Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1987, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987.
m
dv Fólk í fréttum
Gunnar Guðbjartsson
Gunnar Guðbjartsson, formaður
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
hefur verið í fréttum DV vegna
vinnureglna um innheimtu van-
skila hjá alifuglabændum. Gunnar
er fæddur 6. júní 1917 á Hjarðar-
felli í Miklaholtshreppi og varð
búfræðingur frá Hvanneyri 1939.
Hann varð bóndi á Hjarðarfelli 1942
og var formaður Stéttarsambands
bænda 1963-1981. Gunnar var
formaður Framleiðsluráðs land-
búnaðarins 1963-1980 og stjórnar
Grænmetisverslunarinnar frá
1963. Hann hefur setið í miðstjórn
Framsóknarflokksins og var vara-
þingmaður 1959-1971. Gunnar var
stjórnarformaður Áburðarverk-
smiðjunnar 1972-1980 og frá 1985.
Hann hefur verið í stjórn Mjólkur-
samsölunnar frá 1973 og verið
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs frá 1980. Kona Gunnars er,
Ásthildur Teitsdóttir, f. 9. apríl
1921. Foreldrar hennar eru Teitur
Eyjólfsson, b. í Eyvindartungu í
Laugardal, og kona hans, Sigríður
Jónsdóttir. Börn þeirra eru Guð-
bjartur, f. 7. júlí 1943, b. á Hjarðar-
felli, giftur Hörpu Jónsdóttur og
eiga þau tvö börn, Högni, f. 20. okt-
óber 1944, b. á Hjarðarfelli, giftur
Báru Finnbogadóttur og eiga þau
þrjú börn, Sigríður, f. 22. mars 1946,
gift Michael Salle, starfsmanna-
stjóra hjá Renau í París, og eiga þau
þrjú börn, Hallgerður, f. 13. des-
ember 1948, gift Sturlu Böðvars-
syni, bæjarstjóra í Stykkishólmi,
og eiga þau fjögur börn, Teitur, f.
30. mars 1954, efnaverkfræðingur
hjá Áburðarversmiðjunni, giftur
Guðbjörgu Björnsdóttur og eiga
þau tvö börn, og Þorbjörg, f. 23.
nóvember 1961, bókasafnsfræðing-
ur á Egilsstöðum, gift Erlendi
Steinþórssyni, sölumanni hjá
Ferðaskrifstofu Austurlands, og
eiga þau eitt barn. Systkini Gunn-
ars voru Alexander, b. á Stakk-
hamri, kvæntur Kristjönu
Bjarnadóttur, Guðbrandur, hrepp-
stjóri í Ólafsvík, kvæntur Kristjönu
Sigþórsdóttur, Kristján, býr á
Akranesi, kona hans var Björg Þor-
leifsdóttir, þau slitu samvistum,
Elín, gift Sigfúsi Kristjánssyni,
brúarsmið í Rvík, Ragnheiður, gift
Halldóri Jörgensen, trésmíða-
meistara á Akranesi, og Guðbjörg,
var gift Helga J. Halldórssyni
kennara. Foreldrar Gunnars voru
Guðbjartur Kristjánsson, b. á
Hjarðarfelli, og kona hans, Guð-
branda Guðbrandsdóttir. Bróðir
Guðbjarts var Stefán, faðir Alex-
anders alþingismanns. Faðir
Guðbjarts var Kristján, b. á Hjarð-
arfelli, bróðir Halldórs, langafa
Ingólfs Margeirssonar ritstjóra.
Kristján var sonur Guðmundar, b.
í Miðhrauni í Miklaholtshreppi,
bróðir Guðnýjar, langömmu The-
odóru, ömmu Helga Ólafssonar
stórmeistara. Systir Guömundar
var Elin, langamma Helgu, móður
Svavars Gests og ömmu Vilborgar
Harðardóttur blaöamanns. Elín
var langamma Þórðar Kárasonar
fræðimanns og Rebekku, móður
Þorsteins Geirssonar, ráðuneytis-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu.
Bróðir Guðmundar var Jóhannes,
langafl Guðmundar J. Guðmunds-
sonar. Guðmundur var sonur
Þórðar, b. á Hjarðarfelli, Jónsson-
ar, sem Hjarðarfellsættin er kennd
við.
Guðbranda er dóttir Guðbrands,
verslunarmanns í Ólafsvík, bróður
Einars, fóður Bjargar rithöfundar
og Þorkels Jóhannessonar prófess-
ors og afa Lúðvíks Kristjánssonar
rithöfundar. Bróðir Guðbrands var
Jón, langafi Júlíusar Sólnes. Bróðir
Guðbrands var Jón yngri þjóð-
skjalavörður, afi Loga Guðbrands-
sonar forstjóra. Systir Guðbrands
var Guðrún, amma Arnar og
Hauks Clausens. Guðbrandur var
Gunnar Guðbjartsson.
sonur Þorkels, prófasts á Staða-
stað, Eyjólfssonar, dóttursonar
Jóns Þorlákssonar, skálds á Bæg-
isá, og konu hans Ragnheiöar
Pálsdóttur, prófasts í Hörgsdal,
Pálssonar, langafa Guðrúnar, móð-
ur Péturs Sigurgeirssonar biskups.
