Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1987, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987. Það eru meira en tuttugu ár síðan 32 ára blaða- maður á Morgunblaðinu sótti um nokkuð sér- stætt starf sem nýlega hafði verið auglýst laust til umsóknar. Starfið er þess eðlis að margir voru útilokaðir sem umsækjendur, ýmist vegna póli- tískrar sannfæringar eða vegna þeirra krafna sem atvinnuveitandi gerði. Ungi blaðamaðurinn á Morgunblaðinu var hins vegar búinn að gera upp hug sinn til stjómmála og þóttist vita að í starf- inu gæti hann samtímis aflað sér lifibrauðs og unnið hugsjónum sínum brautargengi. Slík vinna liggur ekki alltaf á lausu. Sá hængur var þó á að margir hötuðust við allt það sem viðkom atvinnuveitandanum. Það var viðbúið að nokkur óþægindi kynnu að fylgja starfinu. Blaðamaðurinn var hins vegar þeirrar skoðunar að fyrir málstaðinn mætti færa töluverðar fórnir og hikaði ekki við að sækja um. Enn þann dag í dag segist hann jafnsannfærður um málstaðinn og ekki sér hann eftir neinu. Þegar valið stendur á milli góðs og ills, réttlætis og ranglætis, er auðvelt að taka afstöðu. „TSarÁtts. góðs og ills“ NATO-Mangi slær ekki af Það fór svo að Morgunblaðsmaður- inn hreppti starfið og var ráðinn frá og með 1. desember 1966. Þá tók Magnús Þórðarson, próflaus lög- fræðistúdent og blaðamaður á Morgunblaðinu, við starfi upplýs- ingafulltrúa NATO á íslandi. Við Magnús festist uppnefnið NATO- Mangi og segist hann aldrei hafa kunnað því illa - fremur talið það heiðursnafn. Skrifstofa Magnúsar er í Garða- stræti 42, ómerkt og lætur lítið yfir sér. Hún er ómerkt af þeirri ástæðu að til skamms tíma höfðu einhverjir fyrir sið að rífa skiltið niður sem auðkenndi aðsetur upplýsingafull- trúa NATO. Sá siður var tekinn upp þegar ungt fólk var róttækt og vildi Island úr NATO og herinn burt. Nú er öldin önnur og hvorki heróp eða mótmæli síðhærðra hippa í lörfum, né skemmdarverk á húsaskiltum spilla friðsælu vori við Garðastræti. í dag er ungt fólk sléttgreitt og sætt og hefur ekki tíma til að mótmæla einu eða neinu. Metorð og starfs- frami fást ekki með andófi og mótmælum. Þess vegna er ekki lík- legt að nokkur leggi á sig að efna til mótmæla þegar utanríkisráðherra- fundur NATO hefst hér eftir rúmar tvær vikur. Breyttir tímar Magnús Þórðarson tekur á móti blaðamanni, rólegur og yfirvegaður, á skrifstofunni á þriðju hæð. Hús- gögnin eru gömul og farin að láta á sjá. Það er saga á bak við þessi hús- gögn; franskur konsúlstóll og ríkis- stjórnarstólar ásamt viktoríönskum sófa sem síðhærðir og róttækir fitu- hlunkar gerðu einu sinni að vígi sínu. Yfirbragð Magnúsar er rólegt en þegar samtalið berst að hans hjart- ans máli hækkar hann gjarnan röddina og notar handasveiílur til að auka áhersluna. Það er auðvelt að ímynda sér hann á tvísýnum fund- um talandi með hendur á lofti og funheita sannfæringu í brjósti. Eins og gefur að skilja vill Magnús helst ekki tala um annað en þau mál sem lúta að NATO. f þetta sinn var er- indi blaðamanns ekki að fræðast um Atlantshafsbandalagið. Magnús var í eldlínunni þegar umræðan var sem áköfust um aðild fslands að NATO og veru bandaríska herliðsins á Keflavíkurflugvelli. Upplýsingafulltrúi NATO stóð í fylk- ingarbijósti þeirra sem á fundum og í fjölmiðlum vörðu aðildina að Atl- antshafsbandalaginu. Hann tók líka á móti skömmum og svívirðingum andstæðinganna og var sakaður um svik við land og þjóð. Sannfærður, sem Magnús var og er, snertu skammirnar hann lítið. Það var helst að fjölskyldunnar vegna þætti hon- um fárið óþægilegt sem geisaði um Íiá er beittu sér í baráttunni um stöðu slands í samfélagi þjóðanna. Magn- ús vill þó ekki gera of mikið úr þeim ‘styrr um NATO sem stóð fram á síð- asta áratug. - Vitanlega var fólk með