Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1987, Page 24
24
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987.
Knattspyma unglinga
Það vakti athygli mína hvað
flestir krakkanna voru í góðu jafn-
vægi jafiit utan vallar sem innan.
Hér hefiir orðið mikil breyting til
batnaðar.
Fyrir nokkrum árum var það al-
geng sjón að heilu knattspymuliðin
í yngstu flokkunum væru heldur illa
til höfð eftir tapaðan leik og ekki
óalgeng sjón að flestir væru hágrát-
andi inni í klefa.
Þegar ég leit inn í klefa keppenda
Framkoma
kvakkanna
til mikils
sóma
eftir úrslitaleiki Reykjavíkurmótsins
voru leikmenn afslappaðir og leið
vel þrátt fyrir tap.
Þetta atriði hefur gífurlega mikið
að segja, ekki síst heilsufarslega. Svo
er það hin siðferðilega hlið málsins:
Að kunna að taka tapi sem sigri með
reisn, sem skiptir svo miklu máli
fyrir einstaklinginn, og það sýndu
drengimir að þeir kunna svo sann-
arlega.
-HH
- -
4. flokkur:
Valur með áberandi
besta liðið í 4. fl.
Valur-Víkingur, 5-1
TU úrslita um Reykjavíkurmeist-
aratitilinn í 4. fl. léku Valur og
Víkingur. í upphafí virtist óöryggi
einkenna leik liðanna, einkum
Víkinganna sem raunverulega
komust aldrei í gang. Valsstrák-
arnir gengu því á lagið og áður en
varði var staðan orðin 3-0, Val í
hag. Fyrsta markið gerði Friðrik
Sölvi Gylfason úr vítaspyrnu.
Sveinn Sigfinnsson gerði tvö næstu
mörk á sinn alkunna snaggaralega
hátt og má segja að þar með hafi
úrslit leiksins verið ljós.
Víkingar löguðu þó stöðuna í 1-3
rétt undir lok fyrri hálfleiks þegar
Helgi Sigurðsson skoraði úr víta-
spymu sem réttilega var dæmd á
Valsmenn.
Síðari hálfleikinn léku Valsmenn af
miklu öryggi og bættu við tveimur
mörkum, þeirra Ólafs Indriða
Trvggvasonar og Friðriks Sölva
Gylfasonar.
5-1 sigur Vals verður að teljast rétt-
lát úrslit þótt Víkingar hefðu getað
minnkað muninn undir lokin þegar
Guðmundi Ámasyni mistókst víta-
Valsstrákamir sigmðu í öllum sín-
um leikjum sem sýnir að hugarfarið
var í lagi og ásetningurinn. Liðið er
skipað góðum strákum sem léku af
skynsemi og sýndu góða baráttu í
þessu móti. Mest áberandi vom þeir
Dagur Sigurðsson, Sveinn Sigfinns-
son. Friðrik Sölvi Gylfason og Ólafúr
Indriði Tryggvason.
Víkingar náðu aldrei vel saman í
þessum leik en þrátt fyrir það skipa
liðið margir góðir einstaklingar. Bestir
vom þeir Einar Birgis, Helgi Sigurðs-
son, Guðmundur Ámason og Haukur
Ófeigsson. Að öðm leyti skipa Vík-
ingsliðið eftirtaldir leikmenn: Hilmar
Bjömsson, Gísli Ólafsson, Lárus Har-
aldsson og Jón Egill Þórisson.
Maður leiksins: Dagur Sigurðsson,
Val.
-HH.
Sagt eftir leikinn:
Dagur Sigurðsson, fyrirliði 4. fl.
Vals: „Víkingamir vom slakari en ég
bjóst við. Við áttum sigurinn fyllilega
skilinn."
Guðmundur H. Ámason, fyrirhði
4. fl. Víkings: „Ég er ekki ánægður
með þessi úrslit. Við getum miklu
meira. Valsstrákamir áttu mun meira
spyma. í leiknum og því fór sem fór.“
r 1
. Riðlakeppni 4. og 5. fl. |
. 4.flokkur 5. flokkur
| A-riðill: A-riðill: 1
■ ÍR-KR 2-4 Leiknir-V íkingur 4-6 I
1 Leiknir-Víkingur 1-1 Valur-Fram 2-2 1
| KR-Víkingur 1-2 Víkingur-Fram 6-7 1
■ ÍR-Leiknir 4-3 Leiknir-Valur i-7 J
| Leiknir-KR 1-2 Valur-Víkingur 10-4 I
Víkingur-ÍR 5-4 Fram-Leiknir 2-5 .
1 ■ Víkingur 3 2 1 0 8- 6 5 Valur 3 2 1 0 19- 7 5 ■
1 KR 3 2 0 1 7- 5 4 Fram 3111 11-13 3 1
■ ÍR 3 10 2 10-12 2 Víkingur 3 10 2 16-21 2 1
■ Leiknir 3 0 1 2 5- 7 1 Leiknir 3 1 0 2 9-15 2 1
■ B-riðill: B-riðill: 1
| Fram-Valur 0-2 Fylkir-KR 0-i I
_ Þróttur-Fylkir 3-5 Þróttur-ÍR
1 Valur-Fylkir 7-1 KR-fR ÍW 1
1 Fram-Þróttur 5-2 Fylkir-Þróttur 3-3 |
1 Þróttur-Valur 3-5 Þróttur-KR 1-9 1
| Fylkir-Fram 2-2 ÍR-Fylkir 6-2 |
1 Valur 3 3 0 0 14- 4 6 KR 3300 13- 26 1
m Fram 3 111 7-6 3 ÍR 3 2 0 1 10- 6 4 .
