Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
IBM-skakmotið:
Loks gladdi Tal alla
sína gömlu aðdáendur
- fómaði á báða bóga og gersigraði Kortsnoj
í skákinni gegn Jóhanni Hjartarsyni
á dögunum kom smáljósagangur hjá
gamla fléttusnillingum Mikhail Tal,
en í gærkveldi var hann svo með flug-
eldasýningu og gersigraði Viktor
Kortsnoj. Stundum er sagt að ekki
megi sýna Tal litla fingur, þá sé hönd-
in gripin. Það gerðist einmitt í
gærkveldi. Kortsnoj lék ónákvæmum
peðsleik og það var eins og við mann-
inn mælt, flugeldasýningin hófst hjá
Áttunda umferð IBM-skákmótsins
hefst kl. 14 á morgun, laugardag. Þá
tefla saman:
Helgi Ólafsson-Ljubojevich
Kortsnoj-Agdestein
Tal. Hann fómaði mönnum á báða
bóga og rústaði stöðuna hjá Kortsnoj.
Samt sem áður gafst Kortsnoj ekki
upp Þótt Tal hefði drottningu og tvö
samstæð frípeð gegn hrók og riddara,
og skákin fór í bið, en auðvitað til
einskis.
Margar skemmtilegar athugasemdir
fuku hjá mönnum sem voru að fylgj-
ast með skákinni á sjónvarpsskermi.
„Þama er hann lifandi kominn, þetta
Jón L. Árnason-Tal
Margeir Pétursson-Polugajevski
Short-Jóhann Hjartarson
Timman-Portisch
er Tal.“ „Svona leyfist mönnum ekki
að leika gegn Tal,“ sagði annar um
peðsleik Kortsnojs. „Rétt er það, hann
er refsivöndur skáklistarinnar,“ bætti
sá þriðji við. Og gamlir Tal aðdáendur
gengu. um brosandi út að eyrum og
sögðu: „Hvað sögðum við ekki. Nei,
þið skulið ekki afskrifa gamla mann-
inn.“
Skák þeirra Tal og Kortsnoj yfir-
skyggði allar aðrar skákir í gærkveldi
enda vom menn almennt friðsamir og
sömdu allir um jafhtefli, meira að segja
Short gegn Portisch, nema hvað Mar-
geir Pétursson hristi loks af sér slenið
og sigraði Jóhann Hjartarson. Skák
þeirra fór að vísu í bið, en þá var séð
að hveiju stefridi þar sem Margeir var
með tvö peð yfir og bæði á fríum sjó.
í dag er frídagur á mótinu og ef til
vill þess vegna vom menn svona fríðs-
amir í gærkveldi. Lokahrinan hefst
svo með 8. umferð kl. 14 á laugardag.
-S.dór
Þessir
Nokkuð fjölmennt var á 7. umferð
IBM-skákmótsins í gærkveldi. Með-
al þeirra sem mættu vom: Guð-
mundur J. Guðmundsson alþingis-
maður, Karl Benediktsson,
framkvæmdastjóri og handknatt-
leiksþjálfari, Ámi Njálsson kennari,
Ólafttr Hannesson prentari, Ólafur
Ormsson skákmaður, Þórður Þórð-
arson dyravörður, Ömólfur Thors-
son bókmenntafræðingur, Sigurjón
Gíslason, skákmaður úr Hafriarfirði,
Helgi Sæmundsson skáld, Hilmar
Viggósson, útibússtjóri Hellissandi,
Kristján Jónsson, forstjóri RARIK,
Ólafur Helgason bankastjóri, Egill
Valgeirsson rakari, Páll í Pólaris,
Magnús Sigmjónsson, Sæmundur
Pálsson lögregluþjónn, Karl Þor-
steins skákmaður, Ingvar Ásmunds-
son, skólastjóri og skákmaður,
Hilmar Bjömsson, kennari og hand-
knattleiksþjálfari, Guðmundur
Einarsson verkfræðingur, Leifur Jó-
steinsson bankamaður og skákmað-
ur, Láms Jóhannesson skákmaður,
Benedikt Jónasson skákmaður, Rík-
harð Björgvinsson framkvæmda-
stjóri, Baldur Pálmason útvarps-
maður, Ragnar Bjömsson
tónlistarmaður, Hermann Gunnars-
son, útvarps- og knattspymumaður,
Ásgeir Friðjónsson lögfræðingur,
mættu
Mile knattspymuþjálfari, Margeir
Daníelsson bankamaður, Guðni
Þórðarson framkvæmdastjóri, Bjöm
