Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1987, Qupperneq 6
28
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1987.
Bíóhöllin
Liðþjálfinn
Liðþjálfmn (Heartbreak Ridge) er
nýjasta kvikmynd kappans Clint
Eastwood. Leikur hann liðþjálfa
nokkurn, Tom Highway, sem er
hermaður án stríðs og á erfitt með
að aðlaga sig slíkum lifnaði. Eftir
langan og litríkan feril fær High-
way það verkefni að þjálfa land-
gönguliða. Fljótt fær hann
yfirmann sinn upp á móti sér, einn-
ig ungan foringja nýkominn úr
herskóla. Þetta og það að hann
sýnir mikla hörku í viðskiptum sín-
um við landgönguliðana einangrar
hann frá öðrum...
Liðþjálfinn hefur yfirleitt fengið
ágætar viðtökur erlendis þótt ekki
verði hún talin með því besta sem
Eastwood hefur gert. En eins og
oftast á síðari árum er hann bæði
aðalleikari og leikstjóri myndar-
innar.
Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús
Leiklistarklúbbur Flensborgarskóla:
Romanoff og Júlía
Romanoff og Júlía, er Leiklistar-
klúbbur Flensborgarskóla hóf
nýlega sýningar á, er gamanleikrit
með dramatísku ívafi í þrem þátt-
um og gerist í nafnlausu ríki í
Evrópu. Höfundur þess er hinn
virti leikari og leikritahöfundur
Peter Ustinov. Hann hefur átt
nokkur verk á sviði Þjóðleikhúss-
ins sem öll hafa átt það sameigin-
legt að vera vel tekið.
Söguþráðurinn í Romanoff og
Júlíu er að nokkru leyti spunninn
út frá hinu vel þekkta leikriti
Shakespeares, Rómeó og Júlíu.
Peter Ustinov skrifaði verkið á
árunum 1952-’55. Þegar verkið var
frumsýnt í London 1956 hlaut það
einróma lof og fékk verðlaun
breskra gagnrýnenda það árið.
Árið 1957 var leikritið sýnt í Þjóð-
leikhúsinu undir stjórn Walters
Hudds og árið 1968 var leikritið
sett upp í Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Verkið hefur verið sett upp
víða um heim og hvarvetna hlotið
mikla athygli. Það var því ekki að
ástæðulausu að Flensborgarskól-
inn kaus einmitt þetta verk til að
setja upp fyrir Hafnfirðinga sem
og aðra.
Leikstjori er Pétur Eggerz. I aðal-
hlutverkum eru Örn Hrafnkelsson.
Sigurður Örn Árnason. Ruth Guð-
mundsdóttir, Sigurður Þór Bald-
vinsson og Óttarr Proppé. Búninga
hannaði Þórdís Tinna Aðalsteins-
dóttir og leikmyndina þær Lilja
G. Gunnarsdóttir og Helga Kristín
Haraldsdóttir. Ljósahönnun gerði
Einar Bergmundur Arinbjörnsson
og ljósamaður er Einar Bergsson.
Tónlistina sá Örn Arnarsson um.
Sýningar eru í kvöld og annað
kvöld og hefjast þær klukkan 20.30.
Tekið er við miðapöntunum í síma
53392.
Leikritið Romanoff og Júlía, sem Leiklistarklúbbur Flensborgarskóla tók sér fyrir hendur, er eftir hinn kunna
leikara og leikritahöfund Peter Ustinov.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Regnboginn
Hjartasár (Heartburn) fjallar um
Rachel og Mark, tvo blaðamenn
^ sem kynnast í brúðkaupi. Þau fella
hugi saman og þrátt fyrir að hvor-
ugt trúi á hjónaband giftast þau.
eignast barn og framtíðin virðist
blasa við þeim. Þau skilja samt eft-
ir að Rachel kemst að því að Mark
hefur haldið framhjá henni. Höf-
undur skáldritsins og kvikmynda-
handritsins, Nora Ephron, byggir
sögu sína á eigin æfi en hún var
gift hinum fræga rannsóknar-
blaðamanni Carl Bernstein sem
frægur varð fyrir að koma upp
Watergate hneykslinu á sínum
tíma ásamt Bob Woodward.
