Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Page 7
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
7
DV
Sljómsýslumiðstöð á Akureyri:
Ekki án þátttöku
Búnaðarbankans
- segir Stefán Valgeirsson, formaöur bankaráðs
Gyifi Kiistjánsgan, DV, Akuieyii
„Það liggur alveg fyrir að ekki verður
farið í byggingu stjómsýslumiðstöðv-
ar á Akureyri án þess að Búnaðar-
bankinn verði aðili að þeirri
byggmgu,“< segir Stefán Valgeirsson,
formaður bankaráðs Búnaðarbank-
ans, en nokkrar umræður hafa verið
að undanfömu um fyrirhugaða bygg-
ingu stjómsýslumiðstöðvar við
Ráðhústorg á Akureyri, austan Lands-
bankahússins.
Búnaðarbankinn afsalaði sér um-
ræddri lóð til bæjarins á sínum tíma
meö því fororði að þar yrði ekki byggt
í framtíðinni. Nú hefur hins vegar
verið ákveðið að byggja á lóðinni veg-
legt hús sem verður stjómsýslumið-
stöð. Það er áiit bæjaryfirvalda á
Akureyri að kvöð Búnaðarbankans
um að ekki yrði byggt á lóðinni hafi
fallið niður þegar miðbæjarskipulag
var samþykkt á sínum tíma enda hafi
þá ekki komið fram neinar athuga-
semdir frá bankanum.
Stefán Valgeirsson sagði að það væri
ljóst að ekkert væri því til fýrirstöðu
að bankinn yrði aðiii að byggingunni,
annað en að bankinn yrði að selja
núverandi bankabyggingu sína við
Geislagötu, því samkvæmt lögum
bankans mætti ekki nema ákveðinn
hluti fjármagns hans vera bundinn í
fasteignum.
Fyrirhuguð bygging stjómsýslumið-
stöðvarinnar á horni Geislagötu og
Strandgötu við Ráðhústorg mun hafa
það í för með sér að núverandi Búnað-
arbankahús í bænum verður nánast
bakhús og það telja Búnaðarbanka-
menn óviðunandi. Því bendir allt til
þess að bankinn verði aðili að bygging-
unni.
Fulltrúar frá Byggðastofnun hafa
rætt við bæjaryfirvöld og forráða-
menn Búnaðarbankans um fyrir-
hugaða stjómsýslumiðstöð. Mun góð
samstaða hafa veriö í þeim viðræðum
og allt bendir til þess að byggingar-
framkvæmdir hefjist eins fljótt og
hægt er. Áður þarf þó að kaupa hús
sem verður að fjarlægja á næstu lóö-'
um vegna breytinga á umferð um
miöbæinn. Byggðastofnun verður með
skrifstofu í hinni nýju byggingu auk
fjölda annarra aðila og er ljóst að þetta
hús mun setja verulegan svip á miðbæ
Akureyrar þegar það rís.
Sjávarútvegssýningin:
DNG seldi 70 færavindur
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri;
Færavindum frá rafeindafyrirtæk-
inu DNG á Akureyri var mjög vel
tekið á sjávarútvegssýningunni í
Reykjavík sem nú er nýlokið.
Álls seldi fyrirtækiö 70 færavindur
á sýningunni og er andvirði þeirra
um tíu milljónir króna. Stöðug aukn-
ing hefur verið í sölu færavindanna
undanfarin misseri enda þykja þær
ótvírætt hafa sannað gildi sitt. Kaup-
endur færavindanna sem seldust á
sýningunni nú vom langflestir inn-
lendir en einnig barst fjöldi fyrir-
spuma erlendis frá.
í kennslustund i rafmagnsgítarleik i Tónlistarskóla Félags islenskra hljóö-
færaleikara. Hilmar Jensson, Jón Páll Bjarnason og Ari Einarsson.
DV-mynd Brynjar Gauti
Þrír gítarar
á jasskvöldi
Jasskvöldin í Heita pottinum hjá
Duus í Fischersundi hafa verið sann-
kölluð vítamínsprauta fyrir allt jasslíf
í höfuðborginni. Jassleikarar hafa
leikið þar á hveiju sunnudagskvöldi
og stundum einnig í miðri viku alveg
síðan í mars að sögn Tómas R. Einars-
son bassaleikara en hann er einn af
fjórum aðstandendum Heita pottsins í
samtali við DV. Hinir þrír em Davíð
Guðmundsson, Egill B. Hreinsson og
Guðjón Bjamason en allir leika þessir
menn jass í frístundum sínum.
Þeir sem leika í Heita pottinum
leggja hluta af tekjunum í svokallaðan
píanósjóð en í Heita pottinum er ekk-
ert píanó.
Ýmsir gestir hafa komið til þess að
leika með og fyrir innlenda jassleik-
ara, bæði frá Frakklandi og Dan-
mörku. Þessa stundina er einmitt
staddur hér einn slíkur en hann kem-
ur frá Los Angeles. Þaö er Jón Páll
Bjamason gítarleikari sem þykir mjög
góður á sínu sviði.
Á mánudagskvöld leikur Jón Páll í
Heita pottinum með óvenjulega sam-
settu „bandi“, en þá leika saman þrír
gítarleikarar, tveir bassaleikarar og
svo trommari. Það em þeir Friðrik
Karlsson og Hilmar Jensson sem leika
á gítar með Jóni og þeir Birgir Braga-
son og Tómas R. Einarsson sem leika
á bassa og hinn frábæri Pétur Grétars-
son leikur á trommur.
