Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1987, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987.
Jarðarfarir í gærkvöldi
Ester Sighvatsdóttir frá Ragnheið-
arstöðum verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Ester
fæddist í Ártúnum á Rangárvöllum
30. maí 1931. Foreldrar hennar voru
Kristín Árnadóttir frá Odda á Rang-
árvöllum og Sighvatur Andrésson
frá Hemlu í Vestur-Landeyjum. Átta
ára gömul fluttist hún með fjölskyld-
unni að Ragnheiðarstöðum í Flóa.
Ester giftist Kristjáni Jónssyni frá
Akureyri 1954. Þau Ester og Kristján.
eignuðust fjögur börn.
Pálmi Sveinsson Eyjabakka 3, verð-
ur jarðsunginn föstudaginn 27.
nóvember frá Fossvogskirkju kl. 15.
Haukur Magnússon Tunguvegi 3,
Hafnarflrði, verður jarðsunginn frá
'flafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
26. nóvember kl. 13.30.
Vilhjálmur Þorsteinsson rafvirki,
Álfheimum 54, verður jarösunginn
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26.
nóvember kl. 13.30.
Jónbjörn Magnússon verður jarð-
sunginn frá Háteigskirkju í dag.
Jónbjörn fæddist 3. ágúst 1967 og var
sonur Magnúsar Þórs Hilmarssonar
og Önnu Þ. Ingólfsdóttur. Jónbjörn
var elstur þriggja bræöra.
■ Tilkyimingar
Múlahreppur
Fyrrum íbúar Múlahrepps ætla aö
hittast föstudaginn 27. nóvember
kl. 20 í Þinghóli, Hamraborg 11,
Kópavogi.
Klúbbur
matreiðslumeistara
Klúbbur matreiöslumeista á íslandi hef-
ur gert samning viö Hagkaup um aö
klúbbfélagar sjái um vörukynningar í
húsakynnum Hagkaups í Kringlunni
einu sinni í mánuöi í vetur. í desember
veröa þó tvær vörukynningar.
Vörukynningar þessar verða í sér-
hönnuðum bás á fimmtudögum frá kl. 2
til lokunar verslunarinnar og munu tveir
matreiðslumeistarar sjá um hverja kynn-
ingu. Uppskriftir aö hverjum rétti munu
!kggja frammi og hægt verður aö fá aö
bragða á réttunum ásamt því aö meistar-
arnir munu gefa faglegar ráöleggingar.
Fyrsta kynningin verður nú 26. þ.m.
og hefst, eins og áður hefur verið sagt,
kl. 2 e.h.
60 ára afmæli F-erðafélags
íslands - afmælishátíð.
Föstudaginn 27. nóvember verður
Ferðafélag íslands 60 ára. Feröafélagiö
efnir til hátíðarhalda þann dag og býður
félögum og velunnurum að taka þátt í
afmælisfagnaði. 27. nóvember verður
hátíðarfundur í Borgartúni 6 kl. 17.00.
Um kvöldið kl. 20.30 verður kvöldvaka
í Borgartúni 6. Efni hennar er helgað
verkum Sigurðar Þórarinssonar jarð-
Sveirir Einarsson kirkjugarðsstarfsmaður:
Bylgjan best
Ég gat hlustað óvenjumikið á
útvarp í gær og vel ég nær alltaf
Bylgjuna þegar þannig stendur á.
Mér finnst hún hafa hæfu starfs-
fólki á að skipa og eru til dæmis
Ásgeir Tómasson og Hallgrímur
Thorsteinsson mjög góðir útvarps-
menn.
Ég var heima í gærdag þannig að
ég hafði tækifæri til að horfa á bíó-
mynd Stöðvar 2 kl. 5. Hún var
ágætis afþreying ég en skildi lítið
eftir sig. Þar á eftir melti ég Popp-
korn eins og vanalega. Ég reyni
yfirleitt að ná báðum fréttatímum
sjónvarpsstöðvanna en mér finnst
19:19 vera heldur betri og líflegri,
þeir vinna skemmtilegar úr frétt-
um.
Á Ríkissjónvarpinu tók svo við
mjög svo fróðlegur þáttúr um dýra-
líf á Galapagoseyjum. Svo reyndi
ég að fylgjast með þætti Pálma
Gunnarssonar á Stjörnunni og var
gaman að honum. Þar sem ég er
íþróttasjúklingur sleppi ég aldrei
frábærum íþróttaþætti Heimis
Karlssonar á Stöð 2 ef ég kemst hjá
því.
Þar á eftir var sakamálaþáttur-
inn Hunter en ég er ekki sérlega
uppnæmur fyrir honum. Sá þáttur
er heldur þunnur og sama marki
brenndur og margir þættir í þess-
um dúr. Bíómyndin á eftir, Til
varnar krúnunni, var sérstaklega
góð og alveg þess virði að horfa á
þó ég heföi séð hana áöur.
