Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Side 12
30
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987.
íþróttir
Vikmgarnir
í toppsætið
- eftir 0-1 sigur gegn Breiðabliki
Víkingar skutust á toppinn í 2.
deildinni í knattsp\Tnu á laugardag
þegar liðið sigraði Breiðablik. 1-0, á
Kópavogsvelli. Leikurinn einkenndist
af mikilli baráttu hjá báðum liðum.
enda miklvægur Ieikur tveggja liða
sem steína á sæti í 1. deild.
Fvrri hálfleikur var ágætlega leik-
inn hjá báðum liðum og ágætis
marktækifæri litu dagsins ljós. Strax
á 4. mínútu átti Hákon Gunnarsson
hörkuskot rétt framhjá marki Víkings.
Um miðjan fyrri hálfleik munaði litlu
að Víkingar skoruðu f\Tsta mark
leiksins þegar Hörður Theodórsson
skaut hörkuskoti af löngu færi beint
í stöngina. Því næst fékk Atli Einars-
son gott færi þegar hann'komst inn
fyrir Breiðabliksvörnina en skot hans
fór í hliðametið.
í síðari hálfleik náðu Víkingar betri
tökum á Ieiknum og uppskáru fallegt
mark á 57. mínútu. Trausti Ómarsson
tók hornspymu. renndi boltanum út
þar sem Hörður Theodórsson kom á
fúllri ferð og sendi knöttinn glæsilega
í slá og inn i mark Blikanna. Eftir
markið hljóp harka í leikinn og dóm-
arinn þurfti ósjaldan að bregða spjöld-
um á loft. þar á meðal fékk Magnús
Magnússon rauða spjaldið. Blikar
revndu hvað þeir gátu að jafna en
vörn Víkings var föst fyrir.
Hörður Theodórsson og Jóhann
ÞoiTarðarson vom bestu menn Vík-
inga í leiknum og einnig átti Björn
Bjartmarz góðan leik í vörninni. Blik-
ar náðu ekki að sýna eins góðan leik
og við var búist. Guðmundur Baldurs-
son var einna bestur leikmanna liðs-
ins. Dómari var Stefán Sigurðsson og
hafði hann lítil tök á leiknum.
-RR
• Knötturinn smellur hér I stönginni á marki Breiðabliks eftir hörkuskot Harð-
ar Theodórssonar. DV-mynd Brynjar Gauti
Fjögur í fyrri hálfleik
Selfyssingar sóttu ekki gull í greipar
ísfiröinga er liðin mættust í 2. deild á
ísafirði á laugardag. ísfirðingar sigruðu.
3 1. í miklum baráttuleik en öll mörkin
voru skoruð í f\Tri hálfleik.
Benedikt Einarsson skoraði fvTsta mark
leiksins fvTÍr ísfirðinga og skömmu síðar
bætti Birgir Ólafsson öðru markinu við.
Selfyssingar minnkuðu muninn með marki
Heimis Bergssonar en ísfirðingar skoruðu
3. markið rétt fyrir hálfleik og var þar
Kristinn Kristjánsson að verki. í síðari
hálfleik gerðist fátt markvert. Selfyssing-
um tókst ekki að minnka muninn þrátt
fvTÍr heiðarlegar tilraunir og fóru því
stigalausir heim.
-RR
Fyrstu stig Leifturs
Leiftursmenn fengu sín fyrstu stig í
2. deild í gær þegar liðið lagði Vest-
mannaeyinga að velli, 2-0, á malar-
veliinum á Ólafsfirði. Sigur Leifturs
var mjög sanngjam. Liðið sýndi mikla
baráttu og uppskar eftir því. Leikurinn
var annars nokkuð opinn, mikið um
færi á báða bóga en Vestmannaeving-
ar voru ekki á skotskónum. Óskar
Ingimundarson skoraði fyrra mark
Leiftursmanna snemma í leiknum.
Staðan hélst þannig þar til á síðustu
mínútu leiksins að Steinar Ingimund-
arsson, bróðir Óskars, skoraði annað
mark Leifturs og gulltryggði þar með
sigurinn.
