Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987. 17 Lesendur Það segir sig sjálft að með því að leggja heimsmeistarana, Júgóslava, að velli er islenska landsliðið komið á toppinn og markvissum árangri náð. Markviss árangur Epll Krístjánsson hringdi: Ég fór á landsleikina á mánudag og þriðjudag og ég var vægast sagt heill- aður af frammistöðu okkar manna. Báðir leikimir voru mjög skemmtileg- ir og spennandi þó seinni leikurinn væri miklu betri. Það segir sig sjálft að með því að leggja heimsmeistarana, Júgóslava, að velli er íslenska lands- liðið komið á toppinn og markvissum árangri náð. Strákar, þetta var alveg ótrúlegt en engu síður satt! Haldið ykkar striki áfram. BflbeHasektir rangar Ævintýri líkast Skúli G. hringdi: Við íslendingar höfum nú ailtaf verið þekktir fyiir að vera hjátrú- : arfúllir og trúa á tröll og álfa. Allt; er gott í hófi og því á maður frek- ar crfitt með að trúa öllum þessum getgátiun varðandi hestahvai’fið. Maður hefur haft lúmskt gaman af þessu öllu saman fyrst í stað enda ævintýri líkast en mér finnst búið að gera allt of mikið frótta- mál úr þessu. Þetta eru orðnar hálfgerðar öfgar sem fara út í vit- leysu haldi þetta miklu lengior svona áfram. Frabær trammistaoa Ólöf S. hringdi: Vikuskammturinn á Bylgjunni er eitt af fáu sem ég reyni að missa aldrei af. Mór finnst þetta bæði mjög skemmtilegir og athyglis- verðir þættir þó það velti að sjálf- sögðu eilítið á viðmælcndum hverju sinni. Mér fannst siðaflti þáttur á sunnudaginn einn af þcim þetri og vil ég þakka henni Þórhildi Þor- leifsdóttur fyrir skerf hennar. Þórhildur, ég vil óska þér til ham- ingju með frábæra frammistöðu. Þetta voru orð í tíma töluð. Við konurnar eigura enn]iá langt í land en ef við höfum konur eins og þig til að vera í fyrirsvari fyrir jafnrétt- inu held ég að við getum freyst því að það verði barisr með kjafti og klóm þar til raarkinu er náð. Elíf boðogbönn Mér líst ekkert á þetta nýja bíl- númerakerfi. Ég vil fá að vera í friði með mitt númer. Þessir opin- beru aðilar eru alltaf með þessi boð og bönn og það er ekkert sem seg- ir að hagsmunir borgaranna séu alltaf tryggðir. Ég vil fá að halda mínu númeri því það er hluti af mér og mér fmnst að ráðamenn eigi að hætta þeasura afskiptum. Ég geti ekki séð að það breyti neinu þó óg selji bíhnn minn en baldi númerinu rafnu. V.A. hringdi: Ég er mjög mótfallinn bílbeltasekt- um. Ég get ekki séð að það þjóni nokkrum tilgangi að þvinga fólk til að spenna beltin. Mér finnst þessir ráðamenn alltaf hugsa um okkur al- menning sem litlu bömin er ekki hafa vit fyrir sjálfum sér. Það virðist alltaf vera farsælasta lausnin að boða eða banna þetta eða hitt. Ég lít á bílinn sem mína einkaeign og því hluta af friðhelgi heimilisins og þess vegna á ég að hafa valfrelsið hvort ég vil Ásdís K. hringdi: Það var athyglisverð grein í DV sem ég rak augun í á mánudag, Okrað í nafrii frelsis, en þar segir kona sögu frá kjólakaupum. Ég verð að segja að mér blöskrar að vita til þess að tvær verslanir selja nákvæmlega sama kjól- inn og verðmismunurinn er 128%. Þetta er vægast sagt mjög ótrúleg saga og ef sönn er þá er eitthvað mikið að. Hvað leggja verslanir eiginlega á Snorri P. hringdi: Ég held að það veiti ekki af að taka marga ökumenn í endurhæfingu og kenna þeim að aka. Umferðarmenn- ingin hér er fyrir neðan allar hellur og það sem fer einna mest í taugamar á mér em þessir vinstri akreina draug- ar. Fólk virðist ekki gera