Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Síða 72
72
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
Fólk í fréttum
Geir Hallgrímsson
Geir Hallgrímsson seölabanka-
stjóri hefur verið í fréttum DV
vegna umræðna um flugstöðvar-
bygginguna á Keflavíkurflugvelli.
Geir er fæddur 16. desember 1925 í
Reykjavík og lauk lögfræðiprófi frá
HÍ 1948. Hann var borgarfulltrúi í
Rvík 1954-1974 og borgarstjóri
1959-1972. Geir var alþingismaður
1970-1983 og formaður Sjálfstæðis-
flokksins 1973-1983. Hann var
forsætisráðherra 1974-1978 og ut-
anríkisráðherra 1983-1986. Hann
hefur verið Seðlabankastjóri frá
1986. Kona Geirs er Erna Finns-
dóttir, f. 20. mars 1924. Foreldrar
hennar eru Finnur Sigmundsson,
frv. landsbókavörður, og kona
hans, Kristín Magnúsdóttir. Börn
Geirs og Ernu eru Hallgrímur Ben-
ediktsson hrl., f. 13. júlí 1949, giftur
Aðalbjörgu Jakobsdóttur félags-
fræðingi, rektorsritara, og eiga þau
eina dóttur; Kristín, f. 19. mars
1951, bókasafnsfræðingur, gift Frey
Þórarinssyni, doktor í jarðeðlis-
fræði, og eiga þau tvo syni; Finnur,
f. 8. júní 1953, doktor í hagfræði,
ritstjóri Vísbendingar, sambýlis-
kona Steinunn Þorvaldsdóttir
menntaskólakennari og eiga þau
einn son; Áslaug, f. 7. október 1955,
í doktorsnámi í jarðfræði í Banda-
ríkjunum. Systkini Geirs voru
Ingileif Bryndís, f. 10. nóvember
1919, var gift Gunnari Pálssyni
skrifstofustjóra, sem er látinn;
Bjöm, f. 17. apríl 1921, forstjóri í
Rvík, giftur Sjöfn Kristinsdóttur og
Geir, f. 3. júlí 1923, d. 5. nóvember
1924.
Foreldrar Geirs voru Hallgrímur
Benediktsson, stórkaupmaður og
alþingismaður í Rvík, og kona
hans, Áslaug Geirsdóttir Zoega.
Föðursystir Geirs var Elísabet,
móðir Karls Kvaran listmálara og
amma listfræðinganna Gunnars og
Ólafs Kvaran. Dóttir Elísabetar er
Elísabet, kona Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar. Föðurbróðir Geirs,
samfeðra, var Ágúst, faðir Áslaug-
ar, konu Bjarna Jónssonar vígslu-
biskups og ömmu Guðrúnar
Ágústsdóttur borgarfulltrúa. Dótt-
ir Ágústar var Guðrún, móðir
Kristins Hallssonar óperusöngv-
ara. Faðir Hallgríms var Benedikt,
trésmiður á Refsstað í Vopnaflrði,
bróðir Þorláks, langafa Finnboga
Guömundssonar landsbókavarðar.
Bróðir Benedikts var Þorsteinn,
langafi Þorsteins, afa Magnúsar
Jóhannessonar sighngamálastjóra.
Bróðir Benedikts var einnig Hall-
grímur, langafi Ólafs, fóður
Gunnars Ragnars, forseta bæjar-
stjórnar Akureyrar. Systir Bene-
dikts var Solveig, langamma Jóns
Sigúrðssonar viðskiptaráðherra.
Önnur systir Benedikts var Guð-
rún, amma Sigurðar Jónssonar
skálds frá Amarvatni og Jóns Stef-
ánssonar, Þorgils gjallanda.
