Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987. 5 Fréttir Könnun Félagsvísindastofnunar: DV stærra en Moigun blaðið á Norðuriandi DV er útbreiddara en Morgun- blaðið bæði í Norðurlandskjördæmi eystra og Norðurlandskjördæmi vestra. t Þetta sést í niðurstöðum könnun- ar, sem Félagsvisindastofnun helúr gert fyrir Dag á Akureyri, þegar teknir eru samtals þeir, sem sjá dag- blöðin daglega og nokkrum sinnum í viku. Á Norðurlandi eystra sjá 33,2 pró- sent DV daglega og 30,6 prósent nokkrum sinnum í viku eða samtals 63.8 prósent. 39,9 prósent sjá Morgunblaðið daglega og 22,3 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 62,2 prósent. Dag sjá 60,5 prósent daglega og 22.3 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 82,8 prósent. Tímann sjá 12.9 prósent daglega og 13,4 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 26.3 prósent. Þjóðviljann sjá 8,2 pró- sent daglega og 8,2 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 16,4 prósent. Lestur dagblaða í Norðurlandi vestra 58,1% 60 50 40 30 20 10 >. ■ " >' ' to-jiVtÆYiw.iJr, 55,9% 58% - ' ' ' " ' í' mmwm '', '' s'-s^?-: h; '■ J 1 kj c 30,4% 7 18,6% . / / > SÍSÍffiSSi : 1 iE SÍSlÍSÍSiSS k 3,8% > a 1 ! I I i j h- > S a. £ < Albert Guðmundsson þingmaður: „Skil ekki þetta nýja sprengjukast“ „Á sama tíma og ég reyni að lægja öldumar í Sjálfstæðisflokknum og segi af mér ráðherraembætti til þess að allt springi ekki í loft upp heldur formaðurinn áfram að stinga í bakið á mér. Þetta tvöfalda siðgæði sem nú er búið að taka upp í flokknum er óskiljanlegt og ég skil ekki heldur þetta nýja sprengjukast," sagði Al- bert Guðmundsson alþingismaður í morgun. Tilefni þessara orða Alberts er sú yfirlýsing Þorsteins Pálssonar á Stöð 2 í gærkvöldi að Albert komi ekki til greina á ráðherralista formanns- ins, verði Sjálfstæðisflokkurinn í næstu ríkisstjóm. „Það segir sig sjálft eftir það sem gerðist í dag,“ sagði Þorsteinn. Áður í viðtalinu kallaði hann viðburði dagsins harm- leik og sagði málinu lokið, menn virtu niðurstöðu Alberts. „Ég sé ekki hvemig á að koma því heim og saman að ég sé talinn óhæf- ur ráðherra en hæfur til þess að veita framboðslista flokksins í stærsta kjördæmi landsins forystu. Enn síður skil ég að formaður flokksins geti lýst því yfir núna að ég verði ekki aftur ráðherra. Hann ræður því ekki einn og ætlar hann að ganga í berhögg við vilja kjó- senda, ef við næðum sigurstöðu í kosningunum undir minni forystu? Mér hefur verið og er hlýtt til Þorsteins Pálssonar. Ég átti þátt í því að koma honum á þing í sam- vinnu við Ingólf Jónsson og ekki síður í því að hann var valinn form- aður flokksins, í samvinnu við Geir Hallgrímsson. Ég skil ekki með neinu móti hvað honum gengur til með þessu sífelldu árásum á mig og hélt að það væri Sjálfstæðisflokkn- um betra veganesti að slökkva þar elda persónulegra átaka heldur en að kveikja nýjan um leið og annar slokknar," sagði Albert. En er hann búinn að taka endan- lega ákvörðun um að sitja á lista flokksins eða hvort hann fari í sér- framboð á Borgaralistanum? „Ég mun rasða við mitt fólk í dag og á morgun. Það er slíkur þrýstingur frá fólki um allt land að ég get ekki annað en tekið hann til greina og hugleitt málið. Mér þykir vænt um Sjálfetæðisflokkinn og þykir það mjög leiðinlegt ef mér verður gert ókleift að starfa í honum. En það er ekki endalaust hægt að sætta sig við þann leik sem þar er leikinn. Þessi mál skýrast væntanlega á morgun, annað veit ég ekki núna.“ -HERB Loks sjá 2,6 prósent Alþýðublaðið daglega og 1,7 prósent nokkrum sinnum í viku eða samtals 4,3 pró- sent Á Norðurlandi vestra sjá 33,3 pró- sent DV daglega og 24,8 prósent nokkrum sinnum i viku eða samtals 58.1 prósent. Morgunblaðið sjá 34,8 prósent daglega og 21,1 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 55,9 prósent. Dag sjá 27,1 prósent daglega og 30,9 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 58 prósent. Tímann sjá 15,2 prósent daglega og 15.2 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 30,4 prósent 6,7 prósent sjá Þjóðviljann daglega og 11,9 prósent nokkrum sinnum í viku eða alls 18,6 prósent. Loks sjá 1,9 prósent Al- þýðublaðið daglega og 1,9 prósent nokkrum sinnum í viku, samtals 3,8 prósent. Úrtakið í könnuninni voru 650 manns á aldrinum 18-75 ára. -HH Auglýsing um innlausn happdrættísskuldabréfa rfldssjóðs J flokkur 1977 Hinn 1. apríl nk. hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs í J flokki 1977, (litur: grænn). Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.500,00, nú kr. 25,00, verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á framfærsluvísitölu frá útgáfudegi á árinu 1977 til gjalddaga í ár. Innlausnarverð hvers skuldabréfs í greindum flokki er kr. 886,00 Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á, að bréfin eru eingöngu innlevst í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10. Revkiavík. Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu Seðlabankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans. Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar framfærsluvísitölu Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 1. apríl 1987. Reykjavík, mars 1987 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.