Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987. 31 Sandkom Albert Guömundsson. Hver lak? Margir hafa velt því fyrir sér, í framhaldi af hvassviðr- inu í kringum Albert Guð- mundsson, hver hafi lekið f upplýsingum af þingflokks- fundi sjálfstæðismanna í Helgarpóstinn. Eru allir grun- aðir en enginn krossfestur eins og einhvers staðar stend- ur skrifað. Og líklega verður erfitt að fá staðfestingu á að einhver einn einstaklingur eigi sök á lekanum. Þær raddir heyrast nefnilega að það hafi ekki ver- ið nein tilviljun að fréttin um Albertsmálið birtist í HP á þessum tiltekna degi. Þá stóð ári vel á, þinglausnir fóru fram og Albert var í útlöndum. Þorsteinn Pálsson. Sjálfstæðisflokknum var því try ggður friður við þingstörf meðan þau stóðu yfir. Því full- yrða margir að þama hafi verið um samantekin ráð að ræða og þingflokkurinn þvi verið eins og gatasigti þegar græna ljósið kom. Vafalaust er eitthvað til í þessu. Það vekur alla vega undrun að formaður Sjálf- stæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, skuli ekki hafa for- dæmt opinberlega það trúnað- arbrot sem þama hefði verið á ferðinni hefði allt verið með felldu. Annað eins hefur nú gerst. Hann á nafnið Þjóðarflokkurinn svonefndi býður nú fram í fyrsta sinn. í upphafi vom uppi nokkrar vangaveltur meðal flokks- manna með nafn á þennan nýja flokk. Var sú hugmynd lengi vel ofan á að hann yrði látinn heita Lýðræðisflokkur- inn. En þá kom sr. Árni Sigurðs- son á Blönduósi fram með þá uppástungu að flokkurinn yrði látinn heita Þjóðarflokk- urinn. Sr. Árni skipar heiðurs- sæti á lista flokksins í Norðurlandi vestra. Vísað af landsfundi Það átti sér stað á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins að áheymarfulltrúa Arndísi Tómasdóttur var vísað út af fundinum. Að sögn Víkur- frétta gerðist þetta rétt fyrir fundarlok. Arndís hefur setið lands- fundi flokksins að undanförnu sem kjörinn fulltrúi. Þegar slíkt var ekki lengur fyrir hendi óskaði hún eftir að fá að sitja fundinn sem áheym- arfulltrúi. Fékk hún boðskort sem slíkur. Á sunnudagsmorguninn var svo komið aðmáli við Amdísi og hún beðin að víkja af fund- inum. Að sögn var þetta gert vegna óska ónefndra kjörinna fulltrúa. Er fullyrt að þar hafi verið um að ræða einstaklinga úrfulltrúahópi Njarðvíkinga og Keflvíkinga. Undarlegt at- hæfi það. Bara kápan Við sögðum frá því um dag- inn að margir hefðu fyllst vandlætingu þegar ræðumað- ur einn í mælskukeppni framhaldsskólanna lét stjórn- arskrána falla í gólfið í hita leiksins. Þarna var á ferðinni einn úr liði Garðbæinga sem kappræddu við Menntaskól- ann í Reykjavík um ágæti einræðis og lýðræðis. Var keppninni sjónvarpað þannig að margir urðu vitni að falli stjómarskrárinnar og hneyksluðust á framferði ræðumannsins unga. Við getum nú upplýst þá hina sömu um það að það var aðeins kápa stjórnarskrárinn- ar sem var látin falla. Hafði verið tekið innan úr henni áður en hinn leikræni at- burður átti sér stað en einhver pappír settur inn í kápuna í staðinn. Vanvirðingin var því ekki eins mikil og margir héldu. Úskagjöfin þetta árið Nú nálgast sá árstími óð- fluga sem steypir svitanum út Óskagjölfermingarbarnsins i ár. á mörgum foreldrum. Ferm- ingarnar eru sumsé á næsta leiti. Margir hugsa stórt og hella sér út í matarveislur til heið- urs afleggjumnum. Aðrir láta sér nægja að bjóða upp á kaffi og „meððí.“ Þannig er sá þátt- ur fyrirtækisins mismunandi milli heimila. En það er annað sem gengur eins og rauður þráður í gegn- um ferminguna. Það eru óskagjafir fermingarbarn- anna. Að þessu sinni mun vera mikið um að þau krefjist lit- sjónvarps í herbergin sín. Þetta er komið í tísku og und- an því verður ekki vikist. Þá mun óskadraumur nr. tvö vera sá að fá nægilega mikla pen- inga í fermingargjöftil að geta keypt sér afruglara sé hann ekki þegar til staðar á heimil- inu. Það er annars mikil guðs blessun að þessir rollingar skuli ekki vera komnir á bíl- prófsaldurinn þegar þeir fermast. