Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1987, Page 30
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987.
«80
Fréttir
Ólafsfirðingar:
Fengu ekki lyf-
söluleyfið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Olafsfirðingar fá ekki sjálfir lyf-
söluleyfi í bænum að svo stöddu
þrátt fyrir að hafa sótt um það til
heilbrigðisyfirvalda.
Undanfarin ár hefur lyfsalinn á
Dalvík séð um þessa þjónustu á
Ólafsfirði. Ólafsfirðingum hefur
ekki þótt þeim nægilega vel sinnt
með lyfsöluna og sóttu bæjaryfir-
völd því um að fá lyfsöluleyfið
sjálfir og reka lyfsöluna í tengsl-
um við dvalarheimiliö Horn-
brekku.
„Auðvitað er eðlilegt að við
höfum þetta sjálfir hér í bæn-
um,“ segir Valtýr Sigurbjarnar-
son, bæjarstjóri á Ólafsfirði, um
þetta mál. „Ég tel reyndar ekki
útséð um að svo veröi í framtíð-
inni, það er verið að skoöa þessi
mál í heild á landinu og þá getur
þetta breyst. Það jákvæða við
þetta mál nú er að lyfsalinn á
Dalvík ætlar aö auka þjónustuna
hérna og hafa lyfjafræðing á
staðnum og þvi ber að fagna,“
sagði Valtýr.
SOdin:
Vantar stað-
festingu
frá Sovét-
4 mönnum
Emil Thorarensen, DV, Eskdfirði:
Að sögn Kristjáns Jóhannsson-
ar hjá Síldarútvegsnefnd er enn
beðið eftir svari frá Sovétmönn-
um um staðfestingu á sölu á
50.000 síldartunnum en fyrr í
haust var gerður samningur milli
Sovétmanna og íslendinga um
sölu á 200.000 tunnum. Staðfestu
þeir þá um leið kaupin á 150.000
tunnum en þrátt fyrir að gengið
hafi eftir staðfestingu á þessum
50.000 tunnum þá hefur enn ekk-
ert svar borist.
Hins vegar samþykktu þeir
kaup á 19.000 tunnum í staðinn
fyrir sama magn sem Suður-
landið var með á leiðinni til
Múrmansk þegar það fórst í lok
desember í fyrra. Samkvæmt
þessu hafa Sovétmenn samþykkt
kaup á 169.000 tunnum á móti
200.000 í fyrra. Auk þessa hefur
verið gengiö frá sölu á 67.000
tunnum til Skandinavíu og
Bandaríkjanna.
Síldarsöltun hefur gengið mjög
vel og í fyrrakvöld hafði veriö
lokið við söltun í 242.000 tunnur.
Höfðu þá margir söltunarstaðir
lokið við sinn kvóta, þar á meðal
allar sex stöövarnar á Eskifirði.
Eins og venjulega hefur mest ve-
rið saltað á Eskifirði, eða 39.538
tunnur. Næst kemur Hornaíjörð-
ur, 30.172 tunnur, og Grundar-
íjörður, 27.569 tunnur.
Hestamenn á leið inn í
íþróttasamband íslands
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Á ársþingi íþróttaráðs Lands-
sambands hestamanna, sem haldið
var á Húsavík um helgina, var
ákveðið aö leggja íþróttaráðið nið-
ur og leggja drög að stofnun nýs
sérsambands sem yröi aðili að
íþróttasambandi íslands.
Pétur Jökull Hákonarson, form-
aður íþróttaráðs LH, sagði aö nú
hillti undir lok 14 ára baráttu við
að fá hestamennsku viðurkennda
sem íþrótt, en það hefur lengi verið
baráttumál hestamanna aö fá aðild
að ÍSÍ. íþróttasambandiö mun nú
boða fulltrúa allra sérsambanda
þess til fundar þar sem innganga
hestamannanna verður væntan-
lega samþykkt og er reiknað með
að Hestamannasamband íslands
verði orðið aðOi að ÍSÍ í janúar eða
febrúar. Fulltrúar frá ÍSÍ mættu á
fundinn á Húsavík. Sigurður
Magnússon, framkvæmdastjóri
ÍSÍ, rakti aðdraganda þess að hesta-
menn yrðu aðilar að ÍSÍ og kynnti
starfsemi sambandsins. Kom einn-
ig fram í máli hans að ef allar
íþróttadeildir hestamannafélaga
landsins yrðu aðilar aö hinu nýja
sérsambandi yrði Hestamanna-
samband íslands 4.-6. stærsta
sérsambandið innan ÍSÍ.
Þingið samþykkti að taka 150 og
250 metra skeið inn sem keppnis-.
greinar á næsta ári til reynslu og
einnig að hestar og knapar þyrftu
nú lágmarks punktafjölda til að fá
keppnisrétt á íslandsmóti. Þá var
samþykkt að næsta íslandsmót
færi fram í Mosfellsbæ.
Pétur Jökull Hákonarson, Mos-
fellsbæ, var kjörinn formaöur, en
aðrir í stjórn eru Jónas Vigfússon,
Eyjafirði, Þorsteinn Stefánsson,
Dalvík, Lisbeth Sæmundsson,
Reykjavík, Hulda Sigurðardóttir,
Reykjavík, Guðmundur Sveinsson,
Skagafirði og Hafliði Gíslason,
Reykjavík.
Lögregluþjónn með Náttfara. Bókin fór í dreifingu í gær. Hún inniheldur
frásagnir sautján sakamála. DV-mynd KAE
H1 É
1111
;í ‘Vyl iWf ■m _
Lögreglan sendir fvá
sér bók um afbrotamál
íþróttasamband lögreglumanna
hefur í samvinnU við Almenna bóka-
félagið gefið út bókina Náttfara. í
bókinni er rakinn gangur sautján
sakamála, bæði innlendra og er-
lendra.
