Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr.
Verð I lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr.
Friðarspor
Stjórn sandinista í Nicaragua hefur stigið spor í lýð-
ræðis- og friðarátt. Tími var til kominn. Ríkisstjórnin
: lýsir yfir vopnahléi í baráttunni við svonefnda kontra-
j skæruliða. Vopnahléið á að standa í einn mánuð frá
! sjöunda þessa mánaðar. Hersveitir stjórnarinnar verða
l fluttar brott frá þremur átakasvæðum. Náist árangur
af þessu takmarkaða vopnahléi, mun það látið ná til
alls 'andsins. Ekki er síður mikilvægt. að ríkisstjórn
landsins dregur úr því einræði, sem hún magnaði fyrir
rúmu ári. Eina blað stjórnarandstæðinga kom út í fyrra-
dag eftir að hafa verið bannað í fimmtán mánuði. í
blaðinu var hörð gagnrýni á ríkisstjórnina, svo sem í
leiðara. Þetta er merkilegt blað og hið elzta í landinu.
Það hefur verið trútt málstað sínum. Meðal annars
beitti það sér gegn einræðisstjórn Somoza, sem núver-
andi valdhafar steyptu af stóli.
Aðgerðir stjórnarinnar í Nicaragua nú eru í samræmi
við samþykkt fimm forseta Mið-Ameríkuríkja í ágúst.
Þar er gert ráð fyrir vopnahléi í þeim þremur skæruliða-
styrjöldum, sem standa í Mið-Ameríku, E1 Salvador,
Guatemala og Nicaragua.
Hinir hægri sinnuðu kontra-skæruliðar í Nicaragua
hafa hafnað vopnahléi ríkisstjórnarinnar.
Þessir skæruliðar njóta fulltingis og fjár frá Banda-
ríkjunum. Þeir hljóta þaðan opinberan fjárstyrk, einnig
styrk úr sjóðum bandarísku leyniþjónustunnar, auk
mikilla fúlgna, sem komið er til þeirra eftir ólöglegum
leiðum, eins og fram kom í íranhneykslinu. Bandaríkja-
stjórn reiddist, þegar lepp hennar, Somoza, var steypt
í Nicaragua. Það eru Bandaríkjamenn, sem bera ábyrgð
á stríðinu í Nicaragua. Án tilstilhs þeirra ríkti þar frið-
ur og tvímælalaust meira lýðræði en nú. Stjórnvöld í
Nicaragua nota andstöðuna frá Washington og stríðið
sem ástæðu til að skerða frjálsræði. Stjórnin í Wash-
ington er iðin við að kaha sandinistana í Nicaragua
kommúnista. En margir bandarískir þingmenn sjá að-
stæður í Mið-Ameríku þó í réttu ljósi.
Sandinistar vilja ekki teljast kommúnistar. Þeir vilja
ekki feta í fótspor Kúbumanna og verða sovézkir lepp-
ar, eftir að bandarískum leppum er steypt af stóh. En
aðstæður eru örðugar. Bandaríkjamenn hafa beitt
sandinista hvers konar þvingunum. Þeir standa fyrir
styrjöldinni. Þeir beiía viðskiptaþvingunum og hafa
jafnvel reynt að loka höfnum í Nicaragua. í hópi sandin-
ista eru vafalaust ýmsir, sem vilja hallast að Sovétmönn-
um. Hver hermdaraðgerð Bandaríkjamanna gerir slík
öfl sterkari en dregur mátt úr þeim, sem vilja, að lýð-
ræði ríki í landinu. Meginhættan í Nicaragua er sú, að
sandinistar verði beinlínis hraktir í arma Sovétmanna.
Tilhneiging Reagans til að bUðka fasistísk öfl er mjög
hættuleg fyrir stöðu lýðræðis víða um heim, vegna þess
að hún þrýstir viðkomandi almenningi til kommúnisma.
íslendingar hafa fengið allgóðar fréttir af ástandinu
í þessu Mið-Ameríkuríki og ættu því að geta fylgzt vel
með því, sem gerist. Ástæða er til að vekja athygh á
síðustu aðgerðum sandinistastjómarinnar, sem ættu að
gleðja lýðræðissinna. En stjórnin í Washington verður
hið fyrsta að hætta sínu glæpsamlega stríði í þessu ríki
en vinna í þess stað með þeim, sem vilja raunverulegt
lýðræði.
Það er leiðin, sem fara ber næst í framhaldi af sam-
þykkt forsetanna.
Haukur Helgason
Gorbatsjov
upprisinn
Er hann í klípu? Er biiiö að fella
hann? Spumingar sem þessar skutu
upp kollinum í vestrænu pressunni
um daginn því ekkert hafði sést til
Gorbatsjovs í sex vikur. Alit frá því
liann fór að sýna tennumar í um-
bótaviðleitm sinni innanlcmds hafa
gengið sögur um andstöðu gegn hon-
um. Á flokks- og embættiskontórum
um þver og endilöng Sovétríkin em
kerfiskarlar sem telja hann ganga
gegn sér af hagsmuna- eða hugsjóna-
legum ástæðum.
Þótt Gorbatsjov hafi á undanfórn-
um misserum sannað styrk sinn
hvað eftir annað nægði sumarleyfið
við Svartahafið til að koma á fót
gróusögum um valdabaráttu, veik-
indi eða jafnvel dauða. Mönnum er
að vísu vorkunn þvi forverum hans
í embætti varð ekki alltaf gott af
„heilsubótarferðum" sínum.
Breyta, byggja, bæta
Gorbatsjov hefur kynnt áform og
hugmyndir um gífurlegar breyting-
ar í Sovét. Hann verður hins vega
sifellt að ítreka að hann sé trúr hug-
myndafræðinni.
