Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987. 51 Norræn Einar Karl Haraldsson Ágreiningur um alþj óðanefndina Anker Jörgensen ætlar aö flytja tillögu um skipan alþjóöanefndar á næsta þingi Noröurlandaráðs. Nú er þess að geta að andstaða hægri manna við nefndaskipunina um alþjóðasamskiptin er opinber- lega ágreiningur um form en ekki innihald. Þeir hafa lagt til að ríkis- stjórnunum verði falið að skipa nefndina, en tillögumenn telja að það jafngildi frávísun vegna þess hve mikil andstaða er við hug- myndina af hálfu embættismanna. Staða málsins er nú sú að meiri- hluti krata, vinstri sósíalista og miðjumanna í forsætisnefndinni og efnahagsnefndinni mælir með því að hinni fyrrnefndu verið falið að skipa 10 fulltrúa i alþjóðanefndina og setja þeim erindisþréf. Fulltrúar hægri flokkanna innan ráðsins hafa lagt fram ályktun þess efnis að ríkisstjórnunum verði falið um- rætt verkefni. Og það hefur verið látið fljóta með að undarlegur sé sá framgangsmáti að ákveða fyrst að skipa nefndina og síðan hvað hún eigi að gera. Taktík eða grundvallarafstaða? Það má spyrja hvað valdi þvi að hægri menn í ráðinu snúa skyndi- lega við blaðinu og veita málinu nú kröftuga mótspyrnu. Af leiðar- anum í Aftenposten má ráða að þeir óttist að hér sé verið að opna leið til umræðna um öryggis- og utanríkismál í ráðinu og það kunni að leiða til klofnings. Aftenposten minnir á að ákvörðunin um að ræða ekki hinar ólíku lausnir norr- ænu ríkjanna i utanríkis- og öryggismálum hafi verið tekin að tilhlutan Finna er þeir gengu í ráð- ið fyrir rúmlega þremur áratugum. Þessi bannfæring hafi gefist vel og nær sé að snúa sér að þeim brýnu samstarfsverkefnum, sem samstaða er um að sinna, heldur en að tefla norrænu samstarfi í hættu með ævintýramennsku. í leiðara blaðsins kemur einnig fram að hægri menn eru ergilegir út í Anker Jörgensen og umsvif krata í norrænum öryggismálum. Jörgensen beitti sér fyrir þing- mannaráðstefnu um kjarnorku- vopnalaus Norðurlönd í Kaupmannahöfn í nóvemberlok 1985. Síðan hefur starfað þing- mannanr'hd utan ramma Norður- landaráðs að þessu máli. Hægri menn hafa kosið að standa utan við. Þá hafa utanríkisráðherrar hægri manna til skiptis þvælst fyr- ir tillögum utanríkisráðherra krata um skipun embættismannanefndar til þess að kanna frekar hvernig koma mætti hugmyndinni um kjarnorkuvopnalaust svæði í fram- kvæmd, ef pólitísk samstaða næðist um stofnun slíks svæðis. I ljósi þess að danski utanrikisráðherrann er ekki sjálfráður um sína afstöðu vegna meirihluta rauðra og rót- tækra á þingi og að kominn er krati á stól utanríkisráðherra í Noregi, er helst talið að Matthías Á. Mat- hiesen muni næst reka staf sinn í hjól kratavagnsins á utanríkisráð- herrafundinum sem haldinn verður í Osló í mars. Nema hér sé á ferð- inni leikur í flókinni skák þar sem hægri menn hugsi sér að hleypa embættismannanefndinni af stað ef Norðurlandaráð fellst á að vísa alþjóðanefndinni til ríkisstjórn- anna. Aftenposten minnir á að það sé almennt viðurkennt að varkárni í öryggismálum innávið og útávið hafi ekki aðeins lagt sinn stóra skerf til hins norræna jafnvægis heldur einnig til friðar og lág- spennu í okkar heimshluta. Meiri- hlutinn í Nofðurlandaráði er hins vegar þeirrar skoðunar að þing- menn eigi að geta mótað og kynnt norræna sýn til ýmissa alþjóða- mála án þess að það heyri undir öryggismál. Einar Karl Haraldsson. Á þingi Norðurlandaráðs í Hels- ingfors mun danski krataleiðtog- inn Anker Jörgensen mæla fyrir tillögu um skipan alþjóðanefndar á vegum Norðurlandaráðs. Jan P. Syse, leiðtogi norskra hægrimanna á Stórþinginu, mun mæla gegn til- lögunni. Aftenposten í Noregi hefur kallað þessa tillögu „ótækt norrænt