Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987. 11 Hvattir til að kjósa í næsta mánuði fara fram almennar kosningar í Indónesiu. íbúarnir eru hvattir til þess að notfæra sér kosningaréttinn og komið hefur verið fyrir auglýsingum víða um landið. Gert er ráð fyrir að áttatíu milljónir manna gangi að kjör- borði þann 23. apríl næstkomandi. Símamynd Reuter Breytt staða í framboði demókrata Ólafur Amaisan, DV, New Yorlc Michael S. Dukakis, ríkisstjóri Massachusetts í Bandaríkjunum, lýsti því yfir í gær að hann myndi stefna að útnefningu til forsetafram- boðs fyrir Demókrataflokkinn. Formlega hefst kosningabarátta hans þó ekki fyrr en 4. mai. Dukak- is, sem er talinn í vinstri armi demókrataflokksins, gegnir nú þriðja kjörtímabili sínu í embætti ríkisstjóra. Hann er 53 ára gamall og kominn af grískum innflytjend- um, giftur og þriggja bama faðir. Tilkynning Dukakis breytir nokk- uð stöðunni í framboðsmálum demókrata því hann nýtur mikils fylgis í New Hampshire, nágranna- fylki Massachusetts, en þar fara fram fyrstu forkosningamar eftir tæpt ár og em þær taldar mjög þýð- ingarmiklar fyrir það sem á eftir kemur. Dukakis telur sér það helst til ágætis að mikið efnahagslegt góðæri ríkir nú í Massachusetts. Flestir em þó á því að það sé afleiðing þess góðæris sem efnahagsstefna Reag- ans forseta hefur fært Bandaríkjun- um á undanfömum árum. Gagmýnendur Dukakis telja það há honum vemlega að hann er algjör- lega óreyndur í utanríkismálum en líklegt er að þau gegni mikilvægu hlutverki í næstu forsetakosningum. ÁTAK TIL HJÁLPAR - GEGN VÍMUEFNUM Popptónleikar verða haldnir í Háskólabíói til styrktar Krísuvíkursamtökunum þriðjudaginn 17. mars kl. 20.30. Kynnir: Valgeir Guðjónsson. Fram koma: Rauðir fletir, Gypsy, Greifarnir, Centaur og Grafík. Forsala aðgöngumiða verður í Fálkanum, Laugavegi 24, og Karnabæ, Austurstræti. Miðaverð er 500 kr. Útlönd Fimmtíu milljónir nafnlausra farþega Ifeutar L. Hsukæon, DV, Kauptnannahafti: í höfúnum umhverfís Danmörku flytja ferjur árlega yfir fimmtíu millj- ónir farþega. Ferjufélögin vita ekki hverjir farþegamir em og ef ferja sekkur er ómögulegt að rekja hver hefúr verið um borð. Það finnast nefhilega engir listar yfir farþegana. Þessar upplýsingar komu fram í kjölfar ferjuslyssins utan við Belgíu á dögunum. Belgísk yfirvöld telja að 209 hafi farist en ferjufékgið telur að þeir hafi ekki verið fleiri en 135. Skrifstofustjóri í siglingadeild iðn- aðarráðuneytisins í DanmÖrku segir að hvorki í Danmörku né á alþjóða- vettvangi finnist lög æm krefjist skráningar ferjufarþega. Hann seg- ist ekki rauna að slfkar kröfiir hafi nokkum tíma verið settar fram. Það fari einungis fram talning avo ekki eéu fleiri um borð en reglur um hverja ferju segja fyrir um. Telur skrifstofustjórmn að skráning fexju- farþega sé nser ómöguleg í fram- kvæmd og á mjög stuttum leiðum taki slík skráning lengri tíma en sjálf siglingin. Hjá ríkisjámbrautimum, er standa fyrir flutningi 30 milljóna manna árlega, segir maður að kröfúm ura skráningu yrði fylgt en þá yrði að fjárfesta í geysilegum tækjabúnaði eins og á flugvöllunum. % KVENSKÓR - HERRASKÓR VESTUR-ÞYSKIR GÆÐASKOR Þessir skór eru aðeins fáanlegir í tveim verslunum: Skósölunni, Laugavegi 1, Skóverslun Kópavogs, Hamraborg 3. Umboðs- og heildverslun ANDRES GUÐNASON HF., Bolholti 4, simi 686388. NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ- I tilefni breyting-a í húsgacfnadeild veitum við pessa dagana 20-40% AFSLÁTT AF ÝMSUM HÚSGÖGNUM Verslid þar sem úrvalið er mest og kjörin best. Munið JTj- kaupsamningana. Komið, sjáið og sannfærist. J||l t rAAAAAA * % Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600 CQCQ3 JEI'SllsK ^4JQQa3:j^. lUMniÍllllUUlH Vlku,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.