Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
11
Fréttir
Höfh, Homafirði:
Áfimmta þúsund
tunnur saltaðar
Ágúst Guðmundsson GK landaði nýlega 130 tonnum af sild á Höfn.
DV-mynd Ragnar Imsland
Júlia Imsland, DV, Hofn:
. I Fiskimjölsverksmiðju Homafjarð-
ar hafa nú verið saltaðar 4218 tunnur
af síld. Ágúst Guðmundsson landaði
nýlega 130 tonnum. Þá var Steinunn
væntanleg með 75 tonn sem fengust
í Reyðarfirði. Haukafellið er búið með
sinn síldarkvóta og því hætt veiðum.
Því eru einu bátarnir, sem gerðir eru
út frá Höfn nú, Skinney og Steinunn.
Bráðlega halda svo Skógey og Vísir
til veiða.
í samtali við fréttaritara kvaðst Ást-
valdur Valdimarsson, verkstjóri í
Fiskimjölsverksmiðjunni, vera mjög
ánægður með samningana við Rússa.
Aftur á móti væri nefndinni legið á
hálsi fyrir að hafa ekki nægilega
margar tómar tunnur til taks. Sú
gagnrýni væri ranglát því nefndin
hefði staðið sig alveg frábærlega vel
því eftir tvo daga frá því að samningar
voru gerðir hefðu fjögur skip verið
lögð af stað frá Finnlandi með um
20.000 tunnur hvert. Enginn hefði vilj-
að kaupa mörg þúsund tunnur fyrr en
samningar hefðu verið frágengnir en
nú væm tómu tunnumar sumsé vænt-
anlegar hingað til lands í vikunni.
IÐCJ0LD 5IFREIÐATRYGGINGA FARA
EFTIR ÞEIM KOSTNAÐI, SEM HLÝST AF
T TJÓNUM OG SLYSUM. TT1
HÖFUM ÞVÍ í HUGA AÐ
AKSTURSMÁTI HVERS OC J 1 t T í
HEFUR BEIN ÁHRIF ÁIÐGJÖLDIN
BRunnBáraFÉLHG ísunos
Umboðsmenn um land alít
ARCTIC CAT
El Tigre árg. '87,
ca 94 hö.....kr. 418.500,-
Panthera árg. '87,
ca 72 hö., verð með
rafstarti..............kr. 362.000,-
Cougar árg. '87,
ca 56 hö.....kr. 319.000,-
Cheetah F/C árg. '87,
ca 56 hö...............kr. 349.000,-
Cheetah L/C árg. '87,
ca 94 hö...............kr. 436.000,-
Allir ofangreindir sleðar eru með
jafnvægisstöng.
Verð til björgunarsveita:
Cheetah F/C árg. '87,
ca 56 hö.....kr. 184.800,-
Cheetah L/C árg. '87,
ca 94 hö.,..kr. 220.600, -
Fullkomin varahluta-
og viðgerðarþjónusta.
_ ila-&
Vélsleðasalan
BIFREIÐAR & LaNDBÚNAÐARVÉLAR
84060 % 38600
Eskifjörður:
Búið að salta
í tæplega
23.000 tunnur
„Það er ekki nema gott eitt um það
að segja að samningamir við Rússa
skyldu nást. Þetta em að mínu mati
afar hagstæðir samningar fyrir okkur
íslendinga miðað við núverandi að-
stæður. Ég tel jafnframt nauðsynlegt
að þessi viðskipti geti haldið áfram í
framtíðinni."
Þetta sagði Kristmann Jónsson, for-
stjóri síldarsöltunarstöðvarinnar
Öskju á Eskifirði og formaður síldar-
útvegsnefndar, þegar fréttaritari
ræddi við hann. Söltun er nú í fullum
gangi á Eskifirði og hjálpast allir sem
vettlingi geta valdið að við að bjarga
verðmætunum. Magn það sem saltað
hefur verið í stöðvunum, þegar þetta
er skrifað, er eftirfarandi: Friðþjófur
5909 tunnur, Auðbjörg 4516, Eljan
3823, Þór 3038, Askja 2957 og Sæberg
2663. Þetta gerir samtals 22906 tunn-
ur. Á landinu öllu er nú búið að salta
í rúmlega 92000 tunnur.
Síðan samningamir tókust við
Rússa hefur verið saltað á hverjum
einasta degi í ofangreindum söltunar-
stöðvum. Er nú svo komið að sumar
stöðvamar hafa stöðvast vegna þess
að það vantar tómar tunnur. Er von
á skipi með tunnumar í lok vikunnar.