Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Síða 46
Alm. auglstj'SlA
46
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
SNYRTILEGUR MÁLSKAMMTARI
—
2 STÆRÐIR. 11 CL OG 17 CL
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
BSTEX m/f
Skúlagötu 26, 101 Reykjavík
Sími 623720, p.o. box 9081.
1
MÁL MEÐ
JÓLAGREIN, 17 CL
<pART
^__
EINFALDUR KAFFIBAR
DRYKKJARMÁL ÚR
EINANGRUNARPLASTI
ENGIN ÞÖRF
FYRIR HÖLDUR
Fréttir
Hlíðarfjalli
- ekki farinn að örvænta, segir forstöðumaður Skíðastaða
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Ivar Sigmundsson situr í stólalyftunni. Enginn snjór er í skiðabrekkunum
og lyftan verður því væntanlega ekki mikið notuð á næstunni.
DV-mynd gk, Akureyri
„Ég neita því ekki að snjóleysið
er farið að fara í taugarnar á mér,“
segir ívar Sigmundsson, forstöðu-
maður Skíðastaða í Hlíðarfjalli við
Akureyri, en óhætt mun að segja
að þar sé óvenjulegt ástand um
þessar mundir.
„Veðrið héma að undanförnu
hefur verið eins og á vordögum og
hér er nú enginn snjór en ætti að
vera eins metra snjólag ef vel
væri,“ segir ívar. „Þetta hefur gerst
einu sinni eftir að ég hóf að starfa
hér árið 1970, en það er jafnslæmt
fyrir það.
Það er mjög slæmt fyrir okkur
ef við getum ekki opnað hér nú um
jóhn. Það hefur sýnt sig að ef ekki
er hægt að opna í desember þá er
mun erfiðára að fá fólkið til að
koma eftir áramótin, það er eins
og menn séu þá ragir við að koma
sér í gang.“
ívar sagði að síðustu ár heíðu
verið léleg í Hlíðarfjalli. Þó var-
hægt að opna í desember í fyrra
enda fór svo að síðasti vetur var
betri hvað aðsókn snertir en marg-
ir þar á undan. „En við eram ekki
famir að örvænta, þetta getur
breyst á stuttum tíma,“ sagði ívar.
Hann sagði að ástandið í Hhðar-
flalh væri ekki einsdæmi nú, hann
hefði rætt við aðha í Bláfjöllum og
á ísafirði og þar væri viðlíka
ástand. Að sjálfsögðu er það svo
einnig slæmt á öðram skíðasvæð-
um norðanlands.
Akureyri
Enginn snjór í
Mekkanó er þroskandi leikfang, sem reynir á huga og
hönd. Það ýtir undir hugmyndaflug og sköpunargáfu og
er þvl kjörið fyrir börn á öllum aldri.
Mekkanó ertil I mörgum stærðum og gerðum. Verð frá
kr. 630.-. Póstsendum.
Borgarfjörður eystra:
Smíði á viðlegukanti iokið
Helgi Amgiímsson, DV, Borgarf. eystra;
Nú er nýlega lokið við að smíða
viðbótarviðlegukant í smábátalæg-
inu við Hafnarhólma á Borgarfirði
eystra. Er þetta trébryggja sem
byggð er fyrir botni bátakvíarinnar
sem byggð var 1973.
Bætir þetta talsvert aðstööu fyrir
trillur á Borgarfirði en fyrirhugað
er að stækka talsvert þessa aðstöðu
á næsta ári eða 1989. Ekki er ennþá
frágengin hafnarmálaáætlun svo
ekki er komið í ljós hvenær fjár-
magn fæst til framkvæmda. MikU
umræða hefur verið hér meðal sjó-
manna og hjá hreppsnefnd um
væntanlegt framvarp sjávarút-
vegsráðherra um kvótakerfi og um
hvemig það bitnar á trilluútgerð á
stöðum eins og Borgarfirði.
Hreppsnefnd sendi þingmönnum
Austurlandskjördæmis svohljóð-
andi samþykkt:
„Hreppsnefnd Borgarfjarðar-
hrepps mótmælir harðlega tUlög-
um ráðgjafanefndar um sfjóm
fiskveiða að því er varðar báta
undir 10 brl. TUlögumar miða að
því að þrengja mikið veiðirétt
þeirra. Það mundi koma mjög Ula
við nokkur byggðarlög sem ekki
hafa aðstöðu fyrir stærri báta.
Þeirra á meðal er Borgarfjörður
eystra. Nefndin bendir á að bætt
hafnaraðstaða gæfi möguleika á
útgerð stærri báta og ylh því að
Borgfirðingar yrðu ekki eins háðir
útgerð smábáta. Því væntir nefnd-
in þess að hafnargerð á Borgarfirði
verði hraðað sem kostur er á næstu
árum.“
Fyrr á þessu ári var haldinn
fundur hér þar sem mættu fulltrú-
ar frá Hafnarmálastofnun og kom
þar fram að rannsóknum á hafnar-
mannvirkjum á Borgarfirði miðar
nokkuð áfram og hafa verið gerðar
kostnaðaráætlanir á mismunandi
kostum og virðist svo sem vænleg-
asti kosturinn sé aö gera varanlega
höfn við Hafnarhólmann þar sem
smábátalægið er nú. Kom þar fram
að kostnaöur við gerð hafnar þar
er verulega minni en áður var ta-
hð. Þessi hafnarmál brenna ákaf-
lega heitt á öUum Borgfirðingum
því eins og gefur að skilja er þetta
lífæð staðarins og tilvera hans
stendur og feUur með höfninni.
Nú nýlega, þegar nýi viðlegu-
kanturinn var tekinn í notkun,
samdi hreppsnefnd hafnarreglur
eftir'fund með trUlusjómönnum.
Era þetta almennar umgengisregl-
ur, m.a. um umferð og geymslu á
veiðarfæram.