Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987.
9
dv Útlönd
PáD Vilhjálmssan, DV, Qsló:
Bandarísk yfirvöld hafa refsaö Norö-
mönnum fyrir aö hafa haft fyrirvara
á Natósamþykkt 22. maí í fyrra. Refs-
ingin felst í því að Bandaríkjamenn
leggja ekki til flmm hundruð milljómr
norskra króna sem ætlaöar voru til
að endurbæta Hawk loftvamarflaugar
Norðmanna og samiö hafði veriö um.
Richard Perle, fyrrum varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, taldi sjálfsagt
að brjóta loforðið um fjárhagslegan
stuðning við endurbætur á Hawk loft-
varnarkerfinu í Noregi þar sem
Norðmenn vildu ekki styðja stjörnu-
stríðsáætlunina. Símamynd Reuter
Á fundi Natólandanna 22. maí á síð-
asta ári samþykktu ríkin í lokasam-
þykkt sinni að styðjá stjömustríðs-
áætlun Bandaríkjanna. Minnihluta-
stjóm norska Verkamannaflokksins
var ekki tilbúin að skrifa undir þá
samþykkt og lét bóka fyrirvara.
Þvinganir
í helgarútgáfu norska blaðsins Aft-
enposten var sagt frá þvi að Banda-
ríkjamenn hafi reynt að þvinga
Norðmenn til að falla frá fyrirvaran-
um í Natósamþykktinni. Aftenposten
segist hafa heimildir fyrir því að Ric-
hard Perle, fyrrum varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hafl sagt við
Johan Jörgen Holst, vamarmálaráð-
herra Noregs, að það yrði dýrkeypt
fyrir Noreg að standa fast við fyrirva-
rann.
Dræm kjör-
sókn í
Egyptalandi
Dræm kjörsókn var í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni um áframhaldandi
setu Hosni Mubarak í forsetastóli í
Egyptalandi á mánudag. Talið var að
innan við helmingur atkvæðisbærra
þegna Egyptalands, sem alls em fjórt-
án milljónir, myndi neyta atkvæðis-
réttar síns, þrátt fyrir hvatningar
stjómvalda.
Enginn vafi leikur á að Mubarak
vann sigur í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni, enda var hann eini frambjóðand-
inn og kjósendur aðeins beðnir um að
merkja við annaðhvort já eða nei.
Tveir stjómarandstöðuflokkar í
landinu höfðu beðið stuðningsmenn
sína að merkja við nei, vegna óánægju
með kosningakerfi landsins og forse-
taim sjálfan sem ekki birti stefnuyfir-
lýsingu fyrir kosningar.
Norsk yfirvöld létu ekki undan og
héldu stefnu sinni tíl streitu, að styðja
ekki stjömustríðsáætlun Bandaríkj-
anna.
í greininni í helgarblaði Aftenposten
kemur fram að Richard Perle hafi
þrýst á bandaríska utanríkisráðuney-
tið að brjóta loforð um að leggja tfl
fimm hundmð milljónir norskra
króna tfl endurbóta á Hawk loftvam-
arflaugunum sem Norðmenn höfðu
keypt frá Bandaríkjunum. Perle fékk
sitt fram þrátt fyrir andstöðu banda-
ríska utanríkisráðuneytisins og sendi-
herra Bandaríkjanna í Osló.
Ætíð andsnúinn
í viðtali við Aftenposten segir Perle
að hann telji bandarísk yfirvöld ekki
bundin af loforði sínu þar sem Norð-
menn hættu stuðningi sínum við
stjömustríðsáætlunina. Perle vísaði tfl
þess að borgaraleg rikissfjóm Káre
Willochs hefði stutt stjömustríðsáætl-
unina á sínum tíma. Verkamanna-
flokkurinn norski hefur hins vegar
ætíð verið andsnúinn áætluninni og
sú andstaöa breyttist ekki þegar flokk-
urinn tók við ríkisstjóminni 1985.
En Perle telur sjálfsagt að bijóta lo-
forðið um ókeypis endurbætur á
Hawk loftvamarkerfinu sem gefið var
í tíð ríkisstjómar Willochs úr því að
norska ríkisstjómin styðui: ekki leng-
ur stjömustríðsáætlunina.
Til vansæmdar
í Noregi er litið á aðgerðir bandarí-
skra yfirvalda sem pólítískan þrýsting.
Johan Jörgen Holst vamarmálaráð-
herra og stjómarandstaðan em á
einum máli um að ekki sé við hæfi að
Bandaríkjamenn beiti slíkum þrýst-
ingi til að fá sín sjónarmið samþykkt.
Aftenposten, sem alla jafna er hlið-
hollur Bandaríkjunum, segir í leiðara
á mánudag að athafnir Perles og
Bandaríkjanna í þessu máli sé þeim
til vansæmdar. Leiöarahöfundur seg-
ist vona að Bandarikjamenn láti af
þvingunum sem þessum því það sé
ekki tfl þess að treysta samheldni
Natóríkjanna.
Richard Perle, sem er höfuðpaurinn
á bak við refsiaðgerðir Bandaríkjanna
í þessu máli, hefur látið af stöðu sinni
í vamarmálaráðuneytinu og starfar
nú hjá sjálfstæðri stofnun í Bandaríkj-
unum.
Með
Atlantik til Hamborgar
V
VWl
CROWNE PLAZA
Ferðaskrifstofan ATLANTIK
hefur nú gert samning við Holiday Inn
Crowne Plaza hótelið í HAMBORG.
Þetta fimm stjörnu hótel var opnað nú í sumar og í hótelinu eru 200 herbergi.
í heilsuræktarstöð hótelsins er sundlaug, nuddpottar, saunabað, gufubað, sólarbekkir o.fl.
Flogið verður með ARNARFLUGI til Hamborgar alla fimmtudaga.
Holiday Inn Crowne Plaza erstaðsett í miðri Hamborg í nálægð AUSSENALSTER vatnsins.
Arnarflug hefur nú aukið rými milli sæta, þannig að mun betur fer nú um farþega.
í Hamborg er að finna iðandi mannlíf, mikið úrval allskonar menningarviðburða og frábæra
skemmtistaði sem bjóða upp á allskonar uppfærslur gestum til óblandinnar ánægju.
Er ekki kominn tími til að
reyna eitthvað nýtt?
SKELLTU ÞÉR TIL HAMBORGAR.
MEÐ ATLANTIK OG AENARFLUGI
Verð á mann í 2ja manna herbergi m/flugi kr. 22.130,- 3 nætur
Verð á mann í 1 manns herbergi m/flugi kr. 26.990,- 3 nætur
Verð á mann í 2ja manna herbergi m/flugi kr. 32.930,- 7 nætur
Verð á mann í 1 manns herbergi m/flugi kr 44.270,- 7 nætur
Innifalið í verðinu er morgunverður af glæsilegu hlaðborði.
V
AttlMlflt
Umboð á Islandi fyrir
DINERS CLUB
international FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHI SIM HALLVEIGARSIIG 1, SÍMAR 28388 - 28580