Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1987, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987. Fréttir Ströggl um fiskverðið enn ekki gefið frjálst Fiskkaupendur snerust á móti fijálsu fiskverði í Verðlagsráði sjáv- arútvegsins, sem fiskseljendur voru fylgjandi. Ekkert samkomulag varð því um breytta tilhögun og ekki um nýtt lágmarksverð á fiski. Ákvörð- unin er því komin í hendur fimm manna yfimefndar sem byrjaði strögglið í gær. Nýtt verð á að gilda frá næstu inánaðamótum. Samkvæmt heimildum DV var ekki íull eining um andstöðu við ftjálst fiskverð meðal kaupenda. Sö- lusamband íslenskra fiskframleið- enda var því til að mynda meðmælt. Þá er vitað að allir fiskkaupendur í Vestmannaeyjum, sem lent hafa í einna harðastri samkeppni við fersk- fiskútflutning, vildu fiskverðið fi-jálst. Þá liggur fyrir að nokkur fisk- markaðsíyrirtæki eru að komast á laggimar. Þar gildir undanþága fiá ákvörðunum Verðlagsráðs eða yfir- neftidar, sem sé fijálst fiskverð. Það vom hin stóm samtök fisk- kaupenda, Sölumiðstöð hraðfrysti- hÚ8anna og Sambandsfrystihúsin, sem réðu því að fiskverðið var ekki gefið fijálst að þessu sinni. Þó gildir áfram fijálst verð á loðnu og nú einnig á humri. -HERB Meiraprófið hjá Bifreiðaeftiiiitinu: Deildarstjórínn féll á ökukennaraprófi Smyglaði tveimur hiyssum úr landi Hrossasalinn athafnasami. sem smyglaði stóðhesti úr landi á dögun- um.eins og DV hefur greint frá, lét ekki þar við sitja. 1 ljós hefur komið að maðurinn smyglaði einnig tveim hryssum úr landi. Gunnar Bjarnasoii ráðunautur sagði í samtali við blaðamann að þessi tiltekni maður hefði fyrr flutt út hross og greitt af þeim útflutnings- tolla eftir á. Hingað til hefðu greiðsl- ur ávallt borist frá manninum og sagðist Gunnar ekki hafa neina ástæðu til að ætla að svo yrði ekki eins í þetta sinn. Við útflutning á hrossum greiðist tollur sem rennur til sjóða búnaðar- félaganna. Af hryssum er 10% tollur en 20% af stóðhestum. -sme Kurr sá sem er meðal starfsmanna Bifreiðaeftirlitsins á sér nokkuð langa forsögu. Guðni Karlsson, annar for- stjóranna, segir að ein ástæða þess hvernig komið er geti hugsanlega ve- rið erfið vinnuskil>TÖi. Annars vildi Guðni gera sem minnst úr óánægju starfsmanna sinna. Látið heíúr verið að þvi liggja að slæmt samkomulag sé á milli forstjór- anna tveggja, Guðna Karlssonar og Hauks Ingibergssonar. Það vildi Guðni engan veginn taka undir. Hann sagðist hafa orðið manna fegnastur þegar Haukur var ráðinn til stofnun- arinnar. Það mál sem veldur einna mestri óánægju nú er sú ákvörðun Guðna Karlssonar að deildarstjóri meiraprófs skuli í sumar leysa af sem deildar- stjóri almennra ökuprófa. Óánægjan er fyrst og fremst til komin vegna þess að deildarstjórinn hefúr ekki öku- kennarapróf og hefur reyndar fallið á slíku prófi. Hann hefúr að vísu próf- dómararéttindi, en þau réttindi fást á námskeiði sem Bifreiðaeftirlitið held- ur annað veifið. Menn sem til þekkja segja að ólíkt sé að sjá um daglega stjómun meira- prófanna en að vera settur yfir almenn ökupróf. I almennum prófum reyni á marga þætti sem ekki koma til í meira- prófinu. Má þar nefha próf fyrir fatlað fólk og fleira. Hjá Bifreiðaeftirlitinu starfa nokkrir menn sem hafa lokið ökukennaraprófi og hafa eirmig lokið námskeiði próf- dómara. Þeir menn eru ekki sáttir við að framhjá þeim sé gengið og fenginn til maður sem fallið hefur á ökukenn- araprófi. -sme Kusu ungliðasveit í skreiðarmálin Endirinn á rifrildi á fundi Hags- munasamtaka skreiðarframleiðenda í gærkvöld varð sá, að kosin var nefnd ungra manna úr öllum sölusamtökum og landsfjórðungum til þess að reyna að koma einhverju viti í skreiðarsölu- málin. „Við erum einfaldlega orðnir uppgefnir, þessir görnlu," sagði Björg- vin Jónsson, útgerðarmaður í Glett- ingi hf., sem var formaður samtak- anna. Ekki var kosin ný stjóm. „Þessi fundur var tóm vitleysa eins og