Benedikt var sonur Jóns, prests í
Reykjahlíð, Þorsteinssonar, forföð-
ur Reykjahlíðarættarinnar. Móðir
Hallgríms var Guðrún Björnsdótt-
ir, b. á Stuðlum í Reyðarfirði,
Þorleifssonar, b. á Karlsskála, Pét-
urssonar. Móðir Guðrúnar var
Bóel Bóasdóttir, b. á Stuðlum í
Reyðarfirði, Ambjömssonar. Móð-
ir Bóelar var Guðrún, systir Páls á
Sléttu, afa Páls, afa Kjartans Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, og Harðar
Einarssonar, forstjóra Fijálsrar
fiölmiðlunar. Guðrún var dóttir
Jóns, gullsmiðs á Sléttu í Reyðar-
firði, Pálssonar, háltbróður Sveins,
læknis og náttúrufræðifræðings.
Móðir Guðrúnar var Guðný Stef-
ánsdóttir, b. á Sandfelli, Magnús-
sonar og konu hans, Guðrúnar
Erlendsdóttur, b. á Ásunnarstöð-
um í Breiðdal, Bjamasonar, fóður
Þorbjargar, langömmu Vilhelms,
langafa Alberts Guðmundssonar.
Áslaug er dóttir Geirs Zoega rekt-
ors, Tómassonar Zoega, formanns
á Akranesi, Jóhannessonar Zoega,
glerskera í Rvík, Jóhannessonar
Zoega, fangavarðar í Rvík, frá Slés-
vík. Zoegaættin er talin vera komin
af feneysku aðalsættinni Zuecca.
Móðir Áslaugar var Bryndís Sig-
urðardóttir, kaupmanns í Flatey,
Johnsen. Móðir Sigurðar var Guðr-
ún Aradóttir, systir Sigríðar,
ömmu Matthíasar Jochumssonar,
langafa Ragnars Arnalds. Móðir
Geir Hallgrimsson.
Bryndísar var Sigríður Brynjólfs-
dóttir, kaupmanns í Flatey, Boga-
sonar, fræðimanns á Staðarfelli,
Benediktssonar, bróður Halldóru,
langömmu Magnúsar, fóður Dav-
íðs Schevings Thorsteinssonar.
Móðir Boga var Hildur Magnús-
dóttir, systir Gunnlaugs, langafa
Sigurðar, fóður Gunnars Thor-
oddsen.
Afmæli
.'x.
Jóhannes Kr. Bjömsson
Jóhannes Kr. Björnsson, Sól-
garði, Arnarneshreppi, er áttræður
í dag. Jóhannes fæddist að Nolli í
Laufássókn og ólst þar upp í for-
eldrahúsum, en hann var þriðji
elstur í hópi sjö sytkina. Eftir ferm-
ingu var hann í tréskurðarnámi
hjá Geir G. Þormar á Akureyri og
tvo vetur í trésmíöanámi hjá foður-
bróður sínum, Hermundi Jóhann-
essyni. Jóhannes vann öll almenn
sveitastörf í fóðurhúsum og sótti
sjóinn. Þegar hann hleypti heim-
draganum starfaði hann um skeið
á Svalbarðseyri og Akureyri.
Kona Jóhannesar var Gyða, f.
25.8. 1918, d. 10.8. 1976, dóttir Jóns
Sigurðssonar og konu hans,
Guðnýjar Jóhannsdóttur, sem bú-
sett voru á Akureyri.
Jóhannes og Gyða giftu sig 1935
en þau bjuggu á Akureyri fyrsta
búskaparáriö. Þau fluttu síðan aö
Nolli og byggðu þar upp býlið Sæ-
ból sem er í Nollslandi, en þangað
fluttu þau 1937. Þar höföu þau bú-
skap og Jóhannes stundaði sjóinn.
Jóhannes stundaði um tíma fólks-
og mjólkurflutninga ásamt foður
sínum á mótorbát þeirra feðga, en
þeir sigldu á Svalbarðsströnd og
Akureyri. Jóhannes og Gyða fluttu
til Hjalteyrar 1942 og þar reisti Jó-
hannes íbúðarhúsið Sólgarða yfir
fiölskyldu sína. Jóhannes varð fyr-
ir alvarlegu vinnuslysi 1961 er
hann missti fióra fingur hægri
handar en þau örkuml varð hann
að þola bótalaust. Hann missti þó
ekki móðinn við þetta áfall og hefur
stundað ýmis störf síöan.
