Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Side 40
56
Andlát
Willy Hanssen trúboði, sem lést
aðfaranótt sunnudagsins 5. apríl,
verður jarðsunginn frá kirkju Fíla-
delfíusafnaðarins í dag, mánudaginn
13. apríl, kl. 13.30.
Hermann G. Hermannsson tré-
smíðameistari, Melgerði 13, Reykja-
vík, áður Njálsgötu 92, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu 14.
apríl 1987 kl. 15.
Guðjón S. Gíslason múrari, Klepps-
vegi 56, verður jarðsunginn frá
Áskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl.
13.30.
Jóhanna Guðjónsdóttir, Víði-
hvammi 18, sem lést á hjúkrunar-
BILALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.91-31815/686915
AKUREYRI:......96-21715/23515
BORGARNES:............93-7618
BLÖNDUÓS:........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........96-71489
HÚSAVÍK:.......96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI:......97-8303
interRent
CB FORHITARAR
MIÐSTÖÐVARHITARAR
og
NEYSLUVATNSHITARAR
IWIest seldu FORHITARAR
landsins
ÁVALLT TIL Á LAGER.
f SOLVHÖLSGOTU 13 - 101 REYKJAVlK.
SlMI (91) 20680 VERSLUN: ARMOLA 23.
UMBOD: VÖKVALAGNIR, SELFOSSI.
heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 7.
apríl, verður jarðsungin frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 15. apríl
kl. 15.
Hjálmtýr Hallmundsson, Ljós-
vallagötu 28, lést í Landspítalanum
aðfaranótt 8. apríl sl. Útförin fer fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
15. apríl kl. 10.30.
THkyimingar
Leðuriðjan hf. í nýtt húsnæði.
Leðuriðjan hf. varð 50 ára á sl. ári. Það
fer því vel á því að á þessum tímamótum
hefur fyrirtækið eignast eigið húsnæði í
fyrsta sinn á hálfrar aldar ferli sínum. Hið
nýja húsnæði er að Hverfisgötu 52, 2 hæð.
Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur það
verið stærsti aðilinn hérlendis sem fram-
leitt hefur leðurvörur. Atson seðlaveskin
eru helsta framleiðsluvara fyrirtækisins,
en þau eru seld í verslunum um allt land,
auk þess sem flestir bankar hafa þau á
boðstólum fyrir viðskiptavini sína. Aðrar
framleiðsluvörur eru seðlaveski af ýmsu
tagi, m.a. buddur, greiðslukortaveski,
kventöskur, sendlatöskur, skjalatöskur,
lyklaveski, skrifborðshlífar, ráðstefnu-
möppur, matseðlamöppur fyrir veitinga-
hús, hótelmöppur, belti og margt fleira.
Þá hefur Leðuriðjan hf. tekið að sér við-
gerðir á leðurfatnaði. Stofnandi fyrirtæk-
isins og aðaleigandi til dánardags var Atli
R. Ólafsson. Framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins er Nanna Mjöll Atladóttir og
formaður stjómar hlutafélagsins og yfir-
verkstjóri er Margrét S. Bjarnadóttir, sem
starfað hefur hjá fyrirtækinu um áratuga-
skeið. Fyrirtækið hefur verið til húsa víðs
vegar um borgina, nú síðustu árin á
Kleppsmýrarvegi 8. Sennilega muna þó
flestir eftir fyrirtækinu í Brautarholti 4,
þar sem það var í ein tuttugu ár. Með
auknu rými og fyrirhuguðum auknum
vélakosti getur Leðuriðjan hf. nú þjónað
viðskiptavinum sínum mun betur en áður
auk þess sem hún kemst nú nær hringiðu
borgarlífsins. Nýtt símanúmer fyrirtækis-
ins í Hverfisgötu 52 er 21454.
Orgeltónleikar í Dómkirkjunni
Dómorganisti Marteinn H. Friðriksson
mun leika verk eftir J.S. Bach á orgel
kirkjunnar þriðjudaginn 14. apríl kl. 20.30.
Þessir tónleikar eru hluti af flutningi allra
verka J.S.Bach sem íslenskir orgelleikarar
hófu á afmælisári meistarans 1985. Á efnis-
skrá tónleikanna verða prelúdía og fúga
í f- moll, prelúdía og fúga í e-moll, partíta
í f-moll, tríó í c -moll og sex sálmaforleik-
ir. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Kór Langholtskirkju flytur
Jóhannesarpassíuna eftir
Bach.
Á skírdag og föstudaginn langa, 16. og 17.
apríl, flytur kór Langholtskirkju Jóhann-
esarpassíuna eftir Jóhann Sebastian Bach.