Gífurlega mikill áhugi er nú á raf-
magnsgítarleik hér á landi. í haust
sóttu hvorki meira né en 60 nemendur
um að komast í slíkt nám í tónlistar-
skóla FÍH en aðeins 27 vora teknir inn
í vetur.
-A.BJ.
Hafnarstræti
Túngatá
Austurstræti
onarstræti
.ÍRáðhús
KVOSARINNAR
Tjömin
Fréttir
Á þessu korti sést umferðarskipulag Kvosarinnar. Geirsgata sést efst á myndinni.
Kvosin:
Geirsgata talin
rúma 40-50 þúsund
bfla á sólarhring
Samkvæmt skipulagi Kvosarinnar,
sem auglýst var fyrir nokkrum mán-
uðum og borið verður upp til sam-
þykktar í skipulagsnefnd borgarinnar
næstkomandi mánudag, munu ýmsar
brejthgar eiga sér stað í miðborg
ReyKjavíkur og segja má að ein helsta
breytingin felist í byggingu Geirsgötu.
Geirsgatan mun taka við af Kalk-
ofhsvegj og Sætúni og liggja með
höfninni, eftir Miðbakka og tengjast
Tryggvagötu rétt austan við Ægisgarð.
Jafnframt breytir Tryggvagata um
legu og verður lokað til austurs á
móts við Pósthússtræti og á svæðinu
fiá Pósthússtræti að Lækjargötu verð-
ur byggð strætisvagnastöð. Þá er
samkvæmt skipulaginu gert ráð fyrir
því að Austurstræti allt verði gert að
göngugötu, Aðalstræti verði göngu-
gata með strætisvagnaumferð og í
Pósthússtræti verði takmörkuð um-
ferð. Þá er reiknað með þvi að
Hafnarstræti verði lokað í báða enda,
Vallarstræti verði göngugata og sömu-
leiðis Kirkjustræti á milli Thorvalds-
ensstrætis og Pósthússtrætis.
Með byggingu Geirsgötu í samræmi
viö skipulag Kvosarinnar verður
hafnaraðstaða í núverandi mynd erfið,
að mati skipulagshöfunda, en með
breikkun hafnarbakkans er talið að
þar skapist góð aðstaða fyrir smábáta,
seglbáta og ýmsar athafnir sem gætu
gætt höfnina nýju lífi.
í greinargerð frá borgarverkfræð-
ingsembættinu um umferðarmál
miðborgarinnar kemur fram það álit
sérffæðinga umferðarmála að rétt sé
að breikka Sóleyjargötu og Fríkirkju-
veg í fjórar akreinar. en til þess aö
umferðarhraði verði þar ekki of mik-
ill sé rétt að hver akrein verði ekki
breiðari en 3 metrar. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem DV fékk hjá Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni. formanni skipulags-
nefndar, er hægt að breikka Sóleyjar-
götuna án þess að skerða trjágróður í
Hljómskálagarðinum, með því að taka
gangstéttina við garðinn undir breikk-
unina en gera gangstíg samhliða
Sóleyjargötu inni í garðinum. Ekki
sagði Vilhjálmur breikkun Sóleyjar-
götu og Fríkirkjuvegar á dagskrá í
bráð.
Með framkvæmdum í samræmi við
hið nýja Kvosarskipulag er gert ráð
fyrir að ástand umferðarmála batni
og þar sem bílastæðaþörf verði betur
fúllnægt minnki hringsól biffeiða í leit
að bílastæðum. Talið er að Geirsgata
muni eiga stóran þátt í bættu um-
ferðarástandi því sú gata er talin
munu rúma umferð á milli 40 og 50
þúsund bfla á sólarhring. í stað 25
þúsund bfla sem fara um Tryggvagötu
og Hafnarstræti nú. Þessum fyrir-
huguðu ffamkvæmdum fylgja um-
ferðarljós sem gert er ráð fyrir aö verði
sett upp á gatnamótum Geirsgötu og
Grófarinnar og á mótum LæKjargötu
og þessara gatna: Geirsgötu, Hverfis-
götu, Bankastrætis og Vonarstrætis.
-Ój
Ekkert vitað um stoðugleika
flestra báta undir 50 lestum
Sævar Birgisson, framkvæmda-
stjóri Skipasmíðastöðvar Marseliusar
Bemharðssonar á ísafirði, segir að
skammarlega lítið sé gert í öryggis-
málum fiskiskipa undir 50 lestum
hvað stöðugleika þeirra varðar. Hann
segir að ekkert sé vitað um stöðugleika
bróðurparts skipa undir 50 lestum hér
á landi. Hann segir ennfremur í við-
talinu að á sama tima og eitt var
hundmðum milljóna í að setja sjálf-
virkan sleppibúnað í skipin, sem ekki
sé nema gott eitt um að segja, sé ekk-
ert gert varðandi stöðugleika þeirra.
Þessi ummæli Sævars, sem birtust
í Sjómannablaðinu Víkingi. vom bor-
in undir Magnús Jóhannesson sigl-
ingamálastjóra. Hann sagöi að engar
reglur heföu gilt um stöðugleika skipa
sem smíðuð vom fyrir árið 1975 og
þess vegna sé það rétt að þessum
málum sé ábótavant varðandi skip
smíðuð fyrir þennan tíma. Eftir 1975
er hvorki leyfilegt að byggja né breyta
skipi án þess að stöðugleikaprófun fari
fram.
Magnús sagði að nú væri búið að
veita nokkurt fé til þess að hefja stöð-
ugleikaprófun á gömlum skipum og
er verið að byrja með þær á gömlum
bátum á ísafirði. Þetta er mjög kostn-
aðarsöm aðgerð sem mun að mestu
lenda á útgerðarmönnum. -S.dór