Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Síða 13
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
13
Spurnmgaleikur
Þorgeir Ibsen - Hve mörg tonn af neftóbaki komast á vörubil?
Björn Ingólfsson - Baker Street? Þetta á maður að vita!
DV-mynd JGH
Hvað tekur landinn
Við höfðum haft af því spurnir
að Þorgeir Ibsen, fyrrverandi
skólastjóri Barnaskóla Hafnar-
fjarðar, væri hiklaust í hópi fróðari
manna - og þóttumst því heppnir,
spyrjendur, þegar hann gaf á sér
kost. I byrjun þessa spurningaleiks
dróst nafn Þorgeirs á móti Haf-
steini Stefánssyni, skólameistara í
Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Þegar svo Hafsteinn slapp úr leikn-
um sökum ferðalags fundum við í
staðinn glúrinn Norðlending á
móti Þorgeiri. Sá heitir Björn In-
gólfsson og er skólastjóri Barna-
skólans á Grenivík.
Grenivík er í S-Þingeyjarsýslu,
austan megin við Eyjafjörð, lítil
höfn og þó ekki svo lítil, sé miðað
við stærð þorpsins og aðra útgerð-
arstaði í landsfjórðungnum. En
Grenivík hefur löngum verið í friði
fyrir heimsins glaumi og Birni
skólastjóra án efa gefist næði til
að glugga í eitthvert les af og til.
Það er líka engu líkara, ef við at-
hugum frammistöðu hans hér í dag.
Hvar átti Sherlock Holmes
heima?
Það skal viðurkennt að sumar
þeirra spurninga sem við leggjum
fyrir skólameistarana eru allt að
því ómögulegar. Þorgeir Ibsen
sagði að það væri frægt að tveir
bjánar gætu spurt þannig að tíu
vitringar stæðu á gati. En benti
jafnframt á að meðalútkoma þeirra
skólameistara, sem hingað til hafa
reynt að svara spurningum Baldurs
Símonarsonar og Gunnars Gunn-
arssonar, er svona ámóta og á
samræmdu prófunum í grunnskól-
um landsins.
Spurningarnar í dag eru á svip-
uðum nótum og undanfarnar
helgar. Hvers konar límheili getur
til dæmis munað upp á hár hvar
þeir Holmes og dr. Watson bjuggu
í Lundúnum á síðustu öld? Og
það er hægt að blekkja mætustu
Hafnfirðinga með því að spyrja um
Álftaneshrepp!
En lítum nú á spurningarnar:
1) Hver núverandi þingmanna
hefur setið lengst á Álþingi sem
aðalmaður?
Báðir höfðu þetta rétt. Margir
velta þingmönnum og þingsetuferli
nokkuð fyrir sér og rifja upp við
kosningar. Bæði Björn og Þorgeir
þurftu að dvelja um stund við hug-
arreikning, setja úrslit kosninga í
ýmsum kjördæmum upp í einhvers
konar þríliðu og margfalda svo með
ríkisstjórnum - og fengu rétta út-
komu.
2. Hvað eru margar rendur í
bandaríska fánanum?
Þessi spurning stóð í Birni - en
svo tókst honum að rifja fána-
skömmina upp fyrir sér og giskaði
- næstum rétt; og næstum rétt gild-
ir ekki hjá dómaranum Baldri
Símonarsyni. Þorgeir rifjaði upp
námsdvöl sína í Bandaríkjunum og
mundi það úr fræðum þeim sem
hann fyrrum las hvers vegna
fáninn lítur út eins og hann lítur
út og svaraði rétt.
3) Númer hvað við Baker Street
í London bjuggu þeir Sherlock
Holmes og dr. Watson?
Eins og áður sagði: þetta er
spurning fyrir límheila. Og þeir le-
senda sem ekki muna svarið verða
að snúa blaðinu á hvolf. Þar er
rétt götunúmer svart á hvítu. Björn
og Þorgeir skiluðu auðu.
4) í hvaða landi drekka menn
Grappa?
Grappa er áfengur drykkur. Og
trúlega eru skólastjórar almennt
hófsmenn á vín. Að minnsta kosti
tókst þeim félögum hvorugum að
svara þessu rétt.
5) Hvað heitir borgarstjórinn í
Carmel í Kalifomíu, USA?
Okkar menn lesa blöð, hafa lengi
lesið blöð og það sem meira er:
þeir muna hvað í þeim stendur.
Báðir með rétt.
6) Hvað nefna spönskumælandi
menn Falklandseyjar?
Björn hafði það á hreinu. En
Þorgeiri vafðist tunga um tönn,
enda stirður í spænsku. Staðan 3:3.
7) Nefnið tvo íslenska knatt-
spyrnumenn sem hafa verið
atvinnumenn í Frakklandi.
Óneitanlega uppsláttarspurning.
eins og skólamenn segja. Og báðir
fengu stig. Staðan enn jöfn, 4:4.
8) Hvaða rithöfundur tók sér höf-
undarnafnið Þórir Bergsson?
Svona löguðu geta nú allir skóla-
stjórar svarað. ekki trúum við
öðru.
9) í hvaða sýslu er Álftaneshrepp-
ur?
Það má náttúrlega öllum gera að
rugla þá í ríminu. En Álftanes-
hreppur er ekki neinn Bessastaða-
hreppur - þótt Bessastaðahreppur
sé á Álftanesi. Hvorugur fékk stig.
staðan enn 5:5.
10) Neftóbaksnotkun íslendinga á
síðastliðnu ári var:
a) 5 tonn
b) 12 tonn
c) 140 tonn
d) 1600 tonn.
Neftóbak er víðs fjarri hugar-
heimi Björns Ingólfssonar. Þótt
einhvern tíma hafi hann eflaust
prófað löstinn. Þorgeir Ibsen
revndi að ímvnda sér hver fvrirferð
væri i fimm tonnum og svo tólf
tonnum. Og þegar hann þóttist viss
um að tólf tonn kæmust trúlega á
stóran vörubíl. giskaði hann - rétt.
Og sigraði því naumlega með 6:5.
Við hlökkum.til að sjá hann í
undanúrslitum i næsta mánuði.
■q (oi
•njsASBjýi^ (6
'UOSSUOf* UUI3}SJO(J (8
'UOS.tBp.IOcJ
.mjiax go uosspunuiQnQ juaqiy (j,
•SBUIAIBDI (9
•pooAvjsBg juijd (e
•niiBJi y (f
'aiöé (e
'£I (Z
•uasaiqjBj^ SBiqnBjv (j
:joA.g
mörg
tonn í