Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. 21 ÍBV réð ekki við fallbyssu Breiðhyltinga - Heimir skoraði þrjú í fyrsta sigri ÍR Heimir Karlsson, þjálfari og leikmaður ÍR, skoraði þrennu þegar ÍR sigraði Vestmannaey- inga, 3-0, í 2. deild á föstudagskvöld. Þetta er fyrsti sigur ÍR í 2. deild en liðið vann sér rétt til að leika í 2. deild sl. haust í fyrsta skipti í sögu félagsins. Leikurinn var á Valbjamarvelli og var sigur ÍR-inga mjög öruggur. Heimir skoraði íyrsta markið á 25. mín., annað markið fjórum mín. síðar og fullkomnaði þrennuna um miðjan síðari hálfleikinn. Siglfirðingar urðu fyrstir til að sigra Víkmga í 2. deild á föstudagskvöld þegar þeir unnu, 3-1, á malarvellinum á Siglufirði. Hörður Theódórsson skoraði þó fyrsta mark leiksins fyrir Víkinga eftir aðeins fjór- ar mínútur. Jónas Bjömsson jafnaði fyrir KS á 11. mínútu og á 19. mín. náðu Siglfirðingar fomstu með marki Óla Agnarssonar. I síðari hálfleiknum skoraði Óli þriðja mark heimamanna. J0n Þorirjónssonjafhaði fyrir Breiðablik, 1-1, gegn Seífossi á lokamínútunni í leik liðanna í 2. deild í Kópavogi á föstudagskvöld. Jón Gunnar Bergs hafði skorað fyrir Sel- foss á 76. mín. gegn sínum gömlu félögum í Breiðabliki. Eftir markið lögðust Selfyssingar í vöm til að reyna að halda fengnum hlut. Litlu munaði að það tækist en Jón Þórir sendi knöttinn í markið rétt í lokin eftir mikið fjör í vítateignum. Einherji vann Þrótt á Vopnafirði með tveimur mörkum gegn einu. Fyrstur skoraði Eiríkur Sverrisson fyrir heimamenn, með skalla. Þá jafh- aði Sigurður Hallvarðsson fyrir Þrótt með þrumuskoti utan úr teig. Mark hans var óvenju glæsilegt og óverjandi fyrir markvörð þeirra Vopnfirðinga. Staðan í leikhléi var jöfh, 1-1. Sigurmark Einheija gerði síðan Baldur Kjartansson um miðjan siðari hálfleik. Heimamenn sóttu meira í fyrri hálf- leik - vom grimmari í upphafi og náðu því forystunni. Þrótturum óx hins veg- ar sífellt ásmegin og undir lokin reyndu þeir allt hvað þeir gátu til að jafha. Erindi höfðu þeir hins vegar ekki sem erfiði í þetta sinnið. Leiftur lagðiiBi að velli á ísafirði með tveimur mörkum gegn einu. Leiftur var betri aðilinn í þessari viðureign, tók liðið enda forystuna með marki Óskars Ingimarssonar. Bættu þeir Ólafsfirðingar síðan öðm við áður en Oddur Jónsson rétti hlut heimamanna. Sigurmark Leifturs gerði Hafsteinn Jakobsson. -hsím/JÖG Nancy og Rennes féllu í 2. deild Tigana var ekki í sigurliði um helgina. Bordeaux lá fyrir Metz, 1-2. Liðið er orðið meistari og sömu- leiðis em úrslit framundan i franska bikamum og þar mun Bordeaux glíma við Marseille. Nancy og Rennes féllu niður í 2. deild í frönsku knattspymunni á fóstudags- kvöld. Þau léku þá bæði á útivöllum og töpuðu. Auxerre vann Nancy, 4-2, og tryggði sér þar með rétt í UEFA keppni næsta leiktímabil og Racing Paris vann Rennes, 2-1. Efstu liðin töpuðu, Metz vann Bor- deaux, 2-1, og Monaco sigraði Marseille, 2-0. Greinilegt að leikmenn Bordeaux og Marseille lögðu sig ekki fram - úrslit bikarkeppninnar fram- undan. Af öðrum úrslitum á fostudag í lokaumferðinni má nefha að Laval vann Paris SG, 4-2, Toulon vann Nice, 2-0, Toulouse vann Lens, 1-0, en Lille tapaði á heimavelli, 0-1, fyrir Nantes. Lokastaðan í Frakklandi varð þann- ig: 1. Bordeaux 38 20 13 5 57 27 53 2. Marseille 38 18 13 7 52 33 49 3. Toulouse 38 18 12 8 54 32 48 4. Auxerre 38 17 13 8 45 32 47 5. Monaco 38 15 15 8 41 33 45 6. Metz 38 14 15 9 54 32 43 7. Paris SG 38 14 13 11 35 33 41 8. Brest 38 14 12 12 43 41 40 9. Laval 38 12 14 12 40 46 38 10. Lens 38 11 15 12 37 40 37 11. Nice 38 15 7 16 38 49 37 12. Nantes 38 12 12 14 35 38 36 13. RC Paris 38 14 8 16 41 45 36 14. Lille 38 12 10 16 39 38 34 15. Toulon 38 10 14 14 36 46 34 16. St. Etienne 38 9 15 14 27 32 33 17. Le Havre 38 8 16 14 39 50 32 18. Sochaux 38 9 13 16 35 51 31 19. Nancy 38 8 13 17 28 40 29 20. Rennes 38 5 7 26 20 58 17 -hsím. íþróttir • Heimir Karlsson geröi þrennu gegn Vestmannaeyingum. Staðan 1. Víkingur 2. Einherji 4 3 0 1 6-5 9 4 2 2 0 6-4 8 3.KS .'. 4 2 117-57 4. Leiftur 4 2 0 2 5-4 6 5. Þróttur 4 2 0 2 6-6 6 6. Selfoss 4 12 15-65 7.ÍR 4 112 7-64 8. UBK 4 112 3-54 9.ÍBV 4 112 5-84 10.ÍBÍ 4 1 0 3 6-7 3 Urslrt Heil umferð fór fram í annarri deild um helgina, úrslit urðu sem hér segir: KS-Víkingur................3-1 ÍR-ÍBV......................3-0 UBK-Selfoss................1-1 Einherji-Þróttur...........3-1 ÍBÍ-Leiftur................1-2 Marka- hæstir Heimir Karlsson, ÍR.............5 Tómas Pálsson, IBV..............3 Jón G. Bergs, Self..............3 Kristján Davíðs, Einh...........3 Daði Harðarson, Þrótti..........3 Fhig og bfll í Amsterdam - og öll Evrópa er þér opin Þegar þú ert stiginn upp í bílaleigubíl í Amsterdam átt þú greiða leið um alla Evrópu. Bílaleigubílar eru ódýrari í Amsterdam en í öðrum borgum og því er hentugt að fara þangað hvort sem um er að ræða stutta viðskiptaferð eða lengri sumarleyfisferð með alla fjölskylduna. Bílaleiga sú sem Arnarflug skiptir við er Interrent, stórt og traust fyrirtæki með þjónustustöðvar um alla Evrópu. Verðfrá kr. 12.810 miðaö við hjón með 2 börn í viku. Bifreið: Ford Fiesta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.