er sama 1,7 lítra vélin og kom frarn í 300-línunni á síðasta ári. 1480 bílnum er hún búin tölvustýrðri beinni inn- spýtingu og kveikju. Auk þess er kveikjunni stýrt af skynjara sem kemur í veg fyrir kveikjubank og því er hægt að hafa þjöppunina 10,5:1. Hér nást 109 hestöfl út úr vélinni við 5800 snúninga á mínútu. Og krafturinn er nægur því hröðun úr 0 upp í 100 km tekur aðeins 9,5 sekúnd- ur og hámarkshraðinn er gefinn upp 190 km á klst. Við venjulegan akstur er þetta yfirdrifið afl, en í hrað- brautaakstri gæti vantað upp á aflið, en það lagast um leið og forþjappan kemur til sögunnar. Gírkassinn, sem er fimm gíra, er léttur og ég hef ekki fyrr reynt bíl sem rennur jafn ljúflega í fímmta gírinn og þessi. Góðir aksturseiginleikar I reynsluakstri kom í ljós að bíllinn er búinn óhemjugóðum aksturseigin- leikum. Framhjóladrif er hversdags- legur hlutur í dag, en hér hefur Hollendingunum tekist vel upp. Þetta er með betri bílum sem ég hef ekið um dagana hvað varðar akst- urseiginleika. Stýrið er mjög hlut- laust. Yfirleitt eiga bílar það til að yfir- eða undirstýra, en hér er það í fullkomnu jafnvægi. Við mikið álag var hægt að fá fram vott af undirstýr- ingu sem hvarf um leið og slakað var á inngjöfinni. Vegna áherslunnar, sem lögð hefur verið á hina sportlegu eiginleika bílsins þá er fjöðrunin fullstíf fyrir lélegri vegi. Lítið verður samt vart við að ójöfnur slái upp í stýrið. Jafnvægisstangir að framan og aftan hjálpa hins vegar mikið til í beygjum og ójöfnum og gera örugg- lega sitt til að halda bílnum jöfnum á veginum. Fjöðrunin að framan er næsta venjuleg McPherson gorma- fjöðrun en að aftan er heill öxull með sveifluörmum. Aflstýri er staðalbúnaður í bilnum og vinnur vel, er hæfilega þungt til að skapa tilfinningu fyrir beygjum. Vel búinn Vinnustaður ökumannsins er vel búinn tækjum. Mælaborðið er gott aflestrar og örtölva sér um að veita miklar upplýsingar um aksturinn og ástand vélarinnar. Þar er hægt að lesa í sama mæli bensíneyðslu þá stundina, meðaleyðslu í síðustu öku- ferð, meðalhraða, hve mikið hægt er að aka á bensínfyllingu, olíuhita, vatnshita og síðast en ekki síst úti- hitann. í köldu veðri og hálku eins og var í þessum reynsluakstri varar búnaðurinn við útihitastiginu og þar með hættunni á hálku. Útvarpið á Framendinn breytist mikið þegar billinn „opnar augun“ þegar Ijósin eru kveikt. sinn stað efst til hægri og þar undir eru sérmælar fyrir olíuþrýsting og hleðslu. Stýring á hitakerfi kemur þar fyrir neðan og er einföld og góð í notkun. Hins vegar lætur hátt í miðstöðinni þótt á hægari snúningi sé, nokkuð sem talsmenn Volvo segja að þegar sé verið að endurbæta. Auk þess' búnaðar, sem þegar hefur verið talinn upp, þá er 480 búinn þjófavarnarkerfi sem staðalbúnaði. Nýjar dyralæsingarnar eiga að vera öruggari gegn þjófum en áður og þjófavarnarkerfið er gangsett með því að læsa dyrunum með lyklinum. Séu dyrnar opnaðar án lykilsins fer það í gang með óhljóðum og fari það ekki í gang þá fer það næsta örugg- lega í gang ef reynt er að ræsa vélina. Þröngt inn- og útstig Ekki er þessi nýi Volvo án galla frekar en önnur mannanna verk. Inn- og útstig er önugt. Sætin eru fullframarlega miðað við opnun hurðanna. Hurðirnar eru stórar og þar af leiðandi þungar við opnun. Hávaði í miðstöð hefur þegar verið nefndur. Fyrir lappalanga líkt og mig er jafnvægi á milli afstöðu sætis, stýris og kúplingár og bremsupedala. Fyrir lágvaxnara fólk er sætið hins vegar komið fullnærri stýrinu ef af- staða til gólfpedala á að vera þægi- leg. Eins og sagði í upphafi þá ætlar Volvo sér með þessum bil að ná til kaupenda í dýrari verðflokkum bíla, enda er verðið í samræmi við það því bíllinn kostar hingað kominn 850.000 krónur eða svipað og 740 GLE, en það verður líka að taka mið af i hvaða flokki þessum bíl er ætlað að keppa. Ekki er búist við að þessib>!. hc.ini á markað hér fyrr en um áranr vegna anna í verksmiðjunum í Hol- landi sem ekki hafa undan eftir- spurninni í Evrópu. Að aftan opnast skuthlerinn vel en fullhátt er inn i farangursrýmið. Volvo 480 ES Vél: Fjögurra strokka, þverstæð, 1721 rúmsm. 109 hestöfl (80 kW) við 5800 sn. á mín. Þjöppun 10,5:1. Örtölvustýrð bein innspýting elds- neytis. Girkassi. Fimm gíra, þar af eru 4. og 5. gír yfirgíraðir (0,967 og 0,758). Stýri: Aflstýri (tannstangárstýri). Hemlar: Diskar á ölium hjólum, hjálparafl. Hjól: 185/60 HR 14. Þyngd: 1008 kiló. Eyðsla: Innanbæjar: 10,6 I á 100 km. 90 km: 5,9 I á 100 km. 120 km: 7,3 I á 100 km. Blandaður akstur: 7,9 I á 100 km. Verð i nóvember 1986:850.000 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.