Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Side 5
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987. 5 Fréttir Mál fýrrverandi fræðslustjora Vestfjarða: Hæstiréttur dæmir hann í 6 mánaða fangelsi Fyrir Hæstarétti er genginn dómur í máli ákæruvaldsins gegn fyrrverandi fræðslustjóra á Vestfjörðum en mál þetta snérist um notkun fræðslustjór- ans á 299, fólsuðum skjölum sem hann notaði í reikningsskilum við ríkissjóð. í dómsorði Hæstaréttar segir, að ákærði sæti fangelsi í 6 mánuði, greiði rúmlega 40.000 krónur, auk vaxta í skaðabætur til ríkissjóðs og beri sak- arkostnað og áfrýjunarkostnað sakar- innar Hin fölsuðu skjöl sem hér um ræðir eru, í fyrsta lagi 231 kvittun frá póst- húsum, útgefhum á árunum 1976-1982, í öðru lagi 63 ökugjaldskvittanir frá árunum 1981 og 1982 og loks fimm reikningar frá ritfangaverslunum á árinu 1982. í dómi Hæstaréttar segir að mörg þessara skjala beri ljóslega með sér að tölum í þeim hafi verið breytt með því að bæta tölustöfum framan við eða inn í tölur, breyta tölustöfum o.fl. Eru viðbætur þessar oft gerðar með annars konar bleki eða öðruvísi penna. Hæstiréttur segir að þótt ekki sé sannað svo óyggjandi sé að ákærði hafi falsað skjölin sjálfur með eigin hendi þyki ekki efamál að þau hafi hann notað vitandi vits til þess að blekkja með þeim í lögskiptum. Þótt skjölin séu mörg var fjárvinn- ingur ákærða af hverju þeirra smávægilegur eða í heildina talið 39.558,25 krónur. Héraðsdómari snupraður í dómi sínum gerir Hæstiréttur at- hugasemd við meðferð héraðsdómara á þessu máli í þinghaldi 29. nóvember 1985 er dómarinn tók skýrslur af 19 vitnum. í dómi Hæstaréttar segir: „Virðast vitni þessi lítt eða ekki hafa verið spurð sjálfstætt, heldur er yfir- leitt látið nægja að bóka að þau staðfesti „framburð sinn fyrir lög- reglu“. Af vitnum þessum höfðu þó engar skýrslur verið teknar fyrir lög- reglu, heldur liggur einungis fyrir skýrsla rannsóknarlögreglumanns, þar sem hann greinir frá viðtölum við vitni þessi. Voru þessir yfirheyrslu- hættir því andstæðir 1. og 2. mgr. laga nr. 74/1974. Þá er aðfinnsluvert að héraðsdómari hefur við samningu dóms fellt inn í hann margar af skýrsl- Tvö og hálft tonn af ungum vöðusel var i netum Hornafjarðarbáta í einum róðri i vikunni. DV-mynd Jl Vöðuselagöngur eru ekki nýtt fyrirbæri hér „Viðbrögð fólks nú markast eflaust eitthvað af ótta Norðmanna vegna mikillar selagöngu við N- Noreg en ég held að ekki sé ástæða til að óttast neitt í þessu sambandi. Menn mega heldur ekki gleyma því að miklar selagöngur hér við land eru ekki neitt nýtt fyrirbæri," sagði Sólmundur Einarsson fiskifræðing- ur hjá Hafrannsóknastofnun. Sólmundur sagðist hafa skoðað sýni af selum sem landað var á Höfn í Hornafirði og þar væri um vöðusel að ræða, allt ung dýr. Hann sagði það algengt að eitthvað kæmi hing- að af vöðusel frá Grænlandi. Stund- um hefðu miklar göngur komið, stundum lítið og stundum ekki neitt. Varðandi frásögn gamalla manna á Norðurlandi um vöðuselagöngur