Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1987, Side 4
30
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1987.
Iþróttir
Ivar Webster
, Haukum, stekkur manna hæst meö knöttinn við körfuhringinn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Korfuknattleikur - úrvalsdeild
Dýrmætur sigur
norðanmanna
- Þór vann Breiðablik, 55-66, í Digranesinu
Þór frá Akureyri vann sinn fyrsta
sigiu- í úrvalsdeildinni á fóstudags-
kvöld. Þá mætti félagið Breiðablik
úr Kópavogi og áttust liðin við í
Digranesi.
Þór gerði 66 stig í leiknum en Blik-
ar 55. Það verður að segjast sem er
aö varnir liðanna ollu ekki býsna
lágu skori. Á hitt verður nefnilega
að benda að leikurinn var sérlega
slakur og hittrn vond hjá flestum.
Eiríkur Sigurðsson Þórsari skar sig
þó nokkuö úr hvað skotfimi varöar,
gerði enda 23 stig eða ríflega þriðjung
þeirra noröanmanna.
Þótt framganga hðanna væri ekki
með þvi besta í þessari mikilvægu
viðureign í botnbaráttunni, var hún
nokkuð jöfn lengst af og því spenna
talsverð sem slaknaði þó í lokin.
Sigur Þórsara var sanngjam, þeir
vora að jafnaði yfir og náðu að hrista
Uð Blikana af sér þegar mest reið á -
í lokin.
Bestir í Uði Blika vpru þeir Guð-
mundur Stefánsson, Ólafur Adolfs-
son og Kristinn Albertsson.
í liði gestanna voru hins vegar þeir
Eiríkur Sigurðsson og Guðmundur
Björnsson mest áberandi.
• Stig Blika: Guðmundur 13, Ólafur
10, Kristinn 10, Kristján 10, Guð-
brandur 6, Sigurður 3, Hannes 2 og
Lárus 1.
• Stig Þórs: Eiríkur 23, Guðmundur
15, Bjarni 10, Konráð 6, Jóhann 6,
Ágúst 4 og Björn 2.
-JÖG
Erfrtt hjá U-18 liðinu í ísrael
Eins og kom fram 1 DV fyrir verður leikið í alþjóðlegu knatt- Sviss, Kýpur, Ungverjaland og Pól-
skemmstu heldur unglingalið ís- spymumótiíþessumaldursflokki. land.
lands, skipað knattspymumönnum Keppnislag er með þeim hætti aö í hinum riðlinum eru hins vegar
yngri en 18 ára, utan milU jóla og spilað er í tveimur riölum og síðan Uchtenstein, Malta, írland, Dan-
nýárs. í úrsUtum um ákveðin sæti. mörk, Grikkland og Rúmenía.
Er steöian tekin á ísrael en þar í riðh með íslandi eru ísrael, -JÖG
„Þessi leikur var
uppálrfogdauða
fyrir okkur“
- sagði Pálmar Sigurðsson, þjálfari
Hauka, eftir sigur á ÍR, 67-73
„Þessi leikur var upp á líf dauða
fyrir okkur. Því voru stigin fyrir sig-
urinn mjög kærkomin. Það vantaði
alla ógnunina í fyrri hálfleik hjá okk-
ur en í þeim seinni náðum við upp
góðri baráttu sem skóp sigur okkar.
Ég lét reyna meiðslin og fann öðru
hvoru fyrir sting í náranum. En von-
andi eru bjartir tímar framundan,"
sagði Pálmar Sigurðsson, körfu-
knattleiksmaðurinn snjalli, í samtaU
við DV eftir að Haukar höfðu sigrað
ÍR-inga, 67—73, í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Leikur Uðanna fór
fram í íþróttaskóla Seljaskóla sl.
laugardag. ÍR-ingar höfðu eins stigs
forystu í hálfleik, 32-31.
Jafnræði mestallan fyrri
hálfleikinn
Leikurinn fór frekar rólega af stað
og notuðu bæði liðin fyrstu mínút-
urnar til þreifinga. Jafnræði var á
með Uðunum mestallan fyrri hálfleik
og skiptust þau á um að hafa forystu.
Vamarleikur Uðanna var þeirra að-
alsmerki raunar allan leikinn en
hittnin var léleg lengi vel í leiknum
en skánaöi þegar á leið. Haukar náðu
sjö stiga forskoti, 9-16, en ÍR-ingar
náðu að jafna, 22-22. Þeir náðu síöan
fjögurra stiga forystu, 30-26,
skömmu fyrir leikhlé.
Haukar mjög ákveðnir
í síðari hálfleik
Haukar komu mjög ákveðnir til
leiks eftir leikhlé og var greinilegt á
öllu að þeir ætluðu sér sigur í leikn-
um. Um miðjan síðari hálfleik náðu
Haukar tólf stiga forystu, 45-57, og
má segja að þar með hafi sigurinn
verið í höfn. ÍR-ingar náðu að vísu
að minnka muninn niður í þrjú stig,
64-67, þegar rúm mínúta var til leiks-
loka, en Haukar hleyptu þeim ekki
nærri og tryggðu sér öruggan sigur
á lokasekúndunum.
ÍR-inga vantar reynslu
Það sem stendur ÍR-ingum fyrir
þrifum í úrvalsdeildinni er reynslan.
Liðið er mjög ungt að árum og vant-
ar alla þá dýrmætu reynslu sem þarf
í þeirri hörkukeppni sem er í úrvals-
deildinni. En ef þetta lið nær að halda
áfram með sama mannskap koma
þeir tímar síðar að liðið verður
sterkt.
Jón Örn Guðmundsson var þeirra
besti maður í þessum leik og einnig
komst Karl Guölaugsson ágætlega
frá leiknum. Annars verður ÍR-ing-
um veturinn erfiður eins og raunar
var vitaö í upphafi keppnistímabils-
ins.
Haukar vel að sigrinum
komnir
Hauka-liðið var vel að sigrinum
komið í þessum leik. Það var einnig
vel meðvitað um það aö sigur varð
að vinnast svo að liðið yrði áfram í
baráttunni um að komast í úrslita-
keppnina en í hana komast fjögur
efstu liðin. ívar Ásgrímsson var best-
ur Hauka-manna, var mjög sterkur,
sérstaklega þegar á leið. Einnig kom
Tryggvi verulega á óvart með góðum
leik.
• Kristinn Albertsson og Bergur
Steingrímsson dæmdu leikinn og
komust sæmilega frá því hlutverki.
Stig ÍR: Jón Örn 21, Karl 17, Björn
Stef 11, Björn Le 10, Jón 4, Jóhannes
4.
Stig Hauka: ívar 19, ívar Webster
18, Tryggvi 16, Henning 9, Ingimar
4, Sveinn 4, Pálmar 3.
-JKS
.
Einvígi
tveggja leikmanna í sennu Blika og Þórs.
DV-mynd Brynjar Gauti