Þótt aðstæðum Neils Kinnock og
Gorbatsjovs verði á engan hátt sam-
an jafnað eiga þeir þó eitt sameigin-
legt. Báðir era að reyna að breyta í
grundvallaratriðum þeirri stefnu
sem þeir þó í öðrum hveiju orði
verða að lýsa fullkominni hollustu
við.
Ýmislegt sem hefur verið haft eftir
Gorbatsjov sjálfum, samstarfsmönn-
um hans eða öðrum, sem eru honum
þóknardegir, virðist ganga þvert
gegn hinu predikaða orði fyrirrenn-
aranna.
Menn hafa hreyft hugmyndum um
launakeríi sem taki mið af afköstum.
Hvað þá um launajöfnuðinn? Menn
hafa líka talaö um aukið einkafram-
tak til að virkja einstaklingana.
Einnig er talað um að láta markað
ráða verðlagi ýmissa nauðsynja.
Þetta em umræður sem hefðu þótt
drottinsvik fyrir nokkrum árum hjá
Alþýðubandalaginu á íslandi, hvað
þá í Moskvu.
Áherslur Gorbatsjovs á spillingu
og lélega embættismenn og opið og
réttlátara stjórnkerfi hafa tryggt
honum fylgi menntamannanna.
Fyrir nokkrum árum skrifuöu þeir
í blöð sem menn fóm í felur eða fang-
elsi út af. Nú les almenningur í
Moskvu þessi sömu blöö.
Af erlendum
vettvangi
Guðmundur Einarsson
Sólbrúnn og brillíant
Gorbatsjov notar íjölmiðlana í
Sovét á sama hátt og pólíkusar í
vestrænni kosningabaráttu. Þótt
hann sé ekki í framboði á sama hátt
og þeir á hann mikið undir þvi að
njóta almenns stuðnings. Þess vegna
er hann úti á meðal fólks og heilsar,
klappar á herðar og hlær. Raisa,
konan hans, virðist lika hafa drjúgar
talentur í þessum leik.
Styrkur hans innanlands birtist
okkur í ýmsu. Á miðstjómarfundi í
júni fjölgaði hann sínum mönnum í
áhrifastöðum. Þegar Matthías Rust
lenti Cessnunni sinni á Rauða torg-
inu rak Gorbatsjov umsvifalaust
varnarmálaráðherrann og yfirmann
flughersins. Þannig lagði hann
áherslu á persónulega ábyrgð valda-
manna og sýndi þjóðinni hver réði.
Jafnvel hörðustu andstæðingar
hans í Bandaríkjunum gátu ekki
annaö en litið öfundaraugum til
hans því að um líkt leyti var banda-
ríski herinn að búa til skjaldborg
afsakana um flotaforingjann sem
ekki kunni að verjast árásinni á her-
skipið Stark. Sá bar ábyrgð - en
þurfti ekki að axla hana.
Nú er Gorbatsjov aftur farinn að
slá um sig, sólbrúnn og brillíant eft-
ir góða hvíld við Svartahafið.
Fantur með frumkvæði
Á alþjóðavettvangi em Sovétríkin
að skipta um ásýnd. Áður mátti
treysta því að maður missti matar-
lystina ef íjaUað var um Rússland í
sjónvarpsfréttum á kvöldin. Ásýnd
leiðtoganna og umræður um heilsu-
far þeirra olli ólyst og fréttir af
matarskorti ollu samviskubiti.
Víst era ennþá biöraöir í Moskvu
og þær verða eflaust lengi. En ásjóna
rússneska bjamarins er að breytast.
Áhrifin á Vesturlöndum era að
segja til sín. Fólk mun eiga erfiðara
með að líta á Rússa sem andstæð-
inga. Ógnarskynjunin breytist og
erfiðara reynist ríkisstjómum og
NATO að afla íjár til uppbyggingar
vopnakerfum.
I samskiptum við vestræna þjóðar-
leiðtoga hefúr Gorbatsjov náö
frumkvæðinu. Honum hefur tekist
að ná þeirri ímynd að hann vilji frið
fyrir alla muni en Vesturlönd dragi
lappimar. Útspil hans hafa hvað eft-
ir annað komið vesturveldunum í
opna skjöldu og skemmst er að
minnast yfirlýsinga hans um meðal-
drægar flaugar sem t.d. settu v-
þýsku ríkisstjómina í mestu
vandræði.
Þær yfirlýsingar gaf hann raunar
í viðtali við blað í Jakarta og notaði
þannig tækifærið til að styrkja sína
stöðu í Asíu. Þar hafa Rússar nú
lagt áherslu á bætta sambúð, m.a.
með þvi að bjóða nágrönnum sínum
í austri til samstarfs um nýtingu
auðlinda Sovétríkjanna austan Úral-
flalla.
Það er ekki neinum vafa undirorp-
ið að Sovétmenn hafa nú framkvæð-
iö í stóra slagnum um almenningsá-
litið í heiminum. Gorbatsjov kemur
fram af fullri hörku og ósvifnu frum-
kvæði en gerir það með þeim stíl sem
Vesturlandabúar hafa hingað til
ekki átt að /enjast að austan. Þeir
hafa heldur ekki átt nein svör við
leiftursókhinni.
Sovétríkin era ennþá grimmt og
öflugt herveldi. En bjöminn, sem
áður lá í móki og urraöi í geðillsku,
er farinn að bregða á leik.
Guðmundur Einarsson
Nú er Gorbatsjov aftur farinn að slá um sig, sólbrúnn og brilliant, eftir góða hvild við Svartahafið.