Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1987, Qupperneq 32
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987.
Kærumálum frestað
fram yfir helgi
- óttast mikla hörku ef ekki semst um helgina
Sáttafundur hófst í kjaradeilu sjó-
manna og útvegsmanna kl. 13 í
gærdag og stóð hann fram á kvöld.
1 gærkveldi var það mat manna að
ef ekki næðust samningar um helg-
ina mvndi mikil harka færast í
málið. ekki síst vegna þess að hátt
í 50 togarar eru farnir til veiða með
sölu erlendis í huga. Telja sjómenn
að útvegsmenn séu að koma sér
undan verkfalli á ólöglegan hátt.
Nú þegar er tilbúinn svartur listi
með nöfnum þeirra skipa sem sjó-
menn telja að séu að brjóta af sér
og verður fárið fram á löndunarbann
á þeim skipiun erlendis takist samn-
ingar ekki. 011 kærumál vegna
meintra verkfallsbrota verða þó
geymd fram vfir helgina í von um
að samningar takist.
I gærdag voru vinnunefndir samn-
ingsaðila að fara yfir og meta aðrar
kröfur sjómanna en höfuðkröfuna
sem er hækkun skiptaprósentu.
Guðjón A. Kristinsson. formaður
Farmannasambandsins. og Óskar
Vigfússon. formaður Sjómannasam-
bandsins. voru sammála um að þetta
verklag væri mjög til bóta. Menn
gætu þá betur gert sér grein fvrir
stöðunni þegar kæmi að máli mál-
anna. skiptaprósentunni.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari sagði að vel hefði unnist í
gær en hann átti þó ekki von á að
alvarleg lota hæfist í samningamál-
unum fyrr en í dag, laugardag. Aðrir
sem rætt var við á samningafúndin-
um virtust vera í mikilli óvissu,
sögðu erfitt að meta stöðuna. Þó
voru flestir á því að ef ekki semdist
um helgina eða miðaði vel í sam-
komulagsátt myndi þunglega horfa
í deilunni. -S.dór
Arekstur í Hveradolum:
Vél og gír-
kassi hrundu
á veginn
Mjög harður árekstur vai'ð í
Hveradölum eftir hádegið í gær er
þar skullu saman jeppi og fólksbíll
með þeim afleiðingum að flvtja varð
þrennt á slysadeild. Var áreksturinn
svo harður að vél og gírkassi jeppans
hrundu í heilu lagi niður úr honum
og á veginn.
Tvennt af því sem flutt var á slysa-
deild reyndist slasað en meiðslin
voru ekki talin alvarleg.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
varð áreksturinn með þeim hætti að
jeppinn. sem var á leið austur eða
upp svokallaða neðri Hveradala-
brekku, snerist í hálku í brekkunni
í veg fyrir fólksbíl sem var á vestur-
leið í átt til Reykjavíkur. Ökumaður
fólksbílsins revndi á síðustu stúndu
að aka bíl sínum út af veginum en
tókst það ekki alveg. Báðir bílaimir
eru nær gjörónýtir. -FRI
DV-mynd S
Eins og sjá má hrundu vélin og girkassinn úr jeppanum.
Ollu
starfsfólki
Háskólabíós
sagt upp
störfum
Öllu staifsfólki Háskólabíós hef-
ur verið sagt upp störfum frá
áramótum. Að sögn eins starfs-
manns bíósins er sú skýring gefin
að ákveðið sé að taka upp breyttan
sýningartíma sem aftur þýðir
breyttan vinnutíma starfsfólksins.
Flestir starfemennirnir eru með
3ja mánaða upj)sagnarfrest og
munu þoir ræða þetta mál í sínum
hópi um miðjan janúar.
-S.dór
Borgarspítalinn:
í algerri
óvissu
„Þetta er í algerri óvissu, því
miður,“ sagði Jóhannes Pálmason,
framkvæmdastjóri Borgarspítal-
ans, í gær um málefni meinatækna.
Enginn fundur hefur verið hald-
inn og enginn fúndur boðaður hjá
fulltrúum meinatækna og stjórn
Borgarspítalans fi-á því að 40
meinatæknar spítalans, allir nema
yfirmeinatæknir, létu af störfum
um áramót vegna óánægju með
kjör sin.
„Við sinnurn neyðartilfellum og
leggjum allt kapp á að slysadeild-
arþjónustu verði sinnt,“ sagði
Jóhannes.
í fréttatilkynningu sem Davíð
Oddsson borgarstjóri sendi frá sér
á gamlársdag segir að borgaryfir-
völd muni kanna hvort ekki sé
nauðsynlegt að leita atbeina dóm-
stóla vegna máls þessa. Telur
borgarstjórinn að hér sé um ólög-
legar verkfallsaðgerðir að ræða.
-KMU
Ávallt feti framar
SÍMI 68-50-60.
ÞROSTÚR
SÍÐUMULA 10
LOKI
Stundum er nú betra
að festa vélina!
Sunnanátt og víða skúrir
Á sunnudaginn verður sunnan- eða suðvestanátt og víða skúrir. Hiti verð-
ur við frostmark nema við suðurströndina. Þar verður 1-4 stiga hiti.
Það má gera ráð fyrir vestanátt og kólnandi veðri. Slydda eða snjóél verð-
ur um sunnan- og vestanvert landið en léttir til norðaustanlands. Hiti verður
á bilinu -5 til 1 stig.
Veðrið á mánudag:
Kólnandi veður