Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987. Utlönd Hafa beyg af vígbún- aði Sovétríkjanna Teikning þessi sýnir SS-25 kjamaflaug Sovétmanna, en hún af iangdrægari gerðinni sem komast heimsálfanna á milli. Hana settu Sovétmenn á flytjanlega skopalla 1985. - simamynd Reuter 1 nýjustu skýrslu bandaríska her- málaróðuneytisins af hemaðarmætti Sovétmanna og vígbúnaði segir að Sovétmenn hafi tekið í gagnið nýjan kjamorkukafhát af Delta4 gerðinni og að síðar á þessu ári muni þeir hafa tiltæka SSX-24 flaugina sem ber tíu kjamorkuhleðslur. Caspar Weinberger vamarmóla- ráðherra kynnti skýrsluna á fundi með blaðamönnum í Washington í gær og sagði að Varsjárbandalags- ríkin kepptust áfram við að vígbúast og söfhuðu birgðum árásarvopna. Þar væri bæði um að ræða nýrri útgáfur af eldri gerð eldflauga, með- aldrægra og langdrægra, og sömu- leiðis hefðbundnari gerð vígvéla, eins og herþotur, skriðdreka, þyrlur og fleira. Bandaríkjamenn halda því fram að á flestum sviðum landhemaðar og hergagna, sem honum fylgja, standi Varsjárbandalagið öflugra og allt upp í sexfalt öflugra. TASS-fréttastofan sovéska ber þetta til baka og segir skýrsluna uppfulla af lygum sem miði að því að eitra andrúmsloftið í Genfarvið- ræðunum og spilla fyrir samningum. Caspar Weinberger, vamarmálaráðherra Bandarikjanna, hampar á lofti skýrslu hermálaráðuneytisins um mat á vígbúnaði Sovétmanna sem Was- hingtonstjóminni stendur stuggur af. - simamynd Reuter Disney-land í Frakklandi Forvígismenn Walt Disney-fyrírtækisins bandariska og frönsk yfirvöld hafa undirritað samning sem felur i sér að sett veröi upp við Mame-la-Vallée (um 45 km austur af Paris) leiksvæði i líkingu við hiö fræga Disney-land í Bandaríkjunum. Á meðfylgjandi mynd sést Michael D. Eisner, stjómarfor- maöur Disney-fyrirtækisins, gefa Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakk- lands, málverk af sviðsmynd úr teiknimyndinni „Mjallhvít og dvergamir sjö“ eftir undirskrift samninganna. - simamynd Reuter Umsjón: Guömundur Pétursson og Ingibjörg B. Sveinsdóttir Felldu 1200 Ljbýuheimenn Yfirmaður hersins í Tsjad hefur til- kynnt að her hans hafi fellt rúmlegá tólf hundruð líbýska hermenn í árás er gerð var á sunnudaginn til þess að taka bækistöðvar Líbýuhers í norður- hluta Tsjad. Rúmlega fjögur hundruð líbýskir hermenn voru teknir til fanga. í sömu tilkynningu var greint frá því að rumlega fjögur hundruð her- menn fró Tsjad hefðu fallið og sextíu særst. Her Tsjad tóks að komast yfir tals- verðar vopnabirgðir, sprengjuflugvél- ar frá Tékkóslóvakíu, sovéskar þyrlur og fjölda skriðdreka. Ábóti kærður fyrir fjársvik Fyrrverandi ábóti í Austumki er nú fyrir rétti ákærður fyrir að hafa svikið fé út úr klaustrinu sem hann veitti forstöðu. Hefur ábót- inn játað að hafa selt eignir klaustursins fyrir rúmlega þrjár milljónir skildinga í eigin nafni. Segist hann hafa notað féð sem fékkst fyrir eignimar til þess að gera urabætur á klaustrinu sem var illa við haldið þegar hann tók við embætti 1971. Ábótinn lét af störfum í febrúar í fyrra er hann var handtekinn. Þingsetning í Peking Deng Yingchao, ekkja Chou Enlais, var í gær viðstödd setningu þingsins í Peking. Deng er oröin áttatíu og þríggja ára gömul og nýtur hún hér aðstoðar til aö rísa upp er þjóðsöngurinn var leikinn. Tók Deng til orða á þinginu og hvatti hún þingmenn til að berjast gegn borgaralegum öflum. _ simamynd Reutar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.