Jóhannes og Gyða eignuðust
fióra syni: Bjöm rekur ryðvarnar-
verkstæði í Kópavogi, kona hans
er Lilja Guðmundsdóttir frá Akur-
eyri og eiga þau fimm böm; Jón er
skipstjóri á togaranum Harðbak en
kona hans er Margrét Þórhalls-
dóttir frá Hafnarfirði og eiga þau
eitt barn; Ævar hefur veriö sjómað-
ur; Henning er sjómaður og útgerð-
armaður í Grímsey en kona hans
er Guðrún Gísladóttir frá Akureyri
og eiga þau fimm börn.
Foreldrar Jóhannesar vora
Björn, b. á Nolli, Jóhannesson, f.
1.2. 1877, d. 10.12. 1951, og kona
hans, Anna frá Skeri á Látra-
strönd, Pálsdóttir, f. 13.3. 1883, d.
13.3.1958. Björn var bróðir Auðar,
Jóhannes Kr. Björnsson.
móður Matthíasar Bjamasonar, fv.
ráðherra. Föðurforeldrar Jóhann-
esar voru Jóhannes, b. á Nolli,
Guðmundsson, og kona hans, Guð-
björg frá Pálsgerði, Björnsdóttir.
Móðurforeldrar Jóhannesar vora
Páll, vinnumaður á Krossum á
Árskógsströnd, Jónsson, og kona
hans, Sigríöur Bjamadóttir. Kona
Jóhannesar, b. á Nolli, var Guð-
björg Björnsdóttir, b. í Pálsgerði,
Loftssonar, en Jóhannes var sonur
Guðmundar, b. á Nolli, Stefánsson-
ar og konu hans, Herdísar Sveins-
dóttur, b. á Þorsteinsstöðum í
Höfðahverfi, Jóhannessonar.
Aðalheiður Friðriksdóttir Jensen
Aðalheiður Friðriksdóttir Jens-
en, til heimilis að Suðurgötu 15-17,
Keflavík, er áttræð í dag. Aðal-
heiður fæddist í Efri-Miðvík í
Sléttuhreppi i Norður-ísafiarðar-
sýslu og ólst upp hjá foreldrum
sínum á Látrum. Hún var á Látrum
tO sextán ára aldurs en þá fór hún
í vist til ísafiaröar þar sem hún
dvaldi í tvö ár. Aðalheiður fór síðan
til Akureyrar þar sem hún átti eft-
ir að búa í fiölda ára.
Á Akureyri giftist Aðalheiður
Fred Jensen, f. 28.8. 1897, d. 12.12.
1977, en hann var vefari. sem
kenndi vefnað hjá Gefiun, sonur
Niels Jensen, steinsmiös á Jót-
landi, og konu hans, Kristiönu
Jensen.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
Opit) lil A/. 21 iill livöltl
0oBlóm
w(^)sknqytífgar
Laugavegi 53, simi 20266
Sendum um land allt
Aðalheiður Friðriksdóttir Jensen.
Þau Aðalheiður og Fred bjuggu á
Akureyri til 1954 en þá fluttu þau
til Keflavíkur þar sem Aðalheiður
hefur átt heima síðan.
Aöalheiður átti eina dóttur fyrir
hjónaband, Eddu Jensen, f. 1928,
en faðir hennar drukknaði þegar
Edda var á fyrsta árinu. Edda ólst
upp hjá móður sinni og Fred en hún
er gift Sigfúsi Þorsteinssyni, búa
þau á Hauganesi á Árskógsströnd
og eiga sex börn. Aðalheiður og
Fred eignuðust fiögur börn og eru
tveir synir þeirra á lífi. Börn þeirra:
Leila, f. 1933, d. 1944; Friðrik Jens-
en, verkstjóri á Keflavíkurflugvelli,
f. 1936, er giftur Sigríði Þórólfs-
dóttur frá Keflavík og eiga þau
fiögur börn; Niels Jensen, tvíbura-
bróðir Friðriks, starfaði á þunga-
vinnuvélum í Keflavík, en hann er
látinn; Engilbert hljómlistarmað-
ur, f. 1941, á sex böm. .
