Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1987, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1987.
21
Hver er útkoman þegar tveir bestu gamanleikarar vestanhafs leiða
saman hesta sína?
Stöð 2 laugardag kl. 21.45:
Besta vörriin
- dæmd til að mistakast
Eddie Murphy og Dudley Moore
eru báðir á sinn hátt meðal bestu
gamanleikara vestan hafs. Þeir
hafa leikið í myndum sem slegið
hafa öll aðsóknarmet og má þar
nefna mynd Dudleys Moore, Art-
hur, og mynd Eddie Murphy,
Lögregluna í Beverly Hills. Aftur
á móti í Best Defence - Bestu vörn-
inni - leiða þeir saman hesta sína
og mun sú mynd verða sýnd á Stöð
2 á sunnudagkvöld.
Dudley Moore leikur mann sem
hannar nýtt stjórntæki í skrið-
dreka en Eddie Murphy leikur
hermann sem þarf að stýra skrið-
drekanum. Þessi samsetning er
dæmd til að mistakast.
í júlí árið 1985 voru haldnir rokkhljómleikar á Wembley sem Dire Stra-
its, sem er tvimælalaust ein besta rokksveit allra tima, hélt.
Sjónvarpið laugardag kl. 1985:
Dire Straits
á Wembley
í júlí árið 1985 voru haldnir Jack Sonni og Terry Willihams.
hljómleikar á Wembley leikvang-
inum með tvímælalaust einni bestu
rokksveit allra tíma, Dire Straits,
með Mark Knofler í broddi fylking-
ar en aðrir meðlimir eru Alan
Clark, Gay Fletcher, Chris White,
Þeir léku á tónleikunum bæði göm-
ul og ný lög.
Hljómleikar þessir voru mjög vel
heppnaðir og yfirfullt var á Wem-
bley af aðdáendum rokksveitarinn-
ar.
RÚV, rás 1, sunnudagkl. 23.20:
Tíminn
í lífl
mannaog
náttúru
Jón Bjömsson, félagsmálastjóri
á Akureyri, verður með dagksrá á
sunnudagskvöld er nefnist Tíminn.
Þar ræðir Jón um tímann í lífi
manna og náttúru, hvernig flest
miðast að einhverju leyti við tím-
ann. Jón segir frá tímahugmyndum
manna á ýmsum skeiðum og ber
saman við hvernig nútímaðurinn
skynjar tímann.
I þessum fyrsta þætti af þremur
segir frá því hvernig menn fóru að
því að mæla tímann en í þeim efn-
um varð mikil tæknileg framför
þegar tókst að smíða svokallað sól-
arúr. Jón vitnar til ýmissa öndveg-
isrita í þáttunum, svo sem
Snorra-Eddu, sálmaskáldið Hall-
grím Pétursson, Brekkukotsannál
Halldórs Laxness og fleiri.
RÚV, rás 1, suimudagkl. 21.30:
„Truntu-
sól“
- eftir Sigurð Þór Guðjónsson
Lestur nýrrar útvarpssögu hefst
á sunnudag. Nefnist hún Truntusól
og er eftir Sigurð Þór Guðjónsson.
Karl Ágúst Ulfsson les. Sagan var
gefin út 1973 og er sjálfslýsing
sögumanns er dvaldist að mestu
inni á geðdeild. Lýst er innri sýn
aðalsögupersónu og órum. Einnig
fléttast saman við frásögur að fólki
innan sem utan deildarinnar. Auk
þess er margt sagt um tónlist í sög-
unni og í henni eru ýmsar hugleið-
ingar og vangaveltur sögumanns
um lífið og tilveruna, kryddaðar
ádeilu á þeim árum er stúdenta- og
hippahreyfingin lét mikið til sin
taka og gangrýni á líferni og sam-
félag Vesturlandabúa var í há-
marki.
Sjónvarpið sunnudag kl. 21.35:
Colette
Franskur framhaldsmyndaflokkur
í Qórum þáttum hefur göngu sína í
sjónvarpinu á sunnudag. Hann segir
frá viðburðaríkri ævi skáldkonunn-
ar Colette.
Colette fæddist árið 1873 í sveit í
Frakklandi en fluttist ung að árum
til Parísar, þá nýgift sér miklu eldri
manni. Þar hóf hún ritstörf en fyrstu
verk hennar voru gefin út undir
nöfhum þeirra hjóna beggja. Brátt
skildu leiðir þeirra og Colette hóf
sjálfstæðan feril. Hún hélt áfram að
skrifa af krafti, auk þess sem hún
starfaði um skeið sem dansmær í
revíuleikhúsi og var tónlistargagn-
rýnandi og snyrtivöruframleiðandi.
Eftir hana liggur fjöldi skáldverka.
sjálfsævisögulegra frásagna og
greina. Hún lést 81 eins árs gömul
árið 1954.
í hlutverki Colette er Clémentine
Amouroux en aðrir leikarar eru
Macha Méril og Jean-Pierre Bisson.
Colette var frönsk skáldkona sem
átti viðburðaríka ævi.
I sjónvarpsmyndinni Námakonan er mikill boðskapur er byggist á jafn-
rétti kynja.
Stöð 2 sunnudag kl. 20.50:
Námakonan
í Kentucky
Að baki Námakonunnar er
Walter Doninger framleiðandi,
höfundur og leikstjóri sem ákvað
að sýna hina hliðina á lífinu um
unga konu sem brýtur sér leið
gegnum þykkan frumskóg fordóma
og fer að vinna jafnfætis karlmönn-
um í námu. Við þá reynslu verður
hún margs vísari um sjálfa sig og
það fólk sem í kringum hana er.
Leikstjórinn Doninger ferðaðist
yfir 2000 mílur námanna á milli til
þess að kynna sér aðstæður kvenna
á slíkum vinnustöðum. Sagan að
baki er einnig ástarsaga. Leikstjór-
inn mun hafa sagt að sönn ást
byggðist á jafnrétti frekar en að
annar aðilinn hefði vald yfir hin-
um.
I aðalhlutverkum eru Cheryl
Ladd og Luke Telford.
Gamanmyndin Harvey er byggð á leikriti eftir Mary Chase sem var sýnt
i Þjóðleikhúsinu fyrir þrjátiu árum.
Sjónvarp kl. 21.45:
Harvey
- ofsjónir Elwoods
I bæ einum býr ekkja ásamt dótt-
ur sinni, Elwood bróður sínum og
boðflennu sem enginn sér nema
Elwood. Þessi boðflenna er mann-
hæðarhá kanína sem hann kallar
Harvey. Ofsjónir Elwoods eru svo
þrálátar að systir hans gerir ráð-
stafanir til þess að senda hann á
geðveikrahæli. En margt fer öðru-
vísi en ætlað er.
Mvndin er bvggð á leikriti eftir
Mary Chase sem var sýnt í Þjóð-
leikhúsinu fyrir þrjátíu árum. Þá
lék Lárus Pálsson aðalhlutverkið.
En í aðalhlutverkum bandarísku
gamanmyndarinnar. sem gerð var
árið 1950, eru James Stewart.
Josephine Hull og Victorie Horne.