eftir stríð sagðist Sólmundur vilja benda á að rétt fyrir stríð hefðu líka komið mjög stórar göngur. í Noregi varð vart við óhemju mikið af vöðusel árin 1902 og 1912, sennilega meira en núna. Þá var ástæðan talin vera sú að ísröndin var komin mjög sunnarlega. Sól- mundur sagðist hafa verið að skoða ískort með Sven Malmberg haffræð- ingi og það væri staðreynd að ísröndin væri komin allsunnarlega nú. „En það eru margar samverkandi ástæður sem valda því að selavöður koma hingað til lands eða N-Noregs. Þar má nefna lítið æti við og undir hafísnum, hversu sunnarlega hann fer og svo hugsanlega ofíjölgun hjá selunum. Það er alveg ljóst að eftir að Norðmenn hættu selveiðum fyrir fjórum árum hefur selnum fjölgað, það er enginn vafi á því. Öll þessi atriði og eflaust fleiri geta haft áhrif á að dýrin taka á rás til fjarlægra staða,“ sagði Sólmundur Einarsson. -S.dór um ákærða og vitna fyrir dómi, og einnig fyrir rannsóknarlögreglu, í heilu lagi nær orðréttar og án nokk- urrar úrvinnslu." Mál þetta dæmdu hæstaréttardóm- aramir Magnús Thoroddsen, Guð- mundur Jónsson, Guðmundur Skaftason, Halldór Þorbjömsson og Magnús Þ. Torfason. -FRI GLÆSIVAGNAR STORGLÆSILEGUR Subaru 1800 station 4x4 árgerö 1986, ekinn aöeins 9 þús. km, vökva- stýri, 5 gira, centrallæsingar, rafmagn í rúöum og speglum, splittaö drif, álfelgur, út- varp, silfurlitur. Stórglæsilegur bill meö miklu af aukahlutum. Bein sala. Verö 660 þús. í SÉRFLOKKI Toyota Hilux turbo disil árg. 1985, ekinn aöeins 17 þús. km, 5 gíra, vökva- stýri, 33" dekk, White Spoke felgur, 4ra tonna spil, læst drif aö framan og aftan, Ranco fjaör- ir, upphækkaöur, 80 litra aukaoliutankur, topplúga, útvarp/segulband, allur pluss- klæddur, litur steingrár, ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð 1.400 bús. TOYOTA CELICA SUBRA 2,8I árg. 1983, ekinn 56 þús. km, 6 cyl., 5 glra, vökvastýri, bein innspýting, splittaö drlf, álfelgur, rafmagn i rúöum, litur hvitur, ath. skipti á ódýrari bif- reið. Verö 690 þús. HONDA PRELUDE EX árg. 1985, ekinn 37 þús. km, 5 gira, vökvastýri, topplúga, rafmagn í rúöum og loftneti, þurrka aö aftan, útvarp/ segulband, litur hvitur, ath. skipti á ódýrari bifreið. VerÖ 630 þús. HONDA ACCORD EX árg. 1985, ekinn aöeins 7 þús. km, 5 gira, vökvastýri, útvarp/segul- band, litur hvítur, ath. skipti á ódýrari bifreiö. Verð 580 þús. Greiðslukjör við flestra hæfi. MERCEDES BENZ 300 disil árg. 1983, sérlega vel útlitandi bifreiö, ekin 184 þús. km, 5 cyl., sjálfskipt, vökvastýri, útvarp/segulband, sumar- og vetrardekk á felgum, bein sala. Verö 680 þús. Mikið úrval bifreiða á söluskrá. AUSTAST VESTAST v/STÓRHÖFÐA v/HRINGBRAUT Kynning á Kynning á GRÖHE sumarbústöðum blöndunartækjum, frá meðal annars Trésmiðjunni nýja 2000 línan /n ' r x s H Sérfræðingár á staðnum VIRKA DAGA, KL. 10-16 LAUGARDAGA. 2 góðar byggingarvöruverslan ir, austast og vestast í borginni. Stórhöfða, sími 671100 Hringbraut, sími 28600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.