Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987. 7 Fréttir Helgi Valdimarsson, formaður læknaráðs Landsprtalans: Oþörf sjúkrarúm? Yfirlýsingum borgarlæknis svarað Borgarlæknir varpaði þeirri spumingu íram í DV sl. laugardag hvort nokkur raunveruleg þörf væri fyrir þau sjúkrarúm sem hafa verið lýmd á Landspítalanum undanfama daga vegna verkfalls hjúkmna- ríræðinga. Þessi spuming virðist hafa vaknað vegna þess að þetta hefur tekist án þess að neyðarástand hafi skapast. Enn fremur lætur borg- arlæknir að því liggja að íjölgun sjúkrarúma stuðli að því að læknar freistist til að leggja sjúklinga að óþöríú inn á spítala. Staðreyndir málsins Vegna þessara yfirlýsinga er nauð- synlegt að upplýsa eftirfarandi. 1. Vegna yfirvofandi verkfalls var fyrir nokkm hætt að kalla sjúkl- inga inn af biðlistum. Þar með hefur mikilvægum rannsóknum og aðgerðum einfaldlega verið slegið á frest þótt þess sé auðvitað vand- lega gætt að stofiia engu mannslífi í voða. Hins vegarer ljóst að marg- ir sjúklingar og aðstandendur þeirra hafa orðið fyrir vemlegum óþægindum vegna ótímabærra út- skrifta eða frestunar innlagna. 2. Efundanemskildirgeðsjúkling- ar hefur sjúkrarúmum fyrir skammvistunarsjúklinga í reynd nánast ekkert fjölgað í Reykjavík sl. 17 ár. Á þessu tímabili hefur hins vegar orðið veruleg fólksfjölg- un á höfuðborgarsvæðinu og þessi aukning er mest í elstu aldurs- hópunum sem þurfa helst á bráðri sjúkrahúsvist að halda. 3. Þrátt fyrir óbreyttan fjölda sjúkrarúma er nú veitt þjónusta hérlendis fyrir mikinn fjölda sjúkl- inga sem fyrir 17 árum var annaðhvort ekki unnt að lækna eða vom sendir á sjúkrahús er- lendis. Nægir í þessu sambandi að benda á lagfæringar og endumýj- un á liðamótum og æðakerfi, heilaskurðlækningar, miklar fram- farir á sviði þvagfæralækninga, aukna möguleika til að lækna eða lengja líf krabbameinssjúklinga, hjartaþræðingar og nú síðast hjartaskurðlækningar. Þessi og margvísleg önnur þjónusta gerir kröfúr um vemlega aukið rými fyrir skammtíma vistun á sér- hæfðum sjúkrahúsum höfuðborg- arsvæðisins. 4. Skynsamlegt hefði verið að spyrja hvemig hægt hafi verið að i'eka þessa auknu þjónustu án þess að fjölga sjúkrarúmum. Þar kemur ýmislegt til. í fyrsta lagi hefur verið unnt að stytta legutíma margra sjúklinga með bættum rannsóknaraðgerðum og aukinni hagræðingu. Þannig hef- ur t.d. meðallegutími sjúklinga á lyfjadeild Landspítalans styst síðan 1970 úr u.þ.b. 20 dögum niður í 7 'A dag. I öðm lagi hefúr vemlega fækkað innlögnum í því skyni að sjúkdóms- greina fólk. í þriðja lagi er í ríkara mæli farið að framkvæma margvíslegar smærri skurðaðgerðir án þess að leggja sjúklinga inn á sjúkrahús. Síðast en ekki síst hefur þjónusta heimilis- og heilsugæslulækna eflst vemlega undanfarin ár. Gagnstætt þvi sem borgarlæknir virðist vera að gefa í skyn held ég að langflestir heilsu- gæslulæknar kappkosti að stunda sjúklinga sína sjálfir og forða þeim i lengstu lög frá innlögnum á spit- ala. Enda em sérfræðingar sjúkra- húsanna í vaxandi mæli kallaðir til ráðgjafar á heilsugæslustöðvar. Ábyrgð embættismanna Ekki er til þess vitað að borgar- læknir hafi kynnt sér sérstaklega verkfallsviðbúnað á Landspítalan- um eða ástand þeirra sjúklinga sem hafa verið útskrifaðir þaðan að und- anfornu. Honum ætti þó að vera vel kunn- ugt um þær auknu þjónustukröfur sem gerðar hafa verið á sjúkrahús- inu undanfarin ár án þess að á móti hafi komið teljandi fjölgun sjúkra- rúma til skammtímavistunar. Miklu varðar að mark sé takandi á upplýs- ingum háttsettra embættismanna til fjölmiðla. Ég vona því að fyrrgreind- ar yfirlýsingar hafi verið rangt eftir borgarlækni hafðar. Skúll Johnsen bmgartæknlr um útskriftir sjúkflnga^^ „Má spyija hvort þessi nim séu ekki óþörf?