Afmæli
Guðmundur Sigurpálsson
Guðmundur Sigurpálsson, Aðal-
stræti 36, Akureyri, er fimmtugur
í dag. Guðmundur fæddist á Brim-
nesbakka á Árskógsströnd og ólst
þar upp til tólf ára aldurs, en þá
flutti hann með foreldrum sínum
að Hauganesi í sömu sveit þar sem
foreldrar hans búa enn. Guðmund-
ur var ekki nema sjö ára þegar
hann hóf sjóróðra með föður sín-
um. Hann fór á mótornámskeið á
, Akureyri 1955 og var svo vélstjóri
á síldarbátum frá Keflavík, Sand-
gerði og Akureyri. Guðmundur
hætti til sjós upp úr 1960 og vann
þá í þrjú ár viö blikksmíðar. Hann
starfaði svo við akstur og viðgerðir
hjá Essó, en hefur nú starfaö sl.
níu ár hjá Hitaveitu Akureyrar.
Kona Guðmundar er Sigurrós, f.
5.12. 1943, en þau giftu sig 26.10.
1963. Foreldrar hennar eru Pétur
Guðjónsson og Jóna Kjartansdótt-
ir.
Guðmundur og Sigurrós eiga þrjá
syni, þar meö talinn einn fósturson.
Fóstursonur þeirra er Helgi Bergs-
son sjómaður, f. 4.10.1962, en hinir
synirnir eru Sigurpáll vélstjóra-
nemi, f. 5.12. 1964, og Sævar
sjómaður, f. 5.7.1971.
Guðmundur á átta systkini sem
öll eru á lífi: Inga Sigurbjörg, hús-
móðir á Akureyri, er gift Reyni
Valdimarssyni lækni og eiga þau
þrjá syni; Sævar, stýrimaður á
Akureyri, er giftur Róslínu Tómas-
dóttur og eiga þau fjögur börn;
Gunnhildur Ásdís, húsmóöir á
Akureyri, er gift Árna Þorsteins-
syni rafvirkja en þau eiga tvö
kjörbörn og Ásdís á eina dóttur
fyrir; Matthías, stýrimaður í
Reykjavík, er giftur Óglu Sigurð-
ardóttur; Sigurður, vélstjóri á
Akureyri, á einn son; Sveinfríður,
hjúkrunarforstjóri á Blönduósi, er
gift Kristni Bjarnasyni sjómanni
en þau eiga tvö börn; Arndís, hús-
móðir á Akureyri, er gift Einari
Erni Grand bátasmið og þau eiga
tvö börn; Óskar, stýrimaður á Ak-
ureyri, er giftur Þorbjörgu
Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Guðmundar eru Sigur-
páll, útgerðarbóndi á Hauganesi, f.
2.8. 1910, Sigurðsson á Kálfskinni,
Guðmundur Sigurpálsson.
Kristjánssonar, og kona hans, Hall-
dóra, f. 11.5.1916, Guðmundsdóttir.
Foreldrar Halldóru voru Guð-
mundur Guðmundsson, búfræð-
ingur og b. á Sæbóli á Ingjaldss-
andi, af Arnardalsættinni, og kona
hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Jón Bjömsson
Jón Björnsson, tónskáld, söng-
stjóri og fv. b. á Hafsteinsstöðum,
lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
18. nóvember. Jón fæddist að
Glaumbæ í Skagafirði 23.2. 1903.
Hann stundaði tónlistarnám á Ak-
ureyri frá 1921-24 en búskap
stundaði hann frá 1926-69. Hann
var b. að Brekku í Seyluhreppi í tíu
ár, að Reykjarhóli í tvö ár og að
Hafsteinsstöðum í Staðarhreppi frá
1939-69, en 1973 flutti hann til Sauð-
árkróks og bjó hann þar til dauða-
dags. Jafnframt búskapnum var
Jón frammámaður í tónlistarlífi
Skagfirðinga en hann var söng-
stjóri Karlakórsins Heimis í
Skagafirði frá stofnun hans 1927-68
og Samkórs Sauðárkróks frá
1966-71. Jón vaí organisti við
Glaumbæjar- og Reynistaðarkirkju
frá 1925 og við Sauðárkrókskirkju,
Ketu- og Hvammskirkju frá 1972.
Hann var formaður skólanefndar
Staðarhrepps 1943-64 og gjaldkeri
sóknarnefndar í þrjátíu ár. Jón
hefur hlotið listamannalaun og '
hann var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðunnar fyrir tónlistarstörf
1979.
Kona Jóns var Sigríöur, f. 14.10.
1888, Trjámannsdóttir, en hún lést
3.9. 1969. Foreldar hennar voru
Trjámann, b. að Fagranesi í Öxnad-
al, Guðmundsson, og kona hans,
Sigurrós Sigurðardóttir.
