Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Side 33
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
Nýjar plötur
Gleðileg jól
Fjölbreytt og efnismikil jólaplata
röjómplötuútgáfan Geimsteinn í
Keflavík hefur sent frá sér viðamestu
jólaplötu sína til þessa, 25 laga pakka
sem jafnframt kemur út á geisla-
diski. Hér er um að ræða úrval þeirra
jólalaga sem Hljómar og Geimsteinn
hafa gefið út í gegnum árið. Platan
ber heitið Gleðileg jól eftir fyrstu
jólaplötu Hljóma sem kom út á síð-
asta áratug og seldist þá upp hvað
eftir annaö.
Meðal flytjenda á þessari plötu eru
tíu eftirtaldir: Björgvin Halldórsson,
Einar Júlíusson, Engilbert Jensen,
Gunnar Þórðarson, Hljómar, Maríá
Baldursdóttir, Rúnar Júlíusson,
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Þórir
Baldursson og Þuríður Sigurðardótt-
ir.
Mörg laganna á þessari plötu eru
fyrir löngu oröin sígild í þeim flutn-
ingi sem þama er boðið upp á, s.s.
Snæflnnur snjókarl með Björgvin
Halldórssyni, Jólasveinninn minn
með Hljómum, Þorláksmessukvöld
með Þóri Baldurssyni, Ein er hátíð
meö Geimsteini, Hvít jól meö Björg-
vin Halldórssyni, Friður á jörð með
Rúnari Júlíussyni og Klukknahljóm-
ur með Þóri Baldurssyni en síðast-
nefnda lagið var gefið út í Þýskalandi
á sínum tíma, og hefur selst vel þar
fyrir hver jól. Flest þessara laga hafa
verið ófáanleg á plötum um árabil.
Þetta er tveggja platna albúm sem
einnig kemur út á kassettum og
geisladiski og prent^ðir textar fylgja
með. Lögin hafa verið hljóörituð víða
og undir stjóm ýmissa upptöku-
manna en með tilliti til nýrrar tækni
hafa öll lögin verið endurblönduð og
unnin með stafrænni (digital) tækni
og hljóma því betur en nokkm sinni
fyrr.
Draugar
„mamma var rússi“
Út er komin ný íslensk hljómplata
frá hljómsveitinni „mamma var
rússi“. Þetta er fyrsta plata hljóm-
sveitarinnar og er hún gefin út af
Rokkfræðsluþjónustunni í samvinnu
viö Takt hf.
Platan er 45 snúninga, 12 tomma
og á henni eru 7 lög, öll eftir meðlimi
hljómsveitarinnar. Platan var tekin
upp í Sýrlandi í október sl. og var
Jón Steinþórsson upptökumaður.
í hljómsveitinni eru: Stefán Guð-
jónsson - trommur, Ámi Daníel
Júlíusson - bassi, Arnór Snorrason
- gítar, Tryggvi Þór Tryggvason -
gitar, Valgarður Guðjónsson - söng-
ur, Brynja Amardóttir - söngur og
Dolly Magnúsdóttir - söngur.
Stefán hóf tónlistarferilinn í
Fræbblunum 1978. Eftir aö Fræbbl-
unum lauk lék Stefán með Vá! og
Kvöl nágrannans. Valgarður var
einnig meðlimur Fræbblanna en síð-
an í Fitlaranum á bakinu skamma
stund eftir andlát Fræbblanna.
Tryggvi var í sömu hljómsveitum og
auk þess í F8.
Amór og Ami léku fyrst í Snilling-
unum. Síöan fór Amór í Fræbblana
þar sem hann var u.þ.b. ár auk þess
sem nann starfaði með Taugadeild-
inni. Árni fór í Taugadeildina og
seinna í Q4U, Handan grafar o.fl. o.fl.
o.fl.
Þær Brypja og Dolly em að stíga
sín fyrstu skref á tónlistarbrautinni
í „mamma var rússi“.
„Mamma var rússi" var stofnuð
sumarið 1986 og fór hægt af staö.
Nokkrir hljómleikar síðastliðinn vet-
ur, þar sem áhorfendur gengu
berserksgang af hrifningu, urðu hins
vegar til þess að hljómsveitin lét til
leiðast að taka upp nokkur lög.
Tónhst „mamma var rússi“ er fyrst
og fremst ætlað að vera skemmtileg
tilbreyting. Að ööru leyti liggja tón-
Ustartaugar meðhma í aUar áttir og
gæti niðurstaðan verið hin fuU-
komna hjónabandssæla pönks og
popps eða elliUfeyrisþegaræflarokk
(„pension punk“) eins og einhver
kaUaði tónUstina.
Ég ætla
að syngja
Magnús Þór Sigmundsson tónUstar-
maður er þessa dagana erlendis á
vegum Arnar og Örlygs og leggur þar
síðustu hönd á barnalagaplötu sem
kemur á markað í byrjun desember.
Platan hefur að geyma sjö þekkt ís-
lensk barnalög og einnig sex ný eftir
Magnús sem hann hefur samið við
þekktar þulur og barnatexta. Platan
nefnist Eg ætla að syngja.
Flytjendur auk Magnúsar eru Pálmi
Gunnarsson, Jón Ólafsson (BítJa-
vinafélagið) og tíu stúlkur úr kór
Verslunarskólans. Hljóöfæraleikar-
ar eru Pálmi Gunnarsson á bassa,
Jón Ólafsson á hljómborð, Rafn
Jónsson á trommur og slagverk, Þor-
steinn Magnússon og Arnar Sigur-
bjömsson á gítar, Helgi Guðmunds-
son á munnhörpur. Jóhann
Helgason aðstoöaði við raddir. Plat-
an var tekin upp í Glaöheimum og
hljóöblönduð með stafrænni tækni
en unnin að öðru leyti í Bretlandi.
Undirbúningur að töku þessarar
plötu var á margan hátt með nýstár-
legum hætti og m.a. voru fóstrur og
börn af dagheimUum fengin til þess
að aðstoöa við efnisval. Lögin á plöt-
unni eru Ein ég sit og sauma, Ein
stutt og ein löng, Skóarakvæði, Foli
fóthpri, Út um mó, Mamma borgar,
Bíum, bíum bambaló, ÚUen dúllen
doff, Ég ætla að syngja, Vatnið, Kök-
umar hennar Gerðu, KaUi átti káta
mús og Fingraþula.
Plötunni mun fylgja textablað og á
því verða gítargrip.
Jólastund
Steinar hf. hefur gefið út jólaplötu
sem hefur þá sérstöðu að innihalda
11 íslensk jólalög sem ekki hafa kom-
iö út á plötu áður. Þeir sem flytja
lögin eru Stuðkompannö, Eyjólfur
Kristjánsson, Ríó tríó, Kristín LiUi-
endahl, Helga MöUer, Bjartmar
Guölaugsson, Sverrir Stormsker,
Hörður Torfason, Guðrún Gunnars-
dóttir og Sniglabandið. Á blaða-
mannafundi, sem haldinn var í
Stúdíó Stemmu 7. nóvember, söng 60
manna kór fjölmiðla- og listafólks
lokastefið í laginu Jólalag eftir
Bjartmar Guðlaugsson sem er á plöt-
unni Jólastund.
Stormskers
guðspjöll
Sverrir Stormsker hefur komið fólki
á óvart með fyrstu þremur plötunum
sínum fyrir óvenjulega texta og
dirfsku sína. Nú hefur Sverrir gert
samning viö Steina hf. og er meö 30
lög í vinnslu sem koma út á tvöfaldri
plötu innan skamms. Honum tfl að-
stoðar eru úrvalsmenn, s.s. Rafn
Jónsson trommari, Pálmi Gunnars-
son bassaleikari, Þorsteinn Magnús-
son gitarleikari, Ásgeir Óskarsson
trommari og Stefán Hilmarsson
söngvari.
Útgefandi er Steinar hf.
Kvöld við lækinn
Skífan hf. hefur gefið út nýja íslenska
hljómplötu sem hlotið hefur nafnið
Kvöld við lækinn.
Kristinn Sigmundsson, Halla
Margrét Ámadóttir og Jóhann
Helgason syngja lög Jóhanns við
texta margra af ástkærustu skáldum
þjóðarinnar, s.s. Halldórs Laxness,
Kristjáns frá Djúpalæk og Jónasar
Hallgrímssonar.
Kvöld við lækinn er að mörgu leyti
timamótaplata. Þetta er í fyrsta sinn
sem Jóhann Helgason reynir fyrir
sér á sviði sígildrar tónhstar og fær
til liðs við sig marga af færustu tón-
listarmönnum þjóöarinnar.
Platan er sérlega vel unnin og er
m.a. tekin upp með stafrænni tækni
(digital).
Kvöld við lækinn er tekin upp að
mestu í Norræna húsinu í október
1987 en upptöku annaðist Halldór
Víkingsson og útsetningar og tónhst-
arstjóm var í höndum Áma Harðar-
sonar.
Face
The Facts
Á fóstudaginn kom út nýjasta
hljómplata hljómsveitarinnar
STRAX.
STRAX hefur áður gefið út eina
hljómplötu sem m.a. innihélt lögin
Moscow Moscow og Look Me In The
Eye. Sú plata fór í gull á tæpri viku.
Nýjasta plata STRAX hefur hlotið
nafnið Face The Facts og er sungin
á enskri tungu.
Skífan hf. gefur út plötu þessa í
samvinnu við RCA/ARIOLA. Mikil
og þrotlaus vinna var lög í þessa
plötu og útkoman eftir því. Verið er
að leggja síðustu hönd á myndband
við titillag plötunnar, Face The
Facts, og verður það tekið til sýning-
ar nú um helgina.
Þess má að lokum geta að hin lang-
þráö heimildamynd „STRAX í Kína“
verður sýnd á gamlárskvöld í Ríkis-
sjónvarpinu.
33
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
Simi 12725
BLAÐAMAÐUR - MATREIÐSLA
DV auglýsir eftir blaðamanni sem getur annast um-
sagnir og frásagnir af matreiðslu, matargerð, matar-
innkaupum og hliðstæðu efni á neytendasíðu. Um
fullt starf er að ræða. Kjör skv. samkomulagi. Þarf
að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir
áramót, merkt: Ritstjórn DV, umsókn um blaða-
mannsstarf.
Ritstjórár
BRAUTARHOLTI 20
MÁNAKLÚBBSFÉLAGAR ATHUGIÐ!
Opið fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.
Hljómsveit Mánaklúbbsins leíkur föstudags- og
laugardagskvöld. Opið annan íjólum og nýárskvöld.
Pantið borð í tíma hjá veitingastjóra í síma 23333.
Sjáumst öll í góða skapinu.
Mölnlycke 4
Fyrr eða síðar kemstu að því að LIBERO
bleiurnar eru betri.
Þær innihalda engin kemísk bleikiefni.
Þykkastar í miðjunni þar sem þörfin er mest.
Þurrar við húðina. Tvöföld teygja.
Fjölnota límband.
Kaupfélag Hafnfirðinga
Miðvangi, sími 50292