Aðalheiður átti sextán systkini
en þrjú þeirra dóu í barnæsku. Hún
á nú átta systkini á lífi. Þau era:
María, húsmóðir á ísafirði, sem nú
dvelur á elliheimilinu á ísafirði;
Þorsteinn, starfsmaður hjá Fálkan-
um í Reykjavík; Sigurlaug,
húsmóðir f Reykjavík; Jóhann, sem
lengi var vörabifreiðarstjóri í
Keflavík; Bjarni, sem er starfsmað-
ur hjá tollinum á Keflavíkurflug-
velli; Dóróthea, húsmóðir í
Keflavík; Þorbergur, málarameist-
ari og forstjóri á Keflavíkurflug-
velli; Guðmunda, húsmóðir í
Keflavík.
Foreldrar Aðalheiðar bjuggu
lengst af á Látrum en þau vora
Friðrik, b. í Miðvík og síöar á Látr-
um, Finnbogason, og kona hans,
Þórunn Þorbergsdóttir. Föðurfor-
eldrar Aðalheiðar voru Finnbogi,
b. í Miðvik, Ámason, og kona hans,
Herborg Kjartansdóttir. Móðurfor-
eldrar Aðalheiðar vora Þorbergur,
b. í Miðvík, Jónsson og kona hans,
Margrét Þorsteinsdóttir.
Aðalheiður er vel ern, minnug
og heilsugóð. Hún tók á móti gest-
um á Veitingahúsinu Glóðinni í
Keflavík á laugardaginn.
Sigurbjörg
Sigurðardóttir
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Njarð-
víkurbraut 24, Njarðvík, er sjötug
í dag. Sigurbjörg fæddist á Seyðis-
firði og ólst þar upp. Maður hennar
var Guðjón Sigurjónsson, f. 25.6.
1926, d. 18.11. 1984, en Guðjón var
lengi vörubílstjóri hjá Njarðvík-
urbæ.
Sigurbjörg eignaðist sex böm og
eru þrjú þeirra á lífi en auk þess á
hún eitt fósturbam.
Systkini Sigurbjargar vora tíu og
era átta þeirra á lífi.
Foreldrar Sigurbjargar: Sigurð-
ur, sjómaður á Seyðisfirði, Gunn-
arsson og kona hans, Guðbjörg
Ingveldur Eyjólfsdóttir.
Sigurbjörg Sigurðardóttir.
40 ára
Ingibjörg Björnsdóttir, Reynihlíð
5, Reykjavík, er fertug í dag.
María Eydís Jónsdóttir, Reykholti,
Hafnarfirði, er fertug í dag.
Halldóra Stefánsdóttir, Hraunholti
7, Gerðahreppi, er fertug í dag.
Sigurjóna Sigurðardóttir, Skólabrú
1, Hafnarhreppi, er fertug í dag.
Sigurður Arnþór Andrésson raf-
virki, Stapasíðu 5, Akureyri, er
fertugur í dag.
Davíð Valgarðsson, Sólvallagötu
46, Keflavík, er fertugur í dag.
Ragnheiður Stefánsdóttir, Holts-
búð 13, Garðabæ, er fertug í dag.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsing-
ar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Andlát
Þórður G. Sigurðsson, Rauðarár-
stíg 11, lést þann 10. desember.
Sigurður K. Þorsteinsson frá
Dvergasteini v/Lágholtsveg, and-
aðist 9. desember.
70 ára_______________________
Jóhanna Hallgrímsdóttir, Grænu-
hlíð 11, Reykjavík, er sjötug í dag.
60 ára________________________
Rósa Sigurjónsdóttir, Álfhólsvegi
36, Kópavogi, er sextug í dag.
50 ára______________________
Rafn Konráðsson, Hjallabrekku 24,
Kópavogi, er fimmtugur í dag.
Gunnar Ól. Engilbertsson, Dverga-
bakka 12, Reykjavík, er fimmtugur
í dag.