-RR
• Vignir Baldursson, ÍK, sést hér á fullri ferð i leik ÍK og Stjörnunnar um helgina. DV-mynd Gunnar Sverrisson
Naumur sigur Fýlkis
gegn Haukum í Arbæ
- Ámi Sveinsson skoraði fyrir Stjömuna í 3. deild gegn ÍK
Fyrsti leikur 3. deildar fór fram í
Árbænum á föstudagskvöld og áttust
þar við Fylkir og Haukar. Fylkismenn
náðu að merja 1-0 sigur á nýliðunum
í deildinni. Leikuiinn bar þess merki
að um fyrsta alvöruleik sumarsins var
að ræða. Bæði lið voru frekar taugaó-
styrk í byijun en síðan fóru Fylkis-
menn að ná tökum á leiknum.
Haukamenn vörðust vel og í marki
þeirra stóð gamla kempan Ögmundur
Kristinsson og hafði nóg að gera því
leikurinn fór að mestu fram á vallar-
helmingi Hauka. Eina mark leiksins
kom um miðjan síðari hálfleik og var
þar á ferðinni Ólafúr Magnússon.
Skömmu síðar var einum Hauka-
manni vikið af velli og var það mjög
umdeildur dómur. Einum færri áttu
Haukamir engan möguleika á að
jafna metin og sigur Fylkis var í höfn.
Stjörnumenn sterkir
Lið Stjörnunnar í Garðabæ á eflaust
eftir að blanda sér í toppbaráttu 3.
deildar. Á laugardag lék liðið gegn ÍK
á grasvellinum í Garðabæ og vann
Stjaman sannfærandi sigur, 3-1. ÍK
náði þó óvænt forystunni í leiknum
með marki Steindórs Elíssonar, sem
kom eftir slæm vamarmistök Garð-
bæinga. Heimamenn vom fljótir að
jafna sig á áfallinu og jöfnuðu aðeins
mínútu síðar. Brotið var á einum leik-
manni Stjömunnar innan vítateigs og
gamla kempan Árni Sveinsson skoraði
af öryggi úr vítaspymunni. Skömmu
fyrir leikhlé komust Stjömumenn síð-
an yfir með fallegu marki Birkis
Sveinssonar. í síðari hálfleÍK hafði
Stjaman algera yfírburði en tókst að-
eins að bæta einu marki við. Birkir
Skúlason var aftur á ferðinni um miðj-
an seinni hálfleik og skoraði þá með
laglegum skalla sem markvörður ÍK
réð ekkert við. Óttar Sveinsson og
Birkir vom bestu menn Stjömunnar
en annars stóðu allir leikmenn liðsins
sig vel. Hjá ÍK bar mest á Vigni Bald-
urssyni, fyrrum leikmanni Breiða-
bliks, en hann þjálfar einnig liðið.
Markalaust í Grindavík
Nágrannabæimir Grindavík og
Njarðvík mættust i sannkölluðum
„derby“ leik í Grindavík á laugardag.
Leiknum lauk með markalausu jafn-
tefli þrátt fyrir mörg ágæt marktæki-
færi á báða bóga. Valþór Sigþórsson,
vamarmaðurinn snjalli sem áður lék
með IBK og FH, spilaði sinn fyrsta
leik með Njarðvík og var hann besti
maður vallarins. Njarðvíkingar sóttu
meira í leiknum en þeim tókst ekki
að skora.
Góður sigur Aftureldingar
Afturelding sigraði Leikni á Breið-
holtsvelli með 2-1 í mjög tvísýnum
leik. Afturelding skoraði fyrsta mark
leiksins úr vítaspymu og var það eina
mark fyrri hálfleiks. Jóhannes Bárðar-
son jafnaði metin fyrir Leiknismenn
en Óskar Óskarsson skoraði sigur-
mark Aftureldingar á síðustu mínútu
leiksins.
Stórsigur Reynis
Leikmenn Reynis, Sandgerði, fóm
hamförum í leik gegn Skallagrími í
Sandgerði um helgina. Þegar upp var
staðið höfðu leikmenn Reynis gert 6
mörk án þess að Borgnesingum hefði
tekist að svara fyrir sig. Ari Arason
skoraði 2 mörk en þeir Kjartan Ein-
arsson, ívar Ingvarsson, Davíð Skúla-
son og Pétur Brynjarsson gerðu allir
eitt mark hver.
