Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1987, Blaðsíða 2
40 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987. bílnum sínum og spurði um heilsu frú Hoffman. Eftir um það bil tveggja stunda dvöl á stofunni var haldið heim í konungsríkið, Graceland, á ný. Konungurinn fór yfir undirbún- ing hljómleikaferðarinnar með mönnum sínum. Allt virtist í stakasta lagi. Hvarvetna uppselt. Hann stakk upp á sex nýjum lögum sem rétt væri að bæta á efnisskrána og prófa á áheyrendum í ferðinni. Enn var ekki tímabært að fara í háttinn. Konungurinn laug eina töflu af dilaudid út úr hjúkrunar- konu sinni sem hirðlæknirinn, dr. Nichopolus, hafði lagt til. Síðan kall- aði hann í Ginger Alden. Hann var búinn að ákveða kirkjuna. Brúðar- kjóllinn var í hönnun. Öryggisverð- irnir utan við kirkjuna máttu helst ekki sjást. Og einhverju varð brúður- in tilvonandi að ráða. Hvaða lit vildi hún hafa á limúsínunum sem ækju þeim til og frá kirkju? Brúðkaupið ætlaði hann að til- kynna á sviði í Memphis 27. ágúst. Þau ræddu saman góða stund, hjóna- leysin. Konungurinn var alls ekki í skapi til að fara að sofa að þeim við- ræðnum loknum. Hann vakti Billy Smith, vin sinn og aðstoðarmann, og sagði honum að koma og spila við sig veggtennis og taka konu sína, Jo, með. Klukkan var orðin fjögur þegar þau hittust í nýlegum íþróttasal Graceland herragarðsins. Konung- urinn lék á als oddi þrátt fyrir kílóin 127, allt þar til áhrif pillufjandans tóku að réna. Eftir tveggja stunda veru í íþróttasalnum var haldið heim á ný. Sólin var að koma upp. Ginger var svo þreytt að hún henti sér í rúmið án þess að hátta. Konungur- inn fór í silkináttföt, hallaði sér upp í, kveikti á sjónvarpinu og tók sér bók í hönd. Hálfri stundu síðar kall- aði hann eftir lyfjaskammtinum sínum. Tími var kominn til að ganga til náða. En konungurinn festi ekki svefn. Um átta um morguninn fékk hann viðbótarskammt. Átta pillur til við- bótar. Skammt sem hefði nægt til að drepa næstum hvern sem var. Taug- arnar voru ekki sem skyldi. Hljóm- leikaferðin var framundan og bannsett bókin hafði áreiðanlega eitrað út frá sér. Hann herjaði út tvær valmid og eina placidyl til við- bótar. Ginger rumskaði þegar síðasti skammturinn kom. Hún var hálfsof- andi og rám - klukkan aðeins átta - og spurði hvað væri að. Kongurinn fann sér aðra bók og sagðist ætla að skreppa á baðherbergið. Sex klukkustundum síðar fann Ginger Alden konunginn á baðher- bergisgólfinu. Húðin var purpuralit- uð. Hann var byrjaður að stirðna. Sjúkraliðar og hirðlæknirinn voru kvaddir til. Allt kom fyrir ekki. El- vis Aaron Presley, konungur rokks- ins, var löngu látinn er komið var með hann til Baptist Memorial sjúkrahússins í Memphis. Orðstírinn lifir og því minnast milljónir þess á morgun að tíu ár eru liðin síðan mesti skemmtikraftur tuttugustu aldarinnar lést. Breid síðan Þannig kvaddi kon- ungur rokksins Tólf daga hljómleikaferð stóð fyrir ánda ágúst. Fyrsti viðkomustaður dyrum, sú fyrsta í langan tíma. Það var Portland í Maine. átti að leggja íann daginn eftir, sext- Konungurinn kveið hálfpartinn fyrir ferðinni. Bókin Elvis What Happened? var nýkomin út. Þar var mikið fjallað um offitu og lyfjaát. Hluti sem áttu ekki að fara hátt. Margir aðdáendur voru áreiðanlega búnir að lesa bókina. Hann fengi ekki eintóm aðdáunartillit í þetta skiptið. Sumir myndu virða konung- inn rannsakandi fyrir sér. Hann ákvað að fara í bió. McArth- ur var í miklu uppáhaldi. Hetjan sem hafði þjónað landi sínu með sóma en fengið skít og skömm fyrir. Rétt eins og hann. (Bara að bölvuð bókin hefði aldrei komið út.) Hann hafði sam- band við kvikmyndahúsið og bað það um aukasýningu eftir síðustu sýn- ingu. Enginn nennti að vinna frameftir svo að, þá varð að finna eitthvað annað til. Hví ekki að skreppa til tannlæknis? Lester Hoff- man tannlæknir var til í að opna stofuna þótt áliðið væri kvölds. Klukkan var hálfellefu. Konungur rokksins var í góðu skapi á tannlæknastofunni. Hann kynnti kærustu sína, Ginger Alden, fyrir Hoffman, sagði frá nýja Ferrari t TsST/Verö 150 krónur. Veistu fyrr en í fimmtu tilraun Svör við spurninga- getraun Hermann Jónasson. Suðurpóllinn. Pereatið í Lærða skólanum. Robbi. Ólafur Ragnar Grímsson. Svava Jakobsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.