sér grein spenna beltið eða ekki. Svo er önnur spuming sem vaknar, hver ber ábyrgð á að farþegi í framsæt- inu spenni beltin? Einnig finnst mér farið að líta á bíl- beltin sem aðalatriði en þau em auðvitað tæknilega aukaatriði, því það þarf engin bílbelti ef enginn árekstur verður. Ég held það væri nær að grafast fyrir um orsakimar, af hverju svona mikið er um árekstra og byrja einu sinni á grunninum. vöru? Þessi frjálshyggja virðist leggj- ast eitthvað vitlaust í íslenska versl- unareigendur, í stað þess að veita hver öðrum aðhald reynir hver að fá sem mest fyrir sinn snúð. Mér finnst að neytendasamtökin eigi að vera virkari í þvi að gefa neytendum upp hvað verslanir leggja á vörurnar! Svona sögur vekja mann svo sannarlega til umhugsunar. fyrir því að það á að halda sig á hægri akrein þurfi það að keyra lúshægt og tefja umferð. Vinstri akrein er fyrir þá er vilja fara fram úr eða em á hrað- ferð. Vil ég hvetja sleðana til að halda sig á réttri akrein, þ.e. hægri þegar svo á við. Okur frjáls- hyggjunnar Vinstri umferðar- draugar Auglýsing urh styrki til leiklistarstarfsemi. I fjárlögum fyrir árið 1987 er 2.000.000,- kr. fjárveiting sem ætluð er til styrktar leiklistarstarfsemi atvinnuleik- hópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu í fjárlögum. Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af fjár- veitingu þessari. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneyt- inu. Umsóknir skulu hafa borist Menntamálaráðuneytinu fyrir 10. apríl næstkomandi. 24. febrúar 1987, Menntamálaráðuneytið sími 28705 Aftur er komið að okkar vinsæla tilboði sem allir þekkja, 24 tímar á aðeins 1600 krónur. VERIÐ VELKOMIN ÁVALLT HEITT Á KÖNNUNNI BRJÓTUM MÚRANA - BRYT Verkefni Norrænu ráðherranefndarinnar um fjölbreyttari atvinnuþátttöku kvenna _ _ Konur stofna fyrirtæki Samnorræna jafnréttisverkefnið BRJÓTUM MÚRANA gengst fyrir námskeiði fyrir konur á Norðurlandi sem hafa í hyggju að stofna eigið fyrirtæki. Námskeiðið felst í þremur vinnuhelgum: í Stórutjarnaskóla 3. og 4. apríl og í Héraðsskólanum á Laugum 16. og 17. maí og 13. og 14. júní. Konurnar fá ráðgjöf á milli vinnu- helganna og í a.m.k. 3 mánuði eftir að námskeiðinu lýkur en auk þess er gert ráð fyrir að þær vinni saman í hópum þann tíma. Á námskeiðinu munu konurnar vinna úr hugmyndum sínum með aðstoð leiðbeinenda og fá innsýn í ýmsa þætti sem tengjast stofnun fyrirtækis, s.s. áætlanagerð, markaðsfræði, sölumál o.fl. Áhersla verður lögð á að efla eigið sjálfstraust og áræði. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við 20 konur. Þær konur sitja fyrir sem ætla að stofna fyrirtæki á Norðurlandi og hafa hugmyndir um óhefðbundnar leiðir í atvinnurekstri. Að námskeiðinu standa ýmsir aðilar auk BRJÓTUM MÚRANA, þ.á m. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, iðnaðarráðu- neytið og Akureyrarbær. Námskeiðsgjald verður kr. 6.000, matur og gisting innifalið. Kynningarfundur um námskeiðið verður haldinn í Svart- fugli 5. mars nk. kl. 20.30. Umsóknum skal skiia til BRJÓTUM MÚRANA, KAUPANGI V/MÝRARVEG, 600 AKUREYRI, á eyðublöðum sem þar fást, í síðasta lagi 16. mars nk. Allar nánari upplýsingar veita Valgerður og Guðrún í síma 96/26845. Þetta er í fyrsta skipti sem slikt námskeið er haldið hér á landi og óvíst er hvort það verður endurtekið. Við hvetjum þvi allar konur sem lúra á góðri fyrirtækis- hugmynd að gripa tækifærið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.