Jón og Sigríður áttu einn son,
Steinbjörn, b. á Hafsteinsstöðum,
en hann lést 1975, þá fjörutíu og
níu ára að aldri.
Sambýhskona Jóns, eftir að hann
missti konuna, var Anna Jóhann-
esdóttir frá Vindheimum, en hún
er látin fyrir nokkrum árum.
Hálfsystkini Jóns eru Lovisa,
húsmóðir á Sauðárkróki; Ingibjörg,
sem lengi hefur unnið á Kristnes-
hæU, og Halldór, sem hefur verið
Jón Björnsson.
b. á Seylu í Seyluhreppi.
Foreldrar Jóns voru Björn Lárus
Jónsson, b. og hreppstjóri að
Stóru-Seylu, og kona hans, Stein-
vör Véfreyja Sigurjónsdóttir.
Andlát
)------—— ---------------------------------------
&
Margrét Einarsdóttir frá Þórodds-
stöðum, Ölfusi, lést 23. nóvember.
Sigurjón Björnsson, Jaðarsbraut
21, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi
Akraness 22. nóvember.
Sigfús Hallgrímsson, Ytra-Hóli,
Öngulstaðahreppi, lést á Hjúk-
runarheimiUnu Seli á Akureyri
laugardaginn 21. nóvember.
Valgerður Kristinsdóttir, Hverfis-
götu 66, Reykjavík, lést aðfaranótt
24. nóvember.
Páll Guðmundsson frá Höfða í
Kirkjuhvammshreppi lést í Sjúkra-
húsi Hvammstanga 22. nóvember.
Lárus Karisson
Lárus Karlsson, Frumskógum 9,
Hveragerði, er sjötíu og fimm ára
í dag. Hann fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum en
móður sína missti hann tíu ára að
aldri. Lárus gekk í VÍ og útskrifað-
ist þaðan 1931. Hamm starfaði þá í
nokkur ár hjá Alfred Adenhaubt,
þýskum kaupmanni sem verslaði i
Suðurgötu 3 í Reykjavík. Lárus
vann svo í fjölda ára við bókhald
hjá ýmsum fyrirtækjum en 1960 hóf
hann skrifstofustörf hjá íslenskum
aðalverktökum og þar starfaði
hann í rúm tuttugu ár eða þar til
hann hætti fyrir aldurs sakir.
Systkini Lárusar voru átta að
tölu en hann á nú einn bróður á
lífi, Garðar, kaupmann í Reykjavík.
Foreldrar Lárusar voru Karl,
kaupmaður í Reykjavík, f. 8.5.1885,
75 ára______________________
Ragnar Sigftnnsson bóndi, Gríms-
stöðum II, Skútustaðahreppi, er
sjötíu og fimm ára í dag.
50 ára_________________________
Baldur Guðlaugsson húsasmíða-
meistari, Bæjarstíg 1, Búðahreppi,
er fimmtugur í dag.
Edda Þ. Guðlaugsdóttir, Stórateigi
21, Mosfellsbæ, er fimmtug í dag.
Friðgerður Hallgrímsdóttir, Sund-
stræti 15, ísafirði, er fimmtug í dag.
Magnús Kristjánsson, Þrastar-
hrauni 4, Hafnarfirði, er fimmtug-
ur í dag.
d. 1.10. 1944, Lárusson og kona
hans, María Thjell, f. 3.9. 1886, d.
23.8. 1923. Föðurforeldrar Lárusar
voru Lárus G. Lúðvíkson, skó-
kaupmaður í Reykjavík, f. 14.8.
1860, d. 20.7. 1913, og kona hans,
Málfríður Jónsdóttir, útgerðar-
manns í Skálholtskoti, Arasonar.
Foreldrar Lárusar skókaupmanns
voru Lúðvík steinsmiður Álexíus-
son, lögregluþjóns í Reykjavík,
Árnasonar og kona hans, Sigurlaug
Friðriksdóttir.
Móðurafi Lárusar var Hagbart,
kaupmaður í Stykkishólmi, Thejll
en systir Maríu var Sigrid Lydia
Thejll, móðir Helga Tómassonar,
yfirlæknis á Kleppi, og amma Tóm-
asar yfirlæknis og Ragnhildar
alþingismanns og ráðherra.
40 ára__________________________
Björn Friðriksson, Heiðarbrún 11,
Hveragerði, er fertugur í dag.
Ágústa Sigurgeirsdóttir, Hraunbæ
64, Reykjavík, er fertug í dag.
Sigurbörg Sveinbjörnsdóttir, Más-
hólum 6, Reykjavík, er fertug í dag.
Matthías Nóason, Bröttugötu 31,
Vestmannaeyjum, er fertugur í
dag.
Ingvar Árnason, Vallarbarði 18,
Hafnarfirði, er fertugur í dag.
Hafsteinn Sigurðarson, Súluhólum
2, Reykjavík, er fertugur í dag.
Hann er erlendis á afmælisdaginn.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hveturafmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsing-
ar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi
tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
i >.