Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987. 5 x>v________________________________Fréttir Skákmótið í Belgrad: Jóhann lagði Marjanovic Jóhann Hjartarson vann skák sína viö júgóslavneska stórmeistarann Maijanovic í 2. umferð á alþjóðlega Investa-banka skákmótinu í Belgrad í gær. Júgóslavinn gafst upp eftir 50 leiki er hann sá fram á peðahrun í næstu leikjum. Jóhann tefldi þessa skák yfirvegað og færði sér vel í nyt ónákvæma taflmennsku mótherjans. Mesta athygh í gær vakti skák Kortsnojs við Timman. Kortsnoj fórnaöi riddara fyrir hættuleg færi en á réttu augnabliki skilaði Timman mianninum og tókst að sigra. Önnur úrsht urðu þau að Beljavsky vann Short í þæfingsskák, Popovic vann landa sinn, GUgoric, en Ljubojevic og NikoUc sömdu um stórmeistara- jafntefli. Skák Ivanovic og Salov fór í bið og átti Salov peði meira og góða vinningsmöguleika í hróksendatafli. Að tveimur umferðum loknum hef- ur Timman tekið forystu með tvo vinninga en Jóhann fylgir fast eftir með l/2 v. í dag teflir Jóhann við sovéska stórmeistarann Valery Salov og hefur svart. Marjanovic tók á móti drottningar- bragði Jóhanns og framan af tafli fylgdu þeir þekktum leiðum. Jóhann hafði ívið betri færi en Júgóslavinn haföi þó alla möguleika til þess að jafna taflið. Eftir ónákvæmni hans náði Jóhann þrýstingi. Hann tók síð- an þá ákvörðun að skipta upp í hróksendatafl, sem gaf vinningsvon. Marjanovic brást ekki rétt við, tefldi ómarkvisst fyrir tímamörkin við 40. leik og Jóhann náði að bæta stöðuna. Er Marjanovic gafst upp, sá hann fram á að hann myndi tapa tveimur peðum sínum á kóngsvæng. 25. Rb6 Hf7 26. d5 Bf5 27. Hb4 h5 28. d6 Hugsanlega er 28. Hc4 nákvæmara, því að nú nær svartur að loka c- línunni með snjallri tilfæringu. 28. - Bd7! 29. Rd5 Kf8 30. Rc7 Bc6 31. f4 Hc8 32. Re6+ Kg8 33. B Hd7 34. Rc5 Hbb8 35. Rxb7 Jóhann hefur andstæðinginn í helj- argreipum en nú ákveður hann aö skipta upp í hróksendatafl. „Mér sýndist það vera unnið,“ sagði hann í samtaU við DV eftir skákina, „en vel má vera að hann hafi átt mögu- leika á að halda því.“ 35. - Bxb7 36. Hxb7 Hxc3 37. Hb6 e4 38. Hxa6 e3? Besti möguleikinn er 38. - Hc5. Nú vinnur hvítur örugglega. 39. Hb6 Ha3 40. a6 Ha2 41. Hel Hc8 42. d7 Hd8 43. Hd6 Ha3 44. g3 Kf7 45. Kg2 Ke7 46. He6+ Kxd7 47. Hlxe3 Ha5 48. Hd3+ Kc7 49. He7+ Kc8 50. Hxd8 Og Marjanovic gafst upp. Eftir 50. - Kxd8 51. Hh7 fellur h-peðið og hvít- ur vinnur auðveldlega. -JLÁ SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ á gamla verðinu TIL SÖLU 2 X PORSCHE 924 1985. Þessir biiar eru því sem næst nýir, hafa eingöngu verið í eigu Porsche verksmiðjanna i V-Þýskalandi og eknir aðeins um 25.000 km. Vegna nýlegra samninga fengum við þessa tvo bíla á sérstöku afslátt- arverði. Þar við bætist að tvær síðustu tollabreytingar hérlendis, sem orsökuðu mikla hækkun á þessum bilum, eru ekki inni í myndinni. í dag væru þessir bílar um 300.000 kr. dýrari í innflutningi. Hagstæðari bilakaup eru þvi varla möguleg. PORSCHE 924 1985. 1. skráningardagur 2/9 1985. Steingrár, sans., turbo felgur, rafm. topplúga, sport- sæti auk fjölda annarra aukahluta. Verð kr. 850.000 - miðað við staðgr. PORSCHE 924 1985. 