Háskólabíó
Trúboðsstöðin (Mission) er ein
þeirra kvikmynda sem tilnefnd er
sem besta mynd við næstu óskars-
- verðlaunaafhendingu. Roland
Joffé, sem síðast stjórnaði hinni
rómuðu mynd The Killing Fields,
leikstýrir henni. Þess má geta að
Trúboðsstöðin fékk verðlaun sem
besta mynd á Cannes í fyrra. Trú-
boðsstöðin gerist á átjándu öld í
Suður-Ameríku og fjallar aðallega
um samskipti tveggja ólíkra
manna, föður Gabriels, sem er ka-
þólskur prestur, og Mendoza, sem
er þrælasali í byrjun myndarinnar.
Flestir eru sammála um að Robert
De Niro og Jeremy Irons sýni báð-
ir stórgóðan leik í aðalhlutverkun-
um.
Bíóhúsið
Bíóhúsið hefur tekið til sýninga
mynd sem er á góðri leið með að
verða klassísk. Lítið fór fyrir henni
fyrst en með árunum hefur hún
öðlast vinsældir, sérstaklega hjá
ungu fólki. Myndin er rokksöng-
leikur með hrárri rokktónfist sem
vafin er utan um söguþráð sem
helst ætti heima í hryllingsmynd.
Meðal leikenda í myndinni má
nefna Tim Curry og Susan Saran-
don.sem hér stigu sín fyrstu skref
sem kvikmyndaleikarar.
Stjörnubíó
Stattu með mér (Stand by Me) er
nýjasta kvikmyndin gerð eftir rit-
verki Stephens King. I þetta skiptið
er það smásagan Líkið sem orðið
hefur fyrir valinu. Fjallar hún um
fjóra þrettán ára drengi sem fara í
óvenjulega helgarferð. Tilgangur-
inn er að finna lík drengs sem
hvarf. Leikstjóranum Rob Reiner
tekst að gera virkilega huggulega
kvikmynd úr litlum efnivið. Ekki
skemmir fyrir góður leikur drengj-'
anna fjögurra.
Tónabíó
Vítisbúðir (Hell Camp) er um
hermenn í æfingabúðum og ævin-
Kvikmyndahús
týri þeirra. Aðalhlutverkin leika
Tom Skeritt og Lisa Eichorn. Þetta
er mynd fyrir þá sem láta sér nægja
hasar án þess að efnisþráður skipti
miklu.
Austurbæjarbíó
Myndir Andreis Konchalovsky
eru svo sannarlega snemma á ferð-
inni hérlendis. Brostinn strengur
(Duet for One) er um fiðluleikara
sem kemst að því að hrörnunar-
sjúkdómur muni brátt hindra hana
í að leika á hljóðfæri sitt. Breytir
þetta viðhorfi hennar til lífsins.
Örvænting heltekur hana og verð-
ur til þess að hún gerir ýmsa hluti
sem henni hefði aldrei dottið í hug
að gera. Julie Andrews sýnir stór-
leik í hlutverki fiðluleikarans. Þá
frumsýndi Austurbæjarbíó í vik-
unni nýja ævintýrakvikmynd með
Richard Chamberlain, Alan Quat-
ermain, mynd sem gerist í Afríku.
Laugarásbíó
Hollenski leikarinn Rutger Hau-
er leikur aðalhlutverkið í spennu-
myndinni Eftirlýstur lífs eða liðinn
(Wanted Dead or Alive). Leikur
hann þar mannaveiðara sem eltir
uppi hryðjuverkamenn með góðum
árangri. Þá sýnir Laugarásbíó
einnig Furðuveröld Jóa, ævintýra-
mynd um dreng sem lifir í eigin
furðuheimi sem aðrir skilja ekki.
-HK
f Sýningar
Gallerí Skip,
Skipholti 50 c
I vikunni opnaði Sigurrós Baldvinsdóttir
sýningu í gallerí Skip (sama húsi og Pít-
an) á 38 olíumálverkum. Þetta er fyrsta
einkasýning Sigurrósar, og eru flest verk-
in til sölu. Sýningin er opin frá kl. 13-17
virka daga en frá kl. 15-18 um helgar og
stendur hún til 1. apríl
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Þar stendur yfir skúlptúrsýning Hansínu
Jensdóttur. llún er gullsmiður að mennt
ög starfar hjá Jens Guðjónssyni gullsmið.
