Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1987, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987.
37
Dægradvöl
skín. Þær halda að þær verði ekki
útiteknar nema í sól. Þetta er reg-
inmisskilningur. Þær verða kafB-
brúnar ef þær koma reglulega út
undir bert loft þrátt fyrir að það
sé skýjað.“ Þeir voru ekki sérlega
ánægðir með þessa tregðu kven-
þjóðarinnar en sögðu að sólarda-
gamir bættu þeim þetta upp því
þá fyllist allt af fallegum konum.
Strákamir í hádegisklúbbnum
vom eldhressir og létu brandarana
óspart flúka. Þeir segjast leysa öll
heimsins vandamál í heita pottin-
um og hallast helst að því að halda
ætti ríkisstjómarfundi ofan í hon-
um. Best væri að setja ríkisstjóm-
ina þar ofan í og bæta svo heitu
vatni hægt og sígandi við. Enginn
< fengi að fara upp úr fyrr en sam-
komulag næðist.
Jón Baldvin syndir 200
metra
Þeir vom ekki fyrr búnir að
sleppa orðinu en Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra
kom labbandi eftir bakkanum á
nýrri sundskýlu. Hann sagðist
koma þrisvar til fjórum sinnum í
viku í Vesturbæjarlaugina og synti
þá 200 metra. Fjármálaráðherrann
kemur ekki á ákveðnum tímum og
tilheyrir því ekki ákveðnum hópi í
lauginni en hann hafði greinilega
mest álitið á morgunhópnum.
„Morgunklúbburinn leysir öll
vandamál fyrir klukkan átta á
morgnana og það geta varla verið
nema einhveijar eftirhreytur sem
eru fyrir þá sem sitja hér í hádeg-
inu,“ sagði hann og glotti. Hann
var þó hjartanlega sammála klúbb-
mönnum í því efhi að kvenfólk
hefði þá náttúm að koma aðeins
þegar sólin skín en svona orðaði
hann það: „Það birtir yfir þegar
birtir.“
Magnús Einarsson fasteignasali: „Þetta fær blóöið til að renna upp i
haus.“
Einar Vilhjálmsson frjálsíþróttamaöur heimsækir ömmu sína eftir sund-
ferðirnar.
„Gott að losna við þyngdar-
lögmálið“
Einar Vilhjálmsson sat á bekk
og naut þess að vera til þegar
Dægradvölina bar að garði. Hann
sagðist fara í sund eftir æfingar
þrisvar til fjórum sinnum í viku
meðan keppnistímabilið stendur
yfir. Þá syndir hann 200 til 400
metra og slappar síðan af í heita
pottinum. Einari finnst litla sam-
félagið í pottinum mjög þægilegt.
Þar nýtur hann þess að heyra sitt
lítið af hverju um lífið, heimspeki
og stjórnmál. Um leið og hann tek-
ur þátt í umræðunum verkar heitt
vatnið vel á hrygginn sem fer oft
illa á æfingum. Einar sagði það
yndislega tilfinningu að fara í sund
og losna við þyngdarlögmálið um
stund en af því fær hann oft nóg
þegar hann hamast við að kasta
spjóti sínu. „Reyndar slæ ég tvær
flugur í einu höggi með því að
koma hingað í Vesturbæjarlaug-
ina. Amma býr nefnilega héma
hinum megin við götuna svo ég
heimsæki hana í leiðinni," sagði
hann brosandi.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra i nýrri sundskýlu.
I fyrsta skipti í sund
Að lokum hittum við þrjú systk-
inaböm sem svömluðu saman í
heita pottinum. Svenni og Edda
sem bæði búa á íslandi fara stund-
um í sund og finnst það ofsalega
gaman. En Ulla frænka þeirra, sem
býr í New York, var í heimsókn
hjá þeim og var þetta í fyrsta skipti
sem hún kom ofan í sundlaug. Ulla
sagði að sér þætti líka mjög gam-
an, það væri bara svolítið kalt.
Texti:
Jóna BjörkGuðnadóttir
Myndir:
Kristján Ari Einarsson
fiOftAHÚSIO
Laugavegi 178
simi 68-67-80
Nœsta hús við sjónvarpsstöð 1.