Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Blaðsíða 74
74
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
Nýjarplötur
DV
Fíllinn
^ Fíllinn er fyrsta sólóplata Ásgeirs
" Sæmundssonar, Geira Sæm.
Geiri var söngvari Pax Vobis hér á
árum áöur og vakti þá mikla athygli
fyrir líílega sviðsframkomu og
sterka og góöa rödd. Til þessarar
fyrstu plötu Geira, sem hlotið hefur
nafnið Fílhnn, var ekkert sparað.
Margir af færustu hljóðfæraleikur-
um landsins aðstoða Geira og
útkoman verður eftir því. Upptökur
fóru fram í Sýrlandi undir stjóm
Geira. Meðal laga á plötunni má
nefna lagið Rauður fhl, sem sýnt var
í poppkomi 1. desember, óg Fílhnn
sem sýnt var í íslenska hstanum 24.
október.
Geisladiskur með Geira er væntan-
legur um miðjan mánuðinn og
kassettan kom 7. desember.
í loftinu
Gunnar Þórðarson
Samstarf þeirra Gunnars Þórðarson-
ar og Ólafs Hauks Símonarsonar
hefur verið náið í gegnum tíðina. Nú
hefur þetta samstarf leitt af sér plöt-
una „í loftinu" sem á eru lög
Gunnars við texta Ólafs um ísland
nútímans með tilliti til ljósvakabylt-
ingarinnar. Margir þekktustu
söngvarar landsins koma við sögu,
þ.á m. Egill Ólafsson, Eiríkur Hauks-
son, Björgvin Halldórsson og Jó-
hanna Linnet auk félaga úr
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Útgefandi er Steinar hf.
Smellir
Skífan hefur gefið út safnplötuna
Smelli. Á plötunni eru hvorki meira
né minna en sex íslensk lög. Hangir
á bláþræði er ný íslensk hljómsveit,
ættuð úr Menntaskólanum við Sund.
Nýdönsk er ný hljómsveit sem vann
hljómsveitakeppni Stuðmanna,
Gústi úr Eyjum (Nú meikar þú það,
Gústi). Herbert Guðmundsson syng-
ur jólalag eftir Jóhann G. Jóhanns-
son og Bjarni Arason syngur
Ömmubæn jenna Jóns. Auk þessara
laga er á plötunni að fmna átta erlend
lög sem öll eru á góðri leið með að
verða vinsæl.
_ '■»
>
BOWOSTOC cowmct o>sc piayeh
DISKSPILARI
3ja geisla diskspilari m/lagaminni, endurspilun og A tii B Verð aðeins kí. 13*900 stgr.
endurspilun. „Index". Heyrnartækjatengi m/styrkstilli. Afb. verð kr. 14.700
FERÐASJÓNVARP
Svart/hvítt sjónvarp tilvalið í eldhúsið, unglingaherbergið,
sumarbústaðinn, bátinn eða bílinn. Tengi f/bílkveikjara og
festingasett fylgir.
Verð aðeins
kr. 8*900 stgr.
H UÓMTÆKJASTÆÐA
2x20 watta magnari. 5 banda tónjafnari. Tvöfalt segulband.
Hraðupptaka. FM-steríó. LW og MW bylgjur. Hálfsjálfvirkur
plötuspilari. Vandaðir hátalarar.
. Dantax
HATALARAR
Öðruvísi hátalarar.
Topp gæði og hönnun.
Verð aðeins
kr* 17*900 stgr.
14 KAUPSTAÐUR
I MJODD - SIMI 73900
Módel
Hljómsveitin Módel varð til í kring-
um Eurovision-keppnina og lagið
Lífið er lag sem var eitt vinsælasta
lag sumarsins. Þau Eiríkur Hauks-
son, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur
Briem, Erna Þórarinsdóttir, Eva Al-
bertsdóttir og Edda Borg Ólafsdóttir
ákváðu að halda samstarfinu áfram
og gera stóra plötu. Mikið hefur ver-
ið lagt í upptökurnar og var hljóm-
borðsleikarinn Don Snow fenginn
sérstaklega til landsins til að vinna
að plötunni en hann hefur starfað
með mörgum þekktum erlendum
poppurum og kom hingað strax að
aflokinni hljómleikaferð með Tinu
Turner.
