Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1987, Blaðsíða 32
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritst|órn - Auglýsingar - Á skrift - Dreifing: Sími 27022 MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1987. Drög að fjáriagaframvarpi: Þögn sam- ráðherra * ersamaog samþykki - segir Jón Baldvin ..Samráðherrar tóku hugmyndum mínum dável og enginn mótmælti þeim ákaflega og þvi lít ég svo á að þögn sé sama og samþykki," sagði Jón Baldvin Hannihalsson íjármála- ráðherra í samtali við DV í morgun. Eins og skýrt var frá í DV í gær kynnti Jón hugmýndir sínar til tekjuöflunar ríkissjóðs sem og niður- ^ skurð á fjárlögum næsta árs á dagslöngum ríkisstjómarfundi í gær. „Markmið mitt er að ná fjárlaga- hallanum niður í hálft prósent af þjóðarframleiðslu á næsta ári sem myndi þýða að fjárlagahallinn yrði 1,5 milljarðar í stað 3,5 eins og nú stefnir í. Fjárlagahalli þessa árs er um það bil 1,5% af þjóðarframleiðslu eða um 3 milljarðar króna,“ sagði Jón Baldvin. Jón var spm-ður hvort hugmyndir hans myndu þýða beinar skatta- hækkanir fyrir almenning og sagði hann erfitt að svara því í ljósi þess að staðgreiðslukerfi skatta tekur við um áramót en Ijóst væri að ffamund- an væm skattabreytingar. Loks sagðist Jón staðráðinn í að afnema þá sjálfvirkni sem væri í fjár- lögunum en ekkert hefði enn verið ákveðið í þvi efhi. Fjárlagagerðin fer nú í frekari vinnslu og verður síðan lögð fyrir annan ríkisstjómarfund. -S.dór Matthías á sjúkrahús Matthías Á. Mathiesen samgöngu- ráðherra lagðist í gær inn á sjúkra- hús til meðferðar vegna bijóskloss í baki. Reiknað er með að ráðherrann verði fjarverandi í viku til tíu daga vegna þessa. -ój Allar gerðir sendibíla I 25050 SEnDIBiLKTÖDIIl Borgartúni 21 LOKI Nú er Stóri Rauður í ham! Islendingur í í London: Skinb á hsði um wVml|#Mifl Cfl MIVvl Mlll Llov4a á%cf liigirfii mana o& lun&u W mw V Ungur íslendingur liggur nú á sjúkrahúsi og bíður eftir því að kom- ast í aðgerð í London þar sem skipta á um hjarta og lungu f honum. Þar með yrði hann fyrsti íslenski hjarta- þeginn. Islendingurinn, sem er 24 ára, er með meðfæddan hjartagalla og gekkst undir hjartaaðgerð tveggja - og verður því fyrsti íslenski hjartaþeginn ára, Hann fann lítið fjTÍr hjartagall- anum þar til fyrir nokkrum árum að siga tok á ógæfuhliðina. Fyrir sjö mánuðum var harrn lagður á sjúkra- hus og tveim mánuðura síðar lá niðurstaða læknanna fyrir: Eina leiðin var að skipta um hjarta og lungu í unga manninum. í fimm mánuði hefur ungi maður- inn legið á sjúkrahúsi i Reykjavík og beðið eftir að komast í aðgerðina sem einn fremsti hjartaskurðlæknir í heimi mun framkvæma á sjúkra- húsi í London. Biðin stafar hæði af þvi að hörgull er á h'ffærum sem lík- ami sjúklingsins mundi ekki halha, og svo er íslendingminn ekki ffemst- ur í forgangsröð þar sern líðan hans er nokkuð viðunandi miðað við að- stæður. Ungi maðurinn mun því enn um sinn bíða í óvissu eftir því að aðgerð- in geti farið frám því engar dagsetn- ingar er hægt að setja. -ATA Harka færist í Steingrím: Framkvæmdir stöðvaðar? „Steingrímur Hermannsson utan- ríkisráðherra óskaði eftir því að forúthlutunarfundinum um ffam- kvæmdir Bandaríkjamanna á Kefla- víkurflugvelli yrði frestað um óákveðinn tíma á meðan hann ætti í viðræðum við Bandaríkjamenn fyrir vestan,“ sagði Þorsteinn Ingólfsson, forstöðumaður vamarmálaskrifstof- unnar, í morgun. Þorsteinn sagði að á þessum forút- hlutunarfundi kynntu Bandaríkja- menn fyrir íslendingum þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar væru og í þessu tilviki þá ffamkvæmdir á næsta. ári. Formlega væri svo gengið frá málunum á fundi í Bandaríkjunum í lok október. - Situr utanríkisráðherra þennan forúthlutunarfund? „Nei, yfirleitt er það ekki.“ - Hvaða ffamkvæmdir eru það sem blasir við að ffestist á næsta ári ef dregst á langinn að halda fundinn? „Þetta er spuming um viðhald og nýjar framkvæmdir á Keflavíkurflug- velli en ég get ekkj, sagt nákvæmlega um hvaða framkvæmdir þetta eru.“ -JGH Forsætisráðherra: Engin tilkynning um vsðræðunefnd Steingrímur grípur töskuna Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra greip þéttingsfast í töskuna sina þegar hann skundaði beint af ríkisstjórnarfundi i gær vestur yfir haf til Kanada. Hann situr þar ráðstefnu frjálslyndra flokka. í leiðinni mun hann ræða við Bandaríkjamenn um hvalamáiið. Það mál verður lika tekið föstum tökum. DV-mynd GVA „Við munum bíða með allar yfirlýs- ingar um fr amhald málsins þar til þeim viðræðum við Bandaríkjamenn, sem fyrir dyrum standa, er lokið,“ sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra í samtali við DV um það hvort íslend- ingar væru hættir hvalveiðum. Veðrið á morgun: Bjart og hlyttaS- og V-landi Á morgun verður norðlæg átt á landinu, dálítil rigning og 5 til 8 stiga hiti norðanlands en þjart veður að mestu á Suður- og Vesturlandi og 8 til 12 stiga hiti. „Við getum ekki ráðið því hverja Bandaríkjamenn senda til viðræðn- anna og ég hef ekki fengið neina formlega tilkynningu um það hverjir það verða," sagði Þorsteinn þegar hann var spurður hverjir yrðu í banda- rísku viðræðunefndinni. Búist er við því að viðræðunefhdim- ar hittist í dag og þegar Þorsteinn var spurður um þá yfirlýsingu utanríkis- ráðherra að ekki stæði til að gera grein fyrir hvalveiðunum sem slíkum heldur áhrifum staðfestingarkæru á íslendinga svaraði hann: „Eg geri ráð fyrir því að Steingrímur geri grein fyr- ir þvi sem mestu skiptir, hvalveiðun- um.“ Aðspurður um bréfaskriftir forsætis- ráðherra og Bandaríkjaforseta og upphaf þeirra sagði Þorsteinn að áður en hann sendi sitt fyrra bréf hefði ve- rið búið að leggja málið fyrir forsetann og því hefði þótt rétt að skrifa forset- anum beint og leggja þannig áherslu á okkar sjónarmið. „Bréfið frá mér fór ekki fyrr en málið var komið til forset- ans,“ sagði Þorsteinn. -ój - sjá einnig bls. 26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.