Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1987, Síða 7
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1987. 29 ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR Fjölmargt ávettvangi íþrótta Víða verður hart barist á sviði íþrótta um helgina eins og endra- nær. Verður því margur íþróttaá- hugamaðurinn ekki í vandræðum með að finna eitthvað við sitt hæfi. Njarðvík og KR mætast í kvöld í fvrri leik sínum í úrslitakeppni úrvalsdeildar i körfuknattleik. Fer viðureignin fram í íþrótta- húsinu í Njarðvík og hefst hún kl. 20.00. í 1. deild karla í handknattleik verður leikin heil umferð. Stjarn- an og KA mætast í Digranesi á laugardag kl. 14.00. Á sama tíma leika í Hafnarfirði Haukar og Fram. Á sunnudagskvöldið leika síð- an UBK og KR í Digranesi kl. 20.00. FH og nýbakaðir islands- meistarar Víkings glíma hins vegar i Hafnarfirði kl. 20.00. Síðast en ekki síst eigast síðan Valur og Ármann við í Laugar- dalshöll og hefst viðureign liðanna kl. 20.15. Skíðamenn láta ekki sitt eftir liggja fremur en handknattleiks- menn. Á Siglufirði verður keppt i alpagreinum karla og kvenna. Á Neskaupstað verður einnig keppt í alpagreinum en einvörðungu í unglingaflokki. 15-16 ára. 1 Bláfjöllum fer síðan fram hinn þekkta Islandsganga fullorðinna. í Laugardalshöll fer fram ís- landsmótið í fimleikum. -JKS • í kvöld taka Njarðvíkingar á móti KR-ingum í fyrri leik liðanna i úrslitakeppni úrvalsdeildar i körfuknattleik í íþróttahúsinu i Njarövík. Á myndinni er Valur Ingimundarson, einn af máttarstólpum Njarðvíkinga, að leggja knöttinn í körfuna og er öruggt að KR-ingar gera allt til þess Valur geri sem minnst af þessu í leiknum í kvöld. HELGARBLAÐ PVámorgum Helgi Seljan er hættur á þingi eftir að hafa setið 16 þing. Sverrir Hermannsson hefur kallað hann „kórdrenginn frá Reyðarfirði" en Helgi lætur hvorki andstæðinga né samherja eiga neitt inni hjá sér. Það liggur í augum uppi i helgarviðtalinu. Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður er i vanda. Skytturnar virðast ekki falla landsmönnum i geð og enn á eftir að koma i Ijós hvort útlending- ar vilja sjá myndina. Helgarblaðið ræddi stöðuna við Friðrik. Óskar Gislason, faðir islenskrar kvikmynda- gerðar, fer mikið i bió. Kvikmyndirnar hafa alltaf átt hug hans allan. Hann hlaut menningar- verðlaun DV i ár og Helgarblaðið ræddi við hann af þvi tilefni. Hann er kallaður „The Cod Father" og hefur tekið tröllatrú á lýsi. Lýsið er allra meina bót og gildir þá einu hvort um er að ræða gikt eða eyðni. Hann heitir Dale Alexander og flytur nú íslendingum trú sina. A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.