Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1987, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987.
17
Neytendur
Verðkönnun
á
veiðivörum
í tilefni þess að nú er veiðitíminn
að heíjast í ám og vötnum hefur Verð-
lagsstofnun gert verðkönnun á
stangaveiðivörum. Könnunin var
framkvæmd í maímánuði og nær til
57 vörutegunda í þrettán verslunum í
Reykjavík og þremur annars staðar á
landinu.
Talsverður verðmunur er á ýmsum
vörum til stangaveiði, en lítill á öðr-
um. Þannig verður ekki önnur álykt-
un dregin af könnun þessari en að
allt sé í stakasta lagi í samkeppnismál-
um í þessum geira verslunar, lítið eða
ekkert um að menn samræmi verð^ín
á milli.
Mesti munur á hæsta og lægsta verði
reyndist vera 107 %. Svo mikill reynd-
ist munur á hæsta og lægsta verði á
45 mm kúluflotholtum en dýrust voru
þau í Veiðihúsinu á kr. 89, en ódýrust
í Miklagarði og Veiðimanninum á kr.
43.
Næstmestur reyndist verðmunur á
Salam 16 Zebra spúnum en þeir kost-
uðu mest kr. 171 í Veiðihúsinu, en
minnst kr. 90 í Sportmarkaðnum.
Að öðru leyti er algengur verðmunur
um 30 % þannig að menn ættu að at-
huga vel sinn gang áður en íjárfest er
í veiðivörum.
-PLP
Stangaveiði er vinsæi íþrótt og eru
menn reiðubúnir til að greiða hátt
gjald til að stunda hana. Unnt er þó
að spara við kaup á veiðivörum því
verðmunur er mikill á sumu.
Fréttatilkynning frá Neytendasamtökunum:
Hátt innkaupsverð vara til íslands
Verðlagsstofhun birti á dögunum
könnun á innkaupsverði nokkurra
vara til landsins, borið saman við
Björgvin í Noregi. Fram kemur að í
flestum tilfellum er innkaupsverð
hærra hjá innflytjendum hér á landi
en hjá starfsbræðrum þeirra í Noregi
og er munurinn mikill í mörgum tilfell-
um. Þessi könnun staðfestir fyrri
kannanir um hátt innkaupsverð hjá
íslenskum innflytjendum.
I ljósi þeirrar umræðu sem að und-
anfomu hefur farið fram um hátt
vömverð hér á landi krefjast Neyten-
dasamtökin þess að innflytjendur
tryggi að innkaupsverð sé alltaf eins
hagkvæmt og kostur er og skili sér
að fullu til neytenda. Ljóst er hátt
innkaupsverð skýrir að hluta hið háa
vömverð hér á landi. Þörf er tafar-
lausra úrbóta og munu Neytendasam-
tökin ekki sætta sig við óbreytt ástand
í þessum efnum.
Neytendasamtökin vekja jafnframt
athygli á þeirri staðreynd í könnun
Verðlagsstofnunar að álagning hefur
hækkað vemlega frá því hún var gefin
frjáls og í sumum tilvikum vemlega.
Þar sem könnun þessi nær til mjög
fárra vöruflokka beina samtökin því
til verðlagsyfirvalda að álagningarmál
í allri verslun verði könnuð. Einnig
verði það sérstaklega athugað hvort
samkeppnishömlur eða verðsamráð
hafi haft áhrif til hækkunar álagning-
ar. Kanna þarf ítarlega hvort gripa
þurfi til verðlagsákvæða á nýjan leik
í þeim greinum þar sem álagning hefur
hækkað mest. Slíkt yrði jafnframt öðr-
um seljendum viðvömn um að ekki
sé allt leyfilegt þótt verðlag hafi verið
gefið frjálst, enda á frjáls verðlagning
að leiða til lækkunai' vöruverðs. en
ekki til hækkunar að sögn seljenda
sjálfra.
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fuUrí ferð
Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði.
Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt
úrval bíla.
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.
Patreksfjörður
óskar að ráða umboðsmann á Patreksfirði sem fyrst.
Upplýsingar í síma 94-1234 og 91-27022.
Viltu vinna þar sem dagurinn er
einn samfelldur kaffitími?
Myllan konditori opnar í Kringlunni 13. ágúst nk. Þess vegna þurf-
um við að ráða til starfa rúmlega 20 bráðhressa og glaða krafta
til þess að sinna bakstri og annarri matargerð, afgreiðslu og öðrum
þjónustustörfum, uppvaski, þrifum og ræstingu. Við viljum skap-
gott og skemmtilegt starfsfólk tii þess að vinna i fallegu og hentugu
umhverfi í nánum tengslum við viðskiptavini. Starfsþjálfun hefst 20.
júlí. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Brauði hf. í Skeifunni 11,
þar sem jafnframt fást nánari upplýsingar. Tekið er á móti umsókn-
um frá kl. 10-17 daglega fram til föstudagsins 5. júní.
Haukur og Ólafur hf.,
Ármúla 32,
108 Reykjavík. Sími: 37700.
Raflagnaefni
í úrvali!
Dósir - rör - vír - tenglar -
rofar - og allt sem þarf í töfl-
una.
FAM
Lampar -
heimilistæki!
Loftljós - kastarar - fluorisent lampar
Ryksugur - kaffivélar - brauðristar o.fl.
Rafvélar -
handverkfæri!
Motorla alternatorar - Fam ryksugur.
Hobart rafsuðuvélar og vír - borvélar,
slípirokkar, spil á bíla og ýmis hand-
verkfæri I úrvali.