Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1987, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987.-
31
dv Skák
Armeninn Rafael Vaganjan var efstur á afmælismóti októberbyltingarinnar
í Leningrad eftir spennandi skák ...
7. Ionescu (Rúmeníu), AM, 2520 stig.
8. Dolmatov (Sovétríkin), SM, 2515 stig.
9. Geller (Sovétríkin), SM, 2500 stig.
10. Malanjúk (Sovétríkin), AM, 2575 stig.
11. Lemer (Sovétríkin), SM, 2555 stig.
12. Romanishin (Sovétríkin), SM, 2570 stig.
13. Hodgson (England), AM, 2520 stig.
14. Margeir Pétursson, SM, 2535 stig.
Samkvæmt töfluröðinni teflir Mar-
geir við andstæðinga sína í 6.-13.
umferð í eftirfarandi röð: hvítt gegn
Malanjúk í 6. umferð, svart gegn
Gurevic í 7., hvítt gegn Lemer í 8.,
svart gegn Benjamin i 9., hvítt gegn
Romanishin í 10., svart gegn Vasjukov
í 11., hvítt gegn Hodgson í 12. og svart
gegn Ionescu í 13. og síðustu umferð.
Andstæðingar Jóhanns em: hvítt
gegn Gurevic í 6. umferð, svart gegn
Benjamin í 7., hvítt gegn Vasjukov í
8., svart gegn Ionescu í 9., hvítt gegn
Dolmatov í 10., svart gegn Geller í
11., hvítt gegn Malanjúk í 12. og svart
gegn Lemer í lokaumferðinni. Mótinu
lýkur 27. þessa mánaðar.
Frá Moskvu til Leningrad
í októher nk. má búast við miklum
hátíðahöldum í Sovétríkjunum því að
þá verða liðin rétt 70 ár frá október-
byltingunni. Em Sovétmenn þegar
famir að minnast afmælisins með
ýmsum hætti. Nýlokið er í Leningrad
stórmóti af þessu tilefni þar sem tefldu
m.a. Sokolov, Jusupov, Vaganjan,
Salov, Tukmakov, Georgiev, Anders-
son, Chandler, Torre og Nikolic.
Þegar þetta er ritað höfðu reyndar
aðeins borist spurnir af 11 fyrstu um-
ferðunum en að þeim loknum var
Armeninn Vaganjan efstur með 7 v.
(tíu skákir og ein yfirseta) - keppendur
í Leningrad vom 13 því að Anatoíy
Karpov forfallaðist á síðustu stundu
og skarð hans varð ekki fyllt.
Vaganjan og Salov börðust um sig-
urinn framan af og að loknum 8
skákum hafði hvor 514 v. Þeir tefldu
einmitt saman í næstu umferð, æsi-
spennandi skák sem að öllum líkind-
um réð úrslitum um niðurstöðu
mótsins. Valery Salov er íslenskum
skákunnendum kunnur frá því hann
tefldi hér á Reykjavíkurskákmótinu
1986 og fyrir skömmu varð hann efstur
ásamt Beljavsky á sovéska meistara-
mótinu. Hann tapaði hins vegar, 3-1,
í einvígi um titilinn. Lítum á skák
hans við Vaganjan frá Leningrad:
Hvitt: Valery Salov
Svart: Rafael Vaganjan
Nimzoindversk vörn.
I.d4 Rffi 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 b6
5. Bg5 Bb7 6. e3 Bxc3+ 7. bxc3 De7
Eftirlætisleikmáti Vaganjans, í stað
7. - h6 8. Bh4 d6, eins og algengast er
í þessari stöðu. Þetta afbrigði á nú
miklum vinsældum að fagna, enda
leiðir það iðulega til flókinnar stöðu
þar sem báðir geta hæglega teflt óhik-
að til vinnings.
8. Rd2 e5!? 9. Be2!?
Salov hefur undirbúið spennandi
peðsfóm á „eldhúsborðinu" því' að
varla hefur taflmennska Vaganjans
komið honum á óvart. Skák Miles við
Vaganjan í Sarajevo í ár tefldist: 9.
Bh4 d6 10. Be2 (því að eftir 10. - Bxg2
11. Hgl hangir á g7) Rbd7 11. Bf3
Bxf312. Dxf3 e4 og svartur mátti sæmi-
lega við una.
9. - exd4 10. cxd4 Bxg2 11. Hgl Bb7 12.
Bh4 Hg8 13. Hbl Rc6 14. c5
Með peðsfóminni hefúr hvítur náð
að hindra að svartur hrókaði stutt og
nú sækir hann drottningarmegin ef
kóngur svarts skyldi leita sér skjóls á
þeim vængnum. Vaganjan giípur til
þess ráðs að vikja kónginum um set
og fóma hrókunarréttinum endan-
lega. En þá nær hann ekki að tengja
saman hrókana og ætla mætti að hvit-
ur hefði meira en næg færi fyrir peðið.
14. - Kf8!? 15. d5 Re5 16. d6! cxd6 17.
cxb6 axb6 18. Hxb6 Bc6 19. Dbl De6?
Óheppilegur leikur sem hefði getað
leitt til taps.