1. skráningardagur 2/9 1985. Silfurblár, sans., Blaupunkt stereogræjur, auk fjölda annarra aukahluta. Verð kr. 800.000. - miðað við staðgr. GETUM EINNIG BOÐIÐ LÁNAKJÖR. Þetta er verð sem 1982 árgerðirnar hafa verið seldar á hérlendis. Við ítrekum einnig að þetta er tækifæri sem við getum ekki boðið aftur. Porsche 924 er sportbill með notkunarmöguleika venjulegs bíls, frábæra aksturseiginleika, litla bens- íneyðslu, sáralitla bilanatíðni og endingu sem enginn annar bílaframleiðandi getur boðiö. Sjón er sögu ríkari. umboðið - Austurströnd 4 - s. 611210. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: S. Marjanovic Drottningarbragð. 1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e3 Rf6 4. Bxc4 e6 5. Rf3 c5 6. 0-0 a6 7. a4 Rc6 8. De2 cxd4 9. Hdl Be7 10. exd4 0-0 11. Rc3 Rd5 12. Bd3 Rcb4 13. Be4 Rf6 14. Re5 Rxe4 15. Dxe4 Rd5 16. Dfi Rxc3 17. bxc3 Dc7 18. Bf4 Bd6 19. a5 Hb8 20. Habl f6 21. Rd3 Bxf4 22. Dxf4 Dxf4 23. Rxf4 e5 24. Rd5 Be6?! Betra er 24. - Hf7! og svartur hefur alla möguleika á að jafna taflið. Nú vinnur hvítur dýrmætan leik. Hæstiréttur: Keppnisbann Jóns Páls staðfest í Hæstarétti er genginn dómur í máli íþróttasambands íslands gegn Jóni Páli Sigmarssyni. Hæstiréttur staðfesti keppnisbannið sem Jón Páll var dæmdur í hjá ÍSÍ. Jón Páll neitaði að mæta til lyfja- prófunar hjá eftirlitsnefnd ÍSÍ. Var hann þá dæmdur til tveggja ára keppnisbanns. Jón Páll taldi að ÍSÍ heíði ekki lögsögu yfir sér þar sem hann væri aðili að Kraftlyftingasam- bandinu en það er ekki aðili að ÍSÍ. Hæstiréttur var sammála Borgar- dómi um að Jón Páll væri bundinn af reglugerðum ÍSÍ og Jón Páll hefði ekki, eftir því sem sjá mætti, sagt sig úr lyftingadeild KR. ÍSÍ dæmdi Jón Pál í tveggja ára keppnisbann. Hæstiréttur staðfesti þann dóm. í dómi Hæstaréttar segir meöal annars: „Hefur stefndi ekki bent á nein atriði, sem máli gátu skipt, að hann kæmi á framfæri viö nefndina, áður en sá úrskurður gekk, sem krafist er ógildingar á í þessu máli. Verður ekki talið, að úrskurö- inum hafi af þessum eða öðrum ástæðum verið svo áfátt, að hann verði dæmdur ógildur." TVÖ ÚRVALSMYNDBÖND Avenqing force Matt Hunter er búsettur í Louis- iana í Bandaríkjunum. Einn besti vinur hans er svertinginn Larry Richards og berjast þeir gegn ýmsum öfgahópum. Meðal þeirra eru ofstækis- mannasamtöksem kallast Pentangle. Pentanglemönnum tekst að drepa son Larrys og nokkru seinna taka þeir unga systur Matts í gíslingu og neyða hann til að taka þátt í veiðileik samtakanna en þar eru menn veiddir og deyddir í stað venjulegrar villibráðar... ISLENSKUR TEXTI Allan Quatermain Örmagna maður, Dumont að nafni, kemst við illan leik til bækistöðvar Allans Quatermain. Hann hafði farið í leiðangur ásamt Robeson, bróður Allans, og var ætlunin að finna týndu gullborgina. Áður en hann getur gert nánari grein fyrir leið- angrinum og örlögum annarra leiðangursmanna er hann myrtur af grímuklæddum illvirkjum. Allan afræður strax að gera út leiðangur í leit að bróður sínum. Hættur af ýmsu tagi verða sífellt á leið þeirra en með þrautseigju og snarræði tekst þeim að halda ferðinni áfram uns borgin gullna blasir loks við. Agon, æðsta presti og mesta valdamanni borgarinnar, stendur stuggur af Allan og förunautum hans. Hann ákveður að láta til skarar skríða gegn þeim. . . DREIFING W W iiiiiiuiii HASKOLABIO SÍMI611212 ■sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.