Þorsteinsson skákmaður, Þrándur
Thoroddsen kvikmyndagerðarmað-
ur, Gísli Ferdinantsson skósmiður,
Þröstur Þórhallsson skákmaður,
Hannes Hlífar Stefánsson skákmað-
ur, Ólafur Ólafsson skákfrömuður,
Tómas Ámason seðlabankastjóri,
Haukur Sveinsson póstfúlltrúi, Jón
Böðvarsson sagnfræðingur, Björg-
vin Jónsson skákmaður, Sigtryggur
Sigtryggsson fréttastjóri, Gylfi Þór-
hallsson, skákmaður frá Akureyri,
Magnús Pálsson rafiðnaðarfræðing-
ur, Bjöm Fr. Björnsson, fyrrum
alþingismaður, Gunnar Gunnarsson,
bankamaður og skákmeistari, Guð-
mundur Arason, fyrrverandi forseti
Skáksambandsins, Elvar Guð-
mundsson skákmaður, Karl Þor-
steins skákmaður, Bragi Garðarsson
prentari, Óskar Magnússon, lög-
maður og fyrrum fféttastjóri, Leó
Ingólfsson rafeindaffæðingur, Birgir
Ólafsson skrifstofumaður, Bjöm
Theodórsson, formaður Bridgesam-
bandsins, Guðjón Ingi Stefánsson
ffamkvæmdastjóri, Láms Johnsen,
fyrrum skákmeistari íslands, Hö-
skuldur Ólafsson bankastjóri.
-S.dór
Áttunda unvferð
tefld á morgun
Loks lafntefli hia Short
Skákir 7. umferðar:
Mikhail Tal stal senunni i gærkveidi þegar hann fléttaöi og fórnaði eftir ónákvæman peðsleik hjá Kortsnoj.
Þessi mynd af þeim fjandvinum er tekin nokkru áður en „fiugeldasýning" galdramannsins frá Riga hófst.
DV-mynd KAE
Portisch-Short 1/2-1/2
Loks kom að því að Nigel Short
gerði jafntefli á IBM mótinu. Hann
tefldi hollenska vöm gegn drottn-
ingarpeðsbyrjun Portisch og stýrði
síðan skákinni yfir í grjótgarðsaf-
brigðið. Miðtaflsstaðan var flókin
og þmngin möguleikum þar sem
Short blés snemma til sóknar á
kóngsvæng. Ungverjinn bægði þó
hættulegustu sóknartilburðum
Shorts ffá en jafhtefli var samið á
óteflt tafl í þessari stöðu:
Það er hvítur, Portisch, sem á leik
en síðasti leikur Shorts var 21.-Rd6-
f7. Ekki er gott að leggja mat á
stöðuna en líklega verður að ætla
að möguleikamir vegi nokkum veg-
inn jafht.
Með jafntefhnu heldur Short ör-
uggri forystu í mótinu.
Agdestein-Ljubojevic 1/2—1/2
Það er löngu komið í ljós að Júgó-
slavinn Ljubojevic er eitthvað miður
sín í þessu móti. Þær sögusagnir
hafa verið á kreiki að hann þjáist
af tannpínu og geti því ekki beitt sér
að fullu.
Meistaramir tefldu í gærkvöldi
drottningarbragð með Bf4 og jafn-
tefli var fljótlega samið eftir aðeins
15 leiki.
Timman-Helgi 1/2-1/2
Timman fór sér að engu óðslega í
byrjuninni, sem var drottningar-
bragð, og hefur væntanlega ekki
viljað lenda í sömu súpunni eins og
á móti Short.
Mörgum áhorfandanum leist mjög
vel á sóknarfæri Helga á kóngs-
vængnum en eftir að Timman lék
fram f peði sínu lokaðist taflið frekar
og ekki varð gott að sjá veikleika í
annarri stöðunni umffam hinni.
Gerðust taflmeistarar þá sáttfúsir
mjög og undirrituðu friðarsamning-
ana í snarhasti. Hafði hvítur þá rétt
lokið við sinn 19. leik.
Polugajevski-Jón L. 1/2-1/2
Jón tefldi drottningarindversku
vömina einkar ffumlega og var
kominn með kóngsriddara sinn út á
kant strax í 10. leik. Áttu áhorfendur
nú von á því að Jón myndi láta til
skarar skríða og væri búinn að jafiia
sig eftir áfallið gegn Timman með
síðustu tveimur jafiiteflum.
Polugajevski átti í nokkrum erfið-
leikum með liðskipan sína og afféð
því að hrókfæra á drottningarvæng.