20. Rb3?
En hvitur missir af tækifærinu. Með
20. f4! hefði svartur lent í miklum
vanda því að riddarinn á ekki um
marga reiti að velja. Eftir 20. - Rg6
kæmi 21. fo Dxe3 22. Bf2 og síðan fell-
ur riddarinn. Engu skárra er 20. -
Reg4 vegna 21. Hxg4! Rxg4 22. Hb8 +
Hxb8 23. Dxb8+ De8 24. Dxe8+ Kxe8
25. Bxg4 og hvítur ætti að vinna. Eftir
stendur 20. - Rf3+!? sem Vaganjan
hefur eflaust haft bak við eyrað. Eftir
21. Rxf3 Bxf3 gengur ekki 22. Bxf3
vegna 22. - Dxe3 + og Bf3 og Hgl em
í skotlínu drottningarinnar. Hins veg-
ar leikur hvítur einfaldlega (eftir 20. -
Rf3+ 21. Rxf3 Bxf3) 22. Bxf6! og nú
kemst svartur ekki hjá liðstapi. Ef 22.
- gxfB, þá 23. Hb8+ og vinnur hrók
og ef 22. - DxfB, þá 23. Bxf3 og vinnur
biskup.
Eftir textaleikinn tekst Vaganjan
smám saman með hámákvæmnri vöm
að rétta úr kútnum.
20. - Re8 21. Rd4 Dxa2 22. Dxa2 Hxa2
23. f4 Rg6 24. Bg3 Re7 25. Hb8 g6 26.
Bh4 Rd5 27. Hg3 Ha8! 28. Rxc6 Hal"-
29. Kf2 dxc6 30. Bc4 f5 31. Hc8 Hg7! 32.
Hxc6 Hb7!
Þar er Vaganjan rétt lýst. Nú strand-
ar 33. Bxd5 á 33. - Hb2+ 34. Kf3 Hfl
mát!
33. Kf3 Hb2 34. Hh3 Rb6 35. Be2 Haa2
36. Bfl Ha3 37. Hcl Rd5 38. Hel Rc3 39.
Bc4 d5 40. Bd3 Re4
- Og í þessari vonlausu stöðu gafst
Salov upp.
-JLÁ
drap drottninguna með kóngnum.
Suður spilaði litlu laufi) og austur
drap tíu blinds með drottningu. Hann
spilaði tígultíu), gosinn frá sagnhafa
og vestur drap á ásinn. Vestur skipti
nú í lítinn spaða, sagnhafi drap heima,
tók síðan þrjá tígulslagi og aðra þijá
á spaða. Vestur kastaði hjartasexi og
laufaníu). í ellefta slag spilaði blindur
út laufi, vestur lenti inn á laufás og
varð að spila hjarta upp í Á-D sagn-
hafa).
1) Opnunarsögn sem er í tísku núna,
en vafasamt að hún muni koma í
stað hinar traustu tígulopnunar,
sem almennt er að nota.
2) Fylgir eftir opnunarsögninni en lík-
lega lakari sögn en pass.
3) Eins og dr. Lasker sagði, „sá sem
segir A verður líka að segja B.“
4) Mistök sem orsakast af því að
hjartatvisturinn er talinn vera ás-
inn.
5) Bragð, sem talið er að þriðji sonur
Nóa, Jafet, hafi fyrstur reynt. Til-
gangurinn er að fá varnarspilarana
til þess að hreyfa ekki lauflitinn.
Frekari rannsóknir munu sanna að
þetta bragð er ótryggt.
6) Ekki besta útspilið. Laufaútspilið
blasti við.
7) Vestur var nú kominn í mikla tíma-
Bridge
þröng, enda ákafur í að klára spilið frá svo lélegum lit. Annars hefði
til þess að geta útskýrt fyrir austri hann fundið réttu vömina, sem vai-
hvers vegna hann hefði spilað út að kasta laufás í stað hjartasex.
Ef þið viljið fylgjast með bridqe og skák
ER MÁLIÐ MJÖG
EINFALT...
...Þ/Ð HRINGIÐ i SÍMA
2 #70 #22
og biðjið um áskrift af
Blaðbera vantar í Hafnarfjörð.
Upplýsingar í síma 51031 (Ásta).
Akraneskaupstaður
Laust starf
bæjarstjóra
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf bæjar-
stjóra á Akranesi. Frekari upplýsingar um starfið veita
Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri (sími 93-1211)
og Ingibjörg Pálmadóttir, forseti bæjarstjórnar, (sími
93-1818). Umsóknarfrestur er til 4. júlí nk.
Bæjarstjóri.
Hefurðu áhuga á námi í
prentiðn?
Ef svo er þá erum við að leita að nemum. Við erum
ein af best búnu prentsmiðjum landsins. Hafirðu
áhuga þá hafðu samband við okkur milli kl. 12 og 14
næstu daga í Þverholti 11 (ekki í síma).
ÁSKRIFTARSÍMINN
ER
27022
VI kun
HEIMILISBLAÐ
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 47. og 50. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1987 á jörð-
inni Stökkum I Rauðasandshreppi ásamt tilheyrandi mannvirkjum, þingl. eign
Hjartar Skúlasonar, Skúla Hjartarsonar og Ingvars Hjartarsonar, fer fram eftir
kröfu Gunnars Sæmundssonar hrl„ Guðjóns Steingrimssonar hrl., Amar
Höskuldssonar hdl„ Valgarðs Briem hrl. og Eggerts B. Ólafssonar hdl. á skrif-
stofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, fimmtudaginn 25. júní 1987
kl. 9.00.
______Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á mb. Geir BA 67, þingl. eign Níelsar A. Ársælssonar, fer
fram eftir kröfu sjávarútvegsráðuneytisins á skrifstofu embættisins, Aðalstræti
92, Patreksfirði, fimmtudaginn 25. júní 1987 kl. 10.00.
_________________________ Sýslumaður Barðastrandarsýslu.