vanalega," vom þeir sammála um , Björgvin og Ólafur Bjömsson, útgerð- armaður í Keflavík, formaður Samlags skreiðarffamleiðenda sem á að leggja niður. Ólafur flutti tillögu á fundi Hagsmunasamtakanna um samein- ingu framleiðenda í ein sölusamtök. Henni var vísað til ungliðasveitarinn- ar. Einar K. Guðfinnsson, útgerðar- stjóri í Bolungarvík, á að kalla ung- liðasveitina saman. Hún á að fara í saumana á stöðu skreiðarmálanna. Nokkrir aðilar stunda skreiðarsölu sem einkum beinist að Nígeríu. Þar hefur allt verið í volæði árum saman og talið er að nærri 800 milljónir vanti upp á skil fyrir skreiðarsölu þangað undanfarin ár. Auk þess liggur skip þar með óselda skreið fyrir um 175 milljónir króna. SÍS-menn eru þeir einu sem hafa fengið uppgert en þeir em með um fjórðung Nígeríusölunnar. -HERB Menntamálaráðherra: Ákvörðun um íslensku prófið tekin í dag Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra hyggst ákveða það í dag hvort samræmda grunnskóla- prófið í íslensku verði endurmetið. Prófið hefur vakið athygli fyrir lága meðaleinkunn, 4,8, en til að ná prófinu þurfti 4,5. Tæpur helm- ingur nemenda fékk falleinkunn. Fjórir íslenskukennarar gengu á fund menntamálaráðherra í gær vegna íslenskuprófsins. „Við fórum fram á að prófið yrði endurmetið. Einnig lögðum við fram tillögur um breytta skipan á samræmda íslenskuprófinu í fram- tíðinni," sagði Guðrún Egilson. Hún og Magnús Jón Árnason, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þór- dís Mósesdóttir ræddu við mennta- málaráðherra í gær sem fulltrúar óformlegs hóps íslenskukennara. „Hann lofaði okkur engu en sagðíst ætla að taka þetta til athug- unar og að það myndi liggja hjá sér svar trúlega á morgun um það hvort hann ætlaði að láta endur- meta prófið," sagði Guðrún í gær. „Við fengum loksins að sjá rétta úrlausn á prófinu. Það voru ljósrit af ýmsum úrlausnum nemenda. Þar var að finna ýmsar villur. Eftir þessu að dæma hafa þeir ekki haft neinn staðal. Við erum mjög hneyksluð á þessu,“ sagði Guðrún. -KMU Mikil ólga hefur verið meðal starfsmanna Bifreiðaeftirlitsins að undanförnu. Dómur í Karlsefnismálinu: Dæmdur í 2ja ára fangelsi Dæmt heíúr verið. í svokölluðu Karlsefnismáli hjá sakadómi í ávana- og fíkniefnamálum en þetta mál, sem kom upp 1984, er eitt hið stærsta sinnar tegundar á seinni árum. Höfúðpaurinn i málinu var dæmdur í 2ja ára fangelsi fyrir að hafa smyglað til landsins alls 13,5 kílóum af hassi, þar af 11,3 kílóum í einni ferð. Tveir voru upphaflega ákærðir í þessu máli en annar þeirra slapp vegna skorts á sönnunum. Hann hlaut hins vegar 9 mánaða fangelsi fyrir margvísleg önnur fíkniefnabrot og þnðji maðurinn, sem tengdur var honum, hlaut 3ja mánaða fangelsi. Það var Guðjón Magnússon saka- dómari sera kvað upp þessa dóma. -FRI Deildarstjóri hjá byggingafulltrúa: Farinn í langt sumarfrí Hallgrímur Sandholt, deildarstjóri hjá byggingaíúlltrúanum í Reykjavík, er farinn í langt sumarfrí. Eftir því sem DV kemst næst er alls óvíst hvort Hallgrímur hefur aftur störf hjá bygg- ingafulltrúa að fríi loknu. I viðtali við DV sagði Gunnar Sig- urðsson byggingafulltrúi að starfs- menn hjá embættinu hefðu hannað byggingar í aukavinnu. Haligrímur Sandholt er einn þeirra. Það virðist nokkuð ljóst að Hallgrímur hafi hann- að eitt þeirra húsa sem gerð var úttekt á við vinnu burðarþolsskýrslunnar. Er það þriggja hæða verslunarhús. I burðarþolsskýrslunni segir um þetta tiltekna hús. „Engar burðarþolsteikningar voru sagðar til hjá byggingafulltrúa, en styrking var gerð á húsinu í kjölfar athugasemda um burðarþol þess, því strax á byggingastigi kom fram brot í gaflsúlum í kjallara." Síðar í skýrslunni segir um þetta sama hús. „Athugun á þoim gögnum sem til eru sýnir að stöðugleika hússins gagn- vart jarðskjálftaálagi er áfátt og burðargetna súlna í kjallara er of lítil." -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.