útspil“ og það mun vera í samræmi við skoðanir forseta Stór- þingsins, hægrimannsins Jo Benkov, þar sem segir í leiðara Aftenposten 30/1 að samþykkt þessarar tillögu kunni að verða upphafið að endalokum Norður- landaráðs. Sú tillaga, sem þessum geðs- hræringum veldur, var lögð fram á hinu merka Reykjavíkurþingi ráðsins 1985 af finnska þingmann- inum Per Stenbáck. Meðflutnings- menn hans voru þau Anker Jörgensen, Páll Pétursson, Reiulf Steen og Ingrid Sundberg. Sú síð- astnefnda er fulltrúi sænska hægriflokksins enda virtist enginn pólitískur ágreiningur um málið í byrjun. Hugmyndin var sú að skip- uð yrði nefnd til þess að kanna og gera tillögur um hvernig best væri að þróa og efla norrænt samstarf á alþjóðavettvangi. Satt að segja runnu þessi álykt- unardrög gegnum allar nefndir og ráð eins og vatn og ekki annað séð en að þau ættu greiða leið til end- anlegrar afgreiðslu. Annað hefur þó komið á daginn. Ríkisstjórnarmegin í norrænu sam- starfi líta fulltrúar utanríkisráðu- neytanna vægast sagt hornauga til hugmynda um að þingmenn geri sig breiða í alþjóðlegu samstarfi. Þeir telja að utanríkisstefnuna eigi að móta út frá þjóðarhagsmunum en síðan geti norrænu ríkin haft samstarf á alþjóðavettvangi eftir því sem við á. Og það er í rauninni meginregla að leita eftir norrænni samstöðu áður en mál eru flutt í alþjóðastofnunum sem Norðurlönd eiga aðild að. Flest mál hafa alþjóðlegar hliðar I Helsinkisáttmálanum um sam- vinnu norrænu ríkjanna eru samstarfssviðin talin upp í fyrstu grein og þar er ekki getið um utan- ríkis- og öryggismál. í greinum 33-37 er hins vegar hvatt til sem mests samstarfs á alþjóðavett- vangi, svo sem í alþjóðastofnunum, á alþjóðlegum ráðstefnum, í þróun- arstarfi og í kynningu á Norðurl- öndum út á við. Af hálfu tillögumanna hefur ve- rið margtekið fram að það er í hinum síðari skilningnum sem Norðurlandaráð vill auka sín al- þjóðlegu umsvif. Ekki á hinum bannfærðu sviðum utanríkis- og öryggismála. Bent er á að ríkisstjórnirnar geti hvenær sem er ákveðið að gera eitthvað sameiginlegt á alþjóða- vettvangi eða láta það vera. Ákveðið samstarfsform er fyrir hendi til slíkrar ákvarðanatöku. Hið sama gildir ekki um alþjóðleg samskipti á vegum þingmanna inn- an vébanda Norðurlandaráðs. Þó er staðreyndin sú að flest mál, sem til kasta Norðurlandaráðs koma, hafa ekki einasta norræna hlið heldur einnig alþjóðlega fleti sem vert er að hyggja að af hálfu þing- manna ekki síður en af hálfu ríkisstjórnanna. Sem dæmi um þetta má nefna málefni flótta- manna, loftmengun yfir landamæri og eyðnifaraldurinn. Viss þróun í gangi „Norðurlandaráð er enn ráðgef- andi þing, en vísir að löggjafar- þingi, þegar samstarf landanna kemst á hærri stig eftir nokkra ára- tugi,“ segir Benedikt Gröndal sendiherra af skarpskyggni í bækl- ingnum „Óþörf sendiráð?“ og bætir við: „Þjóðþing okkar byrjuðu öll á sama hátt, þar á meðal Alþingi." Þarna liggur hundurinn, sem nú er hlaupinn f norræna íhaldsmenn, líklega grafinn. Norðurlandaráð hefur breyst úr árlegri alþjóðaráð- stefnu í norrænt þing, að vísu með mjög takmörkuðum réttindum. I samræmi við þessa þróun hefur for- sætisnefnd ráðsins beitt sér fyrir ýmsum alþjóðlegum samskiptum sem hæfa slikri stöðu. Nefndir Norðurlandaráðs hafa í auknum mæli tekið upp beint samstarf við önnur alþjóðleg þingmannasamtök og forsætisnefnd ráðsins efndi til Evrópuráðstefnu um mengun yfir landamæri í fyrra og fór auk þess í mikla kynningarreisu til Evrópu- stofnana. Hvar á að nema staðar á þessari braut? Tillaga þings Norðurlandaráðs i Reykjavik árið 1985 um norrænt samstarf í utanrikismálum virðist ætla að valda verulegum deilum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.