Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1987, Page 23
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987.
23 *'
Hinhliðin
• Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri islenska landsliðsins i handknattleik, segir að uppáhaldsstjórnmálamaður
sinn sé Jón Baldvin Hannibalsson.
-segir Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri íslands í handbolta
Guðjón , „Gauba“ Guð-
mundsson, liðsstjóra ís-
lenska landsliðsins í
handknattleik, þekkja allir
sem á annað borð fylgjast
með handknattleik. Það
var árið 1968 sem Guðjón
hóf að iðka handknattleik
með Víkingi og lék hann
með öllum yngri flokkum
félagsins. Árið 1975 varð
hann liðsstjóri meistara-
flokks félagsins og þegar
Bogdan hóf að þjálfa
meistaraflokk félagsins
varð Guðjón liðsstjóri hjá
honum og segja má að
hann hafi verið það síðan.
Eftir að Bogdan hætti með
Víking og tók við landslið-
inu „flutti“ Guðjón sig með
honum og hefur verið í
liðsstj órastarfínu með
Bogdan öll þau ár sem
hann hefur verið landsliðs-
þjálfari. Segja má að
handknattleikurinn sé líf
og yndi Guðjóns. Hann
starfar nú á skrifstofu
Handknattleikssambands
Islands og mun væntan-
lega starfa þar fram að
ólympíuleikunum í Seoul
árið 1988, næsta stórverk-
efni landsliðsins. Guðjón
er í Hinni hliðinni að þessu
sinni og svör hans fara hér
á eftir:
Fullt nafn: Guðjón Guðmundsson.
Aldur: 32 ár.
Maki: Karen Christiansen.
Starf: Starfsmaður Handknattleiks-
sambands fslands.
Laun: Lítil.
Bifreið: Mazda 323 árgerð 1982.
Helsti kostur: Eftirgefanlegur.
Helsti veikleiki: Staðfastur.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir
tvær milljónir í happdrætti? Ég
myndi leggja mig og hugsa málið.
Myndi þig langa til að verða ósýni-
legur í einn dag? Já, og ef svo færi
myndi ég verða áttundi maður í leik
með íslenska landsliðinu.
Umsjón:
Stefán
Kristjánsson
Mestu vonbrigði í lífinu: Tapið á
móti Suður-Kóreu á HM í Sviss.
Mesta gleði í lífinu: Stórsigur lands-
liðsins gegn Dönum á HM í Sviss.
Uppáhaldsmatur: Nautalundir.
Uppáhaldsdrykkur: Koníak.
Uppáhaldslag: Borgarblús með
Gunnari Þórðarsyni.
Uppáhaldssöngvari: Steye Wonder.
Uppáhaldshljómsveit: Beach Boys.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsíþróttamaður: Einai' Þor-
varðarson, landsliðsmarkvörður í
handknattleik.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ög-
mundur Jónasson.
Uppáhaldsblað: Morgunblaðið.
Uppáhaldstímarit: íþróttablaðið.
Uppáhaldsrithöfúndur: Halldór
Laxness.
Ef þú vrðir bóndi á morgun. með
hvaða skepnrn- vildir þú helst búa?
Hesta.
Við hvaða skepnur ert þú mest
hræddur? Mannskepnuna.
Hefur þú í huga að kjósa sama flokk
í komandi alþingiskosningum og þú
kaust síðast? Já. ég reikna fastlega
með þvi.
Hlynntur eða andvígur núverandi
ríkisstjóm? Hlynntur.
Hlvnntur eða andvígur núverandi
meirihluta í borgarstjóm Revkjavík-
ur? Hlynntur.
Hvaða verk ert þú ánægðastur með
af verkum þínum á síðasta ári: Ár-
angur landsliðsins.
Eitthvað séi’stakt sem þú stefhir að
á nvbyrjuðu ári? Einfaldlega að gera
betur en á því síðasta.
Ef þú yrðir að syngja lag að við-
stöddu miklu fjölmenni á Amarhóli.
hvaða lag myndir þú velja þér? Öxar
við ána.
Myndir þú telja þig góðan eigin-
mann? Já, það geri ég.
Vaskar þú upp fvTÍr eiginkonuna?
Já, það kemur fvrir.
Besta bók sem þú hefur lesið: Bókin
um Einar Olgeirsson.
Fallegasti kvenmaður sem þú hefúr
séð: Konan mín.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta: Donald Southerland.
Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég
eyddi mínu sumarleyfi í handknatt-
leik og fór til Moskvu.
Hvor finnst þér myndarlegri Nancy
Reagan eða Raisa Gorbats.jova? Sú
rússneska. _SK.
RITARI
Utanríkisráðuneytið óskarað ráða ritara til starfa í utan-
ríkisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu öðru
tungumáli auk góðrar vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir
að ritarinn verði sendur til starfa í sendiráðum íslands
erlendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu,
Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík, fyrir 15. janúar nk.
Utanríkisráðuneytið.
Byggingarnefnd flugstöðvará Keflavíkurflugvelli býð-
ur út skilti og merkingar innanhúss í nýrri flugstöð.
Verkinu skal vera lokið 31. mars 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræóistof-
unni, Fellsmúla 26, Reykjavík, frá og með mánudegin-
um 5. jan. gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu berast Al-
mennu verkfræðistofunni eigi síóar en 23. jan. 1987.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar, Varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Skúlagötu 63,
105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 30. jan.
1987.
Byggingarnefnd flugstöóvar
á Keflavíkurflugvelli.
t-
ÚRVALS NOTAÐIR
Árg. Km Verð
Opel Corsa LX 1986 9.000 300.000
Opel Corsa, 5 d. 1986 5.000 310.000
Isuzu pickup, yfirb., d. 1984 27.000 750.000
CH. BlazerclO, sjálfsk. 1983 80.000 800.000
Isuzu Trooper bensín 1983 30.000 620.000
Buick Skyíark Itd. 1981 85.000 365.000
MMC Galant 2000 1979 100.000 170.000
Mazda 929 hardtop 1981 112.000 250.000
AMC Eagle 1981 33.000 m 350.000
Oldsm. Cutlassd. 1982 158.000 550.000
Ch. Capri Classicd. 1982 720.000
MMC Galant 2000 GLS 1982 79.000 250.000
Audi 100 LS 1982 98.000 370.000
Saab 99 GLI 1981 38.000 310.000
Saab 99 GLI 1981 87.000 260.000
Opel Kadett GL, 5d. 1985 24.000 380.000
Opel Ascona fastback 1984 13.000 400.000
Subaru 1800 4x4 1984 72.000 430.000
Datsun Bluebird 1981 60.000 265.000
Mercedes Benz 280 S 1973 250.000
Lada station 1978 50.000
Ch. Malibu Sedan 1979 75.000 220.000
Isuzu Trooper bensín 1982 84.000 520.000
MMCTredia 1983 72.000 330.000
Isuzu van dísil 1983 60.000 380.000
Isuzu Trooper bensin 1984 24.000 750.000
Citroen Axel 1986 10.000 230.000
Volvo 244 DL 1980 89.000 270.000
Opið laugardaga 13-17.
Sími 39810 (bein lína).
BÍLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO