Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1987, Blaðsíða 29
noor nrrtitr n, nrrnA rrr tt/át/'
MÁNUDAGUR 9. MARS 1987. 4=
Þad er vetrarlegt um að litast hjá tyrknesku hermönnunum sem sitja fyrir skæruliðum Kúrda
í Suður-Tyrklandi. Skæruliðar eru sagðir hafa myrt fjórtán þorpsbúa á þessum slóðum þann
22. febrúar síðastliðinn. Simamynd Reuter
Spánverjinn Antonio Alonso pússar risaskó sem hann hefur smiðað til þess að komast i heimsmetabók Guin-
ness. Skórinn, sem er úr ekta leðri, er 1,30 metrar á lengd og vegur 75 kiló. Núverandi skóheimsmet er 1,12
metrar og heiðurinn af þeim skó á einnig Spánverji. Simamynd Reuter
Kirkjusamtök I Bandarikjunum gengust i siðastliðinni viku fyrir hópgöngu að þinghúsinu í Washington. Var þess krafist að Bandarikja-
menn hættu hernaðarlegum afskiptum sínum í löndum Mið-Ameriku. Göngumenn báru krossa með nöfnum látinna borgara Mið-
Ameriku. Simamynd Reuter
Á hverjum morgni er palestínskum flóttamönnum í Líbanon leyft að koma úr búðunum, þar sem þeir hafast við,
til þess að veröa sér úti um helstu nauðsynjar. Á myndinni má sjá palestinskar konur með gasbrúsa sem þær fá
fyllta undir eftirliti líbanskra hermanna. Simamynd Reuter
I Beirút í Libanon eru nemendur óánægðir með skólagjöld sem fara sihækk-
andi. Hafa nemendur farið I mótmælagöngur og hrópað slagorð að stjórn-
inni. Símamynd Reuter
Samningamenn stórveidanna i Genfarviöræðunum tókust i hendur brosmildir á svip
áður en viöræðurnar hófust. Það er Maynard Glitman, aðalsamningamaður Bandarikj-
anna um meöaldrægar kjarnaflaugar, sem hér teygir sig yfir borðið til þess að heilsa
starfsbróður sinum frá Sovétríkjunum, Lem Masterkov. Símamynd Reuter
yiLRNE
Toppurinn í bíitækjum
Skipholti 7 - Símar 20080 og 26800.