Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987.
5
Fréttir
n ■■■—IIPPI II.I ■■■■ ■ »11..■ ■ ■■■ ■
Gróska í útgerðinni:
Á 2. hundrað
skip í smíðum
eða breytingum
Samkvæmt upplýsingum Siglinga-
málastofnunar eru vel á annað
hundrað í§lensk flskiskip í breyting-
um eða smíðum, bæði innan lands og
utan. Þar af eru um 30 skip sem annað-
hvort er hafin smíði á eða er í undir-
búningi. Þegar talað er um breytingar
á skipum er mest um að skip séu
lengd, skipt um brú og breytingar á
skut með tilliti til toghæfni skipanna.
Sem dæmi um breytingar má nefna
að allir skuttogaramir, sem smíðaðir
voru í Japan á sínum tíma, hafa farið,
eru eða munu fara til Póllands þar sem
framkvæmdar verða á þeim meiri
háttar breytingar. Öllum verður þeim
breytt í frystitogara, þeir lengdir og
endumýjaðir að flestu leyti. í sumum
tilfellum varðandi breytingar á fiski-
skipum er allt nýtt nema skrokkur
sltipsins.
í Noregi er í undirbúningi eða hafin
nýsmíði á togurum fyrir Ými í Hafnar-
firði, Grenivík, annan togara fyrir
Sjólastöðina hf. og fyrir Snæfell. Þá
er þar í smíðum skip fyrir Helgu 2.
RE. í Svíþjóð er í smíðum togari fyrir
Dalvík.
Fyrir utan ísland fara breytmgar á
skipum fram í Póllandi sem fyrr segir
Ólafsvík:
Afmælis-
skákmót á
morgun
Á morgun, sunnudaginn 4. október,
hefst í Ólafsvík skákmót á vegum
tímaritsins Skákar og Ólafsvíkurbæj-
ar. Mótið er haldið í tilefhi af afmælis-
ári Ólafsvikur.
Meðal þátttakenda era þrír íslenskir
titilhafar, þeir Jón L. Ámason stór-
meistari og alþjóðlegu meistaramir
Karl Þorsteins og Sævar Bjamason.
Þá era flórir erlendir skákmenn
meðal þátttakenda, þeir Lars Schand-
en og Henry Danielsen frá Danmörku,
Haugb frá Noregi og Robert Batorf en
hann er pólskrar ættar en býr í Sví-
þjóð. Þessir erlendu keppendur era
ailir ungfr að árum en þykja efnilegir
skákmenn.
Meðal annarra þátttakenda má
nefna Þröst Þórhallsson, Dan Hansson
og Ingvar Ásmundsson.
Teflt verður í nýja félagsheimilinu í
Ólafsvik og stendur mótið yfir frá 4.
til 16. október. -S.dór
Gullkortin:
Ófonn-
legar við-
ræður
„Það hafa óformlegar viðræður átt
sér stað milli stjómar Kreditkorta hf.
og stjómar Visa ísland um eignarrétt-
inn á vörunafhinu gullkort," sagði
HaUgrímur Jónsson, stjómarmaður 1
Kreditkortum hf. Sem kunnugterfóra
greiðslukortafyrirtækin í hár saman
þegar Kreditkort hf. bauð viöskipta-
vinum sínum upp á gullkort. Visa
Island taldi sig eiga rétt á gullkortun-
um.
„Ég á ekki von á öðra en að þeir
láti málið niður falla og mál þetta leys-
ist á fnðsaman hátt.“
-J.Mar
og í Englandi, Þýskalandi og Dan-
mörku.
Varðandi nýsmíðina verður skip að
fara úr landi í staðinn fyrir nýja skip-
ið því stækkun skipastólsins er ekki
leyfð.
-S.dór
■
Heita vatnið
greiðir þú
Hitaveiturmi sjálfri
M og með 5. okt.
Mánudaginn 5. október tekur Hitaveita Reykjavíkur við
innheimtu og gerð hitavatnsreikninga af Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sem annast hefur hvort tveggja fram að
þessu.
Þér, ágæti viðskiptavinur, er vinsamlega bent á að ekki
er unnt að greiða orkureikninga Hitaveitunnar hjá
Rafmagnsveitunni eftir 2. október. Þeir óskast greiddir
í bönkum, sparisjóðum, pósthúsum eða á skrifstofu
Hitaveitunnar, Grensásvegi 1 (opið mánudaga -
föstudaga frá 8.20 - 16.15).
Þessi breyting felur jafnframt í sér að nú þarf að tilkynna
Hitaveitunni um aðsetursskipti.
Allar nánari upplýsingar veitir Hitaveita Reykjavíkur í
síma 82400
HITAVEITA REYKJAVÍKUR
Grensásvegi 1, Sími 82400
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVIKUR
SUDURLANDSBRAUT34 SÍMI686222