Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1987, Síða 36
* 36 V MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Glenn Ford er að verða sjötugur og hefur haldist með afbrigðum illa á kvenfólki á liðnum árum. Nú hefur karli tekist að krækja í nýjan kvenmannsbúk, sem er tuttugu og fimm ára gam- all og gegnir nafninu Valerie Ojala. Þetta er myndarljóska og segja fróðir að henni muni ætlað að verða fjórða frú Ford og það alveg á næstunni. Þessa dagana er parið með afbrigðum ást- fangið og sést hreint úti um allar hæðir í glitborginni rómuðu-glampandi af gleði og ánægju hvort með ann- að. Anna prinsessa var með pottlok eitt ægifag- urt við opnun á City of London School í síðustu viku . Höfuófatii '<a!la henn- ar bresku þegnar pillubox- hatt en niður úr apparatinu lafði einhvers konar flugna- net af grófu gerðinni. Einhverjir voru að agnúast út í höfuðbúnaðinn en Anna lét það lítið á sig fá enda getur konan varla dragnast um með prinsessukórónuna allan ársins hring. Cyndi Lauper kom fram á hljómleikum í New York íklædd hreint al- veg ógleymanlegum bún- ingi. Yfir sig hrifnir aðdáendurnir líkja henni við ýmsar dýrðardísir sögunnar en að sjálfsögðu hlýtur sjón að vera sögu ríkari þarna sem annars staðar. Til fróð- leiks skal þess getið að búningurinn er eldrauður - líka nælonsokkarnir - legg- ingarnar gylltar eins og hárlokkar ungfrúarinnar og sokkaböndin himinblá. Augnskuggarnirvoru í lit við fyrrnefnd sokkabönd og yndisfögur röddin hefði get- að klofið alimáf á flugi hraðar en hönd á festi. Al- vöruhljómleikar í eplaborg- inni ógurlegu! Líflegir íslenskir Lúxarar íslendingafélagið í Lúxemborg hélt þorrablót nýlega og var þar marg- menni að venju. Til skemmtunar var leikklúbburinn Spuni með frum- samda þætti sem fluttir voru undir stjórn Sögu Jónsdóttur. Spuni er orð- inn tólf ára og því litlu yngri en nýlendan sjálf og hefur klúbburinn séð um margar skemmtanir og sett upp ótaldar ieiksýningar í gegnum árin. Meðfylgjandi myndir af húll- umhæinu tók leikstjórinn - Saga Jónsdóttir - á þorrablótinu. Ingvar, Dista, Sigrún, Ella Stina, Dís, Bjargey og Inda höfðu saumaklúbbinn frá gamla landinu alveg á hreinu. Farkosturinn er frá bílaleigunni Lux Viking. íslenskar húsmæður i Lúx hafa verið að hverfa i flugið. Ingvar og Óttar mættu með afkvæmin og frumsaminn texta í farteskinu. Hvar er allur fini fiskurinn? Eftirhreytur af fiskiballi þar sem allt var til reiðu nema sá guli. Dista, Sigrún, Ella Stina, Ingvar, Dís, Inda og Bjargey. Hljómsveitin Nátthrafnar kom frá íslandi til að leika fyrir dansi. Hún nýtur hér aðstoða Ómars og Ralphs en þeir eru íslenskir Lúxarar á staðnum. Joan í París Joan Collins var einn gestanna í kvöldverðarboði Diorhússins i Parísar- borg þegar fagnað var fertugsafmæli tiskuhússins. Aðalhönnuður Diors í gegnum árin - Marc Bohan - sést hér bjóða nýjasta fylgdarmann Joan Collins hjartanlega velkominn á staðinn. Símamynd Reuter. Aftur sætisbflstj ór ar Eldgamall filabrandari fjallar um það hvernig koma megi fjórum filum í Fólksvagn. Keimlíkt hlýtur aö vera aö koma fjölskyldunni, farangri og tveim- ur hundum fyrir i Ford Kaprí. Hann leysti það giftusamlega, bílstjórinn á meðfylgjandi mynd, töskurnar á toppinn, fjölskyldan inn í bílinn og hundarn- ir i skottið - hringur sagaður úr skottlokinu fyrir höfuðið á hvuttunum. Þarna er svo komin endanleg lausn fyrir alla hina bráðduglegu aftursætisbílstjóra - mamman og tengdamamman - eða jafnvel makinn siþrasandi - hefðu til að mynda mun betra útsýni með þessu móti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.