Fimm einsöngvarar og kammersveit flytja
yerkið með kórnum. Jóhannesarpassían
jverður flutt kl. 20 á skírdag og kl. 15 föstu-
daginn langa. Einsöngvarar eru Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, Sólveig M. Björl-
ing, Kristinn Sigmundsson, Viðar Gunn-
arsson og Michael Goldthorpe. Michael
Goldthorpe kemur hingað til lands sér-
staklega til að syngja guðspjallamanninn
ií verkinu. Goldthorpe er þekktur fyrir
Iflutning í því hlutverki. Konsertmeistari
ier Júlíana Elín Kjartansdóttir og stjórn-
andi Jón Stefánsson. Miðar eru seldir í
íístóni, Eymundsson og Langholtskirkju.
Námskeið í akstri og meðferð
dráttarvéla
Eins og undánfarin ár verður haldið nám-
skeið í akstri og meðferð dráttarvéla að
Dugguvogi 2 í Reykjavík dagana 29. apríl
til 4. maí nk. Námskeiðið er tvíþætt: For-
námskeið fyrir 14 og 15 ára nemendur og
dráttavélanámskeið fyrir 16 ára og eldri.
Fornámskeiðið stendur yfir í 6 kennslu-
stundir og kostar kr. 1.100. Námskeið
hinna eldri verður 11 stundir og kostar
með öllu kr. 4.000. Það eru sjö aðilar sem
standa fyrir námskeiðshaldinu. Innritun
fer fram á námskeiðsstað, Dugguvogi 2
(við Elliðavog), föstudaginn 24. apríl,
mánudaginn 27. apríl og þriðjudaginn 28.
apríl kl.16-18.30. Þátttökugjald greiðist
við innritun. Tilgangur námskeiðsins er
fyrst og fremst sá að auka öryggi og akst-
urshæfni unglinga en einnig að stuðla að
hagkvæmari vinnubrögðum og bættri
meðferð þeirra á vélunum. Nánari upplýs-
ingar eru veittar hjá Umferðarráði í síma
27666 eða Búnaðarfélagi Islands í síma
19200.
Rakarastofan Klapparstíg
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Simi 12725
Tímapantanir
13010
i
i
i
i
i
i
i
I
i
i
i
i
i
-j
MÁNUDAGUK 13. APRÍL 1987.
í gærkvöldi___________________________________________________pv
Jónína Michaelsdóttir markaðsráðgjafi
Renata Scotto eftirminnileg
framt að standa vörð um flölskyldu-
líf sitt. Renata Scotto verður vafa-
laust eftirminnileg öllum sem sáu
þennan þátt.
Vegur Stöðvar 2 fer vaxandi og
það er ekki síst fyrir þætti og viðtöl
Jóns Óttars og annarra um menn-
ingarmál sem sum eru, að mínu
mati, ásamt Stiklum Ómars Ragn-
arssonar, það athyglisverðasta sem
hér hefur sést í sjónvarpi.
Einnig hafa þættir, þar sem ijallað
er af íúllri einurð en án tilfinninga-
semi um viðkvæm feimnismál, verið
virðingarverðir og hafa í sumum til-
vikum eílaust gert umtalsvert gagn.
En miklu varðar að fara gætilega
með slíkt efiii svo það verði ekki til
þess að kveikja hugmyndir og vekja
upp óværu í stað þessa að kveða
hana niður.
Helgardagskráin fór að mestu
fram hjá mér að þessu sinni. Ég
hlustaði ekkert á útvarp og horfði
lítið á sjónvarp, fylgdist með fréttum
á Stöð 2 í gærkvöldi og þótti mark-
verðust umíjöllumn um ríkissak-
sóknara og kærumar í Hafskipsmál-
inu. Það er einkum athyglisvert að
spumingamar, sem leitað var svara
við, skuli ekki hafa vaknað fyrr hjá
fréttamönnum.
Ég hafði mikla ánægju af viðtali
Jóns Óttars við Renötu Scotto. Mér
þótti áhugavert að kynnast persónu-
legum viðhorfúm söngkonunnar
eftir að hafa heyrt hana syngja í
Háskólabíói daginn áður. Þessi mik-
ilhæfa kona leiftrar af lífi og starfs-
gleði og þykir eitt líf allt of stutt
fyrir það sem hún á eftir að koma í
verk. Henni hefur tekist að verða
og vera 'alþjóðleg stjama en jafn-
Jónína Michaelsdóttir
Lífið er lag
Safnplatan Lífið er lag inniheldur 12 vin-
sæl íslensk og erlend lög, sem öll njóta
mikilla vinsælda um þessar mundir. Á
plötunni eru 12 lög, þar af níu flutt af ís-
lenskum flytjendum. Fjögur þeirra: Lífið
er lag með Model, Norðurljós með Eyjólfi
Kristjánssyni, Sofðu vært með Diddú og
Aldrei ég gleymi með Ernu Gunnarsdóttur
eiga það öll sameiginlegt að vera úr
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva 1987.