“ - Mktalalaknamlr endanlega ábyrglf fyrfr sjúkHnguinim Athugasemd fra borgarlækni Vegna ónákvæmni, sem gætir í frá- sögn af viðtali blaðamannsins HERB við undirritaðan og birtist í DV laug- ardaginn 21. mars sl., vil ég taka fram eftirfarandi: Það er rangt, sem eftir mér er haft, að ég telji að það hversu marga sjúkl- inga er unnt að útskrifa vegna verk- falls hjúkrunarfræðinga þýði að ekki sé þörf fyrir öll sjúkrarúmin. Það er að sjálfsögðu þörf fyrir öll rúmin, ann- ars væru þau ekki notuð. Biðlistar benda auk þess til þess, að þörf sé fyr- ir enn fleiri rúm en nú eru. Ég reyndi einungis að útskýra að sjúkrarúmaþörf og sjúkrarúmanotkun væri mismunandi frá einum stað til annars. Einnig sýna rannsóknir að unnt væri að sinna hluta af þeirri þörf, sem fram kemur í sjúkrarúmanotkun, með ýmsum öðrum ráðstöfunum. Til þess að ekkert færi á milli mála um þessi atriði las ég fyrir blaðamanninn niður- stöður greinar minnar, sem birtist í Læknablaðinu 71. árg. 1985, „Áhrif heilsugæslu á sjúkrahúsinnlagnir og aðsókn að göngudeildum": 1. Til að saman fari gæði og hag- kvæmni í heilbrigðisþjónustunni þurfa hinir ýmsu þjónustuhættir að hafa rétt vægi. 2. Sjálfkrafa tilhneiging er til eftir- spumar eftir sérhæfðri og tækni- veeddri þjónustu. Góð utanspítala- þjónusta dregur úr þessari tilhneigingu. 3. Sjúkrarúmaþörf er ekki fost út- reiknanleg stærð heldur er hún að nokkrum hluta afleidd af þjónustu á öðrum sviðum og háð skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. 4. Ymsir þættir aðrir en sjúkdómar og skipulag heilbrigðisþjónustu hafa áhrif á eftirspum eftir sjúkra- rúmum. Þar má nefria rúmafram- boð, aldursdreifingu, félagsaðstæð- ur og byggðarhætti. Það sem blaðamaðurinn HERB hefur eftir mér í viðtali er því ranglega eftir haft og leiðréttist hér með. Skúli G. Johnsen borgarlæknir SAFNIÐ KRÖFTUM FYRIR SUMARIÐ Orkulind býður upp á breytta og bætta aðstöðu í EROBIKK og LlKAMSRÆKT fyrir fólk á öllum aldri. Nýr 90 m2 eróbikksalur. Þjálf- arar á staðnum. Tökum fólk í einkaþjálfun. Einnig Ijós, gufa og heilsubar. ORKULIND - Brautarholti 22. Simi 15888 Atari 1040 STF Örtölva: Motorola 68000 1040K minni (RAM). Innbyggt 720K diskdrif. ' Skjár s/h 640x400 punktar. Ásamt: mús, ritvinnslu, Basic, Logo og teikniforriti. Verð kr. 44.000 stgr. Atari 520 STM Örtölva: Motorola 68000 512K minni (RAM). Diskdrif 720 eða 360K. Sjónvarpstengi. Ásamt: mús, ritvinnslu, Basic, Logo og teikniforriti. Verð kr. 34.600 stgr. Ögn Borgarlæknir, Skúli Johnsen, er ósáttur við það sem eftir honum var haft í frétt um spítalaverkfall og spít- alamál. Annars vegar byijar hann á að segja að gætt hafi ónákvæmni af minni hálfu. Hins vegar endar hann á að segja að það sem ég hafði eftir honum hafi verið ranglega eftir haft. Það er auðvitað verulegur munur á ónákvæmni og rangri frásögn og hefði verið betra að fá ótvíræðari athuga- semd. Hitt er svo mergurinn málsins að það kemur hvergi fram í tilvitnunum mínum í Skúla Johnsen að hann telji sjúkrarúmin, sem losuð eru núna, óþörf. Hann svaraði einfaldlega spum- ingu minni í þá veru með annarri spumingu: „Og það má alveg spyrja hvort þessi rúm á Landspítalanum, Athugasemd blaðamanns: um ónákvæmni HUGTAK HF., Vestmannabraut 25, Vestmannaeyjum. S. 2963. DNG, Oseyri 4, Akureyrl. S. 26842. sem hafa verið rýmd, séu ekki óþörf.“ Ég breytti ekki öðm en því að færa „á Landspítalanum“ úr spumingu minni í svar hans, eingöngu sam- hengisins vegna. Um þessi merkilegu rúm, sem nú standa auð og yfirgefin, var ekkert annað eftir Skúla haft. Það er því ekki um aðra ónákvæmni að ræða varðandi þetta mál en ég hef þegar skýrt og ekkert ranglega haft eftir Skúla um það. Mér er það hulin ráð- gáta hvemig borgarlæknir les það sem skoðun sína eða fullyrðingu sem haft er eftir honum sem spuming í frétt- inni, meira að segja kirfilega merktri í fyrirsögn með spumingarmerki sem átti þó alls ekki að vera þar. Ég skil það hins vegar að borgar- læknir er sammála sjálfum sér í athugasemdinni að því er varðar óþarflega mikla sjúkrarúmanotkun. Er það ekki mergurinn málsins, burt- séð frá því á hvaða spítala þessi rúm em nú niðurkomin? Herbert Guðmundsson. MARCO HF., umboðs- og helldverslun, Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavik. Símar 687970 & 687971. Hjólatjakkar Eigum fyrirliggjandi 1,5tonn kr. 5.500,- 2tonn kr. 5.995,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.