Hún stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands og við Myndlistar-
skólann í Reykjavík. Hún var einnig í tvö
ár í skúlptúrdeild SAIT, í Calgary,
Kanada. Hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga. Sýningin stendur til 29. mars. I
austursal stendur yfir samsýning félags
íslenskra myndlistarmanna og er hún opin
daglega kl. 14-22 til 29. mars. I vestursal
sfendur yfir málverkasýning Guðrúnar
Tryggvadóttur myndlistarkonu. Þetta er
6. einkasýning Guðrúnar og eru verkin
unnin á sl. fjórum árum. Sýningin er opin
daglega kl. 14-22 til 29. mars.
Mokka kaffi,
Skólavörðustíg 3a
Um þessar mundir sýnir Þóra Sigurðar-
dóttir 40 myndir á Mokka sem allar eru
unnar á þessu og síðasta ári. Þóra stund-
aði nám við Myndlista- og handíðaskófa
fslands og Myndlistarskólann í Reykjavík
á árunum 1975-81.
Norræna húsið
v/Hringbraut
I anddyri hússins hefur verið opnuð sýning
sem ber yfirskriftina Norrænar ljósmyndir
85. Á sýningunni er úrval mynda eftir ljós-
myndara frá íslandi, Danmörku, Finnl-
andi, Noregi og Svíðþjóð. Markmiðið með
sýningunni er að sýna listræna ljósmynd-
un frá sem flestum sjónarhornum og að
styrkja stöðu fjósmyndalistarinnar með
tilliti til annara greina myndlistarinnar.
Sýningin er opin á opnunartíma hússins
kl. 9-19 alla daga nema sunnudaga kl.
12-19 til 23. mars. 1 sýningarsölum er sýn-
ing á málverkum norsku listamannanna
Olav Strömme og Björn Tufta og högg-
myndum eftir Sigurð Guðmundsson.
Sýningin er opin daglega kl. 14-19 til 29.
mars.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Steinþór Marinó Gunnarsson og Sigrún
Steinþórsdóttir Eggen opna myndlistar-
sýningu í Listasafni ASÍ á morgun laugar-
dag. Steinþór sýnir vatnslitamyndir,
einþrykk og pastelmyndir en Sigrún
myndvefnað. Sýningin stendur til 5. apríl
og er opin virka daga kl. 16-20, en um
helgar kl. 14-22.
Listasafn Einars Jónssonar
v/Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listasafn íslands
Á morgun verður opnuð yfirlitssýning á
verkum Sigurðar Sigurðssonar listmálara.
Sýningin spannar allan listferil hans frá
skólaárum og þar til á þessu ári. Sýningin
stendur til 20. apríl og er opin virka daga
frá 13.30-16 en 13.30-19 um helgar.
Mintsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg 3b
Guðbergur Auðunsson sýnir í Nýlistasafn-
inu. Þetta er 8. einkasýning hans. Á
sýningunni eru um tuttugu málverk, unn-
in á sl. fjórum árum. Meginuppistaða
sýningarinnar eru verk byggð á íslend-
ingasögunum. Sýningin er opin frá kl.
14-20 um helgar en kl. 16-20 virka daga.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Þjóðminjasafnið
f Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á 32 vaxmyndum af þekktum mönn-
um, íslenskum og erlendum. Vaxmynda-
safnið var fyrst opnað í húsakynnum
Þjóðminjasafns 14. júlí 1951 og var það til
sýnis í 20 ár, en sfðan hafa myndirnar
verið í geymsiu. Vegna mikillar eftir-
spurnar hefur nú verið ákveðið að sýna
vaxmyndasafnið um tíma. Vaxmyndirnar
eru til sýnis á venjuiegum opnunartíma
Þjóðminjasafnsins, þ.e. þriðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga ki.
13.30-16. Aðgangseyrir er kr. 50, en ókeyp-
is fyrir börn og ellilífeyrisþega.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið þriðjudaga tii sunnudaga kl. 14-18.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.