Útgefandi er Steinar hf.
Geisladiskurfra
Kór Langholtskirkju
Út er komin á 2 geisladiskum Jó- urinnsemunninnermeðsvokallaðri
hannesarpassían eftir Jóhann
Sebastian Bach.
Flytjendur eru Ólöf K. Harðardótt-
ir, sópran, Sólveig M. Björling, alt,
Michael Goldthorpe, tenór, Kristinn
Sigmundsson, bassi, Viðar Gunnars-
son, bassi, Kór Langholtskirkju og
Kammersveit Langholtskirkju.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Upptakan var gerð á tónleikum í
Langholtskirkju þann 17. apríl sl.
fyrir fullu húsi áheyrenda og annað-
ist Rikisútvarpið hana. Upptöku-
maður var Þórir Steingrímsson og
tónmeistari Bjami Rúnar Bjarnason.
Úrvinnslan fór fram hjá Finesplise
Ldt. í Englandi en Disctronics Ltd.
framleiðir diskana. Hér er um mjög
vandaða útgáfu að ræða og mun
þetta vera fyrsti íslenski geisladisk-
„DDD“ tækni. Það þýðir að vinnslan
er stafræn (digital) allt frá upptöku
til framleiðslu diskanna. Þessi aðferð
var vahn til þess að flutningurinn,
sem þótti takast mjög vel, kæmist
sem best til skila og ekki síður vegna
þess að þróun í tónlistarútgáfu bein-
ist ótvírætt inn á þessa braut. Einnig
eru væntanlegar á markaðinn
snældur með sömu upptöku.
Diskunum fylgir vönduð bók með
texta passíunnar ásamt umfjöllun
um verkið, höfund þess og flytjend-
ur, á íslensku, ensku og þýsku.
Diskhulstrið prýðir mynd úr ís-
lensku handriti frá 14. öld.
Geisladiskamir eru þegar komnir
í hljómplötuverslanir. Dreifingu
annast Taktur hf., Ármúla 15,
Reykjavík.
Á krossgötum
Út er komin hljómplata sem ber heit-
ið Á krossgötum. Á plötunni eru 10
trúarlegir söngvar í flutningi sjö
systkina, á aldrinum 19-35 ára, sem
heita Hrefna, Ingibjörg, Sigríður,
Sólveig, Þórey, Karl og Loftur
Guðnabörn.
Birgir Jóhann Birgisson hefur samið
rúmlega helming laganna á plötunni
og sá hann einnig um aUar útsetning-
ar, lék á hijómborð og stjórnaði
jafnframt upptökum. Aðrir hljóð-
færaleikarar eru Friðrik Karlsspn,
Gunnlaugur Briem, Jóhann Ás-
mundsson, Kristinn Svavarsson og
Steingrímur Guðmundsson.
Á krossgötum var hljóðrituð í Stúdí-
ói Stefi. Útgefandi er Krossgötur.
Ertu búinn að
vera svona lengi?
Laddi er búinn að vera lengi í
skemmtanaiðnaðinum og hefur
sungið og grínað á fjölda platna. Nú
er hann með fjórðu sólóplötu sína í
smíðum og jafnframt þá fyrstu sem
á er eingöngu frumsamið efni.
Hvemig honum tókst að finna tíma
til að semja öll lögin er flestum hulin
ráðgáta þar sem annir hans vegna
gríðarlegra vinsælda eru með ólík-
indum. En trúlega hefur hann fengið
hjálp frá vinum sínum, þeim Eiríki
Fjalar, Saxa lækni, Skúla rafvirkja,
Þórði gamla...
Útgefandi er Steinar hf.