Greifarnir eiga lagið Þyrnirós. Vormenn-
irnir syngja lagið Átján rauðar rósir.
Bubbi Mortens og MX21 eiga lagið Skytt-
an á þessari safnplötu. Þá má nefna
endurgerð lagsins No Limit með Mez-
zoforte sem var endurunnið að mestu leyti
í New York fyrir skömmu. Lagið Vopn og
verjur flytja Varnaglarnir. Erlendu lögin
eru topplögin, Everything I Own með Boy
George og Respectable með systrunum
Mel og Kim auk lagsins Mary’s Prayer
með hinu efnilega tríói Danny Wilson.
Umslagið hannaði Auglýsingastofa Ernst
J. Backman og Prisma sá um prentun.
Steinar hf. gefa plötuna út.
Hið íslenska biblíufélag
minnir á Biblíuna á þessum tíma árs, tíma
ferminganna. Biblían fæst í bókaverslun-
um, hjá kristilegu félögunum og í Guð-
brandsstofu, Hallgrímskirkju. Opið
föstudaga kl. 10-12. Sími 17803.
Kvenfélag Breiðholts
heldur fund í Breiðholtsskóla mánudaginn
13. þessa mánaðar kl. 20.30. Snyrtivöru-
kynning og kaffiveitingar.
Páskaferðir Útivistar 16.-20.
apríl.
1. Þórsmörk 5 og 3 dagar. Gist í Útivistar-
skálunum Básum.
2. Öræfi-Skaftafell-Kálfafellsdalur. 5
dagar með dagsferð með snjóbíl á Vatna-
jökul.
3. Snæfellsnes-Snæfellsjökull. 3 og 5 dag-
ar. Gist á Lýsuhóli. Sundlaug.
4. Gönguskíðaferð í Esjufjöll. 5 dagar.
Gist í skála. Uppl. og farm. á skrifst. Gróf-
inni 1, símar: 14606 og 23732. Sjáumst.
Leitarmenn gera sig klára fyrir jöklaferð á miðnætti í nótt.
Skátar leita að
skátum á Langjókli
Fjörutíu manna lið hjálparsveita-
manna á sjö snjóbílum og vélsleðum
leituðu í morgun að tíu félögum sínum
sem lentu í hrakningum á Langjökli
um helgina. Hafði ekkert heyrst til
þeirra frá því á hádegi á sunnudag þar
til á ellefta tímanum í morgun er loks
náðist samband. Höfðu mennimir þá
komið sér fyrir í snjóhúsi, vom við
góða heilsu og biðu aðstoðar.
Mennimir tíu, sem leitað var að,
lögðu á Langjökul á þremur vélsleðum
á föstudagskvöldið og hugðust fara
norður jökulinn. Á hádegi á laugardag
lentu tveir sleðanna fram af snjó-
hengju með mönnum en enginn
slasaðist og sleðamir reyndust í lagi
er að var gáð. Fjórir mannanna urðu
eftir til að freista þess að ná sleðunum
upp en félagar þeirrí héldu í skála í
Fjallkirkju er liggur á móts við Hrút-
fell og voru komnir þangað síðdegis á
laugardag. Skömmu síðar versnaði
veður mjög og samband við mennina
varð slitrótt. Þeir eru mjög vel búnir,
með tjöld og svefnpoka, og hafa því
aldrei verið taldir í neinni hættu.
Á hádegi í gær lagði snjóbíll frá
Hjálparsveit skáta í Reykjavík á
Langjökul af Lyngdalsheiði með
nokkra menn innanborðs og á mið-
nætti vom enn fleiri kallaðir til úr
hjálparsveitum á Suðurlandi og af
Reykjavíkursvæðinu, alls sex snjóbíl-
ar og vélsleðar. Skiptu þeir liði, annar
hópurinn hélt á Langjökul af Lyng-
dalsheiði en hinn ók inn á Kjöl frá
Gullfossi og þaðan upp á jökulinn.
Er DV fór í prentun skömmu fyrir
hádegi höfðu leitarmenn enn ekki náð
til snjóhússins þar sem hinir týndu
héldu sig. I samtölum gegnum talstöð
við leitarmenn sögðust þeir hafa farið
fram af einni snjóhengjunni enn og
því talið þann kost vænstan að halda
kyrru fyrir. Dimmviðri hefti mjög ferð
leitarmanna í morgun og sögðust þeir
ekki vita hvort þeir færu fram eða
aftur. Reyndar sæju þeir ekki handa
sinna skil þama á Langjökli.
-EIR