| Fylkir 3 111 8-12 3 Fylkir 3 0 1 2 5-10 1 |
l^róttur 3 0 0 3 8-15 0 Þróttur 3 0 1 2 5-15 1 |
-----------------------. „ .. M iQQR í aftari röð frá vinstri: Jón Óskar
ykjavikurmeistarar KR t 5. 'lo^ ej Nökkvi Gunnarsson, Þor-
jmundsson, GesturPalsson, Andn Sveinsson^^^ ^ ^ fr. vinstN:
sinn Bogason og Jonas Kristin Daðj lngóifSson fyrirliði,
ynjar Gunnarsson, Sigurður Oli ður með 6. fiokki, og Einkur
idri Sigþórsson, en hann er einn g DV-mynd HH
KR-ingar sigruðu Val,
6-5, í góðum leik
- Andri Sigþórsson skoraði 5 marka KR-inga
4. flokkur Vals, sigurvegarar í Reykjavíkurmótinu 1986 (innanhúss). í aftari röð talið frá vinstri: Sævar Tryggvason
þjálfari, Helgi Jacobsen, Friðrik Sölvi Gylfason, Dagur Sigurðsson fyrirliði og Ólafur Indriði Tryggvason. í fremri
röð frá vinstri: Rafn Hilmarsson, Sveinn Sigfinnsson, Friðrik Jónsson og Júlfus Axelsson. (DV-mynd HH)
5. flokkur: náði forustu fyrir KR (5-4) og Vals-
menn jafna 5-5) með hörkuskoti Ólafs
Brynjólfesonar (5-5). Rétt undir lokin
skoraði Andri Sigþórsson sigurmark
KR-inga í 6-5 sigri þeirra en drengur-
inn var svo sannarlega iðinn við
kolann því hann skoraði 5 marka
KR-inga.
Bestir í annars jöfnu liði KR vom
hinn marksækni Andri Sigþórsson,
Sigurður Óli Hákonarson, Nökkvi
Gunnarsson, Andri Sveinsson og Daði
Ingólfsson (fyrirliði).
I Valsliðinu bar mest á þeim Einari
Kristjánsson (fyrirliða), tvíbumnum
Ólafi og Guðmundi Brynjólfssonum,
Ólafi Helga Ingasyni, Valtý Stefáns-
syni og Ingva Snæ Einarssyni.
Leikur liðanna var bráðskemmtileg-
ur og kunnu hinir fjölmögu áhorfend-
ur vel að meta hugmyndaríki og
flóknar tæknibrellur hinna ungu leik-
manna.
Maður leiksins: Andri Sigþórsson,
KR.
- HH -
Úrslitaleikurinn í 5. flokki milli
KR og Vals var allan tímann mjög
spennandi því mikið jafnræði var
með liðunum. Þegar 10 sek. voru
til leiksloka var staðan 5-5 og allt
gat gerst. En þá komst hinn frá-
bæri framheiji KR, Andri Sigþórs-
son, inn fyrir vöm Vals og skoraði
6. mark KR-inga og sigurinn þar
með í höfn.
Valsstrákamir byijuðu leikirm af
miklum krafti og tóku snemma forustu
með marki Einars Kristjánssonar eftir
skemmtilegan samleikskafla. Stuttu
seinna jafiiaði Andri Sigþórsson fyrir
KR eftir harða sóknarlotu KR-inga.
Mikill hraði færðist í leikinn og
skiptust liðin á upphlaupum og voru
sum hver mjög skemmtilega útfærð
hjá báðum liðum. í einu slíku ná
KR-ingar forustu, 2-1, og enn var
Andri Sigþórsson þar að verki. Vals-
menn gera nú allt sem þeir geta til
að jafna og voru nærri því þegar hinn
snjalli framherji Vals og fyrirliði, Ein-
ar Kristjánsson, brenndi af í góðu
færi. En KR-ingar sneru vöm í sókn
og í hraðaupphlaupi bætti Andri Sig-
þórsson við 3. marki KR-inga með
glæsilegu langskoti.
Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálf-
leik þrátt fyrir góða tilraun beggja
liða. Staðan því 3-1 KR í vil.
Valsstrákamir komu mjög ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og sóttu stíft
og eftir góðan kafla skoraði Einar
Kristjánsson laglegt mark og staðan
3-2 fyrir KR.
KR-ingar svömðu með harðskeytt-
um sóknarlotum og bætti Andri
Sveinsson við 4. marki KR sem hann
skoraði af miklu harðfylgi. Staðan
orðin 4-2 fyrir KR og útlitið ekki gott
fyrir Valsstrákana. En annað átti eftir
að koma í ljós. Ólafúr Helgi Ingason
(sonur Inga Bjöms Albertssonar)
skoraði 3. mark Vals með góðu skoti.
Stuttu síðar jafna Valsmenn (5-5) með
marki Guðmundar Brynjólfssonar -
og allt á suðupunkti. Andri Sigþórsson
Sagt eftir leikinn:
Daði Ingólfsson, fyrirliði 5. fl. KR:
„Ég er ánægður með úrslitin. Valsliðið
er gott en við vorum bara betri í þess-
um leik.“
Einar Kristjánsson, fyrirliði 5. fl.
Vals: „Sigurinn hefði alveg eins getað
orðið okkar en við verðum að taka
þessu. Við óskum KR-ingum bara til
hamingju."