Það er hending hvað ég endist
yfir sjónvarpsdagskránni og getur
hún oft verið ágætis svæfingarmið-
ill. Ég skil ekki fólk sem lætur hana
ráða yfir sér og getur ekki slökkt
þó dagskráin sé ekki búin.
fræðings sem um árabil var varaforseti
félagsins og um skeið forseti þess. Flutt
verða verk Sigurðar í bundnu og
óbundnu máli og blandað saman vísind-
um og gamanmálum. - Kafft verður veitt
í hléi. Kvöldvaka þessi er undirbúin af
Árna Björnssyni þjóðháttafræðingi og
Sigurði Steinþórssyni jarðfræðingi.
Ferðafélagið hvetur felagsmenn sína til
virkrar þátttöku í hátíðarhöldunum.
Tónleikar
Tónleikanefnd Háskólans
Sjöttu Háskólatónleikar vetrarins verða
haldnir í Norræna húsinu miðvikudag-
inn 25. nóvember kl. 12.30-13.00.
Á tónleikunum munu Sigrún Valgerð-
ur Gestsdóttir sópran og David Knowles
píanóleikari flytja lagaflokkinn Söngva-
sveig (Liederkreis) Op. 39 eftir Robert
Schumann. Ljóðin samdi Josep von Eich-
endorff. Þau eru til i íslenskri þýðingu
Þorsteins Gylfasonar.
Sigrún Valgerður Gestsdóttir hóf tón-
listarnám i Hveragerði þar sem hún er
fædd og uppalin. Hún nam söng hjá Guð-
rúnu Sveinsdóttur og Engel Lund við
Tónlistarskólann í Reykjavík og stundaði
framhaldsnám hjá Marjorie Thomas við
Royal Academy of Music í Englandi og
síðar í Bandaríkjunum og Austurríki.
Sigrún hefur komið víða fram sem Ijóða-
og óratóríusöngvari. Hún hefur einnig
sungið með íslensku óperunni. Auk söng-
starfa er hún kennari við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
David Knowles lauk einleikaraprófi frá
Northern CoOege of Music í Manchester
árið 1980. Hann fluttist til Egilsstaða árið
1982 og kenndi við Tónskóla Fljótsdals-
héraðs til ársins 1985 er hann flutti til
Reykjavíkur. David starfar sem undir-
leikari við söngdeild Tónlistarskóla
Garðabæjar og Söngskólann í Reykjavík.
Áður var hann organisti Kristskirkju.
David hefur komið fram sem undirleik-
ari víða um land.
Tónlistahátíð ungra
einleikara
Dagana 9.-10. nóvember fór fram í Gauta-
borg lokaval þátttakenda í Tónlistarhátíð
ungra einleikara sem haldin er í höfuð-
borgum Norðurlanda á tvegga ára fresti
og verður næst haldin í Reykjavík 25.-30.
október 1988. Norræn dómnefnd valdi
þátttakendur að undangengnu forvaii í
hveiju landi fyrir sig. Að þessu sinni
voru 8 eftirtaldir þátttakendur valdir:
Píanóleikarinn Leif Ove Andsnes, Nor-
egi, sellóleikarinn Michaela Fukacová
Christensen, Danmörku, harmóníkuleik-
arinn Geir Draugsvoll, Danmörku, selló-
leikarinn Jan-Erik Gustafsson,
Finnlandi, flautuleikarinn Áshildur Har-
aldsdóttir, íslandi, píanóleikarinn
Anders Kilström, Svíþjóð, blokkflautu-
leikarinn Dan Laurin, Svíþjóð, baríton-
söngvarinn Hans Olle Person, Svíþjóð.
Fulltrúi íslands í norrænu dómnefnd-
inni var Gunnar Kvaran sellóleikari.
t I
^ BURÐA RFOLK
á ófálAVW o&^Aa Ófrluxótr
BLAÐ ii
i X
i i
i i
i i
i t'
Þórsgötu
Freyjugötu
Hörgatún
Faxatún
Aratún
Goðatún
i t
i i
i i
11i ^ t t t I
Garðabæ
Háholt
Eskiholt
Hrísholt
Engimýri
Krókamýri
Fífumýri
Löngumýri
i i t t
AFGREIÐSLA
í. ÞVERHOLTI 11
i i i i
Fréttir
SIMI 27022
Reykjavík-
Bæjarstjórn Kópavogs sam-
þykkti í gær að falla frá forkaups-
rétti aö 41 hektara úr Vatnsendal-
andi sera Reykjavíkurborg
kaupir á 23 milljónir króna. Um
leiö var samþykktur samningur
um hreinsun landamerkja sveit-
arfélaganna upp í Lækjarbotna.
Kópavogur fær um 10 hektara
unifram það sem Reykjavík fær
í þessari hreinsun og borgar tvær
milljónir króna.
Borgarráð samþykkti þennan
landamerkjasamning og bæjar-
stjórn Kópavogs samþykkti haim
með 9 atkvæðum en tveir sjálf-
stæðismenn af íjórum sátu hjá.
