Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1987, Page 23
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 19.87.
23
Nóttí
1 ‘X •' x•
biorooinm
við
Ln Scnln
i
Fyrir ítalska óperuunnendur er önn-
ur vikan í desember besta vika
ársins. Þann 7. hefst nýtt leikár hjá
frægustu óperu heims - La Scala í
Mílanó þar sem Kristján Jóhannsson
ætlar að syngja í vetur. Þetta kvöld
er boðið upp á frumsýningu ársins
og dagana á eftir er ekki um annan
atburðmeirarætt.
„Ef menn hafa í raun og veru gam-
an af óperum þá er ekki hægt að
missa af frumsýningunni í La Scala,“
er haft eftir Lue Ubaldo, leigubíl-
stjóra á sextugsaldri. Hann hóf
biðina eftir að miðasalan væri opnuð
nóttina fyrir frumsýninguna og með
honum var sonur hans, Valentino.
Þeir feðgar ætluðu að ná í miða í
stæði í óperunni. Það eru ódýrustu
miðamir og eru seldir á um 600 krón-
ur. Sala á þessum miðum, sem eru
aðeins 150, hefst ekki fyrr en klukku-
stund fyrir sýninguna þannig að
biðin í miðasölunni er löng.
Þeir sem kaupa sér miða í stæði
eru jafnan háværustu óperugestimir
og láta oft líkt og þeir séu á fótbolta-
velli en ekki í óperu. Líki þeim ekki
söngurinn spara þeir ekki hrópin og
baula á söngvarcma.
Leikárið hjá La Scala hófst á sýn-
ingu á Don Giovanni eftir Mozart
með breska söngvarann Thomas Al-
leníaðalhlutverki.
„Ég kem ekki vegna Mozarts held-
ur vegna þess að það er frumsýning,"
segir leigubílstjórinn Ubaldo sem
staðið hefuríjórum sinnum áður í
biðröðinni fyrir fmmsýninguna. í
fyrra beið hann í 38 klukkustundir
eftir aö fá miða á Nabucco, ópem
Verdis. „Þá höfðum við með okkur
eldunartæki og suðum spaghetti fyr-
ir alla,“ segir Ubaldo.
Þá varð Ubaldo líka frægur að end-
sýningu leikársins.
emum því hann hrópaði öllum hærra
og stjórnandinn, Riccardo Muti, varð
að biðja um hljóð en slíkt gerist ekki
oft. „Ég var einn af þeim hávær-
ustu,“ viðurkennir Ubaldo.
Einn í hópi þeirra fyrstu til að
mæta í rööina nú á mánudaginn var
maður sem kallar sig Gianni. Síðustu
fimm árin hefur hann verið sjálfskip-
aður raðarstjóri við óperuna.
Hann skrifar á blað nöfn þeirra
sem koma og gefur þeim númer svo
þeir haldi sínum stað í röðinni þótt
þeir bregði sér frá. „Þetta er eina
leiðin til að halda röð og reglu,“ seg-
ir Gianni. „Áriö 1982 lá við uppþoti.
Við kæmm okkur ekkert um að fólk
sé að troðast inn í röðina."
Miðum í stæði hefur verið fækkað
á siðustu ámm af öryggisástæðum.
Tilraunir til að opna ópemna fyrir
almenning hafa hins vegar engan
árangur borið. Verð á miðum í betri
sæti er óheyrilegt. Sögur eru um að
miðar hafi selst á svörtum markaði
fyrir um 3 milljónir líra eða um 90
þúsund krónur.
La Scala óperan er frægasta óperu-
hús í heimi. ítalir segja að það sé
meira en bara ópera því í þessu húsi
lifi saga ópemnnar. Húsið var byggt
á ámnum 1776 til 1778. Það eyðilagð-
ist nærri í loftárás árið 1943 þegar
þak þess og innviðir brnnnu. Það var
opnað að nýju árið 1946 með einni
afóperumVerdis.
Nú hefur stjóm ópemnna veriö
gagnrýnd fyrir að velja Mozart til að
sýna fyrsta kvöldið á leikárinu. ítalir
hafa ávallt metið Verdi meira en
önnur ópemtónskáld og em ekki
uppnæmir þótt sjálfur Mozart sé
annarsvegar.
Reuter/-GK
GOLDENLADY
OKKA
UXUR
Orða í búningsklefanum
ítajski ópemstjórinn Giancarlo del
Monaco hefur verið sæmdur oröu í
Vestur-Þýskalandi fyrir framlag sitt
til listarinnar. Monaco, sem nú er 43
ára, hefur hin síðari ár skipað sér í
fremstu röð óperustjóra í heiminum
og er eftirsóttur af óperuhúsum víða
umlönd.
Orðuveitingin kom öllum á óvart
og þá ekki síst Monaco sjálfum. Full-
trúar þýsku stjórnarinnar komu með
orðuna í búningsherbergið til
Monacos í hléi á flutningi Brott-
námsins úr kvennabúrinu, gamanó-
perueftirMozart.
„Þetta kom mér algerlega á óvart,“
sagði Monaco eftir sýninguna. „Þeir
komu bara inn í búningsherbergið
og festu orðuna á mig.“
Del Monaco er sonur ítalska tenór-
söngvarans Mario del Monaco sem
lést árið 1982. Hann hefur undanfarið
unnið í Þýskalandi og sett þar 127
óperur á svið. Hann er einnig ópem-
stjóri við Macerata óperana á Ítalíu.
Polaroid - Myndavél og vasadiskó
✓
SAMAN I PAKKA
á aðeins kr. 3.350,-
Vasadiskóið
er eitt hið
minnsta
á markaðinum.
Cr02 metal.
JO
[YNDAÞJONUSTAN HF
igavegi 178 - Sími 685811
Myndavélin er með
innbyggt eilífðarfiass.
Rafhlaðan er í
filmupakkanum.
Sem sagt, filman í,og
myndavélin er tilbúin
HEIMILIS- 06 RAFTÆKJADEILD
rö HEKLAHF
Laugavegi 170 172 Simi 695500
<
1
E