Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1987, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1987, Page 6
6 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987. Utlönd Nýárið byrjar með róstum í S-Afríku Nýárið byrjaði hrottalega í S-Afríku þegar þrír blökkumenn voru brenndir til bana í Soweto á nýársdag en ellefu meiddust og einn var drepinn í róstum sem urðu í örtröð á orlofsstöðum þar sem blökkumenn gengu berserksgang. Hið opinbera greinir frá þvi að blökkumaður og blökkukona hafi brunnið til bana þegar 20 manns gerðu að þeim aðsúg í Emdeni-hverfinu í Soweto. Brennumenn eru í þessum fréttum kallaðir svartir róttæklingar. Önnur kona var brennd til bana í hvítra-hverfi í Soweto af 90 blökku- mönnum sem veist höfðu að henni. Lögreglan fann enn einn blökkumann með brunasár en það var í Kwanobu- hle. - Þetta minnir á ..hálsbandamorð- in" eins og þau eru kölluð sem nokkur brögð hafa verið að síðustu þrjú árin. Hjólbarði, fylltur bensíni, er settur um háls fómardýrinu og síðan kveikt í. Algengustu fómardýr þessa hrotta- lega hálsbands hafa verið blökkumenn sem róttæklingar gruna um að vera undirþægir hinum hvítu yfirvöldum. Hópar blökkumanna gengu ber- serksgang á baðströndum við Ind- landshafið á nýársdag. Hafði þó lögreglan töluverðan viðbúnað á þess- um stöðum í Natal-strandhéraðinu eftir óeirðimar um jólin þar sem sex meiddust alvarlega. Þá gerðu blökku- menn aðsúg á nýársdag á Durban- baðströnd. hröktu sundverði og lokuðu sig inni í búningsklefum. Bar lögregluna að þegar skríllinn hafði ráðist að matsölustað í nágrenninu en þá mætti 'henni gijóthríð sem hún svaraði með haglaskotum (fuglahögl- um) og særðust níu af höglunum. Umsjón: Guðmundur G. Pétursson 1987 hófst með óeirðum i S-Afríku. Skemmdatverk á 100 NATO-skriðdrekum Spellvirki voru unnin á nær hundrað bandarískum skriðdrekum. sem hafðir vom í vörslu í herbúðum NATO í Luxemburg. Ekki er vitað hvenær skemmdar- verkin hafa verið unnin en það gætu verið nokkrir dagar eða jafrivel vikur síðan þvi að skriðdrekamir hafa ekk- ert verið hreyfðir í nokkrar vikur. Hafði verið fiktað við rafeindabúnað skriðdrekanna en þessi búnaður teng- ist stjómun þeirra og eins miðunar- búnaði fallbyssanna. í Sanem-herkampnum í suðvestur- hluta Luxemburg em tvö hundmð manns, aðallega héraðsmenn ráðnir þar til starfa. Skriðdrekamir em bandarísk-smíð- aðir af gerðinni M-60, sem er einn aðalskriðdreki Bandaríkjahers, vegur 56 smálestir og ber flögurra manna áhöfn. - í Sanem-kampnum em nokk- ur hundmð skriðdrekar, sem sjaldan yfirgefa kampinn nema fyrir meiri- háttar heræfingar. Strangur vörður er um kampinn sem er rammlega girtur. Grunur hefur vaknað um að skemmdarverkin hafi verið unnin inn- an frá af einhverjum kampveija. Elton John hefur veriö slæmur í hálsi að undanförnu og gengst undir aðgerð í næstu viku til þess að kom- ast að hvað veldur óþægindunum. Elton John í hálsaðgerð Breska rokkstjaman Elton John gengst undir skurðaðgerð á hálsi í Sydney í næstu viku. John, sem er orðinn fertugur, aflýsti tónleikum í desember vegna slæmsku í hálsi og á tónleikum í Sydney nokkm seinna hné hann niður á sviðinu. Læknar þar ráðlögðu honum að gang- ast undir skurðaðgerð. Ekki er vitað hvað amar að stjöm- unni en vonast er til að það komi í ljós við aðgerðina. Verður Elton John fjóra til fimm daga á einkasjúkrahúsi. Umboðsmaður hans heftir tilkynnt að John ætli að taka sér ársfrí til þess að hvíla röddina. Fundu mosku frálO. öld í Kenýa Fomleifafræðingar hafa fúndið rúst- ir þúsund ára gamallar mosku á strönd Kenýa. Em það elstu leifar íslamskrar menningar í Austur-Afríku. Var það leiðangur frá Oxford há- skóla í Bretlandi sem fann moskuna en hún er talin vera frá árinu 950. Þar sem moskan fannst var lítið samfélag innfæddra verslunarmanna en líklega hafa fáeinir arabískir versl- unarmenn frá suðurhluta Arabíu búið þar líka. í gömlum arabískum ritum er greint frá ferðum verslunarmanna til austur- strandar Afríku á fyrstu og annarri öld eftir Krist. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb. Lb.llb.Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 3-10.5 Ab 6 mán. uppsögn 10-15 Ib 12 mán. uppsögn 11-16,25 Sp. Vélstj. 18 mán. uppsögn 16-16,25 Bb Sparnaður-Lánsréttur Sparað i 3-5 mán. 9-13 Ab Sp. i 6 mán. og m. »-13 Ab Ávísanareikningar 3-9 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb 6mán.uppsögn 2,5-4 Úb Innlán með sérkjörum 8,5-17 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-6,5 Sb Sterlingspund 9-10,5 Ab Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab Danskar krónur 7.5-9.5 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 15,75-16, 25 Ui Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge/19,5- 21 15-17 Almenn skuldabréf(2) Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-18 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5-6.75 Lb Til lengri tima 6-6,75 Bb.Lb Utlán til framleiðslu isl. krónur 15-16,5 Sp SDR 5-8,25 Allir nema Ib Bandarikjadalir 7.5-7,75 Allir nema Bb.lb Sterlingspund 12,75-13 Allir nema Ib Vestur-þýsk mörk 6,25-6,5 Allir ncma Ib Húsnæðislán 3,5 Lifeyrissjóðslán 5-6,5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala 1542 stig Byggingavisitala 281 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. okt HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 111 kr. Eimskip 228 kr. Flugleiðir 200 kr. Hampiðjan 133 kr. Iðnaðarbankinn 130 kr. Verslunarbankinn HOkr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila. er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs- vexti og Landsbankinn miðar við 21% ársvexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf tif uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- um. Við kennum þér alla almenna dansa, bæði samkvæmisdansa og gömlu dansana. Bamadansar fyrir yngstu kynslóðina. Byrjenda- og framhaldsfiokkar Innritun fer fram dagana 2.-5 janúar kl. 13-19 í símum 40020 og 46776. Kennsluönnin er 20 vikur, kennsla hefst 5. janúar og önninni lýkur með lokaballi. Til að tryggja góða kennslu er fjöldi nemenda í hverj- um hópi takmarkaður. FjD _ Betri kennsla _ betrj árangur, Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Auðbrekku 17, Kópavogi. Símar 40020 og 46776.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.