Jón kaus hins vegar að færa konung
sinn í skjól á kóngsvæng tveimur
leikjum seinna og lá nú í loftinu að
ýmislegt gæti skeð í skákinni.
Sovétmaðurinn leitaði nú eftir
uppskiptum með því að vaða með
riddara sinn fram á borðið og upp-
skar yfirráð yfir opinni d-línunni.
Ekki fann hann þó álitlegt framhald
og þar sem tími hans var orðinn
naumur bauð hann jafntefli. Tók Jón
sig þá til og hugsaði í hálftíma um
jafhteflisboðið og eftir svo langa
hugsun gat hann auðvitað ekki ann-
að en þegið boðið og hefur sennilega
verið búinn að reikna út hundrað
jafhteflisleiðir.
Skák
Ásgeir Þ. Árnason
Tal-Kortsnoj 1-0
Það var ekki fyrr en undir lok set-
unnar sem eitthvað fór að gerast í
skák þessara fyrrum meðlima í sov-
ésku ólympíusveitinni. Kortsnoj
hafði beitt opna afbrigðinu af
spánska leiknum og fengið þrönga
en trausta stöðu. Þegar við komum
til leiks hefur hann þó þurft að láta
peð af hendi og vill því flækja taflið
og ná frumkvæðinu...
33. -g6?
Eftir 33.-Rxe4 34. Rxe4 Dxe4 35.
Dxc7 Hc6 ásamt Hc2 á svartur góða
jafhteflismöguleika, því ekki gengur
36. Rh6+? vegna 36.-Kh7! 37. Dxf7
Bc5+ ásamt 38. Kxh6.
34. Rh6+ Kg7 35. Rfg4!!
Mun sterkara en 35. Rxf7 Df6.
35. -hxg4 36. Hxf7+ Kxh6 37. Dxf8+
Kg5 38. h4+! Kxh4 39. Dh6+
Einfaldara var: 39. Hh7 + Kg5 40.
Dh6+ Kf6 41. Dh4+ Dg5 (4l.-g5 42.
Dh6 mát) 42. Df2+! Ke5 43. Dxc5 +
Kf6 44. Hf7 + og vinnur.
Textaleikurinn er seinvirkari
vinningsleið.
39.-Dh5 40. g3+! Kxg3
40.-Kh3? gengur beint í mát með
41. Dd2!
41. Df4+ Kh4 42. Df2+ g3 43. Hf4+
Kg5 44. Dxg3+ Kh6 45. Hh4 Hxe4
46. Hxh5+ Kxh5 47. Dxc7 Hér fór
skákin í bið en fiípeð hvíts gera
auðveldlega út um taflið.
Jóhann-Margeir 0-1
Þar kom að því að Margeir ynni
skák á IBM mótinu. Leitt er þó að
það þyrfti að vera á kostnað Jó-
hanns. Hins vegar er enginn annars
bróðir í leik.
Jóhann hafði frumkvæðið lengst
af skákinni en Margeir beitti slav-
neskri vöm sem snerist síðan út í
einhvers konar afbrigði af
Grúnfeldsvöm.
I miðtaflinu náði Jóhann að koma
riddara inn í herbúðir Margeirs á
c7 þar sem hann hafði lamandi áhrif
á hreyfingarmátt svörtu stöðunnar.
Þó gætti Jóhann sín ekki sem skyldi
og í stað þess að leika riddaranum
upp í homið og þaðan aftur út í spil-
ið gerðist hann strandaglópur á
óskareitnum og þegar halla tók á lok
setunnar var ljóst að Margeir hafði
snúið taflinu sér f vil.
Jóhann neyddist til þess að gefa
peð í framhaldinu til þess að losa
riddarann sjónumhrygga úr prí-
sundinni og freista þess síðan að ná
jafhtefli í hróksendatafli.
í tímahraki missti Jóhann síðan
endanlega af sénsinum með óná-
kvæmni sem kostaði hann annað
peð. Þegar skákin fór í bið var ljóst
hvert stefhdi þó úrvinnslan vefðist
eitthvað fyrir Margeiri og einungis
munað einu tempói í lokin að vinn-
ingurinn slyppi honum úr greipum.
Leiðrétting
Þau leiðinlegu mistök urði í stöðu-
mynd úr skák Kortsnojs og Pol-
ugajevskis í þættinum í gær að
hvítur biskup var látinn standa á
h4 og svart peð á h6. Rétt staða var
með biskupinn á g5 og peðið svarta
enn á upphafsreit. Beðist er velvirð-
ingar á þessu. áþá