kröfu- spjöld og var að mótmæla hinu og þessu. En það var aldrei nema lítill hluti þjóðarinnar sem tók þátt. Aðal- lega var það ungt fólk, sem af mismunandi ástæðum vildi mót- mæla. Ég sá hérna um daginn umfjöllun í sjónvarpinu um þennan tíma og fannst of mikið gert úr ástandinu. Þetta var ekki svo of- boðslegt. Magnús dregur hins vegar ekki dul á að það er miklu auðveldara að koma málstaðnum á framfæri í dag en það var á síðasta áratug. - Blessaður vertu, það er ekki hægt að jafna því saman. Núna er ungt fólk með miklu jákvæðara hug- arfar til NATO en það var áður. Maður fær allt aðrar og betri undir- tektir en fyrir nokkrum árum. Skólafíflið - Ég man til dæmis eftir fundi í skóla úti á landi, heldur Magnús áfram. Fundurinn var fjölmennur og mikill hiti í skólafólkinu. Ég fann strax að ég átti ekki marga stuðn- ingsmenn þarna. Það kom líka á daginn; þegar ég hafði lokið máli mínu tók enginn undir. Utan einn strákur sem stóð upp og studdi mig. Eftir fundinn var mér sagt að þessi strákur væri skólafíflið. - Maður varð stundum fyrir að- kasti út af starfinu og mér þótti það heldur leitt, aðallega vegna fjöl- skyldunnar og vina minna. Oft voru lítil tilefnin til alls æsingsins. Þessi hringur hérna eyðilagði einu sinni samkvæmi fyrir vini mínum, segir Magnús og sýnir blaðamanni forláta silfurhring á löngutöng hægri hand- ar þar sem plata með merki NATO er greypt í. Magnús hafði verið í samkvæmi hjá vini sínum ásamt fólki sem hann þekkti ekki til. Allt var í besta lagi þangað til einn kvenmaðurinn sá silfurhringinn og þekkti merkið. Konan spurði hver það eiginlega væri sem bæri slíkt skart. Gestgjaf- inn svaraði: „Hva, þekkirðu ekki NATO-Manga?“ Og þá var friðurinn úti. Samkvæmið leystist upp í deilur um ísland og NATO og leikurinn endaði með slagsmálum úti á götu. Skrifstofan hertekin Þorskastríðin við Breta á síðasta áratug hleyptu hita í landann. Mörg- um þótti skjóta skökku við að bandalagsþjóð okkar i NATO skyldi í krafti herskipaflota halda fiskiskip- um við veiðar í íslenskri fiskveiðilög- sögu. Aðildin að NATO komst enn í brennidepil. Mótmælaaðgerðir og heitstrengingar gegn bandalaginu voru algengar. Sumir létu ekki þar við sitja heldur lögðu leið sína á skrifstofu upplýsingafulltrúa NATO og lögðu hana undir sig. Það gerðist snemma morguns og Magnús var einn á skrifstofunni, þar eð einkarit- arinn átti frí. - Ég var nýkominn á skrifstofuna og var í símanum þegar barið var á dyrnar, rifjar Magnús upp. Ég lagði símann frá mér, fór til dyra og opn- aði þær. Fyrir utan voru tæplega þrjátíu ungmenni sem fylltu gang- inn. Fólkið þusti inn áður en ég áttaði mig á hvað var á seyði og las yfir mér yfirlýsingu þar sem sagði að öll starfsemi NATO væri stöðvuð þennan dag til að mótmæla land- helgisdeilunni við Breta. Yfirlýsing- in var auðvitað byggð á misskilningi en um það þýddi ekki að fást. Ég sá að æsingurinn var meiri en svo að það þýddi að ræða þessi mál rólega og yfirvegað. Þegar lestrinum var lokið fóru ungmennin að koma sér fyrir á skrifstofunni og tóku að troð- ast í hin fáu sæti á stólum og sófanum í skrifstofunni. Ég settist við skrif- borðið mitt, tók upp símann og bað viðmælanda minn að hringja í lög- regluna og láta vita að það væri búið að taka hús á mér. Það kom síðar í ljós að þeir hjá Vinnuveit- endasambandinu, hinum megin við götuna, hringdu einnig í lögregluna. Þá grunaði hvers kyns var þegar ein- hver rugluð stelpan fór að henda út um gluggann bæklingum og pésum. Hún lét ekki nægja að kasta út þeirra eigin áróðri heldur lét greipar sópa um ritlinga sem ég hafði á mínu borði. Skrítið lið - Þetta var skrítið lið, skal ég segja þér. Sumir voru hreint og klárt ruglaðir, einn reyndi stöðugt að hrækja á mig. Aðrir voru það sem ég vil kalla einnar-greinar-fólk; þeir