Sigurður H. Hreiöarsson annaðist
skráningu innlendu málanna. Bókin
ber nafn af frægu sakamáli. Bókin
er 250 blaðsíöur og kostar 1.975 krón-
ur.
-sme
Hótel ísland:
„Gullárin með
KK“ fhimsýnd
um áramót
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureiyri:
Ljóst er að 90 ára afmælisfagnað-
ur Blaðamannafélags íslands
verður opnunarsamkoman í hinu
nýja, glæsilega hóteli Ólafs Laufdal
í Reykjavík_, Hótel íslandi.
Að sögn Ólafs er nú unnið hörð-
um höndum til að hægt verði að
opna fyrri hluta desember. Þá eru
æfingar hafnar fyrir stórskemmt-
un að kvöldi 1. janúar.
Sú skemmtun mun bera heitið
„Gullárin með KK“ og verður þar
fjallað um hijómsveitir Kristjáns
Kristjánsspnar eða KK-sextettinn.
Að sögn Ólafs Laufdals er um 50
manna sýningu að ræða og koma
þar fram hljómlistarmenn, söngv-
arar, leikarar og dansarar. Meðal
þeirra sem þá stíga á svið eftir langt
hlé er Ellý Viihjálms sem ekki hef-
ur skemmt opinberlega í um 20 ár.
Vigdís í Genf:
Dómari í samkeppni
um sjónvarpsleikrit
Forseti íslands, Vigdis Finnboga-
dóttir, hefur síðustu daga gegnt
störfum heiðursdómari og formaður
dómnefndar Evrópubandalags út-
varps- og sjónvarpsstöðva í sam-
keppni um bestu hugmyndina að
nýju sjónvarpsleikriti. Keppnin fer
fram í Genf í Sviss. Vigdís mun af-
henda verðlaun keppninnar í Genf
3. desember.
Vigdís mun síðan halda til Eng-
lands 4. desember en þar mun hún
m.a. heimsækja safn í York sem
varðveitir minjar frá víkingatíman-
um. Forsetinn er verndari safnsins
ásamt öðrum þjóðhöfðingjum Norð-
urlanda.
-JBj
Ólafsfjörður:
Kemur tannlæknir
erlendis frá?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við munum athuga það vel hvort
við getum fengið íslenskan tann-
lækni hingað, hugsanlega einhvern
sem er að ljúka námi í vor. Ef það
tekst ekki þá verðum við auðvitað
að leita á önnur mið,“ sagði Valtýr
Sigurbjarnarson, bæjarstjóri á Ólafs-
firði, um þaö ástand þar að ekki fæst
tannlæknir til starfa í bænum.
Valtýr sagði að menn væru vissu-
lega farnir að láta sér detta í hug
þann möguleika að fá tannlækni er-
lendis frá. í sumar hætti tannlæknir
sem hafði verið á Ólafsflrði í eitt ár
en áður en hann kom til starfa hafði
verið tannlæknislaust í eitt ár. Þann-
ig hefur þetta gengið undanfarin ár.
„Þetta er mjög slæmt ástand. Þótt
við höfum haft hér ágæta tannlækna
er það mjög slæmt þegar mikiö er
um mannaskipti og ekki síöur þegar
langur tími líður á milli þess að við
höfum tannlækni. Þetta kemur illa
niður á öllu fyrirbyggjandi starfi og
almennri tannvernd, t.d. meðal
barna,“ sagði Valtýr.
Valtýr sagði einnig að fjárhagsleg-
ur grundvöllur fyrir tannlækni á
Ólafsfirði væri ágætur og svo væri
með fleiri staði á landinu þar sem
ekki hefði tekist að leysa þessi mál
farsællega undanfarin ár.
Siglufjörður:
Sigló hættir með gaffalbitana
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Fiskimjölsverksmiðja Hornafiarð-
ar hefur keypt tæki Sigló hf. á
Siglufirði sem notuð eru við fram-
leiðslu á gaffalbitum.
Sigló hf. hefur framleitt gaffafbita
síðan 1984 en reksturinn hefur ávallt
gengið illa og tap hefur verið á þess-
um rekstri alla tíð. Þess vegna var
ráðist í að selja framleiðslufínuna og
Góð tíð á Akureyri:
Gróðurinn er ekki í hættu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég held að það sé ekki ástæða til
að óttast um gróður vegna þessa tíö-
arfars,“ sagði Árni Steinar Jóhanns-
son, garðyrkjustjóri á Akureyri,
þegar DV ræddi við hann um hið
óvenjulega tíðarfar sem verið hefur
á Norðurlandi að undanfórnu.
Ámi sagði að skammdegið og
myrkrið hefði þau áhrif að gróðurinn
hreyfði sig lítiö þótt lofthiti væri jafn-
mikill og verið hefur að undanförnu.
Reyndar hefði verið frost af og til og
kólnað hefði á næturnar.
„Ég hef aðeins séð að gróður hefur
tekið við sér en það er mjög lítið,“
sagði Árni. „Ég held þó að það sé lít-
il ástæða til að óttast gróðurskemmd-
ir á þessu stigi. Það væri hins vegar
verra ef við fengjum svona hlýinda-
kafla í febrúar eöa mars,“ sagði Ámi
Steinar.
jafnframt hefur öllu starfsfólki fyrir-
tækisins verið sagt upp störfum.
Ekki missa þó allir vinnuna því
meirihluti starfsfólksins verður ráð-
inn aftur og mun þá starfa við
rækjuvinnslu sem Sigló ætlar að
stunda áfram. Af um 70 manns, sem
verður sagt upp frá og með næstu
mánaðamótum, missa þó um 20 at-
vinnu sína.