Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Page 7
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987. 7 Atvinnumál Launanefnd vinnumarkaðarins: Tekur í skottið á Þjóðhagsstofnun Boðið var upp á veitingar að aflokinni sýningu á myndinni Silfur hafsins. DV-mynd Ragnar Imsland Silfur hafsins sýnd í Sindrabæ Júlá tnsland, DV, Hófa Silíur hafsins, ný heimildamynd um saltsíldariðnað íslendinga, var frum- sýnd í Sindrabæ á Höfn sl. sunnudag. Það var fyrirtækið Lifandi myndir hf. sem gerði myndina fyrir félag síldar- saltenda á Suður- og Vesturlandi, svo og Norður- og Austurlandi með styrk frá Síldarútvegsnefod. Það var árið 1979, þegar minnst var 25 ára afmælis Félags síldarsaltenda á Suður- og Vesturlandi, að fram kom sú hugmynd að láta gera kvikmynd um saltsíldariðnað Islendinga. Hugmyndin þótti góð og samkomu- lag náðist við Félag síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi um gerð slíkr- ar myndar. Veturinn 1980-81 var handritið tilbúið og þá var hafist handa við myndina, safnað var göml- um kvikmyndum og ljósmjmdum og koma margar þeirra nú fyrir sjónir almennings í fyrsta sinn í Silfri hafs- ins. Myndin er að mestu tekin á ánmum 1984-1985 á flestum söltunarstöðvum landsins. Myndin sýnir meðal annars störf Síldarútvegsnefhdar og síldar- saltenda, fylgst er með undirbúningi fyrir komu síldarinnar, söltun hennar og frágangi. Áður en sýning hófst bauð Hermann Þjódhagsstofnun: Gróði af ollum fiski nema loðnu Fiskveiðar hér á landi voru reknar með hagnaði í fyrra sem ekki hafði gerst þar á undan í nokkur ár. Afkom- an verður einnig hagstæð á þessu ári og jafnframt í nær allri fiskvinnslu nema loðnubræðslu. Þetta eru niður- stöður Þjóðhagsstofriunar. Matið er það að hreinn hagnaður af botnfiskveiðum hafi numið 6% í fyrra á móti 4% tapi 1985 og 9% tapi 1984. Frystingin var rekin með 2-3% halla í fyrra en söltun með 7-8% hagn- aði. Spáð er betri afkomu i ár í öllum greinum og þar_með að frystingin nái 1-2% hagnaði 'áf tekjum. En mestur er gróðinn í söltuninni. Rækjuveiðar og -vinnsla ganga vel og reiknað er með að ekki hafi orðið tap á síldarsöltun í haust. Hins vegar varð tap á loðnubræðslu, sem ekki sér fyrir endann á, en loðnuveiðamar munu gera betur. Bent er á að þrátt fyrir góða afkomu í sjávarútvegi í fyrra eigi mörg fyrir- tæki í greiðsluerfiðleikum. Það er rakið meðal annars til tapreksturs fyrri ára og framkvæmda sem hafa verið fjármagnaðar með skammtíma- lánum. Áætlað er að fyrirtækin hafi að mestu getað staðið við greiðsluskuld- bindingar sínar vegna fastra lána á síðasta ári þótt slæm veltufjárstaða hafi háð mörgum þeirra. Spáin er sú að staðan batni svo í ár að hægt verði að bæta veltufjárstöðuna af tekjum fyrirtækjanna. -HERB Hansson bíógesti velkomna og lýsti tildrögum myndarinnar. Að sýningu lokinni var þeim Þórami Guðnasyni, Erlendi Sveinssyni og Sig- urði Sv. Pálssyni hjá Lifandi myndum afhent blómakarfa. Síðan bauð síldar- söltunin í Óslandi upp á kaffi og meðlæti. Næst verður myndin sýnd á Austfjörðum. Launanefnd Alþýðusambandsins, Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambands samvinnufé- laganna er alls ekki sammála nýjustu þjóðhagsspá Þjóðhagsstofh- unar og telur hana einkennast af óþarfri svartsýni. Til marks um það spáir nefndin 8-9% verðlagshækk- unum á þessu ári, og heldur sig nær því við spár frá í nóvember, og hafn- ar spá Þjóðhagsstofnunar um 10,5% hækkanir. Um leið heldur nefndin fast i það markmið að hraði verðbólgunnar fari niður í 4% á síðasta fjórðungi ársins. Þjóðhagsstofnun spáir nú 5% verðbólgu á þeim tíma. „Enn eru allar forsendur til þess að þetta markmið geti náðst,“ segir nefndin, „ef saman fer almennur vilji sterkra hagsmunaaðila í þjóðfélaginu og ákveðin og markviss stefha í efna- hagsstjóm." Eins og DV skýrði ffá í gær, telur launanefndin það ranga stefnu og tilgangslausa að láta gengi krón- unnar síga. Hún vill snúa við blað- inu og ná fram 1,5% gengisklifri á næstunni, sem sagt hækka gengið jafnmikið og það hefur lækkað frá áramótum. Nefndin varar við því að dregið verði úr aðhaldi í peninga- málum með auknum útlánum bankakerfisins eða auknum erlend- um lántökum og vill koma í veg fyrir þann 950 milljóna króna viðskipta- halla sem Þjóðhagsstofhun reiknar nú með. Undir álit launanefridarinnar skrifa fjórir menn. Þeir em Vil- hjálmur Egilsson, hagfræðingur VSÍ, í 2. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins á Norðurlandi vestra, Bjöm Bjömsson, hagfræðingur ASÍ, í 11. sæti á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, Ólafur Davíðsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda og hagfræðingur, og Hólmgeir Jónsson, hagfræðingur hjá Sjómannasambandinu. -HERB NISSAN SUNNY BILL ARSINS 1987 ara 54ra manna dómnefnd bílagagnrýnenda í Japan kaus einróma INIISSAN SUNNY BÍL ÁRSINS 1987 í dómnum var tekið tillit til: Útlits - hönnunar - gæða - aksturseiginleika og verðs. Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14-17 Akureyri: Á bifreiðaverkstæði Sigurðars Valdimarssonar, Óseyri 5a Og auðvitað í Sýningarsalnum kiH % 30 1957-1987'fJ, v/Rauðagerði, Reykjavík á sama tíma. Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni iH ingvar helgasoim hf. ■■■ Syntngarsnlurinn/Rauðagerði, sími 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.