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttlr. Kvikmyndir Stjömubíó/Peggy Sue giftist ★ ★ ★ —i Tímaferðalangur Peggy Sue Got Married. Tónlist John Barry. Búningar Theadora Van Runkle. Kvikmyndun: Jordan Croneweth. Klipping: Barry Malkin. Handrit Jerry Leichtling og Arlene Samer. Framleiöandi: Paul R. Gur- ian. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Aöalhlutverk: Kathleen Tumer, Nicolas Cage, Barry Miller, Catherine Hicks, Joan Allen, Kevin O’Connor, Jim Carrey og Lisa Jane Persky. Bandarísk, 1986. Tímaferðalög eru sálnaflakk nú- tímans, um það ber myndin um hana Peggy Sue vitni. Það er ekki hægt annað en að dást að áræðni Coppola sem með því að ráðast í gerð þessar- ar myndar tekur mikla áhættu. Það hlaut að vera öllum ljóst að hversu vel sem til tækist með myndina yrði hún alltaf borin saman við AFTUR TIL FRAMTfÐARINNAR - og vissulega eru myndimar líkar. Peggy Sue ferðast rúm 20 ár aftur í tímann en öfugt við aðalpersónuna í AFTUR TIL FRAMTÍÐARINNAR er hún ekki aðskotahlutur í þeim raunvemleika sem hún er allt í einu hluti af. Peggy Sue er í raun hún sjálf fyrir 20 árum nema hvað nú veit hún nákvæmleg hvað á eftir að gerast og nú er bara að velja og haíha. Hverju vill hún breyta í lífi sínu sem hún var reyndar sannfærð um að hefði líklega ekki tekist allt of vel? En valið er erfiðara en hún heldur. Það er ekki hægt að skilja hið góða frá hinu illa, líf hvers og eins byggist á gleði og sorg og það er samspil þessara tveggja þátta sem gefa lífinu lit. Það rennur upp fyrir Peggy Sue áður en yfir lýkur. Mynd- in verður í raun þroskasaga konu sem fær óvenjulegt tækifæri til að velta fyrir sér lífshlaupi sínu. f gegn- um fúllorðinsaugu Peggy Sue sjáum við unglingsár hins hefbundna bandaríska unglings í nýju ljósi. Maður hlýtur að undrast í hve fast- mótuðu og vemduðu umhverfi ríkasta þjóð heims elst upp. Peggy Sue hefur auðvitað sitthvað við þetta að athuga og flest það sem hún lætur sér um munn fara hljómar sem orðskviðir. Þetta er þungamiðjan í skemmti- legu og vel skrifuðu handriti þeirra Leichtling og Samer. Sagan um hana Peggy Sue er full af gáska og mannlegri hlýju og myndin sleppur blessunarlega við að verða einhver léttúðarfullur vísindaskáldskapur færður í þann tæknibúning sem nú þvkir svo nauðsynlegur í henni Hollvwood. Að þvi leyti stendur hún framar en AFTUR TIL FRAMTÍÐ- ARINNAR. Aðdáendur Coppola hljóta að gleðjst yfir þessu verki hans. Eftir mörg hliðarspor og mikla tilrauna- starfsemi er meistarinn kominn á rétt spor aftur. Það er ekki hægt annað en dást að því hve auðveld- lega hann skýst 20 ár aftur í tímann og bregður upp heillandi mynd af smábæjarlífi í Ameríku. Og þegar kemur að því að draga upp tálmvnd- ir jafnast ekkert á við Ameríku. Coppola hefur ekki látið sig muna um að grafa upp nokkur hundruð kadilakka til þess eins að geta látið myndavélina ferðast frjálslega um götur bæjarins. Búningamir, tónlist- in og sviðsmyndin hjálpast síðan að til að fullkomna myndina. Að sögn var beðið með gerð mynd- arinnar þar til Kathleen Turner hefði tíma aflögðu fyrir aðalhlut- verkið. Eftir á er ekki hægt að segja annað en það hafi verið rétt ákvörð- un. Kathleen er ákaflega heillandi í hlutverki tímaferðalangsins Peggy Sue og þar að auki á hún auðvelt með að leika niður fyrir sig í aldri. Þá er Nicolas Cage einnig mjög góð- ur sem hinn ráðvillti töffari og vonbiðill Charlie Bodell. Unglingamynd fyrir fúllorðna hef- ur verið sagt um þessa mynd Coppola og er það líkleg réttnefni. -Sigurður Már Jónsson ★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit Tökum uð ohhur Fiönnurt og uppsetnlngu: Bré/sefnls BœWtnga Egðublaða Bóha Gognogrunna Töflurelfma Grafíh. (Cínurlta) RttoínnsCu Bregtum skrdm uf VC gerö i tiac gerö. ÖCÍ utnna prentuö út u Lnzerprentoru. "Sfcönnttm" mgnrtt r eðu uörumerki Utn t sftjöt. nakkVvrk, S. 46228 VANTAR I EFTIRTALIN HVERFI Vesturgata Nýlendugata AFGREIÐSLA Þverholti 11 - Simi 27022 GELLIIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.