Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Side 11
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
11
dv Útlönd
Vilja vemda V-Þjóðverja
með frönskum atómvopnum
Gizur Helgason, DV, Liibedc
Jacque Chirac, forsætisráöherra
Frakklands, hefur boðist til þess
aö veita V-Þjóöverjum vemd meö
frönskum atómvopnum gegn hugs-
anlegri árás úr austri.
„Frakkar dragast inn í stríð án
fyrirvara ef ráöist verður á V-
Þýskaland úr austri. Varnir
Frakklands hafa fengið „evrópska“
vídd meö hinum nýju eldflaugum
sem geta borið atómvopn langt inn
á svæði árásarmanna handan
þýsks lahds.væðis. Hér verður ekki
um að ræða baráttu um V-Þýska-
land eða baráttu um Frakkland.
Öryggi Frakklands er ógnað við
austurlandamæri V-Þýskalands,“
sagði Chirac í ræðu er hann hélt
um varnir Evrópu.
Ummæli franska forsætisráð-
herrans ganga mun lengra en
ummæli Francois Mitterrand, for-
seta Frakklands, í þessa veru.
Forsetinn hefur aldrei kveðið á um
hvernig eða hvenær Frakkland
muni blanda sér í stríð í Evrópu.
Talsmaður v-þýsku ríkisstjórnar-
innar, Friedhelm Ost ríkisritari,
var beðinn um aö láta í ljósi álit
Bonnstjórnarinnar á þessum um-
mælum Chiracs. Hánn vitnaði þá í
loforð Mitterrands um að Frakkar
myndu ætíð hafa samráð við Bonn
ef frönsk atómvopnaárás stæði fyr-
ir dyrum. Ríkisritarinn minntist
einnig á fyrirhugað sameiginlegt
varnarráð Frakka og V-Þjóðveija
Forsætisráðherra Frakka, Jacques
Chirac, gengur lengra en Mitterr-
and forseti sem aldrei hefur kveðið
á um hvernig eða hvenær Frakkar
muni blanda sér í stríð í Evrópu.
Símamynd Reuter
en það verður sett á laggirnar í jan-
úar næstkomandi. Taldi hann að
hernaðarsamvinna Frakka og V-
Þjóðveija hiyti að vera tilvalið
umræðuefni í væntanlegu varnar-
ráði. Hann undirstrikaði mjög
eindregiö að þessi vamarráðssam-
vinna væri opin öllum öðmm
löndum og benti á að Spánveijar,
ítalir og Hollendingar hefðu sýnt
áhuga á samvinnu.
V/LDARK/OR
VISA
lilJRC
KRIrPIT
Allt að 11 mán.
rn'j'jj d'JJJll
j SUÐURLANDSBRAUT 26 - S(MI 84850 3 P. O. BOX 8266 - 128 REYKJAVÍK
7 litir
3ja sæta +1+1
Verð 117.000,- Stgr. 105.300,-
Verð kr. 1.950
Stereo höfuð-útvörpin
eru komin
TEHSa
Vasadiskó
m/armbandsúri
Urval
stereo
heyrnartóla
Verð frá kr. 265
Síðumúla 2, símar 689090-689091