-RR
Páll með þrjú og Hvöt vann stort
Stokkseyri og Augnablik leiddu
saman hesta sfna í A riðli 4. deildar
á Stokkseyri á laugardag. Stokks-
eyri sigraði í leiknum, 2-1, og má
segja að Steingrímur Sigurðsson
hafi verið hetja heimamanna því
hann skoraði bæði mörk liðsins og
tryggði liði sínu þar með 3 mikilvæg
stig. Viðar Gunnarsson skoraði eina
mark Augnabliks.
Ármenningar óheppnir
Ármenningar voru óheppnir að ná
ekki alla vega jafntefli í viðureign
sinni við Árvakur á gervigrasinu í
Laugardal í gær.
Ármenningar voru mun betri aðil-
inn í leiknum en máttu sætta sig við
1-0 tap. Bjöm Pétursson skoraði
Keppni í 4. deild Islandsmótsins hófst um helgina
hreinlega gleymt að
mark Árvakurs í fyrri hálfleik og þar
við sat.
Seltjarnarnesliðin unnu bæði
I B riðli fóru fram tveir leikir um
helgina. Skotfélag Reykjavfkur og
Grótta áttust við á fóstudagskvöld
og sigruðu Gróttustrákamir, 4-1.
Staðan í hálfleik var 2-0 fyrir Gróttu
sem átti sigurinn fyllilega skilinn.
Valur Sveinbjömsson skoraði tví-
vegis fyrir Gróttu og þeir Rögn-
valdur Pétursson og Sigurðm-
Sigurðssop : skornðu sitt markið
hvor.
Eina mark Skotfélagsins skoraði
Skúli Helgason en þeir Skotfélags- x yfir í hálfleik. Ólafúr Jósefssonskor-
menn vom ekki í skotstuði á föstu- aði, tvö af mörkum Hveragerðis, þar
dagskvöld. Menn höföu á orði að af eítt úr víti, og Kristján Theodórs-
þeir heföu
hlaða.
Hitt Seltjarnamesliðið, Hvatberar,
átti einnig velgengni að fagna í sama
riðli. Liðið vaiin stórsigur, 4-0, á
Reyni, Hellissandi. Heimir Jónasson
skoraði eina mark fyrri hálfleiks úr
vitaspymu. I síðari hálfleik bætti lið-
ið þremur mörkum við og gerðu þeir
Einar Einarsson, Jóhann Ármanns-
son og Þór Ómar mörk liðsins.
Öruggt hjá Hveragerði
Hveragerði vann öruggan sigur á
Höfnum í C riðli. Lokatölur urðu 3-1
eftir að Hveragerði hafði verið 2-1
son bætti þriðja markinu við.
Guðmundur Jónasson svaraði fyrir
Hafnir en það dugði ekki til.
Auðveit hjá Víkverja
Víkverjar unnu stóran sigur á
Létti í leik tveggja Reykjavíkurfé-
laga í gær. Víkverjar kunnu betur
við gervigrasið og fóm á kostum í
leiknum. Níels Guðmundsson skor-
aði tvö mörk, Svavar Hilmarsson,
Hermann Bjömsson og Jakob Har-
aldsson gerðu eitt mark hver.
Fjörugt í Bolungarvík
í d-riðli mættust Bolungarvík og
Reynir, Hnífsdal, og sigruðu þeir síð-
amefndu, 4-3, í mjög fjörugum leik
þar sem mörkin hrúguðust upp.
Mörk Bolungarvíkur gerðu þeir Jó-
hann Ævarsson, eitt, og Jón Kristj-
ánsson tvö.
Páll með „hat-trick“
I E riðli iöm íram tveir leikir. Á
Hofsósi léku Neisti og Hvöt frá
Blönduósi. Lið Hvatar sigraði, 4 0,
í ójöfnum leik þar sem gestimir
höföu mikla yfirburði. Páll Jónsson
skoraði þrennu í ieiknum og Ingvar
Jónsson skoraði eitt mark. Staðan i
hálfleik var 1 0 fyrir Hvöt.
í sama riðli sigraði Ungmennafé-
lag Svarfdæla lið Ámoðans, 5-0.
Svarfdælingar léku við hvem sinn
fingur í lciknum eins og tölumar
gefa til kynna.
-RR