sem einhvem tíma höfðu lesið eina grein í Þjóðviljanum eða Rétti og trúa því alla ævi sem þar stóð. Svo voru það börn svokallaðra „betri borgara" sem í iðjuleysi og fíflaskap fundu sér ekki annað betra að gera en að taka þátt í svona aðgerðum. - Það voru ekki synir og dætur verkamanna sem tóku þátt í þessari vitleysu. Það fólk hefur alltaf vitað betur og ekki stutt öfgaflokka heldur Sjálfstæðisflokkinn. Meig foringinn á sig? - Það dróst á langinn að lögreglan gerði eitthvað út af hústökunni. Á meðan undirbjuggu mótmælendurn- ir sig. Þeir drógu stóran og þungan viktoríanskan sófa að dyrum og létu þá feitustu setjast í hann. Ungmenn- in voru greinilega hrædd við lögregl- una og það fór að bera á taugaóstyrk bjá þeim. Ég reyndi að koma ákveð- inn fram við þau og sagði þeim í skipunartón að halda sér frá skrif- borðinu mínu og eyðileggja ekki teppið með ösku og sígarettustubb- um. Þessu hlýddu þau og létu flest lítið á sér kræla. Þegar lögreglan loksins kom gat hún rutt sófanum með þeim feitu frá dyrum og mótmæl- endurnir veittu ekki frekara viðnám. Það þurfti ekki annað en að ýta við þeim til að fá þau út. Þó voru þau tvö sem skorðuðu sig föst í skrifstof- unni. Annað þeirra var foringinn, sem var orðinn mjög taugaóstyrkur, og hitt stúlka sem skorðaði sig í sóf- anum. Það endaði með því að lög- reglan bar foringjann út saman- krepptan en stelpan fór af frjálsum vilja þegar ég sagðist ætla að sjá um hana sjálfur. - Sú saga fór víða að foringi þessa liðs hefði verið svo tregur til að fara út vegna þess að hann hafi migið á sig. Það hringdu í mig blaðamenn og spurðu út í þetta. Ég varð hins vegar ekki var við neina bleytu sem foringinn gæti hafa skilið eftir sig, segir Magnús og brosir. - Annars er þetta ómerkileg saga sem óþarfi er að rifja upp. Krakkarn- ir voru að stæla terrorista úti í heimi og tilgangurinn var að komast í heimspressuna. Það mistókst alger- lega. Heimsveldi hins illa Hertöku skrifstofu upplýsingafull- trúa NATO bar upp á sama tíma og íjörbrot síðustu móhíkananna sem opinberlega vildu kannast við að kommúnistaríkið austur í Rússíá væri til fyrirmyndar. Eftir nokkurra ára bið eru Sovétríkin aftur komin á dagskrá stjórnmálumræðunnar. í þetta sinn vegna hlákunnar sem kom í kjölfar valdatöku Gorbatsjovs. Þótt einhverjir fóstri með sér þá hugsun að yfirstandandi hláka muni valda straumhvörfum í utanríkispólitík Rússa og þar með heimspólitíkinni gildir það ekki um Magnús Þórðar- son. Að dómi Magnúsar þarf að bylta öllu sovéska kerfinu til að marktæk- ar breytingar verði. - Baráttan stóð og stendur að verulegu leyti enn um gott og illt. Ég segi það fullum fetum að Sovét- ríkin eru heimsveldi hins illa. Þau geta breytt ásjónu sinni en eðli sós- íalismans verður alltaf það sama. Ég hef heyrt og séð nógu mikið til að átta mig á því að við núverandi kerfi er ómögulegt að nokkurt raunveru- legt frelsi fái þrifist. Sósíalisminn leyfir ekki frelsi, annars væri hann ekki lengur sósíalismi. Áfram NATO Af framansögðu má ráða að Magn- ús sér ekki hilla undir það að hernaðarbandalagið NATO gangi sér til húðar. Hlutverk NATO er enn miklivægt fyrir vestrænar þjóðir. • - Það er alveg ljóst að vilji lýðræð- isþjóðirnar halda frelsi sínu og sjálfstæði er Atlantshafsbandalagið besta tryggingin. Sovétríkin hafa enn útþenslu að markmiði og það sést ekki nokkur vottur þess að það breytist. Atlantshafsbandalagið hef- ur tryggt frið í Evrópu þau tæp fjörutíu ár sem það hefur starfað. Það er fáránlegt að trúa því að Sov- étríkin myndu leggja af árásarstefnu sína við þessar tillögur um einhliða afvopnum sem eru farnar að skjóta upp kollinum, fullyrðir sannfærður Magnús Þórðarson, upplýsingafull- trúi NATO á íslandi. -pal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.