Þeir höfðu lagt fram tillögu í
bæjarráði um að neyta forkaups-
véttar en drógu þá tillögu til baka
í bæjarstjórn.
Það verður svokallaöur Ofan-
byggðarvegur sem skiptir lögsög-
unni, en hann er ffamhald af
Amarnesvegi sem liggur eftir
Arnameshæö og skiptii' löndum
Kópavogs og Garðabæjar.
Deila Reykjavíkur og Kópavogs
um nýtingu Fossvogsdalsins er
óleyst eftir sem áður. Þar eru
landamerki skýr en Reykjavík
vUl hi-aðbraut um dalhm þar sem
Kópavogur viU útivistarsvæði.
Megnið af óbyggðum hluta dals-
ins er innan marka Kópavogs.
-HERB
550% hækkun
á milli ára
„Við eram hressir með þetta og
stökkið á leigunni er mikið,"
sagði Sigurður Lárasson á Gilsá,
nokkru eftir aö samingur um
Breiðdalsá var frágengin. „Þetta
verða um 1770 þúsund í pening-
um og um 300 þúsund í seiöum
fyrir næsta sumar en bændur
fengu fyrír ána í sölulaun síðasta
sumar 309 þúsund. Það er Stanga-
veiðifélag Reykjavikur sem er
með ána eins og áður,“ sagði Sig-
urður ennfremur. Dýrasti dagur-
inn næsta sumar verður seldur á
4500 og ódýrasti 1200 hundmð.
Þykir mönnum það vera sann-
gjarnt. Þetta þýðir fyrir bændur
um 550% hækkun á árleigunni á
milli ára og munar um minna.
í byijun vikunnar var gengiö
frá leigu á Norðurá í Borgarfirði
fyrir næsta sumar og Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur leigði ána
fyrir 16 milljónir næsta sumar en
13,3 milljónir síðasta sumar.
Þetta er vísitöluhækkun ó milli
ára sem hækkar hana. Ákveðiö
var aö Stangaveiðifélagiö og
bændur við Norðurá myndu
kanna saman lifríkí árinnar.
-G.Bender
Norðurlondin:
Viðskiptahömlum
fækkar
Viðskiptahömlum milli Norður-
landanna hefur fækkað og til eru
reglur til einföldunar viðskipta á
milli landanna og viðskipti á milli
landanna hafa aukist frá árinu 1984,
einkum hvað varðar helstu útflutn-
ingsgreinar þjóðanna.
Þetta kemur fram í frétt sem gefin
var út eftir sameiginlegan fund utan-
ríkisviðskiptaráðherra Norðurland-
anna í Reykjavík í gær. Á fundinum
kom fram að þörf væri á að ná ár-
angri hvað tollafgreiðslu póstsend-
ingar og varúðarmerkingar á
framleiðsluvörum varðar og var
sérstakri embættismannanefnd fahð
að gera áætlun um næstu verkefni.
-ój
Utanríkisviðskiptaráðherrar Norðurlanda: Á myndinni eru frá hægri þau
Anita Gardin frá Svíþjóð, Karin Stoltenberg frá Noregi, Steingrímur Her-
mannsson, Pertti Salolainen frá Finnlandi og Nils Wilhjelm frá Danmörku.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kasparov gaf
Eftir sigur Karpovs er staðan í ein-
víginu jöfn, hvor hefur hlotið átta
vinninga. Alls tefla þeir 24 skákir og
Kasparov nægir jafntefli til þess að
halda heimsmeistaratitlinum. Sautj-
ánda skákin verður tefld í dag og þá
hefur Karpov hvítt. -JLÁ
Heimsmeistarinn Garrí Kasparov
gaf sextándu einvígisskákina við
Anatoly Karpov í gær án þess að tefla
skákina áfram. Er skákin fór í bið á
mánudagskvöld hafði Karpov peði
meira og yfirburðastöðu og uppgjöf
Kasparovs kom því ekki á óvart.
Maðurinn ófundinn
Ungi maðurinn, sem auglýst hefur
verið eftir, er enn ófundinn. Maður
hefur gefið sig fram og telur hann
sig hafa séð þann týnda við slökkvi-
stöðina á Reykjavíkurflugvelli um
klukkan tvö aðfaranótt sunnudags.
Leitin, sem farið hefur fram, hefur
að mestu snúist um að hann hafi
verið við Reykjavíkurflugvöll.
Sá sem leitað er heitir Guðmundur
Finnur Björnsson frá Hvanna-
brekku, nú til heimilis að Tjarnar-
götu 10 í Reykjavík. Guðmundur er
182 sentímetrar á hæð, grannur og
ljóshærður og notar gleraugu. Hann
var klæddur í ljósgráan jakka og ljós-
gráar buxur, í skyrtu og með hálstau
og í svörtum skóm.
Eins og fyrr segir telur maður sig
hafa séð hann við Reykjavíkurflug-
völl um klukkan tvö aðfaranótt
sunnudags. Annars sást síðast til
Guðmundar við veitingahúsið
Hollywood um miðnætti aðfaranótt
sunnudags. -sme