Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987.
Fréttir
Arnarhvoll
Landsbókasaf nCt
Ingólfsstræti "
Klifurskúlptur^
Seðlabanki íslands
Stytta Ingólfs
ArnarhóHi
Útileikhús
*«nu
c
SKIPULAG ARNARHÓLS
og nágrennis
Kortiö sýnir hiö nýja skipulag Arnarhóls.
Amartióll - Nýtft skipulag
Ingólfur færður
Arnarhóll á eftir að taka miklum
stakkaskiptum í náinni framtíð ef
skipulagstiilögur, sem Birna
Björnsdóttir hefur unnið í sam-
starfi við Hilmar Þór Bjömsson og
Einar E. Sæmundsson, komast í
framkvæmd. En miklar líkur eru á
því þar sem þær hafa veriö sam-
þykktar í borgarstjóm.
Ingólfur verður færður aðeins
framar á hóhnn, um það bil tvo
metra svo hann blasi beint við inn-
ganginum í Seðlabankann. Göngu-
stígar mynda ása milli Seðlabank-
ans og styttu Ingólfs og þvert á
hólinn svo hann myndi eðlilega
tengingu við Skúlagötuskipulagið.
Óreglulegir stígar koma til með að
liðast niður hólinn og auðvelda
umferð gangandi fólks um hann.
Súlnaröð
Lagt er til að komið verði upp
súlnaröð frá Hæstarétti, vestur
Lindargötu, fram á Arnarhól þar
sem súlnaröðin tekur beygju og
tekur stefnu beint á Alþingishúsið
og Dómkirkjuna, framhjá Stjómar-
ráðshúsinu. Bilið milli þeirra á að
vera 9 m og hæð þeirra ætíö sú
sama og miðast við 13 m yfir sjávar-
máli sem gerir það að verkum að
súlumar sýnast misháar. Lagt er
til að-súlurnar verði steyptar úr
hvítri steinsteypu.
Meginuppistaðan í lýsingu á
hólnum verður óbein lýsing. Súl-
umar verða flóðlýstar með 3-4
lömpum sem koma til með að lýsa
upp hverja súlu. Lýsing á aðalstíg,
milli Seðlabanka og styttu Ingólfs,
kemur frá litlum lömpum meðfram
gangstéttinni sem í raun flóðlýsa
hana. Aö lokum er lagt til að stytta
Ingólfs sé flóðlýst.
Grænar brekkur og útileik-
hús
Við Kalkofnsveg verður komið
fyrir útileikhúsi. Gert er ráð fyrir
að sendibifreiðar með hljóðfæri og
annan sviðsútbúnað hafi rúma að-
komu að því. Innanhúss á að vera
góð búníngsaðstaða fyrir bæði kyn-
in ásamt snyrtingum og sturtu. Á
minni sýningum, þar sem aðeins
koma nokkur hundmð manns, eiga
áhorfendur að geta sest niður en
þar sem áhorfendafjöldinn skiptir
þúsundum er gert ráð fyrir að fólk
standi.
Eins og áður er gert ráð fyrir að
hólhnn einkennist af grasflötum og
grasbrekkum eins og nú. Þó er gert
ráð fyrir að trjágróður myndi um-
gjörð um svæðið. Trjágróður er
einnig hugsaður sem tenging við
aðliggjandi svæði, svo sem torgið
bak við Landsbókasafn og leiðina
bak við Stjómarráðið.
Steintöflur
Við enda Lindargötu er lagt til að
komið verði upp steintöflum með
áletruðu ágripi af sögu landnáms
Ingólfs og sögu Reykjavíkur. Á
gönguleiðinni austan Stjómarráðs-
húsins er einnig lagt til að gerðar
verði steintöflur en á þær verið
letrað ágrip af sjálfstæðisbaráttu
íslendinga.
Á svæðinu sunnan við Seðla-
banka er lagt til að myndhöggvara
verði fengið það verkefni, í samráði
við arkitekta bankans og hólsins,
aö gera myndverk sem jafnframt
þjóni þeim tilgangi að böm geti
haft gott og gaman af aö príla á.
Aðkomuleiðir
Gert er ráö fyrir að Hverflsgatan
þjóni svipuðu umferðarhlutverki
og hún gerir í dag. Hins vegar er
gert ráð fyrir því að gangstéttin
sunnan til á hólnum verði færð inn
á hólinn þannig að ónæði af bí-
laumferð veröi minna.
Aðkomu að hólnum á homi
Hverflsgötu og Kalkofnsvegar á að
breyta á þann hátt að komið verði
fyrir áningarstað með bekkjum,
fánastöngum og stalli fyrir mynda-
styttu.
Til að draga úr umferðarhraða
um Ingólfsstræti er lagt til að kom-
iö veföi upp þrem eyjum vestan-
vert við götuna. Loks er gert ráö
fyrir að Lindargata verði gerð að
vistgötu.
-J.Mar
Iðnaðarmenn við störf sin á Arnarhóli í veðurblíðu desembermánaöar.
DV-mynd KAE
Bjami P.
n
i
ítrekað beðið um kostnaðaráætlun
„Ég er búinn að ítreka þaö á
fundum borgarráðs aö ég óski eítir
kostnaöaráætlun fyrlr ráðhús-
bygginguna og að hún veröi lögð
fram smJurliöuö. Þannig verður
að vera unnt aö sjá hvemig verk-
inu miðar og fylgjast grannt með
kostnaðarliöum þess," sagöi Bjami
P. Magnússon, borgarfulltrúi Al-
þýðuflokksins, um ráðhúsbygging-
una fyrirhúguðu. Bjami sagði að
reynslan af flugstöövarbygging-
unni yrði vonandi viti til vamaöar
og það yrði að gera allt sem unnt
væri að halda kostnaðinum niðri.
-SMJ
Umsögn veríkfræðinga um hönnun raðhússins:
„Hemaðar*
leyndarmár
„Það er ekki komin nein kostnað-
aráætlun ennþá um ráðhúsið. Viö
erum að vinna viö útboðsgögnin
núna en ætlunin er að leggja þau
fyrir verktakana í næstu viku,“ sagði
Svavar Jónatansson hjá Almennu
verkfræðiskrifstofunni sem hefur
umsjón með þeim byggingarhluta
ráðhússins sem fyrstur verður boð-
inn út. Sá háttur er hafður á þessu
útboði aö þeim verktökum, sem hef-
ur veriö boðið að vera með, hefur
verið uppálagt að koma með eigin
hugmyndir um útfærslu verksins en
í næstu viku verða þeim afhent út-
boðsgögnin. Að sjáifsögðu er ekki
hægt að ræða um verð fyrr en útboð
hafa veriö opnuð. En er ekki viss
aukakostnaður því samfara að
byggja ráðhúsið á þessum stað?
„Ég get ekkert sagt um það en hins
vegar er ekki hægt að neita því að
það eru ýmis vandamál því samfara
að byggja húsið svona niöur í vatn,“
sagði Svavar.
Vegna þess að það hefur komið
fram víða að ráðhúsið er alls ekki
einfóld bygging í smíðum og margt
nýstárlegt þar á ferð leituðum við til
þeirra verktaka, sem nú vinna hörð-
um höndum við aö undirbúa útboð
sín, og báðum þá að útlista fyrir okk-
ur helstu vandamálin við bygging-
una. Þeir voru varkárir í umsögnum
sínum, enda eftir að birta útboðin,
en það kom fram í máli þeirra að
þeim þótti þetta spennandi verkefni.
Hernaðarleyndarmál
„Þetta er mjög spennandi verkefni
en ég get ekkert sagt þér um það því
þetta er hemaðarleyndarmál," sagði
Jóhann Bergþórsson, forstjóri Hag-
virkja. Hann játaði þvi að vissulega
væru vandamál því samfara að
byggja húsið á þessum stað en: „Mið-
bærinn er bara á þessum eina stað.“
Jóhann sagði að þeir hjá Hagvirkja
ynnu nú hörðum höndum við að
leysa verkfræðileg vandamál, sem
fylgdu byggingunni, en sá hluti bygg-
ingarinnar, sem nú verður boðinn
út, nær aöeins yfir bílageymsluna.
Vinnum úr hugmyndum og
setjum á þær verð
„Okkar starf núna byggist á því að
vinna úr okkar hugmyndum og setja
á þær verð," sagði Páll Siguijónsson,
framkvæmdastjóri ístaks, en hjá
honum kom fram að þeirri aðferð er
beitt við útboðið að verklýsing og
verð er sent inn í einu. Kallast það
heildarútboð. Páll sagði að helstu
vandamálin, sem við væri að glíma,
stöfuðu af því hve langt niður húsið
næði og hugsanlegum vatnsleka
vegna þess. Ekki vildi hann meina
að verkfræðilegir þættir byggingar-
innar væru óvenjulegir.
Hjá Stefáni Guðbergssyni, sem
annast verkfræðiráðgjöf fyrir Kraft-
tak, fengust þau svör að um ráðhúsið
væri ekkert að segja. Engar upplýs-
ingar væru gefnar um svo viðkvæmt
mál og alls ekki á þessu stigi. -SMJ
Fyrsti hluti ráðhússins við Tjörnina verður boðinn út í næsta mánuði.
25% af
ráðhúsinu
boðin út í janúar
„Það eru um 25% af heildarkostn-
aðinum við ráðhúsið sem verða
boðin út núna í janúar,“ sagði Davíð
Oddsson borgarstjóri en hann vildi
taka það fram að þessi tala væri gróf-
lega áætluð. Enn væru engar
endanlegar tölur komnar á ráðhús-
framkvæmdirnar og sagði Davíð að
í raun væri rangt af sér að vera að
gefa upp nokkrar tölur á þessu stigi
málsins. Þessi 25% jafngilda um 190
milljónum kr. Eins og kunnugt er á
ráðhúsbyggingin öll samkvæmt
fyrstu kostnaðaráætlun að kosta 750
milljónir en þar af fara 250 milljónir
í bílakjallarann. Ráðhúsið sjálft kost-
ar 500 milljónir.
Þá er búið að festa kaup á stálþili
sem verður sett upp við ráðhús-
grunninn. Stálþil þetta kostaði 12
milljónir kr. „Borgin á þetta þU
áfram og getur notað það við ýmsar
framkvæmdir, svo sem við höfnina,"
sagði Davíð. Borgin hefur áður átt
svona þil en það liggur nú grafið á
Skeiðarársandi en það var lánað til
gullleitarmannanna sem náðu því
ekki upp. „Þiliö var tryggt og við
fengum þaö borgað,“ sagði borgar-
stjóri.
-SMJ