Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
Sljómmál
Flugstoðin:
Lampar hækkuðu
um 22 milljónir
- sérsmíða þurfti flesta lampa til að framfylgja óskum húsameistara
Ámi Gunnarsson, þingmaður Al-
þýðuflokksins, tók hækkun á kostn-
aði við lampa í flugstöðinni
sérstaklega fyrir í umræðum um
flugstöðina á Alþingi í gær. Hann
sagði að samkvæmt útboöi hefðu
lampar átt að kosta 15,7 milljónir
króna en endanlegur kostnaður
vegna þeirra hefði orðið 37,8 milljón-
ir króna. Saga lampanna væri aðeins
eitt af fjölmörgum dæmum um mis-
tök sem hann vildi skrifa á kostnað
húsameistara ríkisins og skipti
hundruðum milljóna króna.
í skýrslu, sem Steindór Guðmunds-
son staðarverkfraeðingur sendi
Ríkisendurskoöun í lok október síð-
astíiðins, segir hann að á verðlagi í
dag kosti lampamir í byggingunni
um 53 milljónir króna.
í útboði var gert ráð fyrir 3.215
lömpum í flugstöðinni en við verklok
vom þeir orðnir 5.573 talsins.
Steindór rekur ítarlega hvémig
það gerðist að lampakostnaðurinn
hækkaði. Hann segir að þegar verk-
taki og eftirlit hafi verið farin að
ókyrrast mjög út af ákvörðunarleysi
þrettán vikum eftir að verktaki lagði
fram lampa til samþykktar hafi
húsameistari fariö fram á að lampar
yröu með ávölum homum, sem var
breyting frá útboði.
Húsameistari hafði einnig farið
fram á að lampar yrðú með háglans-
ristum, þrátt fyrir að framleiðandi
mælti eindregið gegn því að þær yrðu
notaðar.
„Fyrir háglansrist í staðinn fyrir
glansrist eða opalhlif bætast við
39%,“ segir í bókun verktaka.
Fleiri breytingar á lömpunum eru
taldar upp, svo sem:
„Húsameistari fór fram á krómaða
lampa. Þetta leiddi til 32% hækkun-
ar.“
„Húsameistari krafðist þess að
hom yrðu geirskorin."
„Breytingar úr einfóldum lömpum
í tvöfaida, magnaukning og svo að
smíða sér tengistykki hækkaði
verð.“
Segir að sérsmíða hefði þurft flesta
lampa til að framfylgja einhliða ósk-
mn jhúsameistara.
-KMU
Sameinast um að hækka
ríkisstyrk til þingflokka
og flokksmálgagna
Formenn allra þingflokkanna á
Alþingi hafa sameinast um breyting-
artillögu við fjárlög þess efnis að
styrkur til útgáfumála þingflokka
verði hækkaður um 17% frá því sem
ráö var fyrir gert í fjárlagafrumvarpi
í haust. Þingflokksformemúmir
leggja til að styrkurinn hækhi úr
13,5 milljónum króna upp í 15,9 millj-
ónir króna, um 2,4 milljónir króna.
Þeir leggja ennfremur til að styrk-
ur undir heitinu „sérfræðileg aðstoð
fyrir þingflokka" verði hækkaður úr
9,4 milljónum króna upp í 11,4 millj-
ónir króna.
Formenn fjögurra þingflokka, Páll
Pétursson, Júlíus Sólnes, Eiður
Guðnason og Steingrímur J. Sigfús-
son, standa auk þess saman aö tillögu
um að hækka styrk til flokksmál-
gagna sinna um 3,3 milljónir króna,
úr 26,1 milljón króna upp í 29,5 millj-
ónir króna. Formenn þingflokka
Sjálfstæðisflokks og Kvennalista, Ól-
afur G. Einarsson og Þórhildur
Þorleifsdóttir, skrifa ekki upp á þá
tillögu.
-KMU
Seðlabankinn:
Spáir 5% verðbólgu
í lok næsta árs
Seðlabankinn spáir því að verð-
bólgan verði komin niður í 5% í lok
næsta árs.
„Á þeirri forsendu að gengi verði
haldið stöðugu og laun á næsta ári
þróist almennt á þann veg sem kjara-
samningar við opinbera starfsmenn
segja til um er búist viö því að vem-
lega dragi úr verðbólgu fljótlega á
næsta ári,“ segir í greinargerð hag-
fræðideildar Seðlabankans til þing-
nefnda.
„Um mitt næsta ár verður verð-
bólgan á ársgrandvelli á fjögurra
mánaða miðsettan kvarða um 10%
og 5% viö árslok. Á milli ára verður
hækkun framfærsluvísitölu 20% og
um 11% frá upphafi til loka árs 1988,“
segir Seðlabankinn en hefur fyrir-
vara:
„Lítil vitneskja um þróun launa á
næsta ári skapar mikla óvissu um
verðbólguhorfur og mun hagfræði-
deild Seðlabankans endurskoöa
verðlagsspána þegar landverkafólk
ASÍ hefur samið um kaup og kjör.“
Seðlabankinn spáir út frá forsend-
um sínum um stöðugt gengi krón-
unnar og launabreytingar í samræmi
við samninga opinberra starfsmanna
að kaupmáttur kauptaxta rými um
5% á tímabilinu frá desember 1987
til desember 1988 og hafi þá rýrnað
um 10% frá því í júní 1987.
Út frá sömu forsendum muni vísi-
tala raungengis krónunnar hækka
úr 129 stigum upp í 140 stig frá des-
ember nú til desember 1988.
„Menn hljóta að kaupa hina sterku
krónu í Tókýó og London þegar
kauphallir verða opnaðar í fyrramál-
iö,“ sagði Svavar Gestsson, Alþýðu-
bandalagi, í þingræðu í fyrrinótt um
þessa spá Seðlabankans. -KMU
Steingrímur J. Sigfússon, þingflokksformaður Alþýðubandalagsins, sýnir
þingheimi línurit úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um flugstöðina á Kefiavíkur-
flugvelli við umræður á Alþingi í gær. Linuritið sýnir mannafla við verk-
framkvæmd, áætlun og rauntölur. Kemur fram að mannafli allt að þvi
þrefaldaðist miðað við áætlun vikurnar fyrir þingkosningarnar 25. apríl.
DV-mynd Brynjar Gauti
Utanríkisráðhena um byggingamefndina:
Átti að ganga betur frá
skýrslum og umsóknum
una.
Byggingamefnd flugstöðvar á
Keflavikurflugvelh hefði átt að gánga
betur frá skýrslugerð og umsóknum
um viðbótaifjármagn en gert var
þannig að óumdeit væri að Alþingi
hefði samþykkt slíkar breytingar, að
því er fram kom hjá Steingrími Her-
mannssyni utanríkisráðherra í
umræðum á Alþingi í gær þegar
rætt var um skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um flugstöövarbygging-
Steingrímiir sagði að byggingar-
nefndin segðist hafa aflað heimilda
og staðfesti skýrsla Ríkisendurskoð-
unar það. Sagði hann að réttara hefði
verið að byggingamefndin kæmi
upplýsingum til ríkisstjómar og Al-
þingis en til utanríkisráðherra og
kynni sá háttur að hafa verið ámæl-
isverður.
-ój
Stjómarandstaðan leggst gegn launa-
skatti á útflutningsatvinnuvegi
Minnihluti nefndarinnar leggst raunvextir eru hærri en nokkm lista, um fmmvarp ríkisstjómar- fyrir að launaskattur fyrirtækja í
gegn hækkun skatta á útflutnings- sinni fyrr.“ innar um launaskatt. sjávarútvegi og iðnaði verði 1% af
atvinnuvegina eins og hér er gert Þetta er sameiginlegt álit Svavars Stjórnarþingmenn í flárhags- og greiddum vinnulaunum en launa-
ráð fyrir. Astæöan er sú að rekstr- Gestssonar, Alþýðubandalagi, Júl- viðskiptanefnd efri deildar leggja skattur annarra fyrirtækja verði
arstaða útflutningsgreina hefur íusar Sólnes, Borgaraflokki, og hins vegar til að fmmvarpið verði 3,5%.
versnað stómm á sama tíma og Guðrúnar Agnarsdóttur, Kvenna- samþykkt óbreytt. Það gerir ráð -KMU
_ FJármálaráöhena:
Áætlanir ekki til
Líklegustu skýringuna á þvi aö
kostnaöur viö byggingu flug-
stöövar á Keflavíkurflugvelli fór
svo mjög fi-am úr áætlun sem
raun ber vitni telur Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra
þá að byggingamefndina hafi
skort yflrsýn, áætlanir hafi ekki
verið tíl og að í raun hafi enginn
vitað um heildarumfang verksins
fyrr en því var nær lokiö.
Þetta kom fram á fundi í sam-
einuöu Alþingi í gær þar sem
flugstöðvarmálið var til umræöu.
Fjármálaráðherra sagöi enn-
fremur aö skýrsla Ríkisendur-
skoðunar staðfesti að byggingar-
nefnd og utanríkisráðherrahefðu
brej-tt út af byggingaráætlun
þeirri sem Alþingi hefði sam-
þykkt, án þess að láta þing eða
fjármálayíirvöld vita. Einnig
staöfesti skýrslan að einstakir
verkþættir hefðu farið úr bönd-
um, svo sem hönnun.
Þá sagði fjármálaráöherra að
þegar byggingarnefnd hefði hald-
ið blaðamannafund í sumar, þar
sem byggingarkostnaöur hefði
verið framreiknaður til þáver-
andi verðlags, og fengið út
niðurstöðuna 66 milljónir Banda-
ríkjadala, eða 2.600 mflljónir,
hefði neflidin framreiknað upp-
haflega áætlun sem nam 42
milljónum dala. Hins vegar hefði
í þeirri áætlun verið gert ráð fyr-
ir veröbreytingum og í kostnað-
aráætluninni heföi verið reiknað
með því að byggingarkostnaður
yrði 33,5 milljónir dala og verð-
hækkanir á byggingartíma
næmu 8,5 mifljónum dala. Nefnd-
in hefði aftur á móti framreiknað
alla upphæðina og þar með kom-
ist að áðumefndri niöurstöðu.
Fj ármálaráðherra sagði að ann-
aðhvort hefði nefndin verið að
blekkja fjölmiðla og almenning
með þessum útreikningum eöa
að hún heföi ekki haft hugmynd
um hvemig kostnaðaráætlunin
hefði verið hugsuð.þráttfyrir
þá heildaryfirsýn og góðu fjár-
málastjóm sem hún státar sig
afsagði ráðherrann. -ój
Ráðherrarsekir
-segirSteingrimur J. Sigfússon
Hafi byggingamefnd haft heim-
ild til stækkunar á flugstöðinni á
Keflavíkurflugvelli væm ein-
stakir ráðherrar sekir um að
heimila framkvæmdir sem heim-
ild var ekki fyrir. Þetta kom fram
í máli Steingrims J. Sigfússonar
alþingismanns á þingi í gær þegar
rætt var um flugstöðvarskýrsl-
una.
Sagði Steingrímur að bygging-
amefhdin hefði falsað tölur þegar
hún gerði í sumar grein fyrir
kojtnaði við bygginguna. Einnig
sagði Steingrímur að tölur í
skýrslu utanríkisráðherra um
málið væm rangar og þar væm
beinar falsanir á ferðinni. Krafð-
ist hann þess að utanríkisráö-
herra drægi skýrslu sína til baka.
Þá sagði Steingrímur að í fyrra
hefði fræðslustjóra verið vikið úr
embætti fyrri að fara nokkrar
milljónir fram úr kostnaðaráætl-
un viö sérkennslu bama á
Noröurlandi eystra. Hins vegar
heföi enginn verið rekinn fyrir
að fara þúsund miljjónir fram úr
áætlun við byggingu flugstöövar.
-ój
Gaukur kosinn
umboðsmaður
Gaukur Jömndsson lagapró-
fessor var kosinn umboðsmaður
Alþingis á fundi sameinaðs þings
í gær.
Hlaut Gaukur 40 atkvæði en
Benedikt Blöndal hæstaréttarlög-
maður 1 atkvæði. Auðir seðlar
vora 